Svefnlausi brúðguminn mætir aftur á Krókinn
Leikfélag Sauðárkróks mun sýna gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann í Sæluviku 2011 sem hefst 1. maí. Leikritið er eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar og ku vera dæmigerður farsi þar sem allir eru að rekast á alla á röngum tíma og röngum stað, en allt fer vel að lokum. Æfingar hefjast um miðjan mars og […]
Mottur á fullorðna og vatnslitir fyrir börnin

Í tilefni af „Mottu-mars“ bendum við á að í verslun Bandalags íslenskra leikfélaga að Suðurlandsbraut 16 fæst mikið úrval af ódýrum gerfi-yfirvaraskeggjum fyrir þá sem af líffræðilegum orsökum eiga erfitt með að safna mottum eða þá sem vilja stytta sér leið í mottusöfnun fyrir sérstök tilefni. Einnig eru til vatnslitir til að mála börnin fyrir […]
Söngleikja-Stund með Margréti Eir
Tjarnarbíó og Majónes – leikhúsbar ætla að standa fyrir margvíslegum tónlistarskemmtunum í framtíðinni þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagská og hlaðborð í sal Tjarnarbíós undir nafninu Stundin. Stórsöngkonan Margréti Eir ríður á vaðið með Söngleikja-Stund föstudaginn 18 mars. Fyrir sýninguna munu þær Áslaug Snorra og Anna Bogga galdra fram óvænt, suðrænt og flúrað […]
Með fullri reisn í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla frumsýndi verkið Með fullri reisn fimmtudagskvöldið 3. mars á Melum í Hörgárdal. Leikritið er eftir Terrence McNally og þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og hefur hann, ásamt leikhópnum staðfært verkið heim í sveitina. Verkið fjallar um bændur og bændaiðnaðinn og hvernig þrengingar þar og í ferðaiðnaðinum reki þá […]
Lokasýning á Rocky Horror
Föstudaginn 4. mars klukkan 20:00 er lokasýning á söngleiknum Rocky Horror sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt fyrir fullu húsi í Hofi frá því í september. Sýningin er nú þegar orðin aðsóknarmesta sýning leikfélagsins frá upphafi og hefur hlotið mikið lof gesta. Nú er því allra síðasta tækifærið til þess að koma og sjá þessa einstöku […]
Dulúð og dularfullir atburðir hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss frumsýnir spunaverkið og gamanleikinn Hið dularfulla hvarf hollvinafélagsins, föstudaginn 4. mars í litla Leikhúsinu við Sigtún. Verkið fjallar um Hollvinafélag sunnlenskra þjóðsagna sem heldur af stað í ferðalag á slóðir sunnlenskra þjóðsagna. Undarlegir atburðir fara að gerast og einn af öðrum byrja meðlimir félagsins að hverfa með dularfullum hætti. Andi Móra, álfa og […]
Allir synir mínir eftir Arthur Miller frumsýnt
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 4. mars leikritið Allir synir mínir eftir Arthur Miller á Stóra sviðinu í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Arthur Miller er án efa eitt mesta leikskáld tuttugustu aldarinnar og Allir synir mínir er verkið sem gerði hann frægan, sannkölluð nútímaklassík um fjölskyldu þjakaða af leyndarmálum fortíðarinnar og ýmsa þá þætti í sálarlífi mannanna og […]
Sýningar á Sindra silfurfiski hefjast að nýju 6. mars

Sunnudaginn 6. mars hefjast aftur sýningar á barnaleikritinu Sindri silfurfiskur, sem vakti mikla hrifningu leikhúsgesta á öllum aldri á síðasta leikári. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í lagi að […]
Blessað barnalán frumsýnt í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll […]
Skemmtun sem kitlar hláturtaugarnar
Leikdeild UMF VökuÁ þriðju hæð / Amor ber að dyrumLeikstjóri Þorsteinn Logi Einarsson Mér var boðið í heimsókn upp í Þjórsárver á dögunum til að heimsækja leikdeild UMF. Vöku og sjá afrakstur erfiðis þeirra undanfarnar vikur. Það þurfti ekki kurteisissaka við til að þekkjast boðið enda ekki vanur öðru en góðum og skemmtilegum sýningum hjá […]
Einþáttungahátíð í Mosfellsbæ 29. apríl

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga dagana 29. apríl til 1. maí verður haldin einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Hefst hún kl. 14. föstudaginn 29. apríl og stendur fram á kvöld eftir því þátttaka leyfir. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru eindregið hvött til að taka þátt í hátíðinni.
Aðeins ein aukasýning á Lé konungi
Fullt var upp í rjáfur og margir þurftu frá að hverfa á síðustu sýningu á Lé konungi á föstudagskvöldið. Síminn hafði logað alla vikuna og tölvuskeytum rignt inn með áskorunum um að bæta við aukasýningu, þegar ljóst var í hvað stefndi, en aðstæður í leikhúsinu voru með þeim hætti að ekki var hægt um vik. […]
Kómedíuleikhúsið í Slipp
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði er væntanlegt til borgarinnar með nýjustu kómedíu sína í farteskinu. Um er að ræða afar kómískan gamanleik er nefnist Vestfirskur skáldskapur á 57. mín og Vestfirsk tónlist á 27. mín. Gamanleikurinn verður sýndur í Slippsalnum í Reykjavík fimmtudaginn 3. mars og föstudaginn 4. mars báðar sýningarnar hefjast kl.20. Miðasala á sýningarnar er […]
Laugardagskvöld með Jörundi og Bólu-Hjálmari
Núna er tækifæri til að kynnast tveimur af kynlegri kvistum íslenskrar sögu á einu bretti. Leiksýningarnar Bólu-Hjálmar og Ástir og örlög Jörundar hundadagakonungs verða sýndar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á laugardagskvöldið 26. febrúar kl. 20. Hvor sýning er tæp klukkustund að lengd og barinn verður að sjálfsögðu opinn, enda annað varla hægt þegar svona kappar […]
Kynningar- og umræðufundurinn Stóra myndin
Mánudagskvöldið 28. febrúar kl. 20 verður haldinn í Tjarnarbíói, kynningar- og umræðufundur Leiklistarsambands Íslands og aðildarfélaga um Íslandstofu og rannsóknina um stöðu Skapandi greina sem kynnt var 1. desember sl. Þar gefst tækifæri fyrir sviðslistafólk að fá að vita meira um rannsóknina og næstu skref í kjölfar hennar og kynna sér stefnumótun hins nýja vettvangs […]
Aukasýning á Helgi dauðans
Vegna mikillar aðsóknar hefur verið bætt við einni aukasýningu á Helgi dauðans og verður hún laugardaginn 26. febrúar kl. 20.00. Aðeins verður þessi eina aukasýning og því um að gera að tryggja sér miða í tíma.Helgi dauðans er nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Rúnars Lund og Sigurðar H. Pálssonar.
Leiklistarnámskeið í mars
Pálína Jónsdóttir leikhúslistamaður og Trausti Ólafsson leiklistarfræðingur halda 36 stunda námskeið í markvissri þjálfun í list og tækni leikarans í mars og apríl. Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að nýta dýnamískar aðferðir leiklistarinnar til að vinna heildrænt með líkama og rödd. Námskeiðið er fyrir sviðslistafólk, þá sem hafa leiklistarmenntun og vilja tileinka […]
Allskonar Elvis í Mosfellsbæ
Leikfélag Mosfellssveitar fagnar í ár 35 ára starfsafmæli sínu. Af því tilefni verður sýningin Allskonar Elvis, frumsýnd föstudaginn 18. febrúar. Sýningin, sem er samin af Maríu Guðmundsdóttur, leikhópnum öllum í samstarfi við leikstjóra er unnin úr hugmyndum um kónginn sjálfan, Elvis Presley, en er þó langt frá því að vera ævisaga hans. Fjöldi manns kemur […]
Styrkjum úthlutað til atvinnuleikhópa
Í gær var tilkynnt hvaða atvinnuleikhópar fá styrki frá Menntamálaráðuneytinu árið 2011. Alls sóttu 67 aðilar um styrki til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2011 eru alls 58,4 millj. kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð renna 4 millj. kr. til skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna skv. ákvörðun Alþingis. Samtals er úthlutað til […]
Snúður og Snælda sýnir Rauðu klemmuna
Leikfélagið Snúður og Snælda er nú að hefja sitt 21. leikár. Það má því segja að leikfélagið sé búið að slíta barnsskónum. En á síðasta ári hélt það upp á 20 ára afmælið með sýningu á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Að þessu sinni býður félagið upp á leikritið Rauða klemman […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Góða dátann Svejk
Laugardaginn 19. febrúar klukkan 20:00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Góði Dátinn Svejk, í leikgerð Írans Colin Teevan. Munu sýningar standa fram á vor. Stór hópur leikara og annara góðhjartaðra koma að uppsetningunni eða um fimmtíu manns, er síðast var talið. Leikstjóri er Þór Tulinus.
Aukasýningar á Súldarskeri
Vegna gríðarlegrar aðsóknar að Súldarskeri eftir Sölku Guðmundsdóttur í Tjarnarbíó er búið að bæta við fjórum auka sýningum 18. 22. 23 og 27. febrúar. Verkið er ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Tvær leikkonur leika öll hlutverkin, sem eru samtals hátt í tuttugu talsins. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir […]
Sjálfstæðir leikhópar í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus […]
Lab Loki sýnir Svikarann í Tjarnarbíói
Lab Loki frumsýnir Svikarann í Tjarnarbíó laugardaginn 19. febrúar. Verkið er einleikur, fluttur af Árna Pétri Guðjónssyni, en Rúnar Guðbrandsson leikstýrir. Þeir hafa í sameiningu unnið leikgerðina sem sækir innblástur m.a. til franska rithöfundarins Jean Genet og byggir einkum á leikverki hans Vinnukonunum (Les Bonnes). Filippía Elísdóttir sér um útlit sýningarinnar og Garðar Borgþórsson hannar […]
Blessað barnalán í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur Leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir 10 árum síðan var Týnda teskeiðin, líka eftir Kjartan. Hann leikstýrði einnig Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélaginu sem öll […]
Góðverk á Gjaldeyri
Halaleikhópurinn Góðverkin kalla Leikstjórar: Margét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Leiðin til vítis er vörðuð góðum ásetningi segir einhversstaðar og því má snúa upp á leikritið Góðverkin kalla sem Halaleikhópurinn frumsýndi um liðna helgi. Leikritið sem er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, gerist í þorpinu Gjaldeyri við Ystunöf og bakgrunnurinn í […]
Leikhúsnámskeið hjá Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ stendur fyrir þremur námskeiðum tengdum leiklist nú á vorönn. Hlín Agnardsdóttir, rithöfundur og leikstjóri, heldur tvö námskeið í leikritun, bæði grunn- og framhaldsnámskeið. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, heldur námskeið sem hann kallar „úr heimi sviðslistanna“ þar sem hann fer í gegnum leiklistarsöguna í máli og myndum.
Ársrit BÍL 2009-10 komið út
Eftir allnokkra töf vegna innbrots er Ársrit Bandalagsins 2009–2010 loksins komið út. Reyndar er það fyrst og fremst aðgengilegt hér á netinu og er hægt að hala því niður sér að kostnaðarlausu. Þó er hægt að kaupa útprentuð eintök á 1500 kr. í þjónustumiðstöð Bandalagsins, Suðurlandsbraut 16 (eða panta og fá sent í póstkröfu á […]
Með fullri reisn í Hörgárdalnum
Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrance McNally. Leikritið er þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni og leikstýrt af Jóni Gunnari Þórðarssyni og hefur hann ásamt leikurum staðfært verkið heim í Hörgárdalinn. Um er að ræða bændur sem sjá sér þann kost vænstan í kreppunni að drýgja tekjurnar með því að […]
Íslendingum boðið í Leiklistarskóla MáF í Færeyjum
Meginfélag áhugaleikara í Færeyjum bíður áhugasömum Íslendingum á námskeið í leikmyndagerð hjá danska leikmyndahöfundinum Jan de Neergaard eða á önnur námskeið í Leiklistarskóla Færeyja, sem starfa mun 1.-5. júní 2011 í Lýðháskóla Færeyja. Í skólanum verður einnig kennd leikritun, leikstjórn og leiklist. Íslendingum er boðin þátttaka í námskeiðinu, fæði og gisting þeim að kostnaðarlausu. Sjálfir […]
Brák á leið í Þjóðleikhúsið
Einleikurinn Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur hefur verið sýndur undanfarin þrjú ár á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Verkið var sérstaklega skrifað til flutnings þar og hefur sýningin, í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, gengið fyrir fullu húsi í þrjú ár. Nú hefur Landnámssetur – Brynhildur þegið boð Þjóðleikhússins um að sýna verkið í Kúlunni og hefjast sýningar […]
Skemmtileg dauðans alvara hjá Hugleik
HugleikurHelgi dauðansLeikstjórar: Rúnar Lund og Sigurður PálssonÉg hef stundum stungið upp á því að kalla síðustu aldamótakynslóð á Íslandi, „Friends“ kynslóðina, því að engin kynslóð hefur verið eins mikið mótuð af þessari amerísku sjónvarpsþáttaseríu og hún. Það var því ánægjuefni að sjá íslenskan leikritahöfund loksins takast á við það verkefni að skoða þennan hóp þar […]
Ballið á Bessastöðum á Stóra sviði Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 3. febrúar Ballið á Bessastöðum, nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Gerði Kristnýju með tónlist eftir Braga Valdimar Skúlason. Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í […]
Let´s Talk Iceland: Sjö frumsýningar á sjö dögum.
Kraðak ehf hefur frá júlí 2009 sýnt gamansýningar ætlaðar ferðamönnum á hverju kvöldi á Restaurant Reykjavík við góðar undirtektir. Undanfarnar vikur hafa hins vegar orðið þónokkrar breytingar á sýningunni og leikarahópurinn stækkað. Þá heitir sýningin ekki lengur Let´s talk Local – Reykjavík heldur Let´s talk Iceland.
Barnaleikritið Út í kött! í Tjarnarbíói
Lýðveldisleikhúsið sýnir leikritið Út í kött! eftir Benóný Ægisson í Tjarnarbíói sunnudaginn 30. janúar kl 14. Þetta er ævintýraleikur með dansi og söng fyrir börn en fullorðin börn ættu líka að hafa gaman að þessu fjöruga verki. Leikin atriði mynda skemmtilega umgjörð utan um söng- og dansatriði þar sem ævintýrapersónur í litríkum búningum bregða á […]
Stutt í frumsýningu hjá Halaleikhópnum
Halaleikhópurinn vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu sinni á verkinu Góðverkin kalla! eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, en allir eru þeir meðlimir Ljótu hálfvitanna og ekki er þetta í fyrsta skipti þar sem þeir félagar koma að uppsetningu leikverka fyrir Halaleikhópinn með einhverjum hætti. Þess má til gamans geta að leikstjórar […]
Leikfélag Selfoss á fullu skriði
Hafnar eru æfingar hjá Leikfélagi Selfoss á nýju leikverki. Að þessu sinni var ákveðið að setja upp spunaverk í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Gunnar Björn hefur leikstýrt víða, meðal annars kvikmyndunum Astrópíu og Gauragangi sem og áramótaskaupum síðustu tveggja ára. Verkið er gamanleikur fyrir alla fjölskylduna, en meginþráður þess byggir á sunnlenskum þjóðsögum og er […]
Helgi dauðans hjá Hugleik
Helgi dauðans nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur sem Hugleikur frumsýnir laugardaginn 22. janúar kl. 20.00 í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Leikstjórar eru Rúnar Lund og Sigurður H. Pálsson. Í Helgi dauðans beinir höfundur sjónum sínum að veruleika íslenskra háskólanema sem reyna eftir fremsta megni að feta einstigið milli lærdóms og skemmtunar, […]
Elsku barn í Borgarleikhúsinu
Borgarleikhúsið frumsýndi í vikunni sem leið leikritið Elsku barn eftir breska leikskáldið Dennis Kelly í þýðingu Hafliða Arngrímssonar. Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um […]
Súldarsker sýnt í Tjarnarbíói
Föstudaginn 14. janúar var Súldarsker, nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur, frumsýnt í Tjarnarbíó. Verkið er ærslafull, tragíkómísk, ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál. Leikarar eru Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir en Harpa Arnardóttir leikstýrir.