Aukasýningar á Leitinni að jólunum
Bætt hefur verið við aukasýningum á aðventuleikriti Þjóðleikhússins, Leitinni að jólunum, vegna frábærrar aðsóknar. Troðuppselt var á sýningarnar í desember og því er bætt við sýningum miðvikudaginn 17. desember og fimmtudaginn 18. desember. Aðventusýning þessi orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Þetta er í fjórða sinn sem verkið er sett upp í Þjóðleikhúsinu en það […]
Grýla gerir uppreisn í Vestmannaeyjum
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi laugardaginn 6.des jólaleikrit sem þær Alma Eðvaldsdóttir, Arndís Ósk Atladóttir, Eva Lilja Árnadóttir og Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir skrifuðu fyrir Leikfélagið og nefnist leikritið Grýla gerir uppreisn. Um leikstjórnina sáu þær Alma Eðvaldsdóttir og Eva Lilja Árnadóttir. Sýningar verða allar helgar í desember á laugardögum og sunnudögum klukkan 16:00.
Leikfélag Mosfellssveitar með jólasýningu
Sunnudaginn 7. desember verður frumsýnd jólasýning hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þar ríkir sannkallað jólafjör og stíga Grýla og Leppalúði á stokk ásamt jólakettinum, Leiðindaskjóðu og fleiri góðum gestum. Handritshöfundar eru Birgir Sigurðsson og María Guðmundsdóttir en einnig verður flutt gömul íslensk jólaþjóðsaga sem Eva Harðardóttir setti í leikbúning. Aðeins verða sýndar tvær sýningar, sunnudaginn 7. desember […]
Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Kirsuberjagarðinn
Þann 4. desember kl. 20 frumsýnir Nemendaleikhús LHÍ Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov á Litla Sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Daníel Rylander. Tsjekhov skrifar verk sitt árið 1904, á miklum umbrotatímum í Rússlandi þar sem undirliggjandi spenna milli þjóðfélagshópa er allsráðandi, samfélagsgerð sem ríkt hefur um aldir er að hverfa og ný að taka við. Nýríku auðmennirnir […]
Blásýra í Ölfusi
Leikfélagi Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri verksins er Gunnar Björn Guðmundsson. Vel gekk að fá leikara og ganga æfingar vel. Stefnt er að frumsýningu á verkinu 16. janúar n.k. Leikfélag Ölfuss hefur fengið aðstöðu í fyrrum húsnæði hafnarinnar í Þorlákshöfn og er […]
Útgáfu sögu Bandalagsins fagnað
Í tengslum við haustfund Bandalags íslenskra leikfélaga þann 22. nóvmeber var boðað til móttöku vegna útgáfu sögu Bandalagsins, Allt fyrir andann í þjónustumiðstöð Bandalagsins að Suðurlandsbraut 16. Þar þakkaði Ingólfur Þórsson, varaformaður Bandalagsins, söguritaranum Bjarna Guðmarssyni, vel unnin störf svo og sögunefndinni sem var honum innan handar við ritun bókarinnar, en hana skipuðu Sigrún Valbergsdóttir […]
Verslun
Verslun okkar er staðsett að Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík og fastur opnunartími er frá 8.45-12.15 virka daga. Opið eftir þegar starfsmaður er á staðnum en vissara að hringja á undan. Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Pantanir sem berast fyrir kl. 13.00 eru sendar samdægurs, annars næsta virkan dag. Aðildarfélög Bandalags íslenskra […]
Kærleikskúlan til Halaleikhópsins
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sæmdi í gær Halaleikhópinn Kærleikskúlunni 2008. Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri afhenti Guðný Öldu Einarsdóttur leikkonu fyrsta eintakið við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur. Leiklistarvefurinn óskar Halaleikhópnum innilega til hamingju!
Miði fyrir mynd
Þjóðleikhúsið óskar eftir fjölskyldumyndum, innrömmuðum eða óinnrömmuðum, fyrir uppsetningu á jólasýningu leikhússins á Sumarljósi eftir Jón Kalman Stefánsson. Höfundur leikmyndar er Finnur Arnar Arnarsson en leikstjóri og höfundur leikgerðar Hilmar Jónsson. Myndirnar má senda hvort heldur á stafrænu formi með tölvupósti eða koma þeim á skrifstofu leikhússins.
Lápur, Skrápur og jólaskapið
Þann 29. nóvember næstkomandi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson. Það mun vera seinni frumsýning á verkinu þetta árið því þann 22. nóvember frumsýndi Leikfélag Akureyrar sama verk í Rýminu. Sýningarnar verða keyrðar samhliða og þykir það harla óvenjulegt að tvær uppsetningar á sama verkinu séu sýndar á sama […]
Kúlukvöld Unima
Í vetur stendur UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks) fyrir svokölluðum ,,Kúlukvöldum í lok hvers mánaðar í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu (að Lindargötu 7). Þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lifandi og fjölbreyttri dagskrá. Miðvikudaginn 26. nóvember kl 20:00 verður haldið síðasta Kúlukvöldið fyrir jól.
Steinar í djúpinu frumsýnt
Föstudaginn 21. nóvember mun Lab Loki frumsýna Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar, aka: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv. Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans […]
Grunnnámskeið í leiklist með Ágústu Skúladóttur
Leikfélag Hafnarfjarðar heldur á næstunni námskeiði í leiklist fyrir byrjendur sem lengra komna þar sem farið verður í grunnatriði leiklistarinnar. Leitast verður við að leysa úr læðingi frumorku, einlægni og sköpunargleði leikarans samband hans kannað við sjálfan sig, meðleikara og áhorfendur. Unnið verður með líkamsbeitingu, textameðferð, liðsheild og hópsál á sviði. Þá verða kennd undirstöðuatriði […]
Söng- og leikprufur fyrir Vínland
Freyvangsleikhúsið stendur fyrir opnum söngprufum fyrir söngleikinn Vínland í Freyvangi, laugardaginn 22.11. frá 13:00 – 16:00. Allir sem geta sungið og leikið eru velkomnir. Ingólfur Jóhannsson mun sitja við píanóið og spila undir lög að vali þátttakenda. Leikstjórinn, Ólafur Jens Sigurðsson, verður að sjálfsögðu á staðnum. Æfingartíminn verður í janúar og fram að frumsýningu um […]
Stórkostlegt!
Leikfélagið Grímnir og leikdeild Grunnskóla Stykkishólms sýna nú rokkóperuna Jesus Christ superstar eftir Tim Rice og tónlistin er eftir Andrew Lloyd Webber. Í íslenskri þýðingu Níelsar Óskarssonar hefur þetta verk hlotið hafnið Jesús Guð Dýrlingur. Það þarf mikinn metnað og kjark til að takast á við slíkt verk í rúmlega þúsund manna byggðarlagi. Ég gerði […]
Paris at night á Akureyri
Leikhópurinn Á senunni verður með tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri 12. nóvember 2008, í samvinnu við Leikfélag Akureyrar. Paris at night er byggt á ljóðum Jacques Prévert og tónlist Joseph Kosma. Þýðingar ljóðanna eru eftir Sigurð Pálsson. Leikarar/söngvarar í sýningunni eru Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Felix Bergsson. Hljómsveitinni stjórnar Karl Olgeirsson, en auk hans eru […]
Þjónustumiðstöðin lokuð 12. og 13. nóvember
Vegna ráðstefnu Norrænu Bandalagsskrifstofanna, sem haldin er hér í Reykjavík dagana 12. og 13. nóvember, verður Þjónustumiðstöð Bandalagsins að Suðurlandsbraut 16 lokuð þessa daga. Opnað verður aftur föstudaginn 14. nóvember og verða pantanir sem berast á meðan á lokun stendur afgreiddar þá. Þeir sem þurfa að panta fyrir helgina eru því kvattir til að gera […]
Hugarflug Leikfélags Selfoss
Leikfélag Selfoss bíður upp á hið árlega Hugarflug sunnudaginn 9. október en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Að þessu sinni eru 5 atriði úr sitt hvorri áttinni og kennir þar ýmissa […]
Kabarett í Freyvangsleikhúsinu
Freyvangsleikhúsið sýnir á föstudags- og laugardagskvöld 7. og 8. nóvember sinn árlega Kabarett. Kabarettinn í ár ber heitið Skítt með Kerfil – tökum slátur! Löng hefð er fyrir því í Eyjafjarðarsveit að setja upp kabarettsýningu með frumsömdu efni þar sem atburðir líðandi stundar, innan sveitar sem utan, eru skoðaðir í spaugilegu ljósi. Tónlist skipar stóran […]
Vestrið eina frumsýnt í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 7. nóvember verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh, frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikritið er fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði og er hann því með ástsælustu leikskáldum landsmanna nú um stundir. Þröstur Leó Gunnarsson og Björn Thors leika óviðfelldna en um leið frekar brjóstumkennanlega bræður sem í […]
Æfingar hafnar á Shakespeare – Karnival
Halaleikhópurinn hefur nú hafist handa við uppsetningu nýs leikverks fyrir þetta leikár og ber það vinnuheitið Shakespeare – Karnival. Byrjað var þann 1. nóvember í húsnæði leikhópsins að Hátúni 12.
Emil strákskratti á Húsavík
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Emil í Kattholti eftir Astrid Lingren laugardaginn 8. nóvember kl. 16.00 í Samkomuhúsinu á Húsavík. Þýðingu verskins gerði Vilborg Dagbjartsdóttir og leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir en hún er Húsvíkingum af góðu kunn, leikstýrði Gauragangi hjá LH árið 1996 og Þreki og tárum 1998.
Mowgli undir Mýrdalsjökli
Þorgeir Tryggvason fjallar um sýningu Leikfélags Kópavogs á Skugga-Sveini: "Það er fagnaðarefni af stærra taginu að ganga inn í nýtt leikhús. Sérstaklega ef þar er ekki tjaldað til einnar nætur. Hið nýja húsnæði Leikfélags Kópavogs lofar svo sannarlega góðu og fyllsta ástæða til að óska félagsmönnum og bæjarbúum til hamingju með þetta. Leikfélag Kópavogs hefur […]
Stuttverkadagskrá Hugleiks í Listasafni Reykjavíkur
Leikfélagið Hugleikur frumsýnir stuttverkadagskrána Ó, þessi tæri einfaldleiki, föstudaginn 31. október kl. 20.00 í Listasafni Reykjavíkur. Frumsýnd verða níu ný stuttverk sem öll eiga það sammerkt að hafa afmæli sem þema. Sýningin markar þannig upphafið á afmælisári Hugleiks sem fagnar 25 ára starfsafmæli sínu leikárið 2008-2009. Leikstjórn stuttverkanna er í höndum félagsmanna, en tónlistarflutningi stjórnar […]
Leikfélag Dalvíkur æfir jóladagskrá
Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á léttri og skemmtilegri jóladagskrá sem áætlað er að frumsýna föstudaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 20.30. Dagskrá þessi, er ber heitið Er nálgast jólin… inniheldur m.a. 3 frumsamin leikverk unnin af leikhópnum og leiðbeinendum, söng, dans, undirleik og fróðleik er tengist jólunum.
Haustfundur Bandalagsins og námskeið í stjórnun leikfélaga
Námskeið í stjórnun leikfélaga og Haustfundur 2008 verða haldin í Leikhúsinu, nýju leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2, Kópavogi laugardaginn 22. nóvember. Námskeiðið verður haldið undir formerkjunum Listin að stjórna leikfélagi – Stjórnun leikfélaga og lítið eitt um kynningarmál. Fulltrúar í stjórn Bandalags ísl. leikfélaga halda erindi og taka þátt í umræðum undir stjórn formannsins, […]
Saga Bandalagins komin út!
Út er komin Allt fyrir andann, saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000, skráð af Bjarna Guðmarssyni sagnfræðingi og áhugaleikara. Bókin greinir frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu verkefnum. Þá er þráðurinn rakinn í gegnum áratugina og sýnt hvernig hreyfingin þróaðist með tímanum en sú þróun var hreint ekki alltaf átakalaus. Bókin kostar 5.500 […]
Leiklistarnámskeið fyrir unglinga
Leikfélag Kópavogs heldur leiklistarnámskeið fyrir unglinga með yfirskriftinni "Að segja sögu á sviði". Kennari er Anna Brynja Baldursdóttir sem hefur numið leiklist í Rose Bruford College á Englandi og hefur einnig lokið námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 28. október. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjudgum og fimmtudögum kl. 16.30-18.30 að […]
Leikhúsið opnar í Kópavogi
Nýtt leikhús Leikfélags Kópavogs var vígt sunnudaginn 19. október þegar Skugga-Sveinn var frumsýndur við góðar undirtektir áhorfenda. Núlifandi stofnfélagar Leikfélagsins voru viðstaddir sýninguna og má sjá þá hér á myndinni til hliðar. Þetta er fólkið sem fyrir rúmri hálfri öld stofnaði leikfélag af bjartsýni og dug í því litla bæjarfélagi sem Kópavogur var þá. Ekki […]
Utan gátta frumsýnt 25. október
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson laugardaginn 25. október nk. í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sýningar verða í Kassanum við Lindargötu 7. Sigurður Pálsson er eitt þekktasta leikskáld okkar, en auk leikrita hefur hann sent frá sér þrettán ljóðabækur og þrjár skáldsögur. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2007 fyrir Minnisbók. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit Sigurðar, […]
Ársrit BÍL komið út
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 20072008 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa en þar eru birtar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur verið send til formanna leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast ritið á PDF-formi hér .
Leikfélags Hveragerðis sýnir frumsamið gamanverk
Föstudaginn 24. október frumsýnir Leikfélag Hveragerðis gamanleikritið H.V.S.F.Í. eftir leikfélagsmeðlimina Jakob Hansen, Hafstein Þór Auðunsson og Sindra Kárason. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni og má þar nefna helst kempurnar Steindór Gestsson, Hjört Benediktsson, Sigurgeir H. Friðþjófsson og Önnu Jórunni Stefánsdóttur svo einhverjir séu nefndir. Leikstjóri verksins er að þessu sinni Ólafur Jens Sigurðsson […]
Góðverkin kalla! á Egilsstöðum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir laugardagskvöld 18. október leikritið Góðverkin kalla eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir þessari uppfærslu á Góðverkin kalla en hann er þaulreyndur leikstjóri þrátt fyrir unga aldur. Hans þekktasta leikstjórnarverkefni hingað til er líklega kvikmyndin Astrópía sem hefur fengið fantagóðar viðtökur og hefur nú nýlega vakið […]
Skugga-Sveinn í Leikhúsinu
Leikfélag Kópavogs frumsýnir 19. október þann sígildasta af öllum sígildum, sjálfan Skugga-Svein Matthíasar Jochumssonar. Verkið er sýnt í glænýrri leikgerð, sem löguð er að kröfum tímans. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en uppfærslur hennar á undanförnum árum hafa þótt með því ferskasta í íslensku leikhúsi, sýningar á borð við Klaufa og kóngsdætur, Eldhús eftir máli, Stórfengleg, […]
Pétur Pan á Sauðárkróki
Laugardaginn 18. október klukkan 17:00 frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks fjölskylduleikritið Pétur Pan eftir J.M. Barrie. Þýðinguna gerði Karl Ágúst Úlfsson og leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. Sýnt er í Bifröst. Það kannast flestir við Pétur Pan, strákinn sem neitar að verða fullorðinn og býr ásamt týndu drengjunum í Hvergilandi þar sem sjóræningjar, indjánar og hafmeyjar lifa […]
Nú er það Hart í bak
Þjóðleikhúsið frumsýnir Hart í bak eftir Jökul Jakobsson á Stóra sviðinu nk. föstudag, þann 17. október, í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Hart í bak markaði tímamót í íslenskri leiklistarsögu þegar það var frumsýnt árið 1962. Leikritið rataði beint að hjarta Íslendinga. Og nú, 46 árum síðar, á miklu umrótaskeiði í lífi íslensku þjóðarinnar, á þetta leikrit […]
Fólkið í blokkinni frumsýnt
Föstudaginn 10. október kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur fjölskylduleikritið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur. Hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft. Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum […]
Ljótasta leikferð allra tíma?
Leikarar Þjóðleikhússins leggja í dag upp í sína þriðju leikferð á vegum Farandleikhúss Þjóðleikhússins. Að þessu sinni ferðast leikhópur með sýninguna Sá ljóti til níu framhaldsskóla á landsbyggðinni og hefst ferðalagið á Akranesi. Þjóðleikhúsið hefur á undanförnum árum lagt sífellt meiri áherslu á leiksýningar sem höfða til ungs fólks, meðal annars í því skyni að […]
Leikhús andanna æfir Dansaðu við mig
Hinn nýstofnaði leikhópur Leikhús andanna æfir nú nýtt íslenskt leikverk, Dansaðu við mig, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann. Æfingar standa yfir í Iðnó, en verkið verður frumsýnt þar þann 24. október næstkomandi. Leikstjórn er í höndum Jóns Gunnars Þórðarsonar, en síðasta sýning sem hann leikstýrði hérlendis, Fool for love, hlaut 7 tilnefningar til Grímunnar, íslensku […]
Áheyrnarprufa hjá LA
Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir 9-12 ára stúlku til að leika og syngja í jólaleikriti LA! Mánudaginn 6. október nk. verður skráning í Rýminu kl. 15:00-17:00. Seinni hluta október mun LA hefja æfingar á íslensku jólaleikriti, Lápur, Skrápur og jólaskapið sem ætlunin er að sýna á aðventunni. Þetta er bráðskemmtilegt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson […]