Berserkur í Tjarnarbíói

Berserkur er nýtt verk skrifað og þróað af Spindrift Theatre sem sameinar raunveruleika okkar og skáldskap Lísu í Undralandi. Frásagnarlist Carrolls skapar áhugaverðan grunn fyrir áþreifanlegan og tilraunakenndan leikstíl leikhópsins. Hópurinn nýtir sér galsafull og ryþmísk skrif Carrolls, „bulltexta“ hans í bland við þulur og álíka norræna frásagnalist. Frumsýning er 9. apríl kl. 20.00

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2015

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Melum í Hörgárdal dagana 2. og 3. maí 2014. Gist verður í Skjaldarvík. Leikfélag Hörgdæla býður öllum fundargestum í óvissuferð eftir kvöldverð föstudaginn 1. maí. Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 2. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 3. maí.

Atry Hour #12 í Tjarnarbíói í kvöld

Tólfta listastundin verður sneisafull af spennandi sviðslistaverkum. Arty Hour er sá tími sem þeir listamenn sem annað hvort eru að vinna að verkum sínum og/eða sýna í Tjarnarbíó kynna, deila og opna fyrir umræður á hugmyndum sínum. Viðburðurinn er ekki einungis fyrir listamenn og áhorfendur heldur einfaldalega fyrir alla þá sem hafa áhuga.

Barið í brestina, síðustu sýningar

Leikdeild Skallagríms sýnir um þessar mundir gamanleikinn Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson. Sýnt er í Lyngbrekku og eru síðustu sýningar dagana 25. 26. og 27. mars og aukasýning 4. apríl. Leikritið gerist á sambyggðri heilsugæslustöð og elliheimili á einum degi, segir frá lífi fólksins sem þar býr og starfar og […]

Þöggun á Möðruvöllum

Þöggun er saga þriggja skáldkvenna, Ólafar frá Hlöðum, Skáld Rósu og Guðnýjar frá Klömbrum. Verk um konur úr Eyjafirðinum, sem sáu um heimilið, búsýsluna og gerðu það sem ekki mátti, þær skrifuðu! Vakin er athygli á kvenskáldunum okkar. Bókmenntasagan skipar nefnilega ekki eintóm karlkynsskáld, þeirra minningu hefur hingað til bara verið haldið hærra á lofti. […]

Fjalla–Eyvindur og Halla

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 26. mars á Stóra sviðinu eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta, Fjalla–Eyvind og Höllu eftir Jóhann Sigurjónsson, í uppsetningu Stefan Metz. Sögur af útilegumanninum Fjalla-Eyvindi og hinni stórlyndu ástkonu hans, Höllu, sem uppi voru á átjándu öld hafa lifað góðu lífi með íslensku þjóðinni allt fram á okkar daga.

Sokkabandið frumsýnir Hystory

Leikhópurinn Sokkabandið frumsýnir nýtt íslenskt verk, Hystory, eftir Kristínu Eiríksdóttur sem var nýverið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í Borgarleikhúsinu 27. mars, 2015. Leikkonurnar Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Birgitta Birgisdóttir fara með hlutverkin í sýningunni en flær Elma Lísa og Arndís Hrönn hafa rekið Sokkabandið í um áratug og sett upp fjölmargar vandaðar […]

Er ekki nóg að elska?

Föstudaginn 20. mars kl 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu verkið Er ekki nóg að elska? eftir Birgi Sigurðsson. Birgir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fyrri verk sín. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir og fremst í flokki leikara er Kristbjörg Kjeld.

Síðasta sýning á Óþarfa offarsa

Af óviðráðanlegum orsökum þarf að hætta sýningum á Óþarfa offarsa hjá Leikfélagi Kópavogs fyrr en áætlað var. Síðasta sýning verður sun. 15. mars. Verkið segir af borgarstjóra sem liggur undir grun um fjárdrátt og tveimur lítt hæfum lögreglumönnum sem undirbúa gildru á móteli til að standa hann að verki. Samband annars lögreglumannsins við kynsveltan endurskoðanda í […]

Nýjar vörur frá Kryolan

Leikhúsbúðin var að taka upp nýja sendingu af förðunarvörum frá Kryolan: Cine-Wax og FX Wax, Blóð í 100 og 50 ml. flöskum, Fresh Scratch sultublóð, Sealor, Litahjól, Supracolor 12 lita box, U.V. Dayglow, bæði stakir litir og 10 lita box, litað hárspray, Mastix Spirit Gum, T.V. Paint Stick o.fl. Engin verðhækkun. Kíkið á vörulistann hér.

Galdrakarlinn í Oz fluttur á Þingeyri

Leikdeild Höfrungs á Þingeyri gerir það ekki endasleppt í leiklistinni. Í fyrra var settt á svið ævintýrið um Línu Langsokk sem sló öll met og var sýnt aftur og aftur. Enn er bætt í því núna er það sjálft ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz. Æfingar hafa staðið yfir frá því í lok janúar og nú […]

Minnisvarði í Tjarnarbíói

Leikhópurinn 16 elskendur kynna nýtt verk um sjónarspilið, ástina og samfélög mannanna. Jörðin er sléttari en billjardkúla. Minnisvarði er nýtt verk eftir 16 elskendur þar sem tekist er á við mikilvægi sjónarspilsins innan nútíma samfélags.Á undanförnum áratug hefur hversdagslegt líf einstaklingsins verið gert að stórfenglegu sjónarspili og rík áhersla lögð á möguleika hvers og eins á að […]

Einn kosss enn .. frumsýning 7. mars

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir  laugardaginn 7. Mars kl 20.00 leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.

Segulsvið í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 12. mars í Kassanum nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Ung kona áttar sig á því að það sér hana enginn í erfidrykkju eiginmannsins sem drap sig úr dugnaði. Hún hefur alltaf verið bakhliðin á eiginmanninum og veit ekki lengur hver hún er.

Billy Elliot í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 6. mars kl 19.00 frumsýnir Borgarleikhúsið stærstu sýningu sem sett hefur verið upp í húsinu en 69 listamenn taka þátt í henni, það eru 34 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.

Litli leikklúbburinn 50 ára

Litli leikklúbburinn á Ísafirði heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári. Og er margt á döfinni á næstu mánuðum. Leikklúbburinn frumsýnir gamanleikinn „Kallarðu þetta leikrit?!“ eftir Ágúst T. Magnússon í Edinborgarhúsinu 21. mars n.k. Um er að ræða samtíma gamanleik með 3 hurðum og söngvum, kossaflensi og kinnhestum. Fjallað er um tilveru […]

Einar Áskell á Brúðuloftinu

Aðstandendur Brúðuheima, þau Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir, eru nýkomin heim eftir fjögurra mánaða sýningarferð með sýningu sína Umbreytingu um Suður-Asíu og Mið-Austurlönd. Til að fagna heimkomunni bjóða þau nokkrar sýningar á litríkri sýningu sinni um hinn skemmtilega snáða Einar Áskel á Brúðuloftinu, sem er byggð á sögum Gunillu Bergström, áður en þau halda […]

Arty Hour #11 í Tjarnarbíói

Arty Hour er viðburður á Tjarnarbarnum þar sem listamenn við vinnu í Tjarnarbíó stíga fram og segja frá verkum sínum. Listastundin er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Tjarnarbíós að opna vinnusmiðjur listamanna fyrir áhorfandanum og hvetja til umræðna. Umræðuefnin í listastund Tjarnarbíós í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, ná milli Írans og Íslands, fjalla um Prómeþeif úr […]

Fiðlarinn á þakinu í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, söngleikinn Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í þýðingu Þórarinns Hjartarsonar. Leikstjórar eru þau Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, tónlistarstjóri er Brynjólfur Brynjólfsson og bróðir hans Ingvar Brynjólfsson sér um leikmynd.

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Vegna gífurlegrar aðsóknar verður leikritið Konan við 1000°, sem byggir á vinsælli skáldsögu Hallgríms Helgasonar, frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudagskvöld. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Kassanum frá því í september og hlotið frábærar viðtökur. Þetta er fyrsta frumsýning leikstjórans Unu Þorleifsdóttur á Stóra sviðinu.

Bót og betrun á Selfossi

Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn, 27. febrúar, gamanleikinn BÓT OG BETRUN eftir Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu […]

Sweeney Todd á Hólmavík

Um þessar mundir setur Leikfélag Hólmavíkur upp leiksýninguna Sweeney Todd – morðóði rakarinn við Hafnagötuna. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson og í leikarahópnum er góð blanda yngri og reynslumeiri áhugaleikara. Þessi magnaða sýning býður upp á ferðalag um allan tilfinningaskalann – blóð, svita og tár!

Spilltur borgarstjóri og kynsveltur endurskoðandi

Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda í næsta herbergi einfaldar ekki framvinduna. Þegar við þetta bætast svo óöruggur öryggisvörður úr Ráðhúsinu, illskiljanlegur leigumorðingi og elskuleg borgarstjórafrú er […]

Einn koss enn í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim […]

Sterkar konur í Tjarnarbíói

  Oft er rætt um að þáttur kvenna sé lítill í leiklistarheiminum, en þær Súsanna Svavarsdóttir, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, Aldís Davíðsddóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir láta svo sannarlega að sér kveða. Þær munu ræða sína sérhæfingu innan greinarinnar þriðjudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.00 í Tjarnarbíói.

Workshop/audition hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Sunnudaginn næstkomandi, 15. febrúar, mun Leikfélag Hafnarfjarðar vera með workshop/audition fyrir næstu leiksýningu sína. Vinnubúðirnar verða frá kl. 13 – 17 í Gúttó, Suðurgötu 7, í Hafnarfirði. Sýningin verður devised uppsetning á einu frægasta verki franska absúrdismans; Bubbi kóngur eftir Alfred Jarry. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir sem er að góðu kunn fyrir allt mögulegt.

KADA, leiklistarnámskeið í Tjarnarbíói

KADA, The Kogan Academy of Dramatic Arts, er einn af leiðandi einkaskólum í leiklist á Englandi. Hann er víða þekktur fyrir aðferðir sínar, sem eru byggðar á kerfi Stanislavski. Stofnandi skólans, Sam Kogan, lærði undir nemanda Stanislavski og ákvað að þróa kenningar hans lengra, eftir að hann flutti frá Rússlandi til Englands.

Uppsprettan, breytt tímasetning

Uppsprettan hefur, undanfarin þriðjudagskvöld, staðið fyrir upplestrarröð á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust. Nú er komið að þriðja verkinu sem lesið og í þetta sinn verður leiklesturinn á fimmtudagskvöldið 12. […]

Brennuvargar í Samkomuhúsinu á Húsavík?

Heyrst hefur að tveir brennuvargar hafi hreiðrað um sig á loftinu hjá herra Biedermann, í gamla Samkomuhúsinu á Húsavík. Hvort rétt reynist kemur í ljós kl. 16.00 laugardaginn 7. febrúar þegar Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Brennuvargana eftir Max Frisch í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Bjarni Jónsson þýddi verkið.

Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói

Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl. 13.00 og 15.00 laugardaginn 14. febrúar.

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú er hins vegar svo komið að sýningin verður að víkja úr Kassanum, fyrir Segulsviði eftir Sigurð […]

Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn sem þau stíga á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu.

Halaleikhópurinn frumsýnir Tíu litla strandaglópa

Halaleikhópurinn setur á svið morðsögu eftir drottningu glæpasagnanna, Agöthu Christie, Tíu litlir strandaglópar (And then there were none), í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýning er föstudaginn 30. janúar kl. 20.00. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“ og hefur starfað óslitið síðan. Í þessum hóp er fötlun hvorki […]

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford leiklistarháskólin mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 21. og 22. mars 2015. Rose Bruford er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London. Námið hefst í október 2015.

Arty Hour #10 í Tjarnarbíói

Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram. Arty Hour er haldinn á Tjarnarbarnum, aðgangur er ókeypis og að venju eru ljúffengar veitingar í boði á […]

Uppsprettan – skyndileikhús

Næst sýning Uppsprettunnar – skyndileikhúss, verður mánudaginn 9. Febrúar. Uppsprettan, sem hefur verið að hasla sér völl í íslensku leihúslífi, hefur það að markmiði að kynna nýja íslenska höfunda og gefa leikurum og leikstjórum tækifæri á að sýna sig og hæfileika sína. Undanfarið höfum við haldið utan um æfða leiklestra á verkum í fullri lengd […]

Eldbarnið, söfnun á Karolina fund

Skaftáreldar eru sögusvið Möguleikhússins í nýju barnaleikriti, þar sem þessir afdrifaríku atburðir Íslandssögunnar eru séðir frá sjónarhóli barns. Lítil stúlka virðist mega sín lítils þegar veröldin tekur hamskiptum og hætturnar virðast búa við hvert fótmál. En hugrekki og hjartahlýja reynast tryggir förunautar á óvissutímum.  Eldbarnið verður frumsýnt í Tjarnarbíói laugardaginn 7. febrúar. Hér er slóð á […]

Danssýning í Frystiklefanum á Rifi

Föstudaginn 30. janúar verður haldin opin sýning á verkinu sem Oupa Sibeko hefur þróað og æft upp í Frystiklefanum. Verkið ber heitið Martröð. Sýningin hefst klukkan 20.00 og tekur um 20 mínútur í flutningi. Ókeypis aðgangur.

Bót og betrun hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á farsanum Bót og Betrun eftir enska leikskáldið Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar […]

Nýtt verk frá höfundi Dags vonar

Á morgun, þriðjudaginn 20. janúar kl. 10, verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á nýju verki eftir Birgi Sigurðsson. Er ekki nóg að elska? er raunsæ og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem má ekki koma upp á yfirborðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir þar úrvalsliði leikara en Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk og […]