Sveinn skotti á faraldsfæti

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Lýðveldisleikhúsið hefur að nýju sýningar á hinni svívirðilegu skemmtun og svörtu kómedíu Síðasti dagur Sveins skotta. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu, sú fyrri föstudaginn 21. janúar og einnig daginn eftir, báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Á sunnudag 23. janúar verður leikurinn sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri kl. 20. Ekki er honum […]

Fjögur leiklistarnámskeið í Hafnarfirði

Gaflaraleikhúsið og Leikfélag Hafnarfjarðar standa fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn, unglinga og fullorðna í vetur. Leiðbeinendur verða þau Björk Jakobsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir. Námskeið fyrir 10 – 12 ára hefjast 20. janúar, fyrir 13 – 15 ára þann 24. janúar og 16 ára og eldri þann 19. janúar. Námskeið Ágústu hefst í mars. […]

Þrjár aukasýningar á Stútungasögu

Leikfélag Ölfuss sýnir nú allra síðustu sýningar á Stútungasögu. Um er að ræða 3 sýningar sem verða laugardaginn 8. janúar, föstudaginn 14. janúar og laugardaginn 15. janúar. Allar sýningar hefjast klukkan 20 og sýnt er í Versölum í Þorlákshöfn.  Leikstjóri er Ármann Guðmundsson.

Jesús litli á Akureyri

Fyrsta leiksýningin sem við bjóðum upp á á nýju ári er Jesús litli, gestasýning frá Borgarleikhúsinu, sem var ótvíræður sigurvegari Grímunnar síðasta leikár. Jesús litli verður sýnd í Hofi frá og með 15. janúar og  aðeins í takmarkaðan tíma. Jesús litli var ótvíræður sigurvegari Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning […]

Fyrsti samlestur á Staðgreitt við undirskrift!

Aðalverkefni Leikfélags Kópavogs þetta leikárið verður eldfjörugur farsi sem hlotið hefur vinnuheitið Staðgreitt við undirskrift (Cash on Delivery) og er eftir Michael Cooney, son „farsakóngsins“ Ray Cooney (Viltu vinna milljón, Með vífið í lúkunum, Nei, ráðherra) en Michael er af mörgum talinn arftaki hans. Í verkinu er eins og vænta á ferðinni misskilningur á misskilning […]

Áhugaleikhús atvinnumanna gefur út bók

Bók Áhugaleikhúss atvinnumanna „2010, lárétt rannsókn“ kom út 31.desember í tengslum við sýningu leikhússins á annál ársins 2010, 12 örverkum um áráttur, kenndir og kenjar. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis sem gefið er út bókverk sem tekur á samtímasviðslist en til þessa hafa einungis verið fjallað um sögu sviðslista í bókformi, markar því útgáfan […]

Annáll Kómedíuleikhússins – Annó Kómedí 2010

,,Nú árið er liðið…” enn eitt Kómdíuárið að baki og við hæfi að horfa um öxl og kikka á hvað vestfirska atvinnuleikhúsið hefur verið að fást við á árinu. Sannarlega var árið 2010 Kómískt við bættum við okkur leikara, frumsýndum fjögur ný íslensk leikverk, sjöunda Act alone leiklistarhátíðin var haldin, Leiklistarkóli Kómedíu tók til starfa […]

Ofviðrið frumsýnt 29. desember

Jólafrumsýning Borgarleikhússins í ár er Ofviðrið eftir William Shakespeare í nýrri þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar og leikstjórn Oskaras Korsunovas. Ofviðrið hverfist um heiftarleg átök hinna æðri og lægri hvata. Leikrit sem fjallar um fegurðina í dyggðinni og hina nauðsynlegu fyrirgefningu eftir áföll. Of­viðrið er dásamlegur gleðileikur uppfullur af húmor, ást og krafti. Hér er öllu […]

Lokað yfir hátíðirnar

bil_island_logo

Um leið og við hérna á þjónustumiðstöð Bandalagsins óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir árið sem er að líða, viljum minna á að síðasti opnunardagur þjónustumiðstöðvarinnar fyrir jól er 22. desember, hún verður lokuð frá 23. desember og fram yfir áramót og við opnum aftur mánudaginn 3. janúar. Hlökkum til að sjá ykkur á […]

Leikstjóra vantar á Sauðárkrók

Leikfélag Sauðárkróks leitar að leikstjóra fyrir Sæluvikuleikrit félagsins 2011.  Starfstímabil leikstjóra er frá byrjun mars 2011 til 1. maí 2011. Áhugasamir geta sent formanni LS, Sigurlaugu Dóru Ingimundardóttur tölvupóst á netfangið sigurlaugdora@hotmail.com. Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma 8625771. Í umsókn skal koma fram menntun, reynsla, launaóskir og hugmyndir að verkefnum. Öllum umsóknum […]

Síðustu sýningar á jólaleikriti Borgarbarna

Nú fer hver að verða síðastur að berja Leikfangalíf, nýtt jólaleikrit Borgarbarna, augum. Einungis eru laus sæti eru á sýningar sem eru kl. 11:00 og kl. 17:30 föstudaginn 17. desog á báðar sýningar laugardaginn 18. desember (kl. 14:00 og kl. 16:00). Uppselt er á báðar sýningar sunnudaginn 19. desember. Sýningargestum stendur til boða að koma […]

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins 26. desember – Lér konungur

Eitt af höfuðverkum leikbókmenntanna, Lér konungur, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 60 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Lé konungi verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Einn af eftirsóttustu leikstjórum í heiminum í dag, Benedict Andrews leikstýrir,  Arnar Jónsson fer […]

Gjafabréf á viðburði í Tjarnarbíó

Nú gefst einstakt tækifæri til að kaupa gjafabréf á alla þá viðburði sem verða í Tjarnarbíó 2011. Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir 3 upphæðir, 1000 kr – 2000 kr – 3000 kr og verður hægt að nota þau á alla viðburði sem fram fara í Tjarnarbíó. Ekki þarf að ákveða fyrirfram notkun gjafabréfsins  heldur […]

Nóbelshöfundurinn aldrei vinsælli

Sýningar Þjóðleikhússins á Gerplu og Íslandsklukkunni hafa gengið fyrir fullu húsi frá því þær voru frumsýndar á Stóra sviði Þjóðleikhússins snemma á árinu, Gerpla í febrúar og Íslandsklukkan á 60 ára afmæli leikhússins í apríl. Það má því segja að Halldór Laxness hafi enn og aftur slegið í gegn, og nú fyrir tilstilli krafts og […]

Jól á Norðurpólnum

Á aðventunni breytist Norðurpóllinn í sannkallaða jólaveröld. Leikhúsið verður skreytt hátt sem lágt, það verða piparkökur á hverju borði, jólatónlistin ómar, íslenskir handverksmenn kynna vörur sínar og boðið verður upp á föndur fyrir börnin. Hátíðleikinn ræður ríkjum hjá okkur og íslensk, gamaldags jólastemning styttir okkur biðina fram að jólum. Þegar áhorfendur hafa fengið að njóta […]

Tveir handritsstyrkir og þrír til leiksmiðjuverkefna

Gífurlegur fjöldi umsókna barst í Leikritunarsjóðinn Prologos að þessu sinni, en alls bárust 65 umsóknir frá 59 aðilum, og hafa umsóknir í sjóðinn aldrei verið fleiri. Nú er úthlutað úr sjóðnum í sjötta sinn, og hljóta tveir höfundar handritsstyrki og þrír aðilar styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Leikritunarsjóðurinn Prologos, sem hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní […]

Velta af menningu 191 milljarður árið 2009

Á fréttamannafundi sem haldin var núna í vikunni í Bíó Paradís kynnti Margrét Sigrún Sigurðardóttir niðurstöður rannsóknar á hagrænum áhrifum skapandi greina. Árið 2009 var velta af menningu 191 milljarður, sem var 6% af heildarveltunni það árið. Á fundinum tók Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, til máls og sagði að menningin væri það sem gerði […]

Litla Hryllingsbúðin og Karíus og Baktus í Stykkishólmi

Síðasliðnar vikur hefur Leikfélagið Grímnir staðið í stórræðum. Það er ekki á hverjum degi sem leikfélag  úti á landi setur upp þrjár leiksýningar á einum mánuði. Síðastliðin laugardag frumsýndi leikfélagið Litlu Hryllingsbúðina eftir Howard Ashman og Alan Menken, sem byggð er á samnefndri kvikmynd Rogers Corman. Sýningin er sýnd á Hótel Stykkishólmi og leikstjórn er […]

UPPI HVAÐ?

hjolastolasveitin_frett

Fimmtudagskvöldið 2. des. nk. kl. 20.30 mun uppistandsgengið HJÓLASTÓLASVEITIN tröllríða Gaflaraleikhúsinu og flytja frumsamið grínefni. Fjórir fjörugir uppistandarar – þrír í stólum og einn á skrikkjandi fótum! Tilveran verður skoðuð á spaugilegan hátt þar sem sumir standa í stað, aðrir rúlla áfram um grænar grundir í Finnskum Dal með Perkúlahjónin á bakinu.

6000 manns í Tjarnarbíói á tveimur mánuðum

Alls hafa um 6000 manns sótt viðburði í Tjarnarbíó síðan það opnaði 1. október á þessu ári eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar. Það eru Sjálfstæðu leikhúsin – SL, sem reka húsnæðið fyrir hönd borgarinnar. Boðið hefur verið upp á fjölbreytta listviðburði s.s. tónleika, dans,- og leiksýningar, fyrirlestra og  kvikmyndasýningar. Einnig hafa alþjóðlegar hátiðir verið haldnar í […]

Leikminjasafnið minnist Einars Kristjánssonar óperusöngvara

Miðvikudaginn 24. nóvember minnist Leikminjasafn Íslands aldarafmælis Einars Kristjánssonar óperusöngvara í samvinnu við Söngskólann í Reykjavík. Athöfnin fer fram í sal Söngskólans, Snorrabúð, Snorrabraut 54, kl 17. Ferill Einars verður rifjaður upp og spjald til minningar um hann í flokknum Merkisdagar íslenskrar leiklistarsögu afhjúpað. Sönglist verður í boði nemenda skólans.

Aukasýningar á Ódauðlegu verki um draum og veruleika

Tvær aukasýningar verða á Sjónleik Áhugaleikhúss atvinnumanna, Ódauðlegt verk um draum og veruleika, sem er fjórða í röð fimm Ódauðlegra verka um mannlegt eðli og tilvist. Af því tilefni verður endursýnt Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna á ensku en verkið er annað í röð Ódauðlegu verkanna og var sýnt á dögunum á sviðslistahátíðinni Keðju hér […]

Af Útistöðum í Ölfusi

Leikfélag ÖlfussStútungasagaLeikstjóri Ármann Guðmundsson Getur verið að í liði brennumanna við hefðbundna bæjarbrennu á Sturlungaöld hafi verið einn rómantískur blómálfur sem hugsaði um það eitt að finna fágætar jurtir sem uxu við bæinn Kaldakol meðan félagar hans brytjuðu niður menn, konur og börn? Stútungasaga sem fagnar á árinu 17 ára afmæli er vel gert ærsla […]

125. sýningin á Leitinni að jólunum og 100. sýningin á Fíusól

Fíasól var frumsýnd í mars síðastliðnum og hefur síðan þá verið sýnd fyrir fullu húsi. Sýning númer 100 er n.k. sunnudag kl. 15.  Eins og alkunna er þá er Fíasól hin mesta gæðastúlka og auk heldur uppátækjasöm með afbrigðum. Því ákvað hún að gefa Neista, styrktarfélagi hjartveikra barna sýninguna. Sjöttu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið […]

Leikfangalíf, jólaleikrit Borgarbarna, sýnt í Iðnó

Þann 27. nóvember nk. frumsýnir Barna- og unglingaleikhópurinn Borgarbörn nýtt leikrit sem heitir Leikfangalíf. Höfundur þess og leikstjóri sýningarinnar er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningar fara fram á skólatíma, um eftirmiðdaginn og um helgar. Sem fyrr munu Borgarbörn bjóða upp á djús og piparkökur að sýningu lokinni.  Sýningargestum stendur til boða að koma með jólapakka merktum […]

Með fullri reisn í Brún, Bæjarsveit

Leikdeild Ungmennafélagsins Íslendings í Borgarfirði, frumsýndi gamanleikinn Með fullri reisn eftir Englendinginn Terrence Mcnally, undir leikstjórn Margrétar Ákadóttur, föstudaginn 12. nóvember. Húsfyllir var og skemmtu frumsýningargestir sér hið besta, enda uppsetningin með eindæmum hressileg. Í leikarahópnum að þessu sinni má sjá borgfirska bændur, nemendur, mjólkurbílstjóra, skógfræðinga,  leikskólakennara, forstöðumann og fleiri snillinga.

Íslandsklukkan sýnd á Akureyri um næstu helgi

Um næstu helgi, 19.-21. nóvember, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Íslandsklukkuna. Alls verða þrjár sýningar í menningarhúsinu Hofi á Akureyri, kvöldsýningar á föstudegi og laugardegi en á sunnudeginum er sýning kl. 14. Íslandsklukkan var frumsýnd þann 22. apríl á liðnu vori, í tilefni af 60 ára afmæli Þjóðleikhússins. Sýningin hefur fengið frábærar […]

Leikfélagið Grímnir frumsýnir þrjú leikverk á einum mánuði

Mikill kraftur er í Leikfélaginu Grímni í Stykkishólmi um þessar mundir en félagið frumsýnir þrjú leikrit núna á einum mánuði. Nú þegar hefur Grímnir frumsýnt einþáttunginn Kvöldhúm í þýðingu og leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Þann 25. nóvember verður svo Litla hryllingsbúðin frumsýnd og þann 1. desember Karíus og Baktus en Guðjón leiktýrir þessum sýningum einnig.

Mojito sýnt í Tjarnarbíói

Um sl. helgi var Mojito, nýtt leikverk eftir Jón Atla Jónasson, frumsýnt í Tjarnarbíói í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni glænýtt, bráðfyndið og sjóðandi heitt leikverk úr íslenskum raunveruleika. Í verkinu er fjallað um gildismat síðustu ára, gildismat góðærisins og hvaða gjald það í raun og veru felur í sér fyrir þá sem aðhyllast […]

Stuttverk fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Sunnudaginn 14. nóvember kl. 17 verður frumsýnd stuttverkadagskrá fyrir yngstu börnin hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Sýningin kallast Ævintýri gerast enn og þar koma fram hinar ýmsu ævintýrapersónur eins og prinsessan á bauninni, geiturnar þrjár og leikhúsflugurnar Bía og Finnur. Aðeins verða sýndar þrjár sýningar, sunnudaginn 14. nóvember kl. 17, sunnudaginn 21. nóvember kl. 14 og sunnudaginn […]

Réttarhöldin eftir Franz Kafka leikgerð hjá Stúdentaleikhúsinu

Á laugardaginn kemur, 13. nóvember, mun Stúdentaleikhúsið frumsýna Réttarhöldin eftir Franz Kafka á Norðurpólnum, Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi. Leikstjóri er Friðgeir Einarsson en hann skrifaði einnig leikgerð verksins. Skáldsagan Réttarhöldin heitir á frummálinu Der Prozess og er eins og áður segir eftir Franz Kafka  en hún var fyrst gefin út árið 1925 og er ein af […]

Æfingar hafnar á Helgi dauðans

Hjá leikfélaginu Hugleik standa nú yfir æfingar á leikritinu Helgi dauðans eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikstjórar sýningarinnar eru tveir, þeir Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í leikhópnum eru ellefu manns, þar af þreyta sjö hér frumraun sína með Hugleik. Stefnt er að frumsýningu í janúarmánuði.

Aukasýningar á Jóni Oddi og Jóni Bjarna

Sunnudaginn 31. október frumsýndi Leikfélag Sauðárkróks barna- og fjölskylduleikritið um eðaldrengina Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur. Áætlaðar voru 8 sýningar og var uppselt á flestar þeirra svo nú hefur verið ákveðið að bæta tveimur sýningum við. Þessa góðu aðsókn má líklega að nokkru leyti rekja til þess að miðaverð var lækkað umtalsvert […]

Herbergi 408 vekur athygli evrópsks leikhúsfólks

Gagnvirka netleikhúsverkið Herbergi 408 var tilnefnt til verðlauna í Prix Europa, keppni evrópskra ljósvakamiðla í flokknum Nýir miðlar nú á haustdögum. Prix Europa eru virt verðlaun í Evrópu en að keppninni koma opinberar sjónvarps- og útvarpsstöðvar í Evrópu og er t.a.m. RÚV aðili að keppninni. Tilnefnd eru verk í mörgum flokkum bæði heimildaefnis og leikins […]

Slappaðu af í Frumleikhúsinu í Keflavík

Föstudaginn 30. október frumsýndi Leikfélag Keflavíkur í samstarfi við Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja söngleikinn Slappaðu af eftir Felix Bergsson í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð. Danshöfundur er Bryndís Einarsdóttir. Verkið gerist á 7. áratug síðustu aldar en það voru miklir umbrotatímar á Íslandi eins og annars staðar í heiminum. Við sögu koma ást, hatur, sorg, gleði, vinstri, hægri, […]

Gaflaraleikhúsið tekur til starfa

Á laugardaginn kemur, þann 6. nóvember, flytur Gaflaraleikhúsið formlega í höfuðstöðvar leiklistarinnar í miðborg Hafnarfjarðar. Athöfnin hefst klukkan 14:00 í gamla Gúttó við Suðurgötu 7 (fyrir aftan Þjóðkirkjuna) sem um langan aldur var hjartað í leiklistarstarfi Hafnfirðinga. Þar stendur uppi yfirlitssýning Leikminjasafns Íslands um sjónleikjahald í Firðinum.

Saga hússins… frumsýnt á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 5. nóvember í Ungó. Nefnist það Saga hússins… og er eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjötta sinn sem farið er í samstarf af þessu tagi. LD […]

Fjölskyldusýningar í Tjarnarbíói

Næsta sunnudag mun Grímuverðlaunasýningin Bólu Hjálmar í uppsetningu Stopp leikhópsins ríða á vaðið sem fyrsta fjölskyldusýnininginn í Tjarnarbíó. Tjarnarbíó ætlar að vera með sem vera með eitthvað fyrir fjölskylduna alla sunnudaga í nóvember og desember. Sirkus Sóley verður svo með tvær sýningar næstu tvær helgar á eftir. Í upphafi aðventu mætir svo Augasteinn í uppsetningu […]

Leikfélag Siglufjarðar leitar leikstjóra

Leikfélag Siglufjarðar leitar að leikstjóra sem mun mæta til starfa í janúar eða febrúar 2011.  Leikfélag verður 60 ára á næsta ári og hefur hug á að setja upp veglega sýningu af því tilefni. Áhugasamir geta sent formanni leikfélagsins, Vibekku Arnardóttur,  tölvupóst á netfangið vibearn@simnet.is

Bólu-Hjálmar í Tjarnarbíói 7. nóvember

Stoppleikhópurinn sýnir sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00 í Tjarnarbíói verðlaunaleikritið  Bólu-Hjálmar en leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars en sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingasýning ársins 2009. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Aðeins verður þessi eina sýning.