Þráinn Karlsson fagnar 50 ára leikafmæli
Þráinn Karlsson hefur starfað hjá LA í fimm áratugi og var meðal þeirra leikara sem fyrst fengu fastráðningu þegar LA varð atvinnuleikhús árið 1973. Síðan þá hefur hann farið með mörg hlutverk fyrir félagið, stór og smá. Þar má meðal annarra nefna Sganarelle í Don Juan, Skrifta-Hanns í Ævintýri á gönguför, Þórð í Stalín er […]
Memento mori til Færeyja
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur valið sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur til að vera fulltrúi Íslands á 4. NEATA-leiklistarhátíðinni sem fram fer í Færeyjum dagana 2.-8. ágúst nk. Sýningin er eins og kunnugt er samvinnuverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Örleikritasamkeppni framhaldsskólanema
Mánudagskvöldið 27. mars, á alþjóðlega leikhúsdaginn, verða úrslit í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna kynnt. Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir samkeppninni. Alls bárust á þriðja tug handrita hvaðanæva að af landinu. Fimm leikrit voru valin til flutnings í Kassanum, nýju leiksviði Þjóðleikhússins. Flytjendur eru nemendur í þriðja bekk leiklistardeildar LHÍ en leikstjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. […]
Ávarp á alþjóða leikhúsdaginn 27. mars 2006
Segjum svo að manneskja standi upp í fjölmenni og heimti athygli viðstaddra þá er það ekki endilega leiklistarviðburður. En ef manneskjan fer upp á kassa er það í áttina, gæti þó verið framboðsræða eða predikun, jafnvel kynning á nýrri tannkremstegund. Ef manneskjan talar mjög hátt og tilgerðarlega, syngur og dansar eða hreyfir sig óvenjulega, klæðist […]
Gauragangur á Höfn
Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagana, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er sérlega uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og tónlistarstjórn annast Jóhann Morávek en hljómsveitin Ný dönsk samdi […]
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Hodja frá Pjort
Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort sem byggt er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en leikgerðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Ingvar Bjarnason.
Leikfélag Sauðárkróks æfir Vífið
Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen, er annað verkefni Leikfélags Sauðárkróks á leikárinu og verður frumsýnt í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl nk. Verkið var m.a. sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku leikhúsgrúppunni við fantagóðar undirtektir árið 2001 og fjallar um John nokkurn Smith sem er ósköp venjulegur maður […]
Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum eina ferðina enn
Leikfélagið Hugleikur hefur staðið fyrir mánaðarlegum skemmtidagskrám í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur undir yfirskriftinni Þetta mánaðarlega. Dagskrá marsmánaðar verður fimmtudag og sunnudag næstkomandi og hefst kl. 21, en húsið opnar kl. 20.30.
Dimmalimm sýnt í Möguleikhúsinu
Einleikurinn Dimmalimm verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis á sunnudag kl. 14. og 16. og verða þetta einu almennu sýningarnar í Reykjavík. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur Dimmalimm á svið og hafa sýningar verið síðustu vikur í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu við góðar undirtektir. Leikurinn er byggður […]
Dagrenning æfir Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni
Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði er um þessar mundir að setja upp verkið Sveyk í seinni heimstyrjöld eftir Bertold Brecht. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson og er ætlunin að frumsýna þann 31. mars nk. Sýnt verður í félagsheimilinu Brautartungu. 19 leikarar taka þátt í sýningunni en 25 manns koma að sýningunni í heild. Í helstu […]
LA frumsýnir Litlu hryllingsbúðina
Föstudaginn 24. Mars frumsýnir LA stórsýningu vetrarins, söngleikinn ástsæla, Litla hryllingsbúðin. Verkið sló í gegn snemma á níunda áratugnum þegar það var frumsýnt og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Andrea Gylfadóttir. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson.
Leikfélag Hveragerðis æfir Þrek og tár
Æfingar standa nú yfir á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson hjá leikfélagi Hveragerðis. Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir verkinu og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa. Margir leikarar eru í sýningunni eða 10 karlar og 7 konur og tók nokkurn tíma fyrir leikfélagið að lokka til sín karlleikara. […]
Viltu finna milljón?
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Nú eru að hefjast æfingar í Borgarleikhúsinu á óborganlegum farsa sem hefur fengið nafnið Viltu finna milljón? Gamanleikurinn verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í maí. Landslið grínara situr nú og les sjóðheitt, nýútprentað handritið í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikarar eru: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur […]
Nunnulíf í Vestmannaeyjum
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir laugardaginn 18. mars leikritið Nunnulíf sem byggt er á kvikmyndinni Sister Act. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir, kórstjóri er Helga Jónsdóttir. Sýnt er í Bæjarleikhúsinu.
Frumsýning í Frumleikhúsinu
Leikfélag Keflavíkur í samvinnu við Vox Arena, leikfélag fjölbrautaskóla Suðurnesja, vinna nú saman að nýju verkefni. Verkefnið, sem hlotið hefur nafnið: "KEFLAVÍK, ÍSLAND, ALHEIMURINN eða MAMMA ÞÍN" verður frumsýnt í Frumleikhúsinu föstudaginn 17. mars, kl 20:00.
Kláus frumsýnir Rítu í Iðnó
Sunnudaginn 19. mars mun leikhópurinn Kláus frumsýna gamanleikinn Ríta eða „Educating Rita“ eftir Willy Russell í Iðnó. Með hlutverk Rítu fer Margrét Sverrisdóttir og prófessor Frank leikur Valgeir Skagfjörð. Um leikstjórn og þýðingu verksins sér Oddur Bjarni Þorkelsson.
Umsóknarfrestur á NEATA-hátíðina að renna út
Þann 15. mars rennur út frestur til að sækja um að komast á Leiklistarhátíð Norður-evrópska áhugaleikhúsráðsins sem í þetta sinn verður haldið í Þórshöfn í Færeyjum dagana 3. til 8. ágúst. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum.
Krossgötur – málþing um Pétur Gaut
Í tilefni af sýningu Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen standa Þjóðleikhúsið og norska sendiráðið fyrir málþingi um þetta stórvirki leikbókmenntanna laugardaginn 18. mars kl. 15:00 í Kassanum. Sýning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut, í leikgerð og leikstjórn Baltasars Kormáks, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og leikhúsgesta. Hér er á ferðinni eitt af meistarverkum Henriks […]
Stúdentaleikhúsið æfir nýtt verk
Stúdentaleikhúsið er nú að æfa nýtt leikrit sem frumsýnt verður 2. apríl í Loftkastalanum. Víkingur Kristjánsson hefur verið fenginn til að leikstýra hópnum að þessu sinni, og er verkið samið af leikhópnum í samvinnu við hann. Víkingur hefur getið sér gott orð á undanförnum árum, og þá sérstaklega í Vesturporti, þar sem hann hefur meðal […]
Klaufar og kóngsdætur kveðja
Síðasta sýning á Klaufum og kóngsdætrum í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 12. mars kl. 13:00 og er þá rétt um ár síðan verkið var frumsýnt og hafa yfir 10.000 manns séð verkið. Klaufar og kóngsdætur er leikgerð þeirra á Ármanns Guðmundssonar, Sævar Sigurgeirssonar og Þorgeirs Tryggvasonar á nokkrum af ævintýrum HC Andersen í tilfefni af 200 ára […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Pókók
Laugardaginn 11. mars mun Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra, frumsýna leikritið Pókók, fyrsta leikverk Jökuls Jakobssonar. Þegar verkið var skrifað vakti það vonir um að mikið leikskáld væri í fæðingu, sem og varð raunin. Jökull er eitt besta leikskáld sem við höfum átt. Verk hans eru stórbrotin umfjöllun um samtímann, sálarkima mannskepnunnar og á stundum […]
Þuríður og Kambsránið frumsýnt
Leikfélag Selfoss frumsýnir þann 10. mars í Leikhúsinu við Sigtún, leikritið Þuríði og Kambsránið, nýtt verk eftir formann félagsins Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Verkið fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um eitt þekktasta sakamál 19. aldarinnar, Kambsránið. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson.
Fullkomið brúðkaup í Borgarleikhúsið
Nú hefur verið gengið frá samningum um sýningar á hinum geysivinsæla gamanleik, Fullkomnu brúðkaupi, í Reykjavík. Sýningarnar hefjast í lok apríl og verða í Borgarleikhúsinu. Miðasala hefst í miðasölu Borgarleikhússins nú á föstudag, 10. mars. Fullkomið brúðkaup hefur slegið öll met hjá LA og er aðsóknarmesta sýning í sögu leikhússins. Sýningin hætti fyrir fullu húsi […]
Ljóðs manns æði
Fræðsludeild Þjóðleikhússins og fjórir stuðningsmenn ljóðsins hafa tekið höndum saman um að halda nokkrar ljóðaskemmtanir á þriðjudagskvöldum í Leikhúskjallaranum næstu vikurnar.
Sister Act í Garðabæ
Leikfélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ kynnir söngleikinn Sister Act, eftir samnefndri kvikmynd (Sister Act II) sem naut mikilla vinsælda snemma á tíunda áratug síðustu aldar.
Nafnlaust en ljótt fullorðinsverk að fæðast
í Hjáleigunni í Kópavogi svitnar þessa dagana hópur leikara ásamt leiðbeinendum sínum Oddi Bjarna Þorkelssyni leikstjóra og Margrétar Sverrisdóttur leikkonu. Unnið er að sýningu sem vonandi verður á fjöl komin í lok mars og eru efnistök blóðugt háð og óhuggulegt grín í garð taumlausrar útlitsdýrkunar. Samsæriskenningar spretta og andspyrnuhreyfingar verða til og allt kristallast það […]
Æfingar hefjast á Fiskum á þurru landi
Leikfélag Hólmavíkur hefur hafið æfingar á leikritinu Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen. Leikstjóri er Kolbrún Erna Pétursdóttir. Fjórir leikarar eru í sýningunni, tveir karlmenn og tvær konur. Fyrsti samlestur var 1. mars sl. og frumsýning áætluð eftir sex vikur eða á Skírdag 13. apríl. Eins og alltaf hjá leikfélaginu verða nokkrar sýningar á […]
Forsala hafin á Litlu hryllingsbúðina
Leikfélag Akureyrar hefur hafið er forsölu á söngleikinn Litla hryllingsbúðin sem frumsýndur verður 24. mars n.k. Boðið er upp á sérstakt tilboð á fyrstu 1000 miðunum sem seljast í forsölu, því þá fylgir geisladiskurinn með tónlistinni úr sýningunni með í kaupbæti. Innan skamms kemur út geisladiskur með tónlistinni úr verkinu. Diskurinn hefur að geyma […]
Æfingar hafnar á Vælukjóa
Leikfélag Reyðarfjarðar æfir nú í samvinnu við Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað söngleikinn Vælukjói (Cry baby). Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Æfingar hófust upp úr miðjum janúar og frumsýning verður 31 mars. Þetta er samstarfsverkefni er byggt upp og í kringum Listahátíðina Sprotann sem Verkmenntaskólinn stendur fyrir í sömu viku og frumsýnt verður. Leikarar í verkinu koma […]
Pétur Gautur frumsýndur í Kassanum
Laugardaginn 4. mars verður Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen frumsýndur í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri er Baltasar Kormákur en með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur er vígslusýning Kassans, sem er nýtt svið í Þjóðleikhúsinu.
Virkjunin eftir Elfriede Jelinek í Þjóðleikhúsinu
Frumsýning á Virkjuninni eftir Nóbelsverðlaunahafann Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjánsdóttur verður á Stóra sviði Þjóðleikhússins þann 3. mars nk. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Blessað barnalán í Biskupstungum
Föstudaginn 24. febrúar frumsýnir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í Aratungu. Frumsýningin hefst klukkan 21:00. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.
Sakamál á svið!
Borgarleikhúsið efnir til samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit. Opinn umræðufundur, um íslensk sakamál og íslenska dægurmenningu, verður haldin í tengslum við Samkeppni um íslenskt sakamálaleikrit sem Borgarleikhúsið stendur fyrir um þessar mundir. Fundurinn verður haldinn Þriðjudagskvöld 28.febrúar kl.20 í forsal Borgarleikhússins og er opinn öllum. Af hverju eru sakamál svona vinsæl á íslandi í dag? Eru […]
Kjallarakvöld með Kurt Weill
Á sunnudagskvöldið, lokakvöldi Vetrarhátíðar í Reykjavík, verður boðið upp á dagskrá í Leikhúskjallaranum þar sem tónlist Kurt Weill verður í fyrirrúmi. Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir Túskildingsóperuna eftir þá Bertolt Brecht og Kurt Weill. Tónlistin í verkinu er leikshúsgestum og tónlistarunnendum að góðu kunn. Í Túskildingsóperunni birtast öll helstu höfundareinkenni Kurts Weills. Þótt sterkra áhrifa gæti […]
Kardemommubærinn frumsýndur í Freyvangi
Þann 25. febrúar næstkomandi verður frumsýnt í Freyvangi leikverkið Kardemommubærinn. Þetta þekkta leikrit kannast flestir ef ekki allir við og persónurnar, er Torbjörn Egner skapaði af sinni alkunnu snilld, eru góðkunningjar barna jafnt sem fullorðinna um heim allan.
10 aukasýningar á Forðist okkur
Hin umtalaða leiksýning Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson verður tekin til sýningar að nýju á Litla sviði Borgarleikhússins í mars. Sýningin fékk afar góðar viðtökur í haust jafnt hjá gagnrýnendum sem og almenningi og komust færri að en vildu. Forðist okkur er samstarfsverkefni CommonNonsense og Nemendaleikhússins.
Fimbulvetur frumsýnir Hungur
Leikritið Hungur eftir Þórdísi Elvu Þovaldsdóttur Bachmann verður frumsýnt þann 18. febrúar í Borgarleikhúsinu. Átraskanir eru vágestur sem vert er að beina kastljósum að. Rop, prump, garnagaul og önnur búkhljóð í aukahlutverki.
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í beinni
Föstudaginn 17. febrúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu og hefst sýningin klukkan 20:00. Verkið heitir Í beinni og er eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni.
Papar í útvarpsleikhúsinu
Þau ykkar sem eru ekki enn sofnuð eða hafið fleygt ykkur í sófann til að horfa á Desperate Housewives, hafa kannski áhuga á að vita að í útvarpinu á Rás 1, fimmt. 16 febrúar kl.22.20, verður flutt áhugavert leikrit eftir írska leikskáldið Brian FitzGibbon, sem búsettur er hér á landi. Verkið, sem heitir PAPAR, er […]
Leiklistarhátíð NEATA í Færeyjum
Dagana 3. til 8. ágúst 2006 heldur Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið sína fjórðu leiklistarhátíð, og nú í Þórshöfn í Færeyjum. Til hátíðarinnar er boðið leiksýningum frá Danmörku, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Færeyjum. Umsóknarfrestur er til 15. mars.