Jólasýning Borgarbarna 2015

Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið ber vinnuheitið „Ferðalagið“.  Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau hafa […]

Arty Hour #13 í Tjarnarbíói

Listastundin í Tjarnarbíó: verk í vinnslu og nýjar sýningar kynntar Nú er komið að því! Leikárið er farið af stað af krafti og því ekki seinna vænna en að opna dyrnar og skyggnast á hvað listamenn Tjarnarbíós eru að skapa og skipuleggja. Á Arty Hour eru kynnt verk sem verið er að setja upp í […]

65 ára afmælishátíð!

Við ætlum að blása í lúðra og efna til handritasamkeppni og leiklistargjörnings um allt land í tilefni af 65 ára afmæli Bandalagsins 2015, en það var stofnað 12. ágúst 1950. Þema samkeppninnar er afmæli og lykilorð sem hafa má í huga eru: 65 – áhugaleikari – veisla – tími. Miðað er við að tímalengd sé […]

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2014–15 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2014–2015 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með […]

Nazanin í Tjarnarbíói

Nazanin er nýtt sviðslistaverk í leikstjórn Mörtu Nordal um írönsku flóttakonuna Nazanin Askari. „Ég fæddist fyrir 28 árum. Það eru liðin 36 ár síðan íran varð íslamskt ríki, síðan öllum konum var gert að ganga með slæður, ritskoðun komið á og frelsi borgara skert. Fyrir 36 árum breyttist allt í mínu landi. Það sem áður […]

Frami í Tjarnarbíói

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Það var frumsýnt á leiklistarhátíðinni Lókal/Reykjavík Dance Festival á dögunum, en snýr nú aftur í Tjarnarbíó […]

Breska verðlaunaverkið At í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 18. september kl. 20 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á Nýja sviðinu breska verðlaunaverkið At eftir Mike Bartlett í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Gretar Reynisson gerir leikmynd og búninga en Hallur Ingólfsson samdi tónlistina. Tveir nýútskrifaðir leikarar eru í leikhópnum, leikarar eru Valur Freyr Einarsson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Eysteinn Sigurðarson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Sagan: Tvö […]

Leiklistarsaga Bíldudals á bók

Sögusagnir eru margar. Ein þeirra er sú að Bílddælingar geri meira af því að skemmta sér en að vinna. Meðan íbúar næsta þorps geri akkúrat öfugt. Ekkert skal fullyrt um þessa sögn enda er hún bara saga ef til vill bara þjóðsaga. Hitt er hinsvegar alveg ljóst og marg vitað að list hefur allt frá […]

Ný íslensk óperetta á Ísafirði

Hin nýstofnaða Ópera Vestfjarða frumsýnir sitt fyrsta verkefni núna á fimmtudag. Það er óperettueinleikurinn „Eitthvað sem lokkar og seiðir…“. Verkið fjallar um söng- og leikkonuna Sigrúnu Magnúsdóttur, sem nefnd hefur verið „óperettudrottning Íslands“. Það er Elfar Logi Hannesson sem samdi verkið og er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Óperusöngkonan Sigrún Pálmadóttir bregður sér í ýmis gervi óperettudrottningarinnar […]

Í hjarta Hróa hattar, frumsýning um helgina

Leikritið Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í uppfærslu Vesturports verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 12. september kl. 19.30 . Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í magnaðri nýrri leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn […]

Lokaæfing í Tjarnarbíói

Tjarnarbíó kynnir með stolti fyrstu samstarfssýningu leikársins. Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman […]

4:48 PSYCHOSIS

Frumuppfærsla á Íslandi á bresku verki eftir Söru Kane, 4:48 Psychosis, sem frá því það var frumsýnt árið 2000 hefur vakið gríðarlega athygli og umtal víða um heim. Frumsýnt í Kúlunni 10. september kl. 19.30. Munið ljósið og trúið á ljósið Augnablikið heiðskírt rétt fyrir eilífa nótt ekki láta mig gleyma Verk leikskáldsins Söruh Kane […]

BRÍET í Tjarnarbíói

Dansverk um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur – aðeins þrjár sýningar 4., 10. og 13. september. Dansverkið Bríet var nýlega frumsýnt á Reykjavík Dance Festival við frábærar viðtökur og heldur nú áfram í Tjarnarbíó. Athugið að verkið verður aðeins sýnt þrisvar sinnum og því ekki gott að fresta miðakaupum! Verkið er samið til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur kvenréttindakonu. Það er […]

Móðurharðindin, frumsýning í Þjóðleikhúsinu

Móðurharðindin eftir Björn Hlyn Haraldsson verður frumsýnt í Kassanum 5. september. Þetta er annað leikrit Björns Hlyns en verk hans Dubbeldusch var frumsýnt við góðan orðstýr á leikfélagi Akureyrar fyrir nokkrum árum. Björn Hlynur er einn af okkar fremstu kvikmynda- og sviðsleikurum og er einn af stofnmeðlimum leikhópsins Vesturports. Á þessu leikári mun Björn Hlynur […]

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa […]

Opið hús í Borgarleikhúsinu

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag, 29. ágúst kl 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Kristín Eysteinsdóttir mun reiða fram af myndarskap ásamt […]

Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Laugardaginn 29. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hagnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Síðasta sýning heppnaðist glimrandi vel og og voru sjö verk sýnd á föstudaginn var. Að þessu sinni verða 8 verk tekin til sýninga og því 15 ný íslensk verk sem félagið býður upp á að þessu sinni. Hið vikulega þessa vikuna […]

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Líkt og undanfarin ár stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6. og 7. bekk) og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára (8. bekk og eldri). Þau hefjast 8. sept. og standa til loka nóvember. Námskeið verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp […]

Námskeið í leikritun hjá Karli Ágústi Úlfssyni

Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í leikritun nú í byrjun september í húsnæði sínu að Eyjarslóð 9. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á að spreyta sig við leiktextasmíð, jafnt algerum byrjendum og þeim sem einhverja reynslu hafa. Í gegnum nokkrar æfingar skoðum við grunneiningar leikritsins – upphaf, miðju […]

Nýtt leikár kynnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2015-2016 með glæsilegu blaði sem kom út í dag. Dagskrá vetrarins eru mjög fjölbreytt og er öllu tjaldað til. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri en nokkru sinni fyrr í sögu íslensks leikhúss. Fjöldi kortagesta hefur margfaldast og hafa þeir aldrei verið fleiri. Úr […]

Hið vikulega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Nú á föstudaginn 21. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Að þessu sinni verða sjö verk tekin til sýningar eftir jafn marga höfunda. Þema vikunnar að þessu sinni var Fíflið – The Fool og munu því öll verkin að þessu sinni fjalla að einhverju leyti um fíflið í einni […]

Ævintýraóperan Baldursbrá í Hörpu

Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson verður frumflutt á sviði í Norðurljósasal í Hörpu laugardaginn 29. ágúst 2015 og er miðasala hafin Hér er um tónleikauppfærslu að ræða. Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásardóttir sópran […]

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur leikárið á Hinu Vikulega

Höfundar Leikfélags Hafnarfjarðar sitja nú við að skrifa leikrit fyrir Hið vikulega, en æfingar hefjast á því næstkomandi laugardag, 15. ágúst, kl. 14:00, en þá verður samlestur á nýskrifuðum verkum í anddyri Gaflaraleikhússins. Þeir sem hug hafa á því að taka þátt í hinu vikulega, endilega mætið á samlesturinn. Frumsýning á Hinu vikulega verður föstudaginn […]

Stuttverkasýning í Logalandi

Leikfélagið Sýnir stendur fyrir sýningu nokkurra nýrra íslenkra stuttverka í og við Félagsheimilið Logaland í Reykholtsdal laugardaginn 8. ágúst kl. 17.00. Sýning er líður „ríjúnioni“ Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga en Leikfélagið Sýnir sér um skipulagningu og utanumhald á því. Sýnd verða verk eftir F. Ella Hafliðason, Gísla Björn Heimisson, Ingveldi Láru Þórðardóttur, Ólaf Þórðarson og […]

Tjarnarbíó opnar á ný

Tjarnarbíó opnar aftur í ágúst eftir breytingar á sal og búnaði. Fyrsta sýning haustsins kemur frá Spáni, en það er leikhópurinn Patricia Pardo sem sýnir sirkusverkið Comissura. Verkið er sýnt 6. og 7. ágúst kl. 20:00. Miðasala er hafin, en miðinn kostar 2500 kr. Sirkusverkið Comissura inniheldur nærbuxnalausan loftfimleikamann í rólu, ótrúan slagverksleikara, konu þakta […]

Act alone í sjávarþorpinu Suðureyri

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 5. – 8. ágúst. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á hátíðina. Já, frítt á alla þá 21 viðburð sem verður í boði á Act alone 2015. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja óskar eftir hugmyndaríkum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem verður barna- og fjölskyldusýning. Áætlaður æfingatími er frá byrjun september til byrjun nóvember. Leikfélagar eru opnir fyrir öllum hugmyndum að uppsetningu. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar berast á netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 25. ágúst nk.

Sumarlokun

Þjónustumiðstöðin, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn loka vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 4. ágúst. Athugið að Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er líka lokuð. Sólarkveðja, Bandalag íslenskra leikfélaga

Rakarinn í Sevilla í haust

Hin vel þekkta gamanópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, er næsta verkefni Íslensku óperunnar og verður frumsýning þann 17. október næstkomandi í Eldborg í Hörpu. Með titilhlutverkið, hlutverk rakarans Fígaró, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem sló rækilega í gegn í Don Carlo hjá Íslensku óperunni síðastliðið haust og var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum […]

Leikfélag Selfoss til Danmerkur

Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu. Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er […]

Lilta gula hænan ferðast um landið

Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum um allt land í sumar. Þetta er níunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leikið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnt var í Elliðaárdalnum í Reykjavík […]

Leiklestur úr verkinu Lokaæfing

Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir næsta haust í Tjarnarbíói leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Leikarar munu leiklesa upp úr verkinu föstudaginn 19. júní kl. 17.40 í Ráðhúsinu og í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna mun gestum gefast kostur á að kaupa miða á sýninguna með 1.000 króna afslætti á staðnum í forsölu. Leikarar eru Nanna Kristín […]

Heima er þar sem ég halla mér

Heima er þar sem ég halla mér er leiksýning í óhefðbundinni leikmynd. Áhorfendur eru boðnir velkomnir inn í rútu á Kópaskeri og ævintýrið hefst. Svo keyri rútan áleiðis fyrir Melrakkaskléttuna til Raufarhafnar. Á leið sinni munu áhorfendur verða vitni af allskonar uppákomum, ekki bara inni í rútunni, heldur líka út um gluggann og á ákveðnum […]

Gríman 2015 – Úrslit

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 13. skiptið við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru þeir bræður Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik […]

Gríman 2015

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin 2015 verða haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu þann 16. júní nk. Kynnar kvöldsins eru þeir Kjartan og Árni Pétur Guðjónsson. Fjöldi skemmtiatriða er á dagskrá þetta kvöldið auk þess sem verðlaun verða veitt í 19 flokkum. Miðasala fer fram á midi.is Sjá tilnefningar hér. Facebook síða Grímunnar.

Leiklistarskólinn settur

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga var settur í nítjánda sinn að Húnavöllum sl. laugardag. Skólann sækja í ár 39 nemendur á þremur námskeiðum og fimm höfundar eru einnig í heimsókn alla vikuna. Námskeiðin sem boðið er uppá eru Leiklist II, kennari Ágústa Skúladóttir, Leikstjórn I, kennari Rúnar Guðbrandsson og sérnámskeiðið Haraldurinn, kennarar Bjarni Snæbjörnsson og Dóra […]

Spor, eða Moments, á leiklistarhátið í London

StepByStep leikhópurinn í London setur upp íslenska útvarpsverkið Spor, eða Moments, eftir Starra Haukson á leiklistarhátið í Crouch End í norður London í júní. Leikarahópurinn er alíslenskur og þýðing er í höndum Arons Trausta. Um sviðsútsetningu og leikstjórn sér sænski leikstjórinn, Maya Lindh. Verkið fjallar um Andra sem hefur upplifað þungan missi og hefur að […]

Tilnefningar til Grimunnar 2015

Tilnefningar til Grímunnar 2015 voru kunngjörðar við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í dag þann 3. júní. Allt í allt voru tilnefningarnar 89 talsins í 18 flokkum. Sýning ársins Billy Elliott eftir Lee Hall og Elton John í sviðsetningu Borgarleikhússins og Baltasars Kormáks Black Marrow eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet í sviðsetningu Íslenska dansflokksins Don […]

MagnusMaria: Stutt, heit og hinsegin ópera

Magnus Maria er ný, norræn ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur við líbrettó Katarinu Gäddnäs. Óperan fjallar um mannréttindi, réttindi kvenna til að velja sér starf og fá sömu laun og karlmenn, rétt samkynhneigðra og kynskiptinga og hefur sterka skírskotun í dag. Sýnd í kl. 20.00 kvöld, 3. júní, í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Maria Johansdotter […]

Vorverkin hjá Leikfélaginu Sýnum

Leikfélagið Sýnir sýnir fjögur ný stuttverk við leikskólann Steinahlíð (við austari enda Suðurlandsbrautar) laugardaginn 30. maí kl. 17.00. Sýningin útileiksýning og hefur hlotið samnefnið Vorverkin en verkin sem sýnd verða eru: Át-tak eftir Ólaf Þórðarson í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar Bláskaði eftir  Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ferðamannastraumur eftir Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Ástu Elínardóttur Að […]