Láttu bara eins og ég sé ekki hérna
Verkið Láttu bara eins og ég sé ekki hérna er grískur þátttökuharmleikur þar sem áhorfandinn lærir að þekkja sjálfan sig upp á nýtt. Við bjóðum áhorfendum að koma í Tjarnarbíó og gangast undir persónuleikapróf þar sem hann er leiddur í gegnum stig sjálfsupplýsingar og þarf að horfast í augu við sína innri pöndu. Verkið veltir því […]
KATE, frumsýning í Tjarnarbíói
Lost Watch í samstarfi við Miðnætti og Tjarnarbíó frumsýnir KATE, gamanleik um íslenskt fjölskyldu- og herstöðvalíf í seinni heimsstyrjöldinni í Reykjavík. Ísland, 1940. Bretarnir koma! Þegar 25.000 breskir hermenn lenda í Reykjavík og hertaka landið, hafa íslensku konurnar eitthvað nýtt til að einbeita sér að. KATE fjallar um íslenska fjölskyldu í seinni heimsstyrjöldinni, Selmu uppreisnargjarnri dóttur […]
Bráðskemmtileg fjölskyldusýning í Eyjum
Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz Leikfélag Vestmannaeyja Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir Helena Pálsdóttir rýnir sýningu Það er ekki hægt að segja annað en Leikfélag Vestmannaeyja sé ríkt af hæfileikafólki, fólki sem lætur gesti sína finna það alveg út í sal hversu gaman það hefur af því að skemmta sér og okkur hinum. Ég skellti mér á frumsýningu […]
65 ára afmæli!
Þessa dagana höldum við upp á 65 ára afmæli Bandalags íslenskra leikfélaga en það var stofnað 12. ágúst 1950. Í tilefni afmælisins var blásið til stuttverkasamkeppni. Dómnefnd valdi þrjú stuttverk sem send voru öllum aðildarfélögum til frírrar notkunar þessa viku. Mörg þeirra leika eða leiklesa þessi verk næstu daga. Til að vekja athygli á því […]
Þetta er grín á leið í Hörpuna, án djóks
Menningarfélag Akureyrar mun senn fara með verkið Þetta er grín, án djóks í leikferð í höfuðborgina, en leikritið verður flutt í Eldborgarsal Hörpu þann 28. nóvember. Þetta er grín án djóks, er sviðsetning Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarhúsið Hof og er samið af þeim Dóra DNA og Sögu Garðarsdóttur sem jafnframt leika aðalhlutverkin. Leikstjóri er […]
Stuttverkadagskrá Hugleiks
Á föstudaginn 20. nóvember mun Leikfélagið Hugleikur frumsýna stuttverkadagskrá sem hefur hlotið heitið Et tu Hugleikur? Þar munu svik hvers konar vera í forgrunni, könnuð til hlítar og, vonandi, afhjúpuð. Öll verkin eru frumsamin en boðið er á sjö brögðótta þætti að þessu sinni. Einnig verða leiklesnir tveir afmælisþættir Bandalags íslenskra leikfélaga. Kynnar verða Árni […]
Töfratárið, frumsýning í Mosfellsbæ
Töfratárið er nýtt íslenskt leikrit eftir Agnesi Wild í leikstjórn hennar verður frumsýnt sunnudaginn 22.11.2015 klukkan 15:00. Töfratárið fjallar um stúlkuna Völu sem þykir fátt skemmtilegra en að leika sér með bangsann sinn. Það er aðfangadagur og móðir Völu sem er læknir þarf að fara í vinnuna. Völu þykir það ósanngjarnt, grætur og bangsi huggar […]
Arty Hour #15 í Tjarnarbíói
Arty Hour nóvembermánaðar verður haldinn 16. nóvember kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Sómi þjóðar – Könnunarleiðangur til Koi Inga&Rósa – The Valley Ásgerður og Alex – […]
65 ára afmælishátíð – Stuttverkin tilbúin
Valnefnd hefur lokið störfum og valið þau þrjú af sjö innsendum verkum sem notuð verða við 65 ára afmælisgjörning aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga vikuna 16.-22. nóvember. Valnefndina skipuðu: Ágúst Magnússon Bernharð Arnarson Gísli Björn Heimisson Þráinn Sigvaldason Ylfa Mist Hlegadóttir Innsend verk og leyninöfn höfunda: Afmælisveislan hans Dóra Skjöldur Albatrossinn […]
Halaleikhópurinn sýnir Innlit í Stræti
Hlutar úr leikritinu Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar verða sýndir 14. og 15. nóvember kl. 20. Í „Innlit í Stræti“ verða flutt eintöl nokkurra íbúa strætisins þar sem við fáum nasaþef af persónuflóru. Við hittum Skinnið sem er bulla með ofbeldisfulla fortíð en hefur nú snúist til dharma. Prófessorinn, misheppnaður rithöfundur, fjallar um bókina […]
Fínasta fjölskyldusýning í Freyvangi
Klaufar og kóngsdætur eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Freyvangsleikhúsið Leikstjórn: Ármann Guðmundsson Brynhildur Þórarinsdóttir rýnir sýningu Fimm manna fjölskylda frá Akureyri lagði leið sína í Freyvangsleikhúsið sunnudaginn 25. október. Ætlunin var auðvitað að sjá Klaufa og kóngsdætur. “Nú þurfið þið að fylgjast vel með því að við eigum að meta leiksýninguna,” sagði […]
Absúrdismi á sjó í Kópavogi
Á rúmsjó eftir Slawomir Mrozek Leikfélag Kópavogs Leikstjóri: Örn Alexandersson Lárus Vilhjálmsson rýnir sýningu Ég skrapp í gær í litla leikhúsið hjá Leikfélagi Kópavogs til að sjá verk pólska leikskáldsins Slawomir Mrozek, Á rúmsjó. Það var við hæfi að aka í gegnum óreiðu íbúðarhúsa og verslunarmolla í Smárahverfinu sem minna helst á absúrd verk Picassos […]
Bangsímon á Selfossi
Bangsímon eftir Petre Snickars Leikfélag Selfoss Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Árni Hjartarson rýnir leiksýningu Þann 31. okt. s.l. frumsýndi Leikfélag Selfoss leikritið Bangsímon eftir finnska leikskáldið og leikarann Petre Snickars sem byggt er á hinum frægu sögum Alans Alexanders Milne um Bangsímon og vini hans frá þriðja áratug 20. aldar. Undirritaður fór á vettvang með konu […]
Hið hrekkjarvikulega í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar býður nú í tíunda skipti upp á leikhúsveislu undir merkjum Hins vikulega. Að þessu sinni er þemað Hrekkjavaka, enda fer sýningin fram á sjálfu Hrekkjavökukvöldinu, 31. október. Hið vikulega er stuttverkadagskrá sem lýtur ákveðnum lögmálum sem hún dregur nafn sitt af. Höfundar í höfundasmiðju LH fá viku til þess að semja stuttverk sem […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir Bangsímon
Nú er komið að því sem allir krakkar hafa beðið eftir. Leikritið Bangsímon verður frumsýnt hjá Leikfélagi Selfoss laugardaginn 31. október kl. 15:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Bangsímon er hugljúft og skemmtilegt leikrit fyrir börn á öllum aldri. Það var fyrst sett á svið hjá leikfélaginu fyrir 20 árum síðan og hlökkum við til […]
Á rúmsjó í Kópavogi
Þrír menn eru týndir úti á rúmsjó, skipreika á björgunarbát. Hungrið sverfur að og fljótt verður ljóst að til að einhverjir þeirra komist af þarf að beita róttækum aðferðum. Þeir rökræða sín á milli um hvað þurfi að gera svo einhverjir þeirra komist af umræðan snýst óhjákvæmilega um það hver þeirra er minnst virði. Þannig […]
Súrrealískt kaffihús
Einn rjúkandi kaffibolli Leikfélag Ölfuss Leikstjóri: Don Ellione Elín Gunnlaugsdóttir rýnir sýningu Rithöfundur nokkur venur komur sínar á kaffihús og reynir að sækja þar innblástur í skrif sín. Samtöl og uppákomur á kaffihúsinu, sem ber nafnið Einn rjúkandi kaffibolli, rata því mörg hver inn í skrif hans. Þetta er í stórum dráttum efni leikverksins Einn […]
Klaufar og kóngsdætur í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Klaufar og kóngsdætur laugardaginn 24. október kl. 20.00. Um er að ræða leikrit eftir þrjá Ljóta hálfvita, Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Ármann leikstýrir einnig verkinu. Verkið er leikgerð af sex ævintýrum H.C. Andersen; Eldfærunum, Næturgalanum, Hans Klaufa, Svínahirðinum, Förunautnum og Litlu stúlkunni með eldspýturnar – auk þess sem […]
Þetta er grín án djóks
Á morgun, fimmtudaginn 22. október, frumsýnir Menningarfélag Akureyrar glænýtt íslenskt verk í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og menningarhússins Hofs. Verkið ber titilinn Þetta er grin, án djóks og er eftir þau Halldór Laxness Halldórsson (Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur. Um er að ræða sprenghlægilegt gamanverk þar sem þau Saga og Dóri leika sig sjálf… ef þau […]
„Einn koss enn ..“ aftur á svið í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis æfir nú upp leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið var frumsýnt í vor en sýningar hættu skyndilega fyrir fullu húsi þegar einn leikarinn sleit hásin á miðri sýningu. Sýningar verða helgarnar 23. og 24. október og svo 30. og 31. október klukkan 20.00. Leikritið er eftir Marc […]
Þjóðleikhúsið í leikferð um landið
– Fimm ára börnum boðið á leiksýningu. Nú í október mun Þjóðleikhúsið leggja land undir fót og bjóða börnum víðsvegar um landið að njóta hinnar feykivinsælu Sögustundar. Þjóðleikhúsið hefur undanfarin sjö ár boðið börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu árlega í leikhúsið, til að njóta leiksýninga sem nefnast Sögustund. Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna […]
Arty Hour #14 – Listamenn Tjarnarbíós kynna verk sín
Októberútgáfa listastundar Tjarnarbíós verður haldin 19. október kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Jenný Lára Arnórsdóttir, sem sér um Uppsprettuna – skyndileikhús Finnbogi Þorkell Jónsson, höfundur verksins […]
Kardemommubærinn á Króknum
Næstkomandi laugardag, 17. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Hulda Valtýsdóttir þýddi verkið og Kristján frá Djúpalæk þýddi söngtextana. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Í Kardemommubæ búa margar skemmtilegar persónur sem lifa sínu lífi með bakaríi og rakarastofu og dýrasala, auk bæjarfógetans sem heitir Bastían. Það er líka eins gott því á stjái […]
65 ára afmælishátíð! Skilafrestur framlengdur til 20. október.
Við ætlum að blása í lúðra og efna til handritasamkeppni og leiklistargjörnings um allt land í tilefni af 65 ára afmæli Bandalagsins 2015, en það var stofnað 12. ágúst 1950. Þema samkeppninnar er afmæli og lykilorð sem hafa má í huga eru: 65 – áhugaleikari – veisla – tími. Miðað er við að tímalengd sé […]
Lífið – Stórskemmtilegt drullumall
Aukasýningar hefjast í Tjarnarbíói sunnudaginn 18. október, kl. 13:00 á Lífið – Stórskemmtilegt drullumall. Fyrsta aukasýning af fjórum. Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin vann tvenn Grímuverðlaun á síðasta leikári, “Barnasýning ársins 2015” og “Sproti ársins 2015”! Leiksýningin fjallar um sköpunarkraftinn, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið […]
Uppsprettan í Tjarnarbíói 20. október
Uppsprettan verður haldin í fimmta sinn í Tjarnarbíói þriðjudaginn 20. október. Formið er þannig að leikarar og leikstjórar fá ný íslensk stuttverk til að vinna með sólarhring fyrir sýningu. Þau hafa því einungis þennan eina sólarhring til að kynna sér handritið og átta sig á möguleikum þess. Þremur tímum fyrir sýningu hittast listamennirnir í fyrsta […]
Mávurinn, frumsýning 16. september
Föstudaginn 16. október kl. 20 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Stóra sviðinu Mávinn eftir Anton Tsjékhov í leikstjórn Yana Ross. Stórglæsilegir leikarar eru í sýningunni s.s. Halldóra Geirharðsdóttur, Björn Thors, Hilmir Snæ Guðnason, Guðrún S. Gísladóttir og margir fleiri. Mávurinn er eitt stórbrotnasta leikrit rússneska leikskáldsins Antons Tsjékhovs. Það er eitt besta leikrit allra tíma, gamansamt […]
Bangsímon á Selfossi
Það er heldur betur líf og fjör í Litla leikhúsinu við Sigtún þessa dagana því hafnar eru æfingar á leikritinu Bangsímon eftir Peter Snickars í leikstjórn okkar eigin Guðfinnu Gunnarsdóttur. Með þessari uppsetningu er brotið blað í sögu leikfélagsins því þetta er í fyrsta sinn sem verk er endursýnt hjá LS. Bangsímon var fyrst settur […]
Vegbúar í Borgarleikhúsinu
Fimmtudaginn 15. október kl 20 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Litla sviðinu nýtt íslenskt verk, Vegbúar eftir KK og Jón Gunnar Þórðarson. KK fer með eina hlutverk sýningarinnar en leikstjórn er í höndum Jóns Gunnar Þórðarsonar. Tónlistarmaðurinn KK stígur á svið og segir sögu gítaranna sinna sem hafa fylgt honum í blíðu og stríðu í gegnum […]
Leikverkið Petra sýnt aftur í Tjarnarbíói
Leikverkið Petra eftir Brogan Davison, Pétur Ármannsson og Björn Leó Brynjarsson snýr aftur á svið í Tjarnarbíói 17. október. Leikhópurinn Dansaðu fyrir mig sem stendur að sýningunni sýndi verkið nýverið á leiklistarhátíðinni í Tampere við góðan orðstír en hátíðin er sú stærsta sinnar tegundar á Norðurlöndum. Verkið var frumsýnt á leiklistarhátíðinni LÓKAL í ágúst 2014. […]
Þú kemst þinn veg
Þú kemst þinn veg eftir Finnboga Þorkel Jónsson verður sýnt í Tjarnarbíói 15. október. Höfundur verksins og sjálfur Garðar Sölvi, sá sem verkið byggir á, spjalla við áhorfendur eftir sýningu. Garðar hefur glímt við geðklofa frá unga aldri. Hann lifir í dag eftir umbunarkerfi sem hann þróaði sjálfur til að takast á við geðklofann og lífið. […]
Leikfélag Hólmavíkur sýnir Draugasögu
Miðvikudagskvöldið 7. okt. verður einleikurinn Draugasaga frumsýndur í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. […]
Einn rjúkandi kaffibolli í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Don Ellione, en þetta er í annað sinn sem hann leikstýrir hjá Leikfélagi Ölfuss. Verkið nefnist Einn rjúkandi kaffibolli og fjallar um rithöfund sem venur komur sínar á kaffihús eitt í von um að fá innblástur við bókaskrif. Það hleypur á snærið hjá […]
Ævintýri í álfheimum
Benedikt búálfur Leikfélag Norðfjarðar Leikstjórn: Guðmundur L. Þorvaldsson Árni Friðriksson rýnir í sýningu Þann 3. október frumsýndi Leikfélag Norðfjarðar Benedikt búálf í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Um er að ræða söngleik fyrir börn á öllum aldri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Leikritið er í raun mjög hefðbundið ævintýraleikrit um baráttu góðs og ills. Benedikt búálfur verður […]
Fallegar myndir af mæðrum og dætrum
Mæður Íslands Leikfélag Mosfellssveitar og Miðnætti Leikstjórn: Agnes Wild Hrund Ólafsdóttir rýnir sýningu Listahópurinn Miðnætti er alinn upp í Leikfélagi Mosfellssveitar. Þær Agnes Wild leikstjóri, Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður og Sigrún Harðardóttir tónlistarhöfundur, og flytjandi ásamt Lofti S. Loftssyni, eru ungar og flottar listakonur sem hafa gerst atvinnumenn eftir nám í útlöndum. Sem […]
Benedikt búálfur á Norðfirði
Leikfélag Norðfjarðar frumsýnir söngleikinn um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í Egilsbúð laugardaginn 3. október. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Dídí mannabarn rekur augun í Benedikt, þar sem hann stendur nakinn, en með handklæði um sig miðjan, í einu horninu á herbergi hennar – en búálfar eru aðeins sýnilegir mannabörnum þegar þeir eru blautir. […]
Lokaæfing í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman mást út mörk raunveru og ímyndunar. Umgjörð […]
Heimkoman í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. október á Stóra sviðinu leikritið Heimkomuna eftir nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar leikara og leikstjóra en það er einmitt afmælisdagur leikskáldsins Harolds Pinters. Óhætt er að segja að einvalalið íslenskra leikara fari með helstu hlutverk í sýningunni. Ingvar E. Sigurðsson leikur slátrarann Max en Ingvar hefur síðustu vikur fengið feykigóða […]
Mæður Íslands hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Miðvikudaginn 30. september verður leikverkið Mæður Íslands frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Mæður Íslands er nýtt, íslenskt leikverk, þar sem sagan er sögð frá sjónarhorni konunnar, móðurinnar og dótturinnar. Leikverkið er unnið út frá frásögnum og sögum um íslenskar konur, líf þeirra, tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á aðra og hvernig aðrir upplifa þær. Verkefnið er unnið með […]
Ný trúðasýning í Borgarleikhúsinu
Fimmtudaginn 1. október kl. 20 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á Litla sviði Borgarleikhússins nýtt íslenskt verk, Sókrates eftir Berg Þ. Ingólfsson og Kristjönu Stefánsdóttur í leikstjórn Rafael Bianciotto og Bergs Þórs Ingólfssonar. Egill Ingibergs gerir leikmynd og lýsingu en Kristjana Stefánsdóttir samdi tónlistina. Leikarar eru Kristín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Bergur Þór Ingólfsson og […]