KADA, leiklistarnámskeið í Tjarnarbíói
KADA, The Kogan Academy of Dramatic Arts, er einn af leiðandi einkaskólum í leiklist á Englandi. Hann er víða þekktur fyrir aðferðir sínar, sem eru byggðar á kerfi Stanislavski. Stofnandi skólans, Sam Kogan, lærði undir nemanda Stanislavski og ákvað að þróa kenningar hans lengra, eftir að hann flutti frá Rússlandi til Englands.
Uppsprettan, breytt tímasetning
Uppsprettan hefur, undanfarin þriðjudagskvöld, staðið fyrir upplestrarröð á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust. Nú er komið að þriðja verkinu sem lesið og í þetta sinn verður leiklesturinn á fimmtudagskvöldið 12. […]
Brennuvargar í Samkomuhúsinu á Húsavík?
Heyrst hefur að tveir brennuvargar hafi hreiðrað um sig á loftinu hjá herra Biedermann, í gamla Samkomuhúsinu á Húsavík. Hvort rétt reynist kemur í ljós kl. 16.00 laugardaginn 7. febrúar þegar Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Brennuvargana eftir Max Frisch í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Bjarni Jónsson þýddi verkið.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Latex (gúmmí mjólk) er fljótandi efni notað til að búa til alls konar aukahluti sem notaðir eru í „special effect“ förðun, s.s. nef, eyru og eiginlega hvað sem er. Þá er efninu penslað í mót og látið þorna og síðan límt á með skegglími. Einnig er hægt að nota það beint á húð þó framleiðendur […]
Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói
Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl. 13.00 og 15.00 laugardaginn 14. febrúar.
Konan við 1000° á Stóra sviðið
Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú er hins vegar svo komið að sýningin verður að víkja úr Kassanum, fyrir Segulsviði eftir Sigurð […]
Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn sem þau stíga á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Skeggefni (ullarkrep) er fléttuð og lituð lambsull sem hentar vel til að búa til gerfiskegg, barta, augnabrúnir o.þ.h. Skeggefnið er einnig notað til að fela kanta á tilbúnum gerfiskeggjum eða til að búa til skeggstubba. Hárin í fléttunum eru u.þ.b. 15 cm. löng. Skeggefnið kostar 3.088 kr. meterinn og fæst í mörgum litum. Leikhúsbúiðn er […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Tíu litla strandaglópa
Halaleikhópurinn setur á svið morðsögu eftir drottningu glæpasagnanna, Agöthu Christie, Tíu litlir strandaglópar (And then there were none), í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýning er föstudaginn 30. janúar kl. 20.00. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“ og hefur starfað óslitið síðan. Í þessum hóp er fötlun hvorki […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford leiklistarháskólin mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 21. og 22. mars 2015. Rose Bruford er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London. Námið hefst í október 2015.
Arty Hour #10 í Tjarnarbíói
Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram. Arty Hour er haldinn á Tjarnarbarnum, aðgangur er ókeypis og að venju eru ljúffengar veitingar í boði á […]
Uppsprettan – skyndileikhús
Næst sýning Uppsprettunnar – skyndileikhúss, verður mánudaginn 9. Febrúar. Uppsprettan, sem hefur verið að hasla sér völl í íslensku leihúslífi, hefur það að markmiði að kynna nýja íslenska höfunda og gefa leikurum og leikstjórum tækifæri á að sýna sig og hæfileika sína. Undanfarið höfum við haldið utan um æfða leiklestra á verkum í fullri lengd […]
Eldbarnið, söfnun á Karolina fund
Skaftáreldar eru sögusvið Möguleikhússins í nýju barnaleikriti, þar sem þessir afdrifaríku atburðir Íslandssögunnar eru séðir frá sjónarhóli barns. Lítil stúlka virðist mega sín lítils þegar veröldin tekur hamskiptum og hætturnar virðast búa við hvert fótmál. En hugrekki og hjartahlýja reynast tryggir förunautar á óvissutímum. Eldbarnið verður frumsýnt í Tjarnarbíói laugardaginn 7. febrúar. Hér er slóð á […]
Danssýning í Frystiklefanum á Rifi
Föstudaginn 30. janúar verður haldin opin sýning á verkinu sem Oupa Sibeko hefur þróað og æft upp í Frystiklefanum. Verkið ber heitið Martröð. Sýningin hefst klukkan 20.00 og tekur um 20 mínútur í flutningi. Ókeypis aðgangur.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Latex skallahettur eru vel teygjanlegar og nokkuð eðlilegar ef þær eru vel settar á. Sníða þarf hettuna til og líma niður allan hringinn. Notið skegglím, ekki vatnsuppleysanlegt. Þegar hettan er komin á er hún förðuð og púðruð og að endingu förðuð aftur með sama lit og notaður er á andlitið. Hægt er að nota hettuna […]
Bót og betrun hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á farsanum Bót og Betrun eftir enska leikskáldið Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar […]
Nýtt verk frá höfundi Dags vonar
Á morgun, þriðjudaginn 20. janúar kl. 10, verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á nýju verki eftir Birgi Sigurðsson. Er ekki nóg að elska? er raunsæ og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem má ekki koma upp á yfirborðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir þar úrvalsliði leikara en Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk og […]
Sviðsettir leiklestrar á nýjum verkum
Uppsprettan stendur fyrir upplestri á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói næstu þriðjudagskvöld. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Grimas Filmblood. Fljótandi gerfiblóð sem þornar ekki en heldur glansinum. Þægilegt að nota til að klára sár og meiðsli. Fæst í þremur stærðum; 100 ml. kostar 1.778.-, 500 ml. kostar 5.039.- og 1000 ml. kostar 7.410.- Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á […]
Lífið – stórskemmtilegt drullumall
Ljósmyndasýning, aukasýningar og leikhússpjall – Leikhópurinn 10 fingur opnar ljósmyndasýningu um sköpun sýningarinnar Lífið – Aðferðin sem hópurinn notaði er einstök, sagan varð til úr vinnu með mold – Aukasýningar á verkinu í janúar og febrúar – Að lokinni sýningu 18. janúar munu aðstandendur sýningarinnar ræða við gesti
Málarekstur Síðbúinnar rannsóknar í Tjarnarbíó
Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns Hreggviðssonar. Verkið hefur […]
Stutt og laggott í Þorlákshöfn
Langar þig að virkja listræna hæfileika þína? Semja leikrit, leikstýra, leika eða flytja tónlist? Eða kannski allt ofantalið? Leikfélag Ölfuss blæs til stuttverkahátíðar sem hefst með höfundakvöldum í janúar, æfingar fara fram á þriðjudagskvöldum í febrúar og um miðjan mars sýnum við afraksturinn. Allir sem hafa áhuga og hafa náð 18 ára aldri eru hvattir […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Blóðpúður er litlaust duft sem borið er á húð og þegar það er bleytt kemur blóðeffektinn fram. Púðrið er þvínæst ósýnilegt áður en það blotnar. Hentar vel þar sem þörf er á að búa til blæðandi sár fyrir framan áhorfendur, hvort sem er á sviði eða í kvikmynd. Blóðpúðrið fæst í tveimur stærðum, 10 gr. […]
Ekki hætta að anda, frumsýning 15. janúar
Fimmtudaginn 15. janúar nk. kl. 20:00 frumsýnir leikhópurinn Háaloftið í samstarfi við Borgarleikhúsið nýtt leikverk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Ekki hætta að anda. Leikstjóri er Stefán Jónsson.
Námskeið fyrir innflytjendur
Frá og með 7. janúar heldur listahópurinn „við og við“ leiklistarnámskeið í samstarfi við Borgarleikhúsið. Námskeiðið er á miðvikudagskvöldum og er opið öllum en fer fram á ensku og hentar því innflytjendum vel og öðrum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Engrar reynslu er krafist nema brennandi áhuga á leiklist og sköpun en fyrsti tíminn […]
Öldin okkar í Borgarleikhúsið
Föstudaginn 9. janúar stíga félagarnir í Hundi í óskilum á Nýja svið Borgarleikhússins og sýna nýjasta verk sitt Öldin okkar. Leikritið var frumsýnt á Akureyri 30. okt. sl. og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda. Félagarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í hljómsveitinni Hundur í óskilum setja verkið upp í tilefni af 20 ára afmælis […]
Trú, von og trúðleikur – leikdagskrá
Leikfélag Kópavogs sýnir leikdagskrána Trú, von og trúðleik, fimmtudaginn 8. jan. kl. 20.00 í Leikhúsinu Funalind 2. Á dagskránni eru 6 leikþættir af ýmsum toga; Leikboðinn eftir Örn Alexandersson, Bæn eftir Fernando Arrabal, Man það ekki alveg… eftir Nick Zagone, Charlie eftir Fjölni Gíslason og Jón Gunnar Garðarsson, Áttu íbúfen, ég er með svo mikla trúðverki […]
Leiksýning á Rifi og frí gisting
MAR er nýtt íslenskt leikverk úr smiðju Frystiklefans í Rifi. Verkið er byggt á tveim sjóslysum sem urðu við strendur Snæfellsness á síðustu öld. Fyrra slysið átti sér stað í febrúar 1962 þegar togarinn Elliði sökk út af Öndverðarnesi. Í áhöfninni voru 28 manns. 26 björguðust. Síðara slysið gerðist í júlí 1997 þegar trillan Margrét […]
Áramótakveðja
Kæru vinir og velunnarar Bandalags íslenskra leikfélaga, við óskum ykkur öllum gleði og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samveru og samvinnu á árinu sem nú er að ljúka. Leikum núna!
Aukasýningar á Verksmiðjukrónikuni á milli jóla og nýárs
Vegna mikillar eftirspurnar verða aukasýningar á Verksmiðjukrónikuni 27. og 28. desember. Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk í verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum. Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa t.d. á ungu stúlkurnar og bretaþvottur er ekki öllum að skapi, margar skemmtilegar og […]
Jólakveðja
Bandalag íslenskra leikfélaga óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir samveru og samskipti á árinu sem er að líða. Skrifstofan og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá og með mánudeginum 22. desember. Við opnum aftur mánudaginn 5. janúar.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
T.V. Paint Stick frá Kryolan er kremkendur húðfarði af bestu gerð, vel þekjandi og berst vel á. Hann hentar vel fyrir leiksvið, ljósmyndun, kvikmyndir og fl. Fjarlægið farðann með hreinsikremi. Við seljum 8 litanúmer í 25 ml. stiftum á 3.000 kr. stk. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka […]
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja leitar að leikstjóra til að setja upp Litlu Hryllingsbúðina eftir áramótin. Starfstími er frá miðjum janúar til lok mars 2015. Umsóknarfrestur er til 29. desember 2014. Erum einnig opin fyrir öðrum hugmyndum að uppsetningu ef einhverjar eru. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á leikfelag@simnet.is
Lokunartími um hátíðarnar
Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúðin verða lokaðar frá og með mánudeginum 22. desember. Við opnum aftur mánudaginn 5. janúar. Í Leikhúsbúðinni færðu margar sniðugar jólagjafir handa fólki sem er áhugasamt um förðun og gerfi alls konar. Þið getið skoðað vörulistann hér.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Kryolan Concealer Circle, hyljarar í 6 lita 40 gr. dósum, framleiddir í mörgum mismunandi samsetnngum. Hyljararnir eru mjög þekjandi og eru notaðir til að hylja bauga, bólur og önnur lýti á húð fyrir förðun. Dósin kostar kr. 5.700.- Leikhúsbúiðn er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í […]
Skráningar hafnar í Leiklistarskóla LA
Skráningar eru hafnar í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar vegna vorannar. Það er einvalalið kennara sem mun starfa við skólann og ásamt hinni reglubundnu kennslu munu nemendurnir kíkja á æfingar á uppsetningu Lísu í Undralandi og vera í návígi við listamennina sem að sýningunni koma. Kennarar verða : Benedikt Karl Gröndal, leikari, Brogan Davison, danshöfundur, Margrét Sverrisdóttir, leikkona, Pétur […]
Jóladagatal Leikfélags Hólmavíkur
Leikfélag Hólmavíkur birtir jólaleikritið Jóladagatalið í útvarps/netútgáfu núna fyrir jólin. Stykkið var upphaflega samið og sýnt fyrir jólin 1989. Þættirnir eru 13 og koma eins og jólasveinarnir, einn á dag á vef Leikfélagsins næstu daga. https://www.youtube.com/watch?v=cdTmQK_0S8w&feature=youtu.be
Æfingar hefjast á Billy Elliot

Í vikunni hófust æfingar á stórsýningunni Billy Elliot. Sýningin er sú stærsta sem Borgarleikhúsið hefur sett upp en 68 listamenn taka þátt í henni, það eru 33 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Frumsýning er áætluð 5. mars. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og hafa verið í hörðu dansnámi síðastliðna 8 mánuði undir stjórn […]
Hættuför í Huliðsdal aftur á svið

Sýningar á barnaleikritinu Hættuför í Huliðsdal sem var sýnt fyrir troðfullu húsi á síðasta leikári hefjast á ný í Kúlunni þann 20. desember næstkomandi. Aðeins er boðið upp á örfáar sýningarhelgar. Áhorfendur og gagnrýnendur á öllum aldri lofuðu sýninguna sem var tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins og m.a. sögð „í senn þrælspennandi, bráðskemmtileg og […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Cake Make-up eða kökumeik eins og það er kallað er þekjandi andlitsfarði sem er auðveldur í notkun. Hann er framleiddur í mörgum húðlitum ásamt hvítum og svörtum, kemur í 35 gr. dósum og kostar dósin kr. 2.375.- . Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og […]