Lilta gula hænan ferðast um landið
Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum um allt land í sumar. Þetta er níunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leikið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnt var í Elliðaárdalnum í Reykjavík […]
Leiklestur úr verkinu Lokaæfing
Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir næsta haust í Tjarnarbíói leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Leikarar munu leiklesa upp úr verkinu föstudaginn 19. júní kl. 17.40 í Ráðhúsinu og í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna mun gestum gefast kostur á að kaupa miða á sýninguna með 1.000 króna afslætti á staðnum í forsölu. Leikarar eru Nanna Kristín […]
Heima er þar sem ég halla mér
Heima er þar sem ég halla mér er leiksýning í óhefðbundinni leikmynd. Áhorfendur eru boðnir velkomnir inn í rútu á Kópaskeri og ævintýrið hefst. Svo keyri rútan áleiðis fyrir Melrakkaskléttuna til Raufarhafnar. Á leið sinni munu áhorfendur verða vitni af allskonar uppákomum, ekki bara inni í rútunni, heldur líka út um gluggann og á ákveðnum […]
Gríman 2015 – Úrslit
Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 13. skiptið við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru þeir bræður Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik […]
Gríman 2015
Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin 2015 verða haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu þann 16. júní nk. Kynnar kvöldsins eru þeir Kjartan og Árni Pétur Guðjónsson. Fjöldi skemmtiatriða er á dagskrá þetta kvöldið auk þess sem verðlaun verða veitt í 19 flokkum. Miðasala fer fram á midi.is Sjá tilnefningar hér. Facebook síða Grímunnar.
Leiklistarskólinn settur
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga var settur í nítjánda sinn að Húnavöllum sl. laugardag. Skólann sækja í ár 39 nemendur á þremur námskeiðum og fimm höfundar eru einnig í heimsókn alla vikuna. Námskeiðin sem boðið er uppá eru Leiklist II, kennari Ágústa Skúladóttir, Leikstjórn I, kennari Rúnar Guðbrandsson og sérnámskeiðið Haraldurinn, kennarar Bjarni Snæbjörnsson og Dóra […]
Spor, eða Moments, á leiklistarhátið í London
StepByStep leikhópurinn í London setur upp íslenska útvarpsverkið Spor, eða Moments, eftir Starra Haukson á leiklistarhátið í Crouch End í norður London í júní. Leikarahópurinn er alíslenskur og þýðing er í höndum Arons Trausta. Um sviðsútsetningu og leikstjórn sér sænski leikstjórinn, Maya Lindh. Verkið fjallar um Andra sem hefur upplifað þungan missi og hefur að […]
Tilnefningar til Grimunnar 2015
Tilnefningar til Grímunnar 2015 voru kunngjörðar við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í dag þann 3. júní. Allt í allt voru tilnefningarnar 89 talsins í 18 flokkum. Sýning ársins Billy Elliott eftir Lee Hall og Elton John í sviðsetningu Borgarleikhússins og Baltasars Kormáks Black Marrow eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet í sviðsetningu Íslenska dansflokksins Don […]
MagnusMaria: Stutt, heit og hinsegin ópera
Magnus Maria er ný, norræn ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur við líbrettó Katarinu Gäddnäs. Óperan fjallar um mannréttindi, réttindi kvenna til að velja sér starf og fá sömu laun og karlmenn, rétt samkynhneigðra og kynskiptinga og hefur sterka skírskotun í dag. Sýnd í kl. 20.00 kvöld, 3. júní, í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Maria Johansdotter […]
Vorverkin hjá Leikfélaginu Sýnum
Leikfélagið Sýnir sýnir fjögur ný stuttverk við leikskólann Steinahlíð (við austari enda Suðurlandsbrautar) laugardaginn 30. maí kl. 17.00. Sýningin útileiksýning og hefur hlotið samnefnið Vorverkin en verkin sem sýnd verða eru: Át-tak eftir Ólaf Þórðarson í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar Bláskaði eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ferðamannastraumur eftir Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Ástu Elínardóttur Að […]
Er ekki nóg að elska? síðasta sýning
Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í […]
Hið vikulega í Hafnarfirðinum
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Hið vikulega, stuttverkadagskrá þar sem höfundar fengu viku til að skrifa og leikarar og leikstjórar hafa viku til að æfa og setja upp. Í þetta skiptið er sýningin bönnuð börnum innan 16 ára. Ókeypis inn og öllum boðið (eldri en 16 ára). Sýningin byrjar kl. 20.00. Sýnt er í Gaflaraleikhúsinu, Víkingastræti 2. […]
Ást í meindýrum
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Ást í meindýrum fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00. Þættirnir sem verða fluttir eru Ást í hraðbanka, Á veröndinni einn bjartan vormorgun, Bóksalinn, Líflína og Meindýr. Níu leikarar undir stjórn þriggja leikstjóra taka þátt. Dagskráin verður aðeins sýnd tvisvar og verður seinni sýningin laugardaginn 30. maí kl. 20.00. Félagsmenn eiga að venju […]
Opinn samlestur á At
Miðvikudaginn 27. maí kl 10:05 verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á verkinu At eftir Mike Bartlett. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess […]
Eldhúsið í Tjarnarbíói
Jo Strømgren Kompani sýnir Eldhúsið í Tjarnarbíó laugardaginn 23. maí kl. 14.00. Stórskemmtileg barnasýning með Ívari Sverrissyni í aðalhlutverki. Leiksýningin Eldhúsið segir frá eldri manni og lítilli stelpu, tveimur ólíkum persónum, sem finna autt hús. Þau vilja bæði búa í húsinu en það er óljóst hver var fyrri til að finna það. Upphefst galsafullur leikur um það hver […]
Möguleikhúsið frumsýnir Hávamál
Á tíu ára afmæli Möguleikhússins árið 2000, var leikverkið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn frumsýnt í Tjarnarbíói á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin hlaut góðar viðtökur, vann til Grímuverðlauna og var sýnd á leiklistarhátíðum viða um lönd. Nú fagnar Möguleikhúsið 25 ára afmæli með uppsetningu á leikverkinu Hávamál eftir Þórarin Eldjárn og leikhópinn. Leikstjóri er Daninn Torkild […]
Stórfyndin sakamál á Eyjaslóð
Eins og svo oft áður setur reykvíska leikfélagið Hugleikur á svið nýtt íslenskt verk sem ber það stórbrotna nafn „Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið, taðreyktur sakamálatryllir“. Það gefur tóninn að alveg glimrandi skemmtun í litla leikhúsinu á Eyjaslóð. Anna Kristín Kristjánsdóttir, Sigrún Óskarsdóttur og Unnur Guttormsdóttir hafa sett saman skemmtilegt verk þar sem koma við […]
Dansveisla í Reykjavík og á Akureyri
Í komandi viku býður Íslendinga sannkölluð dansveisla þegar tveir erlendir danshópar mæta á klakann með stórfenglegar sýningar. Þetta er annars vegar pólski danshópurinn Polish Dance Theatre og hins vegar norskur danshópur sem kennir sig við stofnanda hans, Jo Strømgren Kompani. Koma danshópanna til landsins tengist samstarfi sem hóparnir tveir eiga við Sjálfstæðu leikhúsin og verður […]
Sýning og málþing um Inuk
Rúm fjörutíu ár eru síðan leiksýningin Ínúk-maðurinn var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1974. Leikrit samið í hópvinnu til sýninga í skólum um eskimóa og áhrif hins vestræna heims á menningu þeirra. Leiksýningin sló í gegn bæði heima og heiman og var boðið að sýna á leikhúshátíðum vítt og breitt um heiminn. Næstu fjögur árin var […]
Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir
Þann 9. maí 2015 lýkur leikfélagið Hugleikur leikári sínu með frumsýningu á nýju, hressu verki sem kallast Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið: Taðreyktur sakamálatryllir. Leikurinn gerist á hrörlegu veitingahúsi sem verið er að gera upp. Allt hangikjöt, rófur og Orabaunir hafa horfið af landinu með dularfullum hætti. Eru álfarnir að hefna sín af því að […]
Síðbúin rannsókn í Tjarnarbíói
DRAP HANN MANN EÐA DRAP HANN EKKI MANN? Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns […]
Endatafl í Tjarnarbíói
Fjórar persónur lokaðar inni í byrgi. Eru þetta endalok jarðlífsins? Það er augljóst að mikið liggur undir. Allt lífið. „Það er fátt jafn hlægilegt og óhamingjan. Hún er það hlægilegasta í heiminum,“ segir ein þeirra. Í þessu tragíkómíska verki Samuels Beckett eru harðstjórn og undirgefni í stöðugu samspili. Spyrja má hvort taflmennska Becketts felist ekki […]
Upp, upp – Æskusaga Hallgríms Péturssonar
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“ Æskusögu Hallgríms Péturssonar eftir Valgeir Skagfjörð í Gerðubergi miðvikudaginn 6. maí kl. 19.00. Aðeins þessi eina sýning og ókeypis inn! Leikritið segir frá uppvaxtarsögu Sr. Hallgríms Péturssonar og var skrifað í tilefni af 400 ára afmæli skáldsins. Verkið byggir að stærstum hluta á bókinni Heimanfylgju eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem öðrum […]
Ronja í Þjóðleikhúsið
Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2015 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Úrslitin voru kynnt á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund BÍL að Melum í Hörgársveit í kvöld. Í umsögn dómnefndar segir m.a. um sýninguna: „Sýning Leikfélags Mosfellssveitar á Ronju ræningjadóttur er heillandi og fjörug barnasýning þar sem fjölmargir þættir koma saman […]
Svipmyndir af aðalfundi BÍL 2015
Leiklistarvefurinn uppfærður
Löngu tímabær uppfærsla á Leiklistarvefnum er loks komin til framkvæmda. Uppfærslunni fylgja eðlilega töluverðar breytingar og einnig ýmsar nýjungar. Helsta nýjungin er opnun Leikhúsbúðarinnar, vefverslunar með ítarlegri og betri upplýsingum um leikhúsvörur af ýmsu tagi. Hægt er að panta vörur á vefnum og láta senda eða sækja í verslun.
Ný stjórn kjörin á aðalfundi
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var að Melum í Hörgársveit. Guðfinna Gunnarsdóttir var kjörin formaður en Þorgeir Tryggvason sem hafði setið sem formaður í fjögur kjörtímabil gaf ekki kost á sér áfram. Í aðalstjórn voru einnig kjörin Gísli Björn Heimisson og Ólöf Þórðardóttir. Áfram sitja Þráinn Sigvaldason og Bernharð […]
Aðalfundur BÍL settur
Aðalfundur BÍL var settur að Melum í Hörgárssveit kl. 9.00 í morgun. Rúmlega 60 fulltrúar frá 22 leikfélögum eru mættir á fundinn sem stendur fram á sunnudag.
Tvö dansverk sýnd í Tjarnarbíói 3. maí
Sunnudaginn 3. maí hyggst Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur skoða lánaða líkama í tveimur ólíkum sólódansverkum. Macho Man er sólóverk fyrir danslistakonuna Sögu Sigurðardóttur. Kafað er ofan í sveitta undirheima bardagaíþrótta, Macho dansstíla og fitnesskeppna. Sýningin er afrakstur vinnustofu á Dansverkstæðinu og er styrkt af Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna. Í Saving History er útgangspunkturinn persónuleg danssaga Katrínar síðustu […]
Afhausunarvélin í efsta gír
Nú um stundir býður Leikfélag Hafnarfjarðar upp á vel unna sýningu á Ubba kóngi eftir Alfred Jarry. Frá fyrsta andartaki og allt til loka bera hvert atriðið á fætur öðru í þessari uppfærslu þess vott að allir sem hönd lögðu á plóginn hafa lagt sig fram um að vanda til verka. Leikhópurinn er vel samhæfður […]
Barið í brestina á Króknum
Næstkomandi sunnudag, 26. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Barið í brestina. Leikritið er skrifað af Guðmundi Ólafssyni og var það upprunalega sýnt af Leikfélagi Ólafsfjarðar árið 2001. Sögusviðið er sambyggð heilbrigðisstofnun og elliheimili og fá áhorfendur innsýn inn í líf starfsmanna og vistmanna, en auk þess ber á góma færeyskur knattspyrnumaður og magaskoðunartæki. 15 leikarar […]
Lokað 24. apríl!
Viðskiptavinir athugið! Leikhúsbúðin og skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokaðar föstudaginn 24. apríl.
Peggy Pickit sér andlit guðs
Miðvikudaginn 22. apríl kl 20.00 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á litla sviði Borgarleikhússins verkið Peggy Pickit sér andlit guðs eftir þjóðverjann Roland Schimmelpfennig. Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir þar úrvalshópi leikara og þýðing verksins er í höndum Hafliða Arngrímssonar. HVAÐ ÞURFUM VIÐ EIGINLEGA AÐ BURÐAST LENGI MEÐ AFRÍKU Á SAMVISKUNNI?
Málþing um Birgi Sigurðsson
Laugardaginn 11. apríl kl. 11:30 mun Leikfélag Reykjavíkur halda málþing um leikskáldið Birgi Sigurðsson. Þau Magnús Þór Þorbergsson, leikhúsfræðingur, Salka Guðmundsdóttir, leikskáld, Stefán Baldursson, leikstjóri og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona munu flytja framsögu. Sveinn Einarsson, leikstjóri og leikhúsfræðingur, ræðir við Birgi og stýrir umræðum auk þess sem skáldið sjálft mun flytja eigin ljóð.
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Ubba kóng
Laugardaginn 11. apríl frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar leikritið Ubba kóng – skrípaleik í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Ubbi kóngur (Ubu roi á frummálinu) er kannski betur þekktur sem Bubbi kóngur, en Herranótt frumflutti verkið hér á landi undir því nafni árið 1969 í leikstjórn Sveins Einarssonar. Aðalhlutverk í þeirri uppfærslu voru leikin af […]
Athyglisverðasta áhugasýningin leikárið 2014-15
Þjóðleikhúsið stendur að venju fyrir samkeppni um athyglisverðustu áhugaleiksýninguna þetta leikár. Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Öll aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga geta tekið þátt. Umsóknir á að senda beint til Þjóðleikhússins og umsóknareyðublaðið er hér. Úrslit verða tilkynnt á hátíðarkvöldverði að Melum í Hörgárdal laugardaginn 3. maí.
Aukasýningar á Óþarfa offarsa í apríl
Þrjár aukasýningar verða á Óþarfa offarsa eftir Paul Slade Smith sem Leikfélag Kópavogs sýndi í febrúar og mars. Borgarstjórinn liggur undir grun um fjárdrátt og lögreglan undirbýr gildru á móteli til að standa hann að verki. Fljótt kemur í ljós að lögreglufulltrúarnir tveir eru kannski ekki þeir allra hæfustu og samband annars þeirra við kynsveltan endurskoðanda […]
Þú kemst þinn veg í Norræna húsinu
Síðasta tækifæri til að sjá Þú kemst þinn veg í Norræna húsinu um helgina. Í marsmánuði var leikverkið Þú kemst þinn veg sýndur tíu sinnum og þar af átta sýningar fyrir troðfullu húsi. Verkið er einlægur einleikur eftir Finnboga Þorkel Jónsson og fjallar um veruleika Garðars Sölva Helgasonar. Garðar hefur lengi strítt við geðklofa og […]
Leikfélag Sauðárkróks æfir Barið í brestina
Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Sauðárkróks á gamanleiknum Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikurinn gerist á heilbrigðisstofnun sem einnig er elliheimili og koma þar við sögu starfsmenn stofnunarinnar, vistmenn, bæjarstjóri og ráðherra. Þá er minnst á færeyskan fótboltamann og magaspeglunartæki sem ráðherrann hefur mikinn áhuga á að skoða.
Trúðanámskeið á Akureyri
Trúðanámskeið verður haldið í Rýminu, æfingahúsnæði MAK við Hafnarstræti í apríl. Kennari er Sólveig Guðmundsóttir, sem leikur um þessar mundir í Lísu í Undralandi, en hún hefur unnið mikið með trúðatækni sl. ár. Farið verður í grunn tækniæfingar, hver þátttakandi mun þróa sinn trúð og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Námskeiðið […]