Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla

Mánudagskvöldið 6. október n.k. verður aðalfundur Leikfélags Hörgdæla árið 2008 haldinn á Melum í Hörgárdal og hefst hann kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem rætt verður um starfið á komandi vetri.

Vigdís fyrsti Sendiherra leiklistarinnar í heiminum

Alþjóða leiklistarstofnunin, ITI, sæmdi Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta Íslands og leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur titlinum Senndiherra leiklistarinnar í heiminum (World Theatre Ambassador) við hátíðlega athöfn í laugardag 27. September sl. í Madrid á Spáni. Alþjóða leiklistarstofnunin, sem stofnuð var í Prag 1948, heldur nú 32. alheimsþing sitt í höfuðborg Spánar, Madrid. Hátíð var haldin við þinglok […]

Þjóðleikur – einstakt tækifæri fyrir ungt leikhúsáhugafólk

Þjóðleikur er tilraunaverkefni sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir á Austurlandi í vetur. Verkefnið miðar meðal annars að því að efla leiklistarstarf ungs fólks og hvetja til nýsköpunar í íslenskri leikritun. Þjóðleikhúsið er aðili að Vaxtarsamningi Austurlands og hefur samvinnu við menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og fleiri aðila á Austurlandi um skipulag og framkvæmd þessa nýstárlega verkefnis.

Fimm sýningar eftir af Engisprettum

Leikhúsunnendum sem misstu af Engisprettum á liðnu leikári gefst nú tækifæri til að sjá þessa rómuðu leiksýningu, en efnt verður til fimm aukasýninga á verkinu nú í haust. Sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu um helgina.

KINKI – Skemmtikraftur að sunnan

Skemmtikrafturinn Kinkir Geir Ólafsson hefur af góðmennsku sinni ákveðið að gefa konum í úthverfum 101 Reykjavíkur tækifæri til að njóta kertaljósakonserts síns í tónleikahúsinu Salnum, Hamraborg 6 í Kópavogi. Kertaljósakonsertinn verður fimmtudaginn 25. september kl. 20 en ekki eru fleiri konsertar fyrirhugaðir í úthverfunum heldur mun Kinkir Geir einbeita sér að því að gleðja konur […]

Hauststarf komið á fullt hjá áhugaleikfélögunum

Nú er hauststarfið komið á fullt hjá mörgum aðildarfélögum Bandalagsins. Leiklistavefurinn forvitnaðist aðeins um hvað er í pípunum og í ljós kom að eins og við var að búast kennir þar ýmissa grasa, íslensk og erlend klassík í bland við nýrri verk, gaman, alvara, söngur og allt þar á milli. Það er því bara útlit […]

Áheyrnarprufur fyrir !HERO

KFUM og KFUK hyggjast setja upp kristilegu rokkóperuna HERO. Verið er að setja saman hljómsveit fyrir sýninguna og æfingar á verkinu hefjast í byrjun október þegar búið er að kasta í hlutverk. Áætluð frumsýning er snemma á næsta ári, lok febrúar/byrjun mars. Hero er í raun guðspjallið í nútímasamhengi. Sagan gerist í Brooklyn, New York […]

Leikhúsperlur Atla Heimis

Í tilefni af 70 ára afmæli tónskáldsins Atla Heimis Sveinssonar sunnudaginn 21. september nk. verður sérstök hátíðardagskrá á Stóra sviði Þjóðleikhússins helguð leikhústónlist hans. Leikarar Þjóðleikhússins stíga á stokk ásamt fjölda tónlistarmanna og dansaraefna og flytja brot úr verkunum Ég er gull og gersemi, Landi míns föður, Ofvitanum, Mýrarljósi, Sjálfstæðu fólki og Dimmalimm.

Shakespeare hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn er kominn á kreik eftir stutt sumarfrí. Þröstur Guðbjartsson hefur verið ráðinn leikstjóri fyrir sýningu vetrarins, jafnframt mun hann halda leiklistarnámskeið í október. Halaleikhópurinn ætlar að þessu sinni að taka fyrir sýningu með þáttum úr nokkrum verkum Shakespears í Karnivalútsetningu sem samin er af leikstjóranum. Tekin verða fyrir atriði úr Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt […]

60 sýningar hjá aðildarfélögum SL

Dagskrá aðildarfélaga Sjálfstæðu leikhúsanna er fjölbreitt að vanda. Alls verður boðið upp á 60 sýningar næsta vetur.  Stærstur hluti sýninganna eru íslensk verk ætluð börnum og ungu fólki en einnig verða á ferðinni danssýningar, ópera og hefðbundnar leiksýningar. Tvær hátíðir verða haldnar á næsta leikári, Act alone á Ísafirði og Draumar – alþjóðleg döff leiklistarhátíð verður haldin […]

Theatre in Iceland 2006-2008

Ritið Theatre in Iceland er komið út. Ritið sem er á ensku inniheldur upplýsingar um leiksýningar og leiklist á Íslandi á árunum 2006 til 2008.  Hér er hægt að nálgast ritið á PDF-formi.

Tvö opin námskeið hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss býður upp á tvö námskeið opin öllum í haust, jafnt byrjendum sem og reyndum. Annars vegar erum að ræða leiklistarnámskeið sem Gunnar Sigurðsson leikstjóri heldur og hins vegar námskeið í söng og raddbeitingu þar sem kennari er Kristjana Stefánsdóttir.

Bingó í Riga – Ferðasagan

Þann 2. ágúst sl. sté fríður hópur áhugaleikara úr Leikfélagi Kópavogs og Hugleik uppí flugvél og hélt á vit ævintýranna í Riga, höfuðborg Lettlands. Ætlunin var að sýna leikritið Bingó, sem félögin settu upp saman fyrir tveimur leikárum, á Norður-evópsku leiklistarhátíðinni sem haldin var þar í borg. Ásta Gísladóttir var með í hópnum og ritaði […]

Fýsn frumsýnt föstudaginn 12. sept.

Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður nýtt íslenskt leikrit, Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann, frumsýnt föstudaginn 12. september. Leikritið vann leikritasamkeppnina „Sakamál á svið“ sem LR stóð fyrir árið 2006. Marta Nordal þreytir frumraun sína sem leikstjóri en þær Þórdís hafa unnið að uppsetningunni um nokkurt skeið. Að auki hefur Þórdís unnið að þróun þess í […]

Forleikur og ísbjörn á nýju leikári Kómedíuleikhússins

Leikár Kómedíuleikhússins er bæði ferskt og klassískt. Alls verða sex sýningar á fjölum leikhússins á nýju leikári þar á meðal frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan Íslenskan einleik,  Auðun og ísbjörninn, sem er byggður á samnefndum Íslendingaþætti sem er án efa sá besti og vandaðasti Íslendingaþátta. Í Auðun og ísbjörninn halda Elfar Logi og Soffía Vagnsdóttir áfram farsælu […]

Sýningin fallega um Gosa aftur á svið

Nú er Gosi loksins kominn úr sumarfríi og aftur á fjalir Borgarleikhússins. Sýningin vakti mikla lukku á síðasta vetri og meira en 25 þúsund gestir hrifust með ævintýrum Gosa, Tuma engisprettu og allra hinna. Það vakti einnig mikla lukku sýningargesta að hitta hetjur sýningarinnar í forsal að sýningu lokinni. Miðasala er í fullum gangi í […]

Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Framhaldsnámsikeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða Þátttökugjald: kr. 15.000.- Tími: 24. til 26. október 2008 Staður: Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík Skráningu lýkur 15. september Námskeiðið er sjálfstætt framhald af byrjendanámskeiðinu sem haldið var sl. haust, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið.

Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu helgina 5.-6. sept.

Leikfélagið Maddid Theatre Company, sem starfar aðallega í London, sýnir sviðslistasýninguna Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu Strandgötu 50 næstkomandi föstudags- og laugardagskvöld kl. 20:00. Með hlutverk Maddidar fer leikkonan Vala Ómarsdóttir. Vala stofnaði leikfélagið ásamt leikhúsframleiðandanum Mari Rettedal fyrir rúmu ári en síðan þá hafa fleiri listamenn bæst í hópinn. Maddid Theatre Company er fjölþjóðlegur hópur með […]

Opið hús í Þjóðleikhúsinu á morgun

Þjóðleikhúsið opnar dyr sínar upp á gátt milli kl. 13 og 16, laugardaginn 6. september en þá gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér starfsemi leikhússins, yst sem innst. Boðið verður upp á skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa, kynnisferðir um leikhúsgaldrana baksviðs, leiksmiðjur og þjóð(leikhús)legar veitingar, svo eitthvað sé nefnt. Þarna gefst einnig gott […]

Spekingurinn Einar Áskell í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir, í samvinnu við Fígúru – leikhús Bernds Ogrodniks, brúðuleiksýninguna Klókur ertu, Einar Áskell nk. laugardag, 30. ágúst. Gestaleikur þessi er verk brúðugerðarmannsins Bernds Ogrodniks sem byggir á heimsþekktum sögum Gunillu Bergström um þennan uppátækjasama snáða. Sýnt verður í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins á Lindargötu 7 og hefst sýningin kl. 15.

Borgarleikhúsið og SPRON gera tímamótasamning

Fyrir helgi undirrituðu Ólafur Haraldsson framkvæmdastjóri SPRON og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins samstarfssamning.  Samningur þessi er afar rausnalegur af hálfu SPRON sjóðsins. Með samningnum er námsmönnum og fólki yngra en 25 ára, gert kleift að verða fastagestir í Borgarleikhúsinu á mun lægra verði en áður hefur þekkst, en SPRON niðurgreiðir áskriftarkort fyrir ungt fólk […]

Við flytjum!

Skrifstofa Bandalags ísl. leikfélaga flytur af Laugavegi 96 fimmtudaginn 28. ágúst nk. Við opnum að Suðurlandsbraut 16 kl. 9.00 mánudaginn 8. september. Þann sama dag milli kl. 17.00 og 19.00 verðum við með opið hús fyrir þá sem vilja koma og fá sér kaffi og kíkja á nýju aðstöðuna. Opnunartími á Suðurlandsbrautinni verður sá sami […]

Leikárið 08/09 í Borgarleikhúsinu

Það verður mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu á komandi leikári en fyrsta leikár nýs leikhússtjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, var kynnt starfsfólki í gær. Óhætt er að segja að fjölbreytnin sé mikil en verkin eru ólík innbyrðis, ný íslensk leikrit eru áberandi í bland við erlend gæðaverk, ný og eldri. Mörg verk höfða til allrar fjölskyldunnar, […]

Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir DJ Hamingja

Íslenskt dansverk verður frumflutt fimmtudaginn 21. ágúst kl. 18:00 í Smiðjunni Sölvhólsgötu 13. Það er Hreyfiþróunarsamsteypan sem er þar á ferð og lýsir verkinu á eftirfarandi hátt: „Dansverk sem horfist í augu við einveruna í margvíslegum myndum. Hvernig á að teygja sig út til fólks án þess að missa jafnvægið? Getum við haldið partíinu gangandi […]

Síðustu sýningar á Galdrakarlinum í Oz

Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt útileiksýninguna Galdrakarlinn í Oz um allt land en nú líður að síðustu sýningum sumarsins. Næstu sýningar verða á Selfossi, Elliðaárdal og í Grindavík núna í vikunni. Síðasta sýningin í Elliðaárdalnum verður síðan miðvikudaginn 27. ágúst.

Hverjir vilja fara til Monaco 2009?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco dagana 17.-26. ágúst 2009. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað fyrir það. Allur ferðakostanður […]

Hugleikur og Leikfélag Kópavogs á NEATA-hátíð í Riga

Nú stendur yfir í Riga, höfuðborg Lettlands, leiklistarhátíð NEATA eða Norður-Evópska leiklistarsambandsins. Fulltrúi Íslands á hátíðinni er sýningin Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur sem Hugleikur og Leikfélag Kópavogs sýna í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Bingó verður sýnt á morgun, föstudaginn 8. ágúst.

Leikfélagið Sýnir frumsýnir á Akureyri

Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Eyjuna á Akureyri 2. ágúst n.k. Eyjan er spunaverk sem segir sögu þriggja kvenna sem lenda saman á eyðieyju eftir hræðilegt flugslys og verða að takast á við nýjan veruleika. Ekki er allt sem sýnist á eyjunni og stuttu eftir brotlendinguna byrja mörkin milli draums og veruleika að mást út. Innan […]

Lotta leggur land undir fót

Leikhópurinn Lotta heldur nú í mikla leikferð um landið og mun sýna Galdrakarlinn í Oz á 18 stöðum víðsvegar um land. Nú þegar hefur Lotta heimsótt Vestfirðina og Suðurland auk þess sem sýnt hefur verið í bæum í nágrenni Reykjavíkur. Fyrsta sýningin í leikferðinni verður í Mofellssbæ í dag og síðan liggur leiðin upp á […]

Superhero í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði

Dramatíski gamaneinleikurinn Superhero verður aftur sýndur í Jaðarleikhúsinu nú í júlí í tilefni af Act alone. Leikari verksins, sænsk-ungverski leikarinn Erik Hakansson kom aftur til landsins til þess að taka þátt í einleikjahátíðinni Act alone á Ísafirði þar sem hann vakti mikla athygli, en boðið verður upp á fjórar auka sýningar á verkinu í Jaðarleikhúsinu, […]

Ventlasvín og fleira hjá Frú Normu

Nú standa yfir sýningar á Ventlasvín – innsetningarleikverki sem frú Norma setur upp í samstarfi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Seyðisfjarðar. Sýningar eru í gömlum vélasals Sláturhússins á Héraði sem nýlega var breytt í menningarmiðstöð og hýsir nú m.a. frú Normu – leikhús. Verkið gerist á mörkum lygi og raunveruleika. Kannski gerist það í vélarrými […]

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar 2008

Þriðjudaginn 15. júlí nk. verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í húsnæði félagsins í Gamla Lækjarskóla. Fundurinn hefst klukkan 20.00 og á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á starfinu til að mæta. Sjáumst öll! Kveðja, Leikfélag Hafnarfjarðar

Galdrakarlinn í Oz á Vestfjörðum

Dagana 5. og 6. júlí leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og heldur til Vestfjarða með útisýningu sína á Galdrakarlinum í Oz. Laugardaginn 5. júlí kl. 14:00 verður sýning á Bíldudal og sunnudaginn 6. júlí kl. 14:00 verður sýnt á túninu við Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði en þar sýndi leikhópurinn einmitt Dýrin í Hálsaskógi í […]

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 3.-4. maí 2008 í Skagafirði

Aðalfundur Bandalags íslenkra leikfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga í Árgarði í Skagafirði 3.-4. maí 2008 1.      Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason formaður Bandalagsins stakk uppá Maríu Grétu Ólafsdóttur, Lf. Sauðárkróks, og Guðrún Höllu Jónsdóttur, Lf. Selfoss, sem fundarstýrum og Ármanni Guðmundssyni starfmanni skrifstofu […]

Styttist í Act alone á Ísafirði

Hulunni hefur nú verið svipt af dagskrá Act alone sem haldin verður í Hömrum, Ísafirði dagana 2. til 6. júlí 2008. Það eru engar ýkjur að segja að dagskráin hafi aldrei verið jafn glæsileg og í ár. Boðið verður uppá 24 sýningar, leiklistarnámskeið og kennslustund í að reka eins manns leikhús. Að vanda er aðgangur […]

Dauðasyndirnar halda áfram

Leikritið Dauðasyndirnar, guðdómlegur gleðileikur, sem frumsýnt var þann 8. maí síðastliðinn í Borgarleikhúsinu mun halda áfram göngu sinni næsta haust og verða hluti af glæsilegri dagskrá næsta starfsárs. Síðustu sýningar eru nú um helgina og fyrir löngu orðið uppselt. Í verkinu segir frá hremmingum Dantes og ferð hans um hringi helvítis í leið sinni um […]

Stóla fyrir Óla!

Nýr söngleikur Ólafs Hauks Símonarsonar, Fólkið í blokkinni, verður frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins 10. október n.k. og er undirbúningur kominn á fullan skrið. Leikhúsið reiðir sig á aðstoð landsmanna, því nú vantar ekki einn og ekki tvo, heldur ríflega 400 stóla til notkunar í sýningunni. Óskað er eftir því að landsmenn komi með stóla […]

Nýr sjóður til eflingar leikritun á Íslandi

Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Prologus, með það að markmiði að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið. Sjóðurinn er stofnaður af Bjarna Ármannssyni og Helgu Sverrisdóttur, í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Stofnframlag sjóðsins er 16 milljónir króna, en sjóðurinn mun starfa frá árinu 2008 til ársins 2010. Sjóðurinn var formlega stofnaður í […]

Leiklistarskóli Bandalagsins settur

Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga var settur á laugardaginn að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Þar er í ár boðið uppá þrjú námskeið; grunnnámskeið í leikritun, kennari Bjarni Jónsson, Leiklist II – framhaldsnámskeið fyrir leikara, kennari Ágústa Skúladóttir og sérnámskeið fyrir leikara, kennari Rúnar Guðbrandsson. Nemendur á námskeiðunum eru samtals 41.

Allt fyrir andann – forsala hafin

Í september næstkomandi kemur út bókin Allt fyrir andann – Bandalag íslenskra leikfélaga, 1950–2000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Hægt er að kaupa bókina í forsölu og setja […]