Leikfélagið Sýnir heimsækir Hellissand

Leikhópurinn sem æfir nú af kappi Máf Tsjekoffs á vegum Leikfélagsins Sýnis hélt um sl. helgi til Hellisands þar sem æft var af kappi auk þess sem hópurinn sýndi stutt götuleikhúsatriði á bæjarhátíð Sandara sem haldin var hátíðleg um helgina.

Penetreitor í Sjóminjasafni Reykjavíkur

Leikhópurinn Vér morðingjar sýnir um þessar mundir leikverkið Penetreitor, eftir skoska leikskáldið Anthony Neilson en sami hópur setti þetta verk upp sl. sumar undir nafni Reykvíska listaleikhússins. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir.

Aukasýning á Himnaríki í kvöld

Vegna fjölda áskoranna verður Leikfélagið Hallvarður Súgandi með aukasýningu á Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar í kvöld, miðvikudaginn 12. júlí. Sýnt er í íþróttahúsi Súgfirðinga og miðapantanir eru í síma 8617060 og á vefsíðu félagsins http://www.hallvardur.is

Handritasafn Bandalagsins stækkar

Handritasafn Bandalagsins hefur að undanförnu tekið hressilegan vaxtarkipp. Því hefur borist mikið af handritum að loknu leikári hjá aðildarfélögum Bandalagsins og stóru leikhúsunum en einnig hefur það fengið tvær handritagjafir þar sem talsvert hefur verið af leikritum sem af einhverjum ástæðum hafa ekki ratað hingað fyrr.

Leikfélagið Sýnir æfir Mávinn

Leikfélagið Sýnir æfir nú stíft fyrir frumsýningu á Mávinum eftir Rússann Anton Tjekhov. Frumsýnt verður þann 29. júlí næstkomandi við Elliðaár, en margir muna eftir uppsetningu leikfélagsins þar á Draumi á Jónsmessunótt fyrir þremur árum. Leikstjóri Mávsins er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Denni, sem leikstýrði Stútungasögu í Heiðmörk hjá félaginu fyrir tveimur árum.

Sakamál á svið!

31 hugmynd að sakamálum fyrir svið bárust Leikfélagi Reykjavíkur á vordögum en leikfélagið stendur fyrir samkeppni um sakamálaleikrit í samstarfi við SPRON.    

Himnaríki á Suðureyri

Fimmtudaginn 6. júlí næstkomandi frumsýnir Leikfélagið Hallvarður Súgandi leikritið Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Frumsýningin verður klukkan 20:00 í íþróttahúsi Súgfirðinga.

Leiklistarskólinn okkar viðfangsefni Út og suður

Gísli Einarsson og Freyr Arnarsson heimsóttu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga að Húsabakka í Svarfaðardal þann 15. júní sl. og festu á filmu það sem fyrir bar ásamt því að taka viðtöl við skólastýrur, kennara og nemendur. Þátturinn verður á dagskrá Sjónvarpsins sunudaginn 2. júlí kl. 19.35.

Act alone á Ísafirði 29. júní – 2. júlí

Kómedíuleikhúsið stendur árlega fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og […]

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

Laugardaginn 24. júní heldur Leikfélag Hafnarfjarðarárlegan aðalfund sinn í húsnæði leikfélagsins á jarðhæð gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði. Fundurinn stendur frá 17:00 til 19:00. Á dagskrá eru almenn aðalfundarstörf og kjör stjórnar. Farið verður yfir liðið leikár og skipulag þess næsta. Þá verður starfsemi leikfélagsins kynnt fyrir nýjum félögum. ALLIR velkomnir sem áhuga hafa […]

Skólanum slitið í 10. sinn

Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga var slitið að Húsabakka í Svarfaðardal í tíunda sinn s.l. sunnudag. Þær skólastýrur Gunnhildur Sigurðardóttir og Sigríður Karlsdóttir létu af störfum við það tækifæri eftir að hafa stýrt skólanum öll þessi 10 ár.   Voru þær kvaddar og þeim þakkað frábært sjálfboðaliðastarf fyrir skólann, því víst er að án þeirra sívakandi umhyggju […]

Undir Sjöstjörnu í Þjóðleikhúsinu

Í ár eru liðin 50 ár frá því stjórnmálasamband var tekið upp á milli Japans og Íslands. Af því tilefni verða fjórar japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu, tvær í vor og tvær í haust. Fyrsta sýningin var danssýningin Genji í Kassanum en 25. júní er röðin komin að sýningu ACO Okinawa – Undir Sjöstjörnu sem sýnd […]

Handhafar Grímunnar 2006

Íslensku leiklistarverðlaunin 2006, Gríman, voru afhent með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu sl. föstudag. Sýning Þjóðleikhúsins, Pétur Gautur, var sigurverari hátíðarinnar, var valin sýning ársins og Baltasar Kormákur leikstjóri ársins auk þess sem hún hlaut þrjú leikaraverðlaun af fjórum.

GRÍMAN – Símakosning hafin!

Nú er vefhluta áhorfendaverðlaunanna lokið og símakosningin hafin. Þær leiksýningar sem lentu í fimm efstu sætunum eru tilnefndar og er kosið um þær í símakosningunni. Kosningunni lýkur í beinni útsendingu Sjónvarpsins í kvöld um kl. 21.

Varríus bloggar um Grímuna

Jæja, Gríman verður veitt á morgun í Borgarleikhúsinu. Það er nú alltaf gaman. Fór að gamni í gegnum tilnefningarnar og spáði í spilin, hverja ég teldi myndu vinna, hverra ég sakna úr tilnefningalistunum og hverjir eru þar ómaklega að mínu mati. Sá auðvitað ekki allt, og er sérvitur mjög, svo það verður að taka þessu […]

Tilnefningar til Grímunnar 2006

Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar, voru nýskeð kynntar í Borgarleikhúsinu af Viðari Eggertssyni, formanni LSI og Björk Jakobsdóttur, leikkonu. Forseti Íslands og verndari verðlaunanna, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti tilnefndum viðurkenningarskjöl.

Námskeið í leiklist og söng

Söng- og leiklistarskólinn SÖNGLIST og BORGARLEIKHÚSIÐ standa fyrir námskeiðum í leiklist og söng fyrir börn og unglinga í sumar.  SÖNGLIST hefur verið starfandi síðan 1998, þar af þrjú síðustu árin í samstarfi við BORGARLEIKHÚSIÐ, þar sem skólinn er til húsa. Eins og ávallt, munu einungis fagmenntaðir kennarar sjá um kennslu. 

Fyrsti samlestur hjá Sýnum

Miðvikudagskvöldið 7.júní kl. 20:00 verður fyrsti samlestur á leikriti sumarsins hjá Leikfélaginu Sýnum.  Einnig verður upplýst um tilhögun og skipulag. Leikið verður undir berum himni á höfuðborgarsvæðinu og farið í æfingabúðir og leikferð en til að byrja með verður lesið og æft inni við.

25 tímar – Dansleikhús/samkeppni LR og ÍD haldin í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 8. júní klukkan 20 verður dansleikhús/samkeppni Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins haldin í fjórða skipti. Þar fá upprennandi dansleikhúshöfundar úr ýmsum áttum (dansarar, leikarar, listamenn…) 25 klukkustundir til að skapa stutt dansleikhúsverk. Að sýningu verkanna lokinni verður skorið úr um hvert verkanna er best.

Laus pláss á námskeið Ágústu Skúla

Vegna forfalla hafa losnað 2 pláss á námskeiði Ágústu Skúladóttur í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 10. til 18 júní nk.

Frá Leikfélaginu Sýnum

Leikfélagið Sýnir auglýsir fund um sumarstarfið. Fundur verður haldinn á morgun, laugardaginn 3. júní, kl. 17:30 í Leikfélaginu Sýnum (eða Sýni) Umræðuefni fundarins er sumarstarfið. Allir sem hafa áhuga á að starfa með í sumar eru hvattir til þess að mæta en einnig þeir sem luma á hugmyndum þó að þeir geti ekki starfað með […]

RSAMD með inntökupróf í Tjarnarbíói

Leiklistarskólinn, RSAMD (Royal Scottish Academy of Music and Drama), sem staðsettur er í Glasgow, verður með inntökupróf í Tjarnarbíói, sunnudaginn 4.júní, kl.10:00.  Prófin standa til klukkan 17:00.

Frumsýning hjá Leikfélagi Kópavogs

Fimmtudagskvöldið 1. júní frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs leikritið Dans eftir Hrund Ólafsdóttur en hún leikstýrir einnig verkinu. Aðstoðarleikstjóri er Arnar Ingvarsson.

VÍS og VISA í samstarf við Borgarleikhúsið

VÍS og Vísa Ísland hafa gengið til samstarfs við Borgarleikhúsið um uppsetningu á farsanum Viltu finna milljón og var samstarfssamningur undirritaður á Nýja sviði Borgarleikhússins að viðstöddum listamönnum sýningarinnar, þann 11.maí síðastliðinn.

Áhorfendaverðlaun Grímunnar 2006

Uppskeruhátíð sviðslista á Íslandi fyrir leikárið 2005-6, Gríman, verður haldin í fjórða sinn í Borgarleikhúsinu föstudaginn 16. júní 2006. Áhorfendaverðlaun Grímunnar gefa leikhússgestum kost á að velja bestu sýningu ársins að þeirra mati. Í fyrra var söngleikurinn Óliver valinn besta sýning ársins af áhorfendum.

Jaðarleikhúsið sýnir Agnes- high quality

Jaðarleikhúsið í samvinnu við Dan Kai Teatro sýnir Agnes- high quality í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði föstudaginn 2. júní næstkomandi. Leikarar og leikstjórar eru Gemmu Rowan og Sakuru Tanaka.  Sýningin er í tengslum við Bjarta daga í Hafnarfirði.

Einleikjahátíð á Ísafirði

Kómedíuleikhúsið stendur árlega fyrir leiklistarhátíðinni ACT ALONE á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og […]

Bananabikarinn

Keppni í leikhússporti á milli Leikfélags Reykjavíkur og Leikfélags Akureyar fer fram fimmtudaginn 25.maí (Uppstigningardag). Keppnin hefst klukkan 22:30 á Litla sviðinu.  

Skagaleikflokkurinn í Mosfellsbæ

Skagaleikflokkurinn sýnir nýtt verk „Hlutskipti“ eftir Kristján Kristjánsson á kosningadaginn þann 27. maí í Bæjarleikhúsi þeirra Mosfellinga. Sýningin verður kl. 19.00.

Athyglisverðasta áhugasýningin

Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur nú valið athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2005-2006 og varð sýning Leikfélags Selfoss, Þuríður og Kambsránið, fyrir valinu. Þuríður og Kambsránið verður sýnd í Kassanum föstudagskvöldið 2. júní kl. 20:00.

Japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu

Í ár eru liðin 50 ár frá því stjórnmálasamband var tekið upp á milli Japans og Íslands. Af því tilefni verða fjórar japanskar gestasýningar í Þjóðleikhúsinu, tvær í vor og tvær í haust.  Fyrsta sýningin verður danssýningin Genji í Kassanum 7. og 8. júní nk. en 25. júní er röðin komin að sýningu ACO Okinawa […]

Leiklistarnámskeið á Akureyri

Undanfarin misseri hefur Leikfélag Akureyrar staðið fyrir námskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl og uppselt á öll námskeið. Á leiklistarnámskeiðum læra nemendur að koma fram, öðlast sjálfstraust, læra undirstöðuatriði í sviðstækni, efla sköpun og einbeitingu og vinna skemmtileg verkefni í samvinnu við aðra nemendur. Síðast líðið sumar sóttu 80 nemendur námskeið […]

Síðustu sýningar á ALF í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs auglýsir síðustu sýningar á ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi.

Frumsýning á Viltu finna milljón

Á morgun föstudag 19.maí frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Nýja sviði Borgarleikhússins, gamanfarsann Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney. Landslið grínara fer á kostum í þessum frábæra gamanleik í snilldarþýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.  

Fréttir frá aðalfundi

Breytingar á stjórn og lögum Bandalagsins Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldin var í Félagsheimili Seltjarnarness dagana 6.-7. maí sl. urðu þær breytingar á stjórn Bandalagsins að Ingólfur Þórsson (Freyvangsleikhúsinu) og Þorgeir Tryggvason (Hugleik) komu inn í aðalstjórn í stað Harðar Sigurðarsonar (Leikfélagi Kópavogs) og Júlíusar Júlíussonar (Leikfélagi Dalvíkur) sem hvorugur gáfu kost á […]

Hugleikur til Rússlands

Þriðjudaginn 16. maí heldur leikfélagið Hugleikur til Rússlands og tekur þátt í tveimur leiklistarhátíðum þar í landi í boði rússneska áhugaleikhússambandsins með sýninguna Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur.

Norðurlandahraðlestin-sviðsettir leiklestrar

Þriðjudaginn 16/5 og miðvikudaginn 17/5 verður boðið uppá sviðsetta leiklestra á Litla sviði Borgarleikússins. Verkefnið er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Listahátíð og Leiklistarsamband Íslands. Leiklestrunum er ætlað að kynna þau verk sem tilnefnd eru til norrænu leiklistarverðlaunanna. Um leiklesturinn sjá leikarar Borgarleikhússins og útskriftarhópur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands.  

Fyrir luktum dyrum

Heimspeki- og menningarfélag Menntaskólans á Akureyri í samstarfi við Leikklúbbinn Sögu standa fyrir uppsetningu á leikritinu Fyrir luktum dyrum eftir Jean-Paul Sartre. Verkið er sett upp eftir þýðingu Ásgeirs Berg Matthíassonar, nema á fjórða ári við Menntaskólann. Einhverjir kunna að þekkja hann sem fyrirliða Gettu Betur liðs MA. Skúli Gautason leikari og leikstjóri með meiru […]

Lokasýningar á Pókók

Að undanförnu hefur Halaleikhópurinn verið að sýna Pókók eftir Jökul Jakobsson. Aðsókn hefur verið góð og sýningin fengið góða dóma. Nú er komið að lokasýningum og verða þær laugardaginn 13. maí  og sunnudaginn 14. maí kl. 20.00.

Stefnumót við Pinter

Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík standa fyrir málþingi um Harold Pinter sunnudaginn 14. maí kl. 14 á Stóra sviði Þjóðleikhússins í tengslum við frumsýningu Þjóðleikhússins á leikriti Pinters, Fagnaði. Michael Billington, sem er einn þekktasti leiklistargagnrýnandi Breta og höfundur ævisögu Pinters, flytur framsöguerindi.