Leikklúbburinn Saga frumsýnir Núna

Miðvikudaginn 10. maí frumsýnir Leikklúbburinn Saga nýtt verk sem hefur hlotið nafnið Núna. Verkið er skrifað af hópnum í samvinnu við leikstjórann Guðjón Þorstein Pálmarsson og byggir á sögum úr lífi þeirra sjálfra. Sýnt er í Útihúsinu, Hafnarstræti 73.

Þjóðleikhúsið og Icelandair gera samstarfssamning

Þjóðleikhúsið og Icelandair undirrituðu föstudaginn 5. maí samstarfssamning. Markmið hans er að auðvelda Þjóðleikhúsinu að fara til útlanda með íslenska leiklist. Leikför með Eldhús eftir máli – Hversdagslegar hryllingssögur til Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn markar upphaf samstarfsins. Ráðgerðar eru tvær sýningar dagana 30. og 31. maí.

Þuríður og Kambsránið í Þjóðleikhúsið

Dómnefnd Þjóðleikhússins tilkynnti val á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2005-2006 á aðalfundi BÍL sem haldinn var á Seltjarnarnesi um helgina. Sýning Leikfélags Selfoss, Þuríður og Kambsránið, varð fyrir valinu og verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins 11. júní nk. Frekari upplýsingar um sýninguna er að finna á vef Þjóðleikhússins.

Leikfélag Hólmavíkur sýnir í Mosfellsbæ

Sunnudaginn 7. maí sýnir Leikfélag Hólmavíkur uppsetningu sína á Fiskum á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Kolbrúnar Ernu Pétursdóttur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Sýningin hefst hún klukkan 19:00. Miðapantanir og uppl. eru í síma 865-3838 eftir kl. 16:00  sunnudaginn 7. maí.

Enn af Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu

Nú er verið að leggja lokahönd á undirbúning Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalagins í Borgarleikhúsinu. Hér er smá uppfærsla á upplýsingum um hátíðina…

Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður! frumsýnt

Fimmtudagskvöldið 4. maí verður ný barnasýning, Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður!, frumsýnd á Litla sviði Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss LHÍ. Verkið er unnið í samvinnu Völu Þórsdóttur, leikstjórans Ágústu Skúladóttur og leikhóps.

Stuttverkahátíðin Margt smátt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 5. maí kl. 19:00 verður stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, Margt smátt, haldin á Litla sviði Borgaleikhússins. Þar sýna átta aðildarfélög Bandalagsins 13 stuttverk sem vel flest eru samin af leikskáldum innan raða þess.

Aukasýningar á Hungri

Aukasýningar verða á Hungri eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem leikhópurinn Fimbulvetur sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið. Tvær stúlkur með anorexíu ákveða að fara í hættulegan leik, og offitusjúklingur með brotna sjálfsmynd finnur sér loks maka sem dýrkar hvern einasta blett á henni.Hungur er sálfræðitryllir um stjórnun, ást, kynlíf, fegurð og leit að fullkomnun.

Áhugaleiksýning ársins

Nú nálgast óðum eitt dramatískasta augnablik leikársins hjá áhugaleikfélögunum. Um næstu helgi verður tilkynnt um val Þjóðleikhússins á áhugaleiksýningu ársins. Að venju verður þetta gert á hátíðarkvöldverði Bandalagsþings, sem að þessu sinni verður í Félagsheimili Seltjarnarness laugardagskvöldið 6. maí nk.

Fjórar frumsýningar á einum degi í Borgarleikhúsinu

Sunnudaginn 30. apríl, verða frumsýndar hvorki fleiri né færri en fjórar sýningar í Borgarleikhúsinu. Þessar sýningar hafa reyndar allar verið sýndar við miklar vinsældir á öðrum vettvangi en þetta eru Fullkomið brúðkaup, Mike Attack, Tenórinn og Typpatal. Sýningar þessar eru hluti af Hláturhátíðinni sem standa mun yfir allan maí og mun Borgarleikhúsið verða iðandi af […]

Með vífið í lúkunum á Sauðárkróki

Sunnudaginn 30. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann hefur áður leikstýrt þremur leikritum fyrir Leikfélag Sauðárkróks, Bláa hnettinum, Ertu hálf-dán? og Síldin kemur og síldin fer.

Síðustu sýningar á Glæpur gegn diskóinu

Aðeins eru tvær sýningar eftir Glæpur gegn diskóinu eftir Gary Owen sem Steypibaðsfélagið Stútur hefur að undanförnu sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sú fyrri er föstudaginn 28. apríl en sú seinni föstudaginn 5. maí.

Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006

Norræna leikhúsráðið (Nordisk Teaterunion) ákvað á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 23. apríl að Kari Hotakainen frá Finnlandi hlyti norrænu leikskáldaverðlaunin fyrir leikritið Punahukka (Border Crossings/Arvelige Faktorer).

Litli Kláus og Stóri Kláus á Seltjarnarnesi

Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl kl. 14:00. Þetta er fjörugt fjölskydustykki fyrir unga jafnt sem aldna, eftir Lisu Tetzner byggt á sögu H.C.Andersen. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson.

Leikskáldið Edward Bond kemur til Íslands

Breska leikskáldið Edward Bond er gestur Félags leikskálda og handritshöfunda, Hafnarfjarðarleikhússins og Breska sendiráðsins á fyrirlestri og sýnikennslu (Masterclass) í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 29. apríl kl. 10-16. Allir áhugamenn um leikhús og leikritun eru velkomnir á þennan einstaka viðburð. Þar mun Edward Bond fjalla um leikritun sína og vinna með leikurum í atriðum úr tveimur leikrita […]

Síðasta sýning á Rítu í Iðnó

Laugardaginn 29. apríl  verður síðasta sýning leikhópsins Kláusar á Rítu eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó sem sýnt hefur verið undanfarin rúman mánuð við ágætar undirtektir áhorfenda. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson. Um hönnun og leikmynd verksins […]

Leikfélag Kópavogs frumsýnir ALF

Fimmtudaginn 27. apríl frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikverkið ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi.

Leikfélag Mosfellssveitar á Hvammstanga

Laugardaginn 29. apríl klukkan 17:00 mun Leikfélag Mosfellssveitar sýna á Hvammstanga leikritið Í beinni eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur.  Samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni.  Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó […]

Þetta mánaðarlega Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum

Fimmtudaginn 27. og sunnudaginn 30. apríl verður Hugleikur með sitt mánaðarlega prógramm í Þjóðleikhúskjallararnum. Í þetta skiptið er aðeins eitt verk á dagskrá en það er leikrit í tveimur þáttum er nefnist Lán í óláni og er eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjórar eru Sigurður H. Pálsson og Rúnar Lund.

Sérkjör fyrir systur á Systur

Leikfélagið Hugleikur sýnir þessa dagana leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu við Hlemm. Verkið fjallar um dramatíska endurfundi þriggja systra sem eiga skrautlega fortíð sem setur sterkan svip á samskipti þeirra og lífshætti. Verkið hefur fengið sterkar og góðar viðtökur, ekki síst hjá systrum, sem margar þykjast kannast við ýmislegt í samskiptum persónanna úr […]

Söngleikjanámskeið í Færeyjum

Ertu 18-25 ára og hefur áhuga á söngleikjum? Ef svarið er já, þá býður Vest-norræna ungmennaráðið til söngleikjanámskeiðs í Færeyjum í sumar.

Fiskar á þurru landi á Hólmavík

Leikritið Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen sem Leikfélag Hólmavíkur hefur verið að æfa undanfarnar vikur var frumsýnt um páskana.

Óperan Mærþöll frumflutt

Nemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík frumsýna laugardaginn 22. apríl óperuna Mærþöll. Höfundur tónlistar og texta er Þórunn Guðmundsdóttir, leikstjóri er Hrefna Friðriksdóttirr og hljómsveitarstjóri Kjartan Óskarsson.

Þrek og tár í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir, síðasta vetrardag, 19 apríl  leikritið Þrek og Tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Jens Sigurðsson er leikstjóri og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa. 2. sýning verður 21. apríl og rennur aðgangseyrir þeirrar sýningar til hjálparsveitar skáta í Hveragerði.

The Big Cry í Kassanum

Margmiðlunar-, söng- og leiksýningin The Big Cry verður sýnd í Kassanum miðvikudaginn 12. apríl nk. kl. 21:00. Verkið, sem er gestasýning í Þjóðleikhúsinu, verður einungis sýnt þrisvar sinnum. Höfundur og flytjandi er Margrét Sigurðardóttir.

Sirkusskóli á Seyðisfirði

Fyrirhugað er að halda 10 daga sirkusskóla með nýsirkustækni fyrir leikara og annað áhugafólk eldri en 18 ára á Seyðisfirði dagana 5. – 14. júlí, ef áhugi er fyrir hendi. Leiðbeinendurnir eru faglærðir sirkus listamenn og kennarar, útskrifuð frá skóla Cirkus Cirkör sem margir kannast við. Þau hafa tekið þátt í fjölmörgum sirkussýningum og kennt […]

Leiklistarskóli BÍL 2006 – Skráningafrestur framlengdur

Vegna páskahátíðarinnar og annarra frídaga nú um miðbik aprílmánaðar hefur frestur til að skrá sig á námskeið Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga verið framlegndur til 10. maí. Enn eru laus pláss á framhaldsnámskeið í leikstjórn (Sigrún Valbergsdóttir) og sérnámskeið fyrir leikara (Steinunn Knútsdóttir). Sjá nánar hér.

Hugleikur frumsýnir Systur

Miðvikudaginn 12. apríl frumsýnir Hugleikur leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason og hlutverkin eru höndum nokkurra af öflugustu leikkonum félagsins, þær Hulda B. Hákonardóttir, Júlía Hannam, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir. Systur verða sýndar í Möguleikhúsinu við Hlemm.

Sýningar á Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu

Nú er orðið ljóst hvaða leikfélög verða með sýningar á Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldin verður í Borgarleikhúsinu 5. maí nk. Átta leikfélög verða með alls 14 sýningar, vel flest samin og leikstýrð af meðlimum félagana.

Sveyk – Skopleg stríðsádeila í Brautarholti

Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði sýnir um þessar mundir verkið Sveyk – Skopleg stríðsádeila eftir Bertold Brecht í leikgerð og leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Þýðinguna gerðu Þorsteinn Þorsteinsson og Þórarinn Eldjárn. Sýnt er í félagsheimilinu Brautartungu í Lundareykjadal og hefjast sýningar kl. 21:00.

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Blessað barnalán

Föstudaginn 7. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri uppfærslunnar er Akureyringurinn Sunna Borg. Sunnu þekkja flestir fyrir störf sín hjá LA, en í gegnum tíðina hefur hún leikið þar hjá félaginu fjölda eftirminnilegra hlutverka, haldið námskeið og leikstýrt. Þetta er í fyrsta sinn er Sunna leikstýrir hjá Leikfélagi Dalvíkur.

Aukasýningar á Hungri

Ákveðnar hafa verið þrjár aukasýningar á Hungri sem Fimbulvetur ehf setti upp fyrr í vetur. Verkið hefur hlotið mikið umtal og lof og afar vel hefur selst á þær tíu sýningar sem búnar eru og um 1700 manns hafa þegar séð verkið.  Fimbulvetur ehf og Borgarleikhúsið hafa nú ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á […]

Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Anímanína

Miðvikudaginn 5. apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Anímanína. Verkið er samið af meðlimum Stúdentaleikhússins og Víkingi Kristjánsssyni, sem jafnframt leikstýrir. Verkið er allt það sem leikhús hefur upp á að bjóða. Söngur og dans, dramatík og furðulegheit. Sýnt er í Loftkastalanum og hefjast sýningar kl 20:00

Hvað kemur þetta okkur við?

– Um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál – Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir umræðufundi í Leikhúskjallaranum laugardaginn 1. apríl kl. 15:00.   Leiklistarsamband Íslands hefur undanfarin ár efnt til umræðufunda um leiklist og leikhússtarfsemi. Í þetta sinn eru umræðufundirnir haldnir í samstarfi við fræðsludeild Þjóðleikhússins. Yfirskrift fundanna er ,,Hvað kemur þetta okkur við?” og efni þeirra […]

Tveir tvöfaldir frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur

Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00.

Frumsýning á Átta konum í Þjóðleikhúsinu

Þann 31. mars verður gamanleikurinn Átta konur eftir Robert Thomas, í þýðingu og aðlögun Sævars Sigurgeirssonar, frumsýndur  á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en um tónlistarstjórn sér Samúel J. Samúelsson.

Leikfélag Selfoss með heiðurssýningu

Þann 2. apríl nk. verður sérstök heiðurssýning á Þuríði og Kambsráninu hjá Leikfélagi Selfoss til að heiðra minningu Ólafar Österby (fædd 1. apríl 1906, lést 19. janúar 1995). Ólöf var í fyrstu stjórn leikfélagsins árið 1958 og ári seinna var hún kosinn sem formaður og gegndi því starfi í eitt ár. Hún kom margoft fram […]

Leynist kvikmyndastjarna í þér!

Sunnudaginn 2. apríl stendur Kvikmyndafélag Íslands fyrir opinni áheyrnarprufu fyrir ævintýragrínmyndina ASTRÓPÍA Í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar, sem tekin verður upp í sumar.   Leikarar jafnt sem áhugafólk er hvatt til að mæta í áheyrnarprufur sem standa yfir frá 10:00 til 17:00 í NEXUS hverfisgötu 103.   Athugið við leitum af fólki frá 17 ára […]