Trúðanámskeið á Akureyri
Trúðanámskeið verður haldið í Rýminu, æfingahúsnæði MAK við Hafnarstræti í apríl. Kennari er Sólveig Guðmundsóttir, sem leikur um þessar mundir í Lísu í Undralandi, en hún hefur unnið mikið með trúðatækni sl. ár. Farið verður í grunn tækniæfingar, hver þátttakandi mun þróa sinn trúð og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Námskeiðið […]
Berserkur í Tjarnarbíói
Berserkur er nýtt verk skrifað og þróað af Spindrift Theatre sem sameinar raunveruleika okkar og skáldskap Lísu í Undralandi. Frásagnarlist Carrolls skapar áhugaverðan grunn fyrir áþreifanlegan og tilraunakenndan leikstíl leikhópsins. Hópurinn nýtir sér galsafull og ryþmísk skrif Carrolls, „bulltexta“ hans í bland við þulur og álíka norræna frásagnalist. Frumsýning er 9. apríl kl. 20.00
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2015
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Melum í Hörgárdal dagana 2. og 3. maí 2014. Gist verður í Skjaldarvík. Leikfélag Hörgdæla býður öllum fundargestum í óvissuferð eftir kvöldverð föstudaginn 1. maí. Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 2. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 3. maí.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Foam Capsules frá Kryolan. Gelatínhylki fyllt með efni sem verður að hvítri froðu þegar hylkið er sett í munninn og bitið í sundur. Hver vill ekki geta froðufellt að vild? 10 hylki í dós kosta 2.272.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á […]
Ávörp á alþjóðlegum degi leiklistarinnar 27. mars 2015
Alþjóðlegi leiklistardagurinn er þann 27. mars, en hann hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1961. Það er Alþjóða Leiklistarstofunin ITI sem stendur fyrir verkefninu og viðburðum því tengdu. Á hverju ári hafa mikilsvirtir sviðslistamenn eða áhrifafólk úr öðrum geirum verið fengnir til að flytja hið alþjóðlega ávarp. Í ár er það pólski leikstjórinn Krzysztof Warlikowski sem […]
Atry Hour #12 í Tjarnarbíói í kvöld
Tólfta listastundin verður sneisafull af spennandi sviðslistaverkum. Arty Hour er sá tími sem þeir listamenn sem annað hvort eru að vinna að verkum sínum og/eða sýna í Tjarnarbíó kynna, deila og opna fyrir umræður á hugmyndum sínum. Viðburðurinn er ekki einungis fyrir listamenn og áhorfendur heldur einfaldalega fyrir alla þá sem hafa áhuga.
Barið í brestina, síðustu sýningar
Leikdeild Skallagríms sýnir um þessar mundir gamanleikinn Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson. Sýnt er í Lyngbrekku og eru síðustu sýningar dagana 25. 26. og 27. mars og aukasýning 4. apríl. Leikritið gerist á sambyggðri heilsugæslustöð og elliheimili á einum degi, segir frá lífi fólksins sem þar býr og starfar og […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Moustache Wax frá Kryolan. Glært skeggvax notað til mótunar á skeggi, bæði ekta og gerfi – svona í tilefni af Mottumars. 6 ml. túba kostar 1.176.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti […]
Þöggun á Möðruvöllum
Þöggun er saga þriggja skáldkvenna, Ólafar frá Hlöðum, Skáld Rósu og Guðnýjar frá Klömbrum. Verk um konur úr Eyjafirðinum, sem sáu um heimilið, búsýsluna og gerðu það sem ekki mátti, þær skrifuðu! Vakin er athygli á kvenskáldunum okkar. Bókmenntasagan skipar nefnilega ekki eintóm karlkynsskáld, þeirra minningu hefur hingað til bara verið haldið hærra á lofti. […]
Fjalla–Eyvindur og Halla
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 26. mars á Stóra sviðinu eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta, Fjalla–Eyvind og Höllu eftir Jóhann Sigurjónsson, í uppsetningu Stefan Metz. Sögur af útilegumanninum Fjalla-Eyvindi og hinni stórlyndu ástkonu hans, Höllu, sem uppi voru á átjándu öld hafa lifað góðu lífi með íslensku þjóðinni allt fram á okkar daga.
Sokkabandið frumsýnir Hystory
Leikhópurinn Sokkabandið frumsýnir nýtt íslenskt verk, Hystory, eftir Kristínu Eiríksdóttur sem var nýverið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í Borgarleikhúsinu 27. mars, 2015. Leikkonurnar Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Birgitta Birgisdóttir fara með hlutverkin í sýningunni en flær Elma Lísa og Arndís Hrönn hafa rekið Sokkabandið í um áratug og sett upp fjölmargar vandaðar […]
Er ekki nóg að elska?
Föstudaginn 20. mars kl 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu verkið Er ekki nóg að elska? eftir Birgi Sigurðsson. Birgir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fyrri verk sín. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir og fremst í flokki leikara er Kristbjörg Kjeld.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Fresh Scratch blóð frá Kryolan. Þykkt gerfiblóð í sultuformi sem heldur glansinum þegar það þornar. Frábært í sár, þornar fljótt og þarf bara að kroppa af. Til í Dark í 50 gr. dós á kr. 3.125. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á […]
Síðasta sýning á Óþarfa offarsa
Af óviðráðanlegum orsökum þarf að hætta sýningum á Óþarfa offarsa hjá Leikfélagi Kópavogs fyrr en áætlað var. Síðasta sýning verður sun. 15. mars. Verkið segir af borgarstjóra sem liggur undir grun um fjárdrátt og tveimur lítt hæfum lögreglumönnum sem undirbúa gildru á móteli til að standa hann að verki. Samband annars lögreglumannsins við kynsveltan endurskoðanda í […]
Nýjar vörur frá Kryolan
Leikhúsbúðin var að taka upp nýja sendingu af förðunarvörum frá Kryolan: Cine-Wax og FX Wax, Blóð í 100 og 50 ml. flöskum, Fresh Scratch sultublóð, Sealor, Litahjól, Supracolor 12 lita box, U.V. Dayglow, bæði stakir litir og 10 lita box, litað hárspray, Mastix Spirit Gum, T.V. Paint Stick o.fl. Engin verðhækkun. Kíkið á vörulistann hér.
Leiklistarskóli Bandalagsins 2015
Starfstími skólans á þessu ári er frá 6. til 14. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl. Í takt við traustar hefðir þá bjóðum við upp á margvísleg námskeið þar sem nemendur geta farið inn á nýjar brautir eða byggt á fyrri fræðslu. Fyrst er […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Double Tape – límrúllur og límbitar með lími báðu megin. Notaðir til að líma niður skegg, hárviðbætur og fleira. Dós með 100 bitum kostar 2.247 og límrúlla (5 m.) kostar 1.591. Breiddin á báðum er 12 mm. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert […]
Bravó, bravó Freyvangsleikhús!
FreyvangsleikhúsiðFiðlarinn á þakinuHöfundar: Joseph Stein, Jerry Bock og Sheldon Harnick. Þýðandi: Þórarinn HjartarsonLeikstjórar: Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir Fimmtudaginn 27. mars frumsýndi Freyvangsleikhúsið söngleikinn góðkunna Fiðlarann á þakinu eftir þá Joseph Stein, Jerry Bock og Sheldon Harnick. Hann þekkja margir og hafa séð – en það breytir engu, hann er löngu sígildur ekki síst fyrir […]
Galdrakarlinn í Oz fluttur á Þingeyri
Leikdeild Höfrungs á Þingeyri gerir það ekki endasleppt í leiklistinni. Í fyrra var settt á svið ævintýrið um Línu Langsokk sem sló öll met og var sýnt aftur og aftur. Enn er bætt í því núna er það sjálft ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz. Æfingar hafa staðið yfir frá því í lok janúar og nú […]
Minnisvarði í Tjarnarbíói
Leikhópurinn 16 elskendur kynna nýtt verk um sjónarspilið, ástina og samfélög mannanna. Jörðin er sléttari en billjardkúla. Minnisvarði er nýtt verk eftir 16 elskendur þar sem tekist er á við mikilvægi sjónarspilsins innan nútíma samfélags.Á undanförnum áratug hefur hversdagslegt líf einstaklingsins verið gert að stórfenglegu sjónarspili og rík áhersla lögð á möguleika hvers og eins á að […]
Æðisleg uppsetning
Leikfélag KópavogsÓþarfa offarsi eftir Paul Slade SmithLeikstjórn: Hörður Sigurðarson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Óþarfa offarsi er farsi sem hefur fest sig í sessi meðal betri farsa í leikhúslífi enskumælandi þjóða. Hann hefur verið settur upp 155 sinnum, þá aðallega sitt hvoru megin við atlantshafið. Einu löndin sem verkið hefur verið sett upp í, sem hafa ekki ensku […]
Einn kosss enn .. frumsýning 7. mars
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir laugardaginn 7. Mars kl 20.00 leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.
Segulsvið í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 12. mars í Kassanum nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Ung kona áttar sig á því að það sér hana enginn í erfidrykkju eiginmannsins sem drap sig úr dugnaði. Hún hefur alltaf verið bakhliðin á eiginmanninum og veit ekki lengur hver hún er.
Billy Elliot í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 6. mars kl 19.00 frumsýnir Borgarleikhúsið stærstu sýningu sem sett hefur verið upp í húsinu en 69 listamenn taka þátt í henni, það eru 34 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.
Frábærlega skemmtilegur farsi
Leikfélag SelfossBót og betrun eftir Michael CooneyLeikstjóri: Jón St. Kristjánsson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Bót og betrun er frábærlega skemmtilegur farsi; vel skrifaður og mjög vel þýddur. Undirrituð fór á frumsýningu, byrjaði fljótlega að gráta úr hlátri og hélt því áfram nokkurn veginn til loka. Það er svo gaman að sjá vel smurðan farsa þar sem […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Gel Foam frá Kryolan. Ætlað til að búa til viðbætur í andlit, s.s. nef, kinnbein, enni, hökur o.þ.h. Þetta eru kubbar úr gelatini sem hita þarf í örbylgjuofni. Þegar efnið er uppleyst og farið að bólgna út er því hellt í mót, látið kólna og síðan losað varlega. Það er nauðsynlegt að púðra efnið vel […]
Litli leikklúbburinn 50 ára
Litli leikklúbburinn á Ísafirði heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári. Og er margt á döfinni á næstu mánuðum. Leikklúbburinn frumsýnir gamanleikinn „Kallarðu þetta leikrit?!“ eftir Ágúst T. Magnússon í Edinborgarhúsinu 21. mars n.k. Um er að ræða samtíma gamanleik með 3 hurðum og söngvum, kossaflensi og kinnhestum. Fjallað er um tilveru […]
Einar Áskell á Brúðuloftinu
Aðstandendur Brúðuheima, þau Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir, eru nýkomin heim eftir fjögurra mánaða sýningarferð með sýningu sína Umbreytingu um Suður-Asíu og Mið-Austurlönd. Til að fagna heimkomunni bjóða þau nokkrar sýningar á litríkri sýningu sinni um hinn skemmtilega snáða Einar Áskel á Brúðuloftinu, sem er byggð á sögum Gunillu Bergström, áður en þau halda […]
Arty Hour #11 í Tjarnarbíói
Arty Hour er viðburður á Tjarnarbarnum þar sem listamenn við vinnu í Tjarnarbíó stíga fram og segja frá verkum sínum. Listastundin er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Tjarnarbíós að opna vinnusmiðjur listamanna fyrir áhorfandanum og hvetja til umræðna. Umræðuefnin í listastund Tjarnarbíós í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, ná milli Írans og Íslands, fjalla um Prómeþeif úr […]
Fiðlarinn á þakinu í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, söngleikinn Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í þýðingu Þórarinns Hjartarsonar. Leikstjórar eru þau Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, tónlistarstjóri er Brynjólfur Brynjólfsson og bróðir hans Ingvar Brynjólfsson sér um leikmynd.
Konan við 1000° á Stóra sviðið
Vegna gífurlegrar aðsóknar verður leikritið Konan við 1000°, sem byggir á vinsælli skáldsögu Hallgríms Helgasonar, frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudagskvöld. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Kassanum frá því í september og hlotið frábærar viðtökur. Þetta er fyrsta frumsýning leikstjórans Unu Þorleifsdóttur á Stóra sviðinu.
Tíu litlir strandaglópar
HalaleikhópurinnTíu litlir strandaglópar eftir Agöthu ChristieLeikstjóri: Guðjón Sigvaldason. Þýðandi: Hildur Kalman Í fjórða sinn hefur Halaleikhópurinn fengið hinn flinka Guðjón Sigvaldason til þess að leikstýra en fyrri sýningarnar hans þrjár voru hver annarri betri og skemmtilegri. Gaukshreiðrið komst á fjalir Þjóðleikhússins 2008 sem ahyglisverðasta leiksýning þess árs en Fílamaðurinn og Kirsuberjagarðurinn voru ekki síðri uppfærslur. […]
Bót og betrun á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn, 27. febrúar, gamanleikinn BÓT OG BETRUN eftir Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu […]
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Húðlím – Mastix Extra og Mastix Watersoluble frá Grimas. Mastix Extra er sterkt húðlín, notað á skalla, skegg, nef og fleira sem þarf að festa vel. Næst af með Grimas límeyði. Mastix Watersoluble er hægt að fjarlægja með vatni, það heldur ekki eins vel og extra límið en hentar vel þar sem minna reynir á. […]
Sweeney Todd á Hólmavík
Um þessar mundir setur Leikfélag Hólmavíkur upp leiksýninguna Sweeney Todd – morðóði rakarinn við Hafnagötuna. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson og í leikarahópnum er góð blanda yngri og reynslumeiri áhugaleikara. Þessi magnaða sýning býður upp á ferðalag um allan tilfinningaskalann – blóð, svita og tár!
Spilltur borgarstjóri og kynsveltur endurskoðandi
Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda í næsta herbergi einfaldar ekki framvinduna. Þegar við þetta bætast svo óöruggur öryggisvörður úr Ráðhúsinu, illskiljanlegur leigumorðingi og elskuleg borgarstjórafrú er […]
Einn koss enn í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim […]
Sterkar konur í Tjarnarbíói
Oft er rætt um að þáttur kvenna sé lítill í leiklistarheiminum, en þær Súsanna Svavarsdóttir, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, Aldís Davíðsddóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir láta svo sannarlega að sér kveða. Þær munu ræða sína sérhæfingu innan greinarinnar þriðjudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.00 í Tjarnarbíói.
Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins
Penslar úr uxahárum. Henta vel í Grimas vatnslitina. Koma í 5 stærðum; 2, 4, 6, 8 og 10 mm. breiðir. Verð í sömu röð; 445.-, 494.-, 618.-, 741.- og 889.-. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 […]
Workshop/audition hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Sunnudaginn næstkomandi, 15. febrúar, mun Leikfélag Hafnarfjarðar vera með workshop/audition fyrir næstu leiksýningu sína. Vinnubúðirnar verða frá kl. 13 – 17 í Gúttó, Suðurgötu 7, í Hafnarfirði. Sýningin verður devised uppsetning á einu frægasta verki franska absúrdismans; Bubbi kóngur eftir Alfred Jarry. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir sem er að góðu kunn fyrir allt mögulegt.