Sviðsettir leiklestrar á nýjum verkum

Uppsprettan stendur fyrir upplestri á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói næstu þriðjudagskvöld. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust.

Lífið – stórskemmtilegt drullumall

Ljósmyndasýning, aukasýningar og leikhússpjall – Leikhópurinn 10 fingur opnar ljósmyndasýningu um sköpun sýningarinnar Lífið – Aðferðin sem hópurinn notaði er einstök, sagan varð til úr vinnu með mold – Aukasýningar á verkinu í janúar og febrúar – Að lokinni sýningu 18. janúar munu aðstandendur sýningarinnar ræða við gesti

Málarekstur Síðbúinnar rannsóknar í Tjarnarbíó

Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns Hreggviðssonar. Verkið hefur […]

Stutt og laggott í Þorlákshöfn

Langar þig að virkja listræna hæfileika þína? Semja leikrit, leikstýra, leika eða flytja tónlist? Eða kannski allt ofantalið? Leikfélag Ölfuss blæs til stuttverkahátíðar sem hefst með höfundakvöldum í janúar, æfingar fara fram á þriðjudagskvöldum í febrúar og um miðjan mars sýnum við afraksturinn. Allir sem hafa áhuga og hafa náð 18 ára aldri eru hvattir […]

Ekki hætta að anda, frumsýning 15. janúar

Fimmtudaginn 15. janúar nk. kl. 20:00 frumsýnir leikhópurinn Háaloftið í samstarfi við Borgarleikhúsið nýtt leikverk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Ekki hætta að anda. Leikstjóri er Stefán Jónsson.

Námskeið fyrir innflytjendur

Frá og með 7. janúar heldur listahópurinn „við og við“ leiklistarnámskeið í samstarfi við Borgarleikhúsið. Námskeiðið er á miðvikudagskvöldum og er opið öllum en fer fram á ensku og hentar því innflytjendum vel og öðrum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Engrar reynslu er krafist nema brennandi áhuga á leiklist og sköpun en fyrsti tíminn […]

Öldin okkar í Borgarleikhúsið

Föstudaginn 9. janúar stíga félagarnir í Hundi í óskilum á Nýja svið Borgarleikhússins og sýna nýjasta verk sitt Öldin okkar. Leikritið var frumsýnt á Akureyri  30. okt. sl. og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda. Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í óskilum setja verkið upp í tilefni af 20 ára afmælis […]

Trú, von og trúðleikur – leikdagskrá

Leikfélag Kópavogs sýnir leikdagskrána Trú, von og trúðleik, fimmtudaginn 8. jan. kl. 20.00 í Leikhúsinu Funalind 2. Á dagskránni eru 6 leikþættir af ýmsum toga; Leikboðinn eftir Örn Alexandersson, Bæn eftir Fernando Arrabal, Man það ekki alveg… eftir Nick Zagone, Charlie eftir Fjölni Gíslason og Jón Gunnar Garðarsson, Áttu íbúfen, ég er með svo mikla trúðverki […]

Leiksýning á Rifi og frí gisting

MAR er nýtt íslenskt leikverk úr smiðju Frystiklefans í Rifi. Verkið er byggt á tveim sjóslysum sem urðu við strendur Snæfellsness á síðustu öld. Fyrra slysið átti sér stað í febrúar 1962 þegar togarinn Elliði sökk út af  Öndverðarnesi. Í áhöfninni voru 28 manns. 26 björguðust. Síðara slysið gerðist í júlí 1997 þegar trillan Margrét […]

Áramótakveðja

Kæru vinir og velunnarar Bandalags íslenskra leikfélaga, við óskum ykkur öllum gleði og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samveru og samvinnu á árinu sem nú er að ljúka. Leikum núna!

Aukasýningar á Verksmiðjukrónikuni á milli jóla og nýárs

Vegna mikillar eftirspurnar verða aukasýningar á Verksmiðjukrónikuni 27. og 28. desember. Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk í verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum. Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa  t.d. á ungu stúlkurnar og bretaþvottur er ekki öllum að skapi, margar skemmtilegar og […]

Jólakveðja

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir samveru og samskipti á árinu sem er að líða. Skrifstofan og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá og með mánudeginum 22. desember. Við opnum aftur mánudaginn 5. janúar.

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja leitar að leikstjóra til að setja upp Litlu Hryllingsbúðina eftir áramótin. Starfstími er frá miðjum janúar til lok mars 2015. Umsóknarfrestur er til 29. desember 2014. Erum einnig opin fyrir öðrum hugmyndum að uppsetningu ef einhverjar eru. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á leikfelag@simnet.is

Lokunartími um hátíðarnar

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá og með mánudeginum 22. desember. Við opnum aftur mánudaginn 5. janúar. Í Leikhúsbúðinni færðu margar sniðugar jólagjafir handa fólki sem er áhugasamt um förðun og gerfi alls konar. Þið getið skoðað vörulistann hér.

Skráningar hafnar í Leiklistarskóla LA

Skráningar eru hafnar í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar vegna vorannar. Það er einvalalið kennara sem mun starfa við skólann og ásamt hinni reglubundnu kennslu munu nemendurnir kíkja á æfingar á uppsetningu Lísu í Undralandi og vera í návígi við listamennina sem að sýningunni koma. Kennarar verða : Benedikt Karl Gröndal, leikari, Brogan Davison, danshöfundur, Margrét Sverrisdóttir, leikkona, Pétur […]

Jóladagatal Leikfélags Hólmavíkur

Leikfélag Hólmavíkur birtir jólaleikritið Jóladagatalið í útvarps/netútgáfu núna fyrir jólin. Stykkið var upphaflega samið og sýnt fyrir jólin 1989.  Þættirnir eru 13 og koma eins og jólasveinarnir, einn á dag á vef Leikfélagsins næstu daga. https://www.youtube.com/watch?v=cdTmQK_0S8w&feature=youtu.be

Æfingar hefjast á Billy Elliot

billy.fors

Í vikunni hófust æfingar á stórsýningunni Billy Elliot. Sýningin er sú stærsta sem Borgarleikhúsið hefur sett upp en 68 listamenn taka þátt í henni, það eru 33 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Frumsýning er áætluð 5. mars. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og hafa verið í hörðu dansnámi síðastliðna 8 mánuði undir stjórn […]

Hættuför í Huliðsdal aftur á svið

haettufor_poster

Sýningar á barnaleikritinu Hættuför í Huliðsdal sem var sýnt fyrir troðfullu húsi á síðasta leikári hefjast á ný í Kúlunni þann 20. desember næstkomandi. Aðeins er boðið upp á örfáar sýningarhelgar. Áhorfendur og gagnrýnendur á öllum aldri lofuðu sýninguna sem var tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins og m.a. sögð „í senn þrælspennandi, bráðskemmtileg og […]

MP5 í Tjarnarbíói

mp5

Leikhópurinn Sómi þjóðar frumsýnir þann 5. desember í Tjarnarbíói leikritið MP5 eftir þá Hilmir Jemsson og Tryggva Gunnarsson í leikstjórn þeirra beggja.  MP5 gerist um borð í alþjóðlegri geimstöð í nálægri framtíð. Lífið í geimnum er ljúft, enda samanstendur þetta litla afmarkaða samfélag af vel menntuðum, víðsýnum, friðsömum og umburðalyndum einstaklingum.

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

augasteinn

Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London 2002, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom ævintýrið einnig út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda æ síðan. Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu […]

Árleg aðventusýning Þjóðleikhússins

leitinadjolonum

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá frumsýningu á aðventunni 2005. Fyrsta sýningin í ár verður laugardaginn 29. nóvember og er hún númer 220 í röðinni. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar fyrri ára og hafa 22.000 gestir á öllum aldri komið í leikhúsið á aðventunni í […]

Jesús litli kemur með jólin

jesuslitli

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 27. nóvember. Þetta er í fimmta sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar […]

Jólasýning Borgarbarna í Iðnó

mammagje

Jólasýning Borgarbarna 2014 heitir  Mamma Gjé?.  Þetta er níunda árið sem Borgarbörn setja upp jólasöngleik sem ætlaður er öllum aldurhópum og stílað er inn á fjölskylduskemmtun. Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og kraftmikla dansa. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir og henni til aðstoðar er […]

Strandaglópar í Kópavogi

Strandaglopar_250x180

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs sýnir frumsamið leikrit er nefnist Strandaglópar, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 19.00. Leikritið segir frá hópi fólks sem verður skipreika á eyðieyju þar sem ýmsar hættur leynast. Leikstjóri er Guðmundur L. Þorvaldsson og Helga Björk Pálsdóttir hefur verið honum til aðstoðar. Sex leikarar taka þátt í sýningunni sem tekur um 30 mín. í flutningi.. […]

Hugleikur með óperu til Belgíu

operan

Sýning leikfélagsins Hugleiks, Hin einkar hörmulega ópera um grimman dauða Píramusar og Þispu, hefur verið valin til þátttöku á leiklistarhátíð Alþjóða áhugaleikhúsráðsins, AITA/IATA í Belgíu næsta sumar. Á hátíðinni verða sýningar frá öllum heimshornum, en hún er haldin annað hvert ár og er ein helsta hátíð áhugaleikhúshreyfingarinnar í heiminum.

Coming Up í Tjarnarbíói

comingup

Verðlaunadansverkið Coming Up verður sýnt aftur einu sinni í nóvember í Tjarnarbíó í nóvember. Coming Up er samstarf tveggja danshöfunda og dansara, þeirra Katrínar Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur. Verkið var frumsýnt árið 2013 í Tjarnarbíó og fékk frábærar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda.Coming Up hlaut grímuverðlaunin 2013 í flokknum „danshöfundar ársins“ og var verkið […]

Byrjendanámskeið í leiklist í Hafnarfirði

namskeid

Mánudaginn 24. nóvember hefst leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar fyrir fullorðna 18 ára og eldri. Þetta námskeið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið og að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gísli Björn Heimisson, formaður LH og á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum hin ýmsu form leiklistar. Þetta er kvöldnámskeið og […]

Hamlet litli fyrir blinda og heyrnarlausa

hamletlitli2

Verðlaunasýningin Hamlet litli er kominn í sýningu aftur og vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að bjóða aftur upp á sýningu fyrir blinda og heyrnarlausa. Sú sýning verður sunnudaginn 23. nóvember kl. 17.00 og verður hún táknmálstúlkuð og sjónlýst. Ath. aðeins þessi eina sýning.

Töfraflautan fyrir börn

tofraflautan

Hin ástsæla ópera Mozarts, Töfraflautan, verður flutt í styttri útgáfu fyrir börn í Norðurljósum í Hörpu næsta sunnudag, 16. nóvember, á tveimur sýningum, kl. 13.30 og kl. 16. Að sýningunni standa Íslenska óperan, Harpa og Töfrahurð, sem nýverið gaf út bók eftir Eddu Austmann Harðardóttur byggða á óperunni. Í sýningunni er fuglafangarinn Papagenó í hlutverki […]

Þið munið hann Jörund

jorundur

Eða hvað? Muniði ekki eftir honum Jörundi úr sögubókunum, hann kom til Íslands árið 1809 og gerðist kóngur um hundadagana.  Hét víst Jörgen upp á dönsku enda upprunninn þar og  þótti  erfiður drengur og ódæll, prakkari og stríðnispúki. Hann var því snemma sendur á sjóinn og sigldi með bretum í mörg ár. Eða muniði kannski […]

Næstu sýningar á Enginn með Steindóri

enginnmedst

Leikfélag Ölfuss sýnir leikritið Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Axel Bergmann Sigurðsson, Árný Leifsdóttir, Benjamín Hallbjörnsson, Erla Dan Jónsdóttir, Hilmar Kristberg Jónsson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir og Ólöf Þóra Þorkelsdóttir. Sýnt verður í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.

Áheyrnarprufur hjá Leikfélagi Akureyrar

lisa

Leikfélag Akureyrar frumsýnir hið fyndna og undursamlega verk Lewis Carroll„ Lísu í Undralandi“ í nýrri leikgerð Margrétar Örnólfsdóttur og við tónlist eftir dr. Gunna í Samkomuhúsinu í lok febrúar 2015. Leikstjóri verður Vignir Rafn Valþórsson, Sigríður Sunna Reynisdóttir hannar leikmynd og búninga og með hlutverk Lísu fer Thelma Marín Jónsdóttir.

Upp, upp í Gerðubergi

uppupp

Stoppleikhópurinn frumsýnir leikritið Upp, upp eftir Valgeir Skagfjörð. Leikritið segir uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins. Verkið byggir að stærstum hluta  á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum fremur hefur gert Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði Símonardóttur skil í verkum sínum.

Fangi freistinganna í Tjarnarbíói

fanginn

Fangi freistinganna er gjörningur sem mun fara fram í anddyri Tjarnarbíós frá 14. nóvember kl. 17.00 til 15. nóvember kl. 17.00. Jóhanna Lind Þrastardóttir, 26 ára gömul leikkona, stendur fyrir gjörningnum: „Ég ætla að loka mig þar inni í 24 klukkustundir umkringd þeim freistingum sem mér finnst erfiðast að standast án þess að falla fyrir […]

Dansverk í Frystiklefanum

mirte

Föstudagskvöldið 14. nóvember heldur belgíski dansarinn Mirte Bogaert sýningu á nýju verki í Frystiklefanum á Rifi. Mirte hefur haft aðsetur í klefanum frá því í byrjun október og unnið ötullega að þessu nýja dansverki sem sækir innblástur sinn í náttúruna og veðrið á Snæfellsnesinu.

Fullkomið brúðkaup á Hellu

fullkomid_brudkaup

Föstudagskvöldið 7. nóvember kl. 20.30 frumsýnir Leikfélag Rangæinga Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í Hellubíói á Hellu. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson og Örn Árnason þýddi verkið. Fullkomið brúðkaup er sprúðlandi farsi þar sem mannlegur breiskleiki og illa ígrundaðar lygar koma af stað atburðarás sem getur ekki endað nema á einn veg. Með ósköpum.

Lokasýning á Hamskiptunum

hamskiptin

Leiksýning Vesturports Hamskiptin verður sýnd í allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 19. nóvember. Með aðalhlutverk í sýningunni fer Gísli Örn Garðarsson. Sýningin hefur nú verið sýnd að nýju við frábærar viðtökur í Þjóðleikhúsinu og er um að gera að festa sér miða á þessa mögnuðu sýningu hið allra fyrsta!

Auaksýning á Elskhuganum

LK-Elskhuginn-250x187_stripped

Uppselt er á síðustu sýningu, föstudag 7. nóv. á Elskhuganum eftir Harold Pinter sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt undanfarið. Bætt hefur verið við aukasýningu þriðjudaginn 11. nóvember. Viðtökur gesta hafa verið mjög góðar og má m.a. benda á lofsamlega umsögn Árna Hjartarsonar hér á Leiklistarvefnum en hann segir að Elskhuginn sé „… sýning sem áhugafólk […]

Útlenski drengurinn í Tjarnarbíói

utlenski

Útlenski drengurinn er gamanleikur með alvarlegum undirtóni fyrir stálpaða krakka sem fullorðna. Dóri DNA leikur Dóra litla sem er vinsælasti strákurinn í bekknum þangað til hann er látinn taka svokallað Pítsa próf sem snýr öllu lífi hans umsvifalaust á hvolf. Hann er sviptur grundvallarmannréttindum og látinn bíða örlaga sinna innilokaður í myrkvaðri skólastofu. Verkið veltir […]

Ragnheiður snýr aftur í desember

ragnheidur

Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson snýr aftur á svið Íslensku óperunnar í desember, eftir mikla sigurgöngu síðastliðið vor. Alls urðu sýningar á óperunni þrettán talsins í Eldborg í Hörpu og komust færri að en vildu. Sýningin hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar og var í kjölfarið valin Sýning ársins 2014, auk þess sem […]