Snúður og snælda frumsýna í Iðnó

Nýtt íslenskt leikverk, Ráðabruggið og bland í poka eftir Sellu Páls, Bjarna Ingvarsson og leikhóp Snúð og Snældu, verður frumsýnt í Iðnó laugardaginn 16. febrúar kl. 14. Verkið gerist á vistheimili þar sem aldraðir búa. Vistheimilið er 50 ára og í tilefni þess hefur hópur vistmanna tekið að sér að æfa upp skemmtidagskrá. Dagskráin inniheldur […]
Mary Poppins frumsýnd á Stóra sviðinu

Föstudaginn 22. febrúar kl. 20 verður söngleikurinn Mary Poppins frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (15 leikarar, 17 […]
Fyrirheitna landið frumsýnt 23. febrúar

Þann 23. febrúar mun Þjóðleikhúsið frumsýna Fyrirheitna landið, nýtt verðlaunaleikrit eftir breska leikskáldið Jez Butterworth, á Stóra sviðinu. Fyrirheitna landið (Jerusalem) var frumflutt hjá Royal Court leikhúsinu í London árið 2009 og hlaut strax frábærar undirtektir og hefur verið sýnt við miklar vinsældir beggja vegna Atlantshafsins. Verkið hefur sópað að sér verðlaunum og hefur meðal […]
Æfingar hafnar á Sjóræningjaprinsessunni

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið æfingar á barna- og fjölskylduleikritinu Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Það er gaman að geta sagt frá því að á fyrsta samlestur mættu yfir 20 manns og enn skemmtilegra að allir sem vildu fengu hlutverk. Tónlistin í verkinu er eftir Ármann sjálfan ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta gerir […]
Styrkir til atvinnuleikhópa 2013

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 82 verkefna. Þá bárust 4 umsóknir um samstarfssamning til lengri tíma og 4 umsóknir um rekstrarstyrki. Á fjárlögum 2013 eru 89,8 milljónir króna á fjárlagaliðnum „Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa“ en voru á síðasta ári […]
Hjólastólasveitin í Gaflaraleikhúsinu

Miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20.30 mun uppistandsgengið Hjólastólasveitin ganga af göflunum í Gaflaraleikhúsinu. Tilgangur félagsins er að skemmta fólki með uppistandi víðs vegar, innan lands sem utan. Vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra í samfélaginu og efla heilsu allra landsmanna með hlátri. Hjólastólasveitina skipa þau Ágústa Skúladóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, […]
Grease í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja hefur hafið æfingar á stórsöngleiknum Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, en félagið undirritaði samning við Nordiska ApS um sýningarétt á verkinu í nóvember síðastliðinn. Almennar æfingar hófust mánaðarmótin janúar/febrúar, en dansæfingar hófust fyrir áramót og ganga þær mjög vel.
Tengdó – Sigurvegari Grímunnar 2012 snýr aftur

Tengdó – Sönn saga um leitina að sannleikanum, snýr aftur á fjalir Borgarleikhússins 7. febrúar. Í Tengdó birtist sönn saga ástandsbarns sem leitar föður síns áratugum saman. Við fylgjumst með djúpstæðri þrá barnsins til að kynnast uppruna sínum en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag. Í sögunni takast á gleði og sorg […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn setur um þessar mundir á svið fjölskylduleikritið Rympa á ruslahaugnum í leikstjórn Herdísar Rögnu Þorgeirsdóttur. Frumsýnt verður sunnudaginn 10. febrúar, í Halanum, Hátúni 12. Höfundur verksins er Herdís Egilsdóttir kennari, sem kenndi lengst af við skóla Ísaks Jónssonar. Herdís hefur gefið út heilmikið af bókum, sjónvarpsefni og leikritum fyrir börn. Hún hefur hlotið ótal […]
Ormstunga/Ástarsaga í Borgarleikhúsinu

Ormstunga/Ástarsaga, leikverk byggt á Gunnlaugs sögu Ormstungu eftir óþekkta konu eða mann í leikgerð Benedikts Erlingssonar og Halldóru Geirharðs, verður frumsýnt þann 8. febrúar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Gunnlaugs saga er saga um ástir og afbrýði. Fyrsti og langfrægasti ástarþríhyrningur heimsbókmenntanna. Þar er rakin saga skáldsins Gunnlaugs Ormstungu frá Hvítársíðu, Helgu fögru úr Borgarnesi og […]
Macbeth og Jónsmessunótt kveðja

Tvær sýningar, sem hafa vakið mikla athygli og fengið frábærar viðtökur, verða sýndar í Þjóðleikhúsinu í síðasta sinn nú um helgina. Um er að ræða Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn Benedicts Andrews og Jónsmessunótt eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Síðustu sýningar á Macbeth eru 1. og 2. febrúar en síðasta sýning á Jónsmessu […]
Nemendafélag Borgarholtsskóla sýnir Grimmd

Leikfélag Borgarholtsskóla frumsýnir þann 8. febrúar leiksýninguna Grimmd sem er byggt á hryllilegustu og blóðugustu Grimms ævintýrunum, eins og þau voru upphaflega skrifuð – sem er ávísun á martraðir! Með samvinnu bjó hópurinn handritið til upp úr þremur sögum undir handleiðslu leikstýrunnar Jenný Láru Arnórsdóttur. Nemendur skólans sjá um að vinna allar hliðar leiksýningarinnar; hönnun, […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Dagatalsdömurnar

Þann 1. febrúar mun Freyvangsleikhúsið frumsýna leikritið Dagatalsdömurnar eða Calendar girls eftir Tim Firth. Verkið er gamanleikrit og var valið besta gamanleikritið í London árið 2010. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp á Íslandi og fékk leikfélagið Davíð Þór Jónsson til að skella því yfir á íslensku. Leikstjóri er svo hin […]
Sýningar hefjast að nýju á Með fulla vasa af grjóti

Sýningar á tvíleiknum Með fulla vasa af grjóti hefjast að nýju á Stóra sviði Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið, en sýningin gekk þar fyrir fullu húsi í haust, þar til gera þurfti hlé á sýningum vegna annarra anna leikara. Tekið var forskot á sæluna með tveimur sýningum á Akureyri um liðna helgi, og er skemmst frá því […]
Nóttin nærist á deginum frumsýnt 1. febrúar

Föstudaginn 1. febrúar verður nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson, Nóttin nærist á deginum, frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhúsins. Í aðalhlutverkum eru Elva Ósk Ólafsdóttir og Hilmar Jónsson en Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir verkinu. Hjón á fimmtugsaldri standa allslaus og ein eftir hrunið. Þau búa í hálfkláruðu einbýlishúsi með kjallaraíbúð sem var ætluð dóttur þeirra […]
Fimm listamenn fá styrk úr Egnersjóðnum

Á fimmtugustu sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi nú um helgina var fimm listamönnum veittur styrkur úr Egnersjóðnum. Styrkþegar að þessu sinni eru þau Ágústa Skúladóttir, leikstjóri sýningarinnar, Jóhannes Haukur Jóhannesson sem leikur Mikka ref, Friðrik Friðriksson sem fer um þessar mundir með hlutverk Karíusar í Karíusi og Baktusi í Kúlunni, Bernd Ogrodnik brúðulistamaður og Trygve […]
Með fulla vasa af grjóti sýnt á Akureyri

Um næstu helgi, 26. og 27. janúar, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Með fulla vasa af grjóti. Í verkinu kynnumst við fjölda skrautlegra og skemmtilegra persóna. Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson fara með öll fjórtán hlutverkin í sýningunni, og bregða sér jafnt í gervi karla sem kvenna, og ungra sem […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir Þrek og tár

Föstudaginn 18. janúar frumsýnir Leikfélag Selfoss leikritið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur. Í verkinu fáum við að fylgjast með upprifjun ungs manns á æskuárum sínum og lífi ósköp venjulegrar fjölskyldu á sjötta áratugnum. Mörg kunnug og skemmtileg dægurlög prýða verkið og ekki ólíklegt að leikhúsgestir finni hjá sér […]
Leikhópurinn ONE sýnir Tamam Shud í Leikhúsinu

Næstkomandi föstudag, 18. janúar, frumsýnir leikhópurinn ONE leikritið Tamam Shud í Leikhúsinu. Þar er rifjuð upp furðuleg óleyst gáta um ókunnan mann sem fannst látinn á sjávarströnd í Ástralíu árið 1948. Nafnið vísar til texta á smámiða sem hinn látni bar á sér og mun þýða „endir“. Á sögunni eru margar kynlegar hliðar og menn […]
Úthlutað úr Egner-sjóðnum á sunnudaginn

Nú á sunnudaginn verður fimmtugasta sýning á Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu og í lok hennar verða afhentir styrkir úr Egner-sjóðnum. Jafnframt er von á 25 þúsundasta gestinum á sýninguna. Í ár er haldið upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners í Þjóðleikhúsinu með margvíslegum hætti. Tvö af leikritum hans eru í sýningu um þessar […]
Lokasýning á Harmi, hundum og hýrum konum

Lokasýning verður á næstunni á leikdagskránni Harmi, hundum og hýrum konum hjá Leikfélagi Kópavogs laugardagardaginn 19. janúar kl. 20.00. Leikdagskráin samanstendur af fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi […]
Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 12. janúar verður Skoppa og Skrítla í leikhúsinu frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Skoppa og Skrítla í leikhúsinu var fyrsta leiksýning þeirra vinkvenna. Hún var frumsýnd 2006 í Þjóðleikhúsinu og gekk fyrir fullu húsi í nær 100 skipti. Sýningin fór í margar leikferðir erlendis m.a nokkrum sinnum til Bandaríkjanna, Danmerkur og til Afríku. Síðan hefur margt […]
Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið frumsýna þann 12. janúar nýtt íslenskt verk sem heitir Hjartaspaðar. Í þessu verki er farið alveg nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið fjallar um drephlægileg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo […]
Harmur, hundar og hýrar konur í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi fimmtudag, 10. janúar, Harmur, hundar og hýrar konur. Hér er á ferðinni dagskrá úr fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta. Örn […]
Nanna systir sýnt í Lyngbrekku

Leikdeild Skallagríms setur upp gamanleikinn Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Eins og undanfarin ár sýnir Leikdeildin í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum og verður frumsýning á verkinu þann 11. Janúar næstkomandi. Tíu manna hópur leikara stendur á sviði að þessu sinni og eru það að miklu leiti andlit sem […]
Stundarbrot frumsýnt á Nýja sviðinu

Stundarbrot, nýtt íslenskt verk eftir Leif Þór Þorvaldsson verður frumsýnt á Nýja sviðinu 8. janúar næstkomandi. Þetta er verk á mörkum vísinda, leikhúss og dans. Framsækið sviðslistaverk sem notar viðgangsefnið til þess að skapa ógleymanlega sjóræna upplifum fyrir áhorfendur. Í Stundarbroti er fjallað um tímann – hann teygður, beygður og afmyndaður með aðferðum leikhússins þar […]
Gleðilegt ár!

Bandalag íslenskra leikfélaga sendir aðildarfélögum sínum, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleði og farsæld á nýju ári og þakkar samskiptin á því liðna. Þjónustumiðstöðin verður opin að venju frá 9.00 til 13.00 alla virka daga og síðdegis eftir samkomulagi.
Karíus og Baktus í Kúlunni

Þjóðleikhúsið heldur upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners með því að setja á svið tvö af hans vinsælustu leikritum, Dýrin í Hálsaskógi á Stóra sviðinu og Karíus og Baktus í Kúlunni. Frumsýning á Karíusi og Baktusi verður í Kúlunni 29. desember. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson […]
Lokað um hátíðirnar

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga Kleppsmýrarvegi 8 verður lokuð frá kl. 13.00 föstudaginn 22. desember og til miðvikudagsins 2. janúar. Bandalag íslenskra leikfélaga óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á árinu sem er að líða!
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Macbeth

Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth […]
Mýs og menn á Stóra sviðinu

Jólasýning Borgarleikhússins, Mýs og menn, verður frumsýnd á Stóra sviðinu laugardaginn 29. desember næstkomandi. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið, […]
Leikfélag Selfoss æfir Þrek og tár

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur. Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er hvort tveggja fjölskyldusaga og þroskasaga ungs manns á 7. áratug síðustu aldar. Leikritið innheldur mikið af söngvum sem margir hverjir eru löngu orðnir landskunnir. […]
Nóttin var sú ágæt ein í Tjarnarbíói

Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir mánudaginn 17. desember leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetreitor, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummálinu The Night Before Christmas. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson, en hann þýddi og staðfærði verkið ásamt Hirti Jóhanni Jónssyni. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er […]
100 ár frá fæðingu Thorbjørns Egner

Í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru 100 ár liðin frá fæðingu norska barnabóka og leikritahöfundarins Thorbjørns Egner, stendur Landsbókasafnið – Háskólasafn, í samvinnu við sendiráð Noregs, Nasjonalbibliteket í Osló, Þjóðleikhúsið og Leikminjasafnið, fyrir sýningu tengdri Egner en hann, auk þess að semja verkin og tónlistina við þau, hannaði hann gjarnan búninga, […]
Ferðalagið hefst á morgun!

Mary Poppins hópurinn, listrænir stjórnendur, leikarar, dansarar, söngvarar, tónlistar- og tæknimenn koma saman á fyrstu samæfingu á morgun sem markar upphafið af spennandi og krefjandi æfingaferli. Þá verður leikmynd kynnt, verkið leiklesið í heild sinni í fyrsta sinn og að endingu mun danshöfundur sýningarinnar Lee Proud drífa hópinn út á gólf á fyrstu dansæfinguna. Hátt […]
Jólahlaðborð Hugleiks

Hugleikur býður til jóladagskrár undir heitinu Jólahlaðborð fimmtudaginn 13. desember kl. 20.00 og sunnudaginn 16. desember kl. 17.00. Eins og nafnið gefur til kynna verður fjölbreytt efni á boðstólum, leiknir þættir og tónlist í bland. Á krepputímum er í tísku að endurnýta og betrumbæta. Sýnt er í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9.
Faust sýnt á BAM hátíðinni í New York

Sýningar á Faust uppsetningu Vesturports og Borgarleikhússins á BAM hátíðinni í New York hefjast nk. miðvikudag 12. desember. BAM er stærsta og þekktasta leiklistarhátíð Bandaríkjanna sem haldin er ár hvert í New York. Alls eru fyrirhugaðar 6 sýningar á Faust á hátíðinni, dagana 12.–16. desember. Hópur listamanna og tæknifólks frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu hélt utan […]
Hyldýpi í Gamla bíói

Föstudaginn 14. desember kl. 20 frumsýnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir leikverkið Hyldýpi í Gamla bíói, Ingólfstræti 2a. Hyldýpi er leikverk sem fjallar um myrkrið, geimryk, ókönnuð djúp og kafbáta. Verkið er dagskrá um dýpsta dýpi sjávar og endaleysu himingeimsins, sorgina og sköpunarkraftinn. Sjónrænt ljóð hins óvænta og undarlega. Flytjandi, leikstjóri og höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Verkið […]
Jólagjafirnar hjá Bandalaginu

Hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga fæst mikið úrval af „óhefðbundum“ jólagjöfum fyrir þá sem gaman hafa af því að bregða sér í allra kvikinda gerfi. Andlitslitir fyrir börn, smink fyrir fullorðna, skallar, gerfiaugnhár, gerfiskegg, tannlitur, litahársprey, glimmer, fljótandi latex, gerfiblóð, gerfinef og margt fleira. Við erum til húsa að Kleppsmýrarvegi 8 og opnunartími er frá 9-13 […]
Halaleikhópurinn æfir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn æfir um þessar mundir barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur, í leikstjórn Herdísar Þorgeirsdóttur. Verkið er leikrit fyrir börn á öllum aldri og hófust æfingar þann 1. nóvember og verður það frumsýnt snemma næsta árs. Leikritið fjallar um hana Rympu sem lifir og býr nú á ruslahaugnum, er frekar ófyrirleitin og hagar lífi […]