Leikfélag Hólmavíkur sýnir Draugasögu

Miðvikudagskvöldið 7. okt. verður einleikurinn Draugasaga frumsýndur í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. […]

Einn rjúkandi kaffibolli í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Don Ellione, en þetta er í annað sinn sem hann leikstýrir hjá Leikfélagi Ölfuss. Verkið nefnist Einn rjúkandi kaffibolli og fjallar um rithöfund sem venur komur sínar á kaffihús eitt í von um að fá innblástur við bókaskrif. Það hleypur á snærið hjá […]

Ævintýri í álfheimum

Benedikt búálfur Leikfélag Norðfjarðar Leikstjórn: Guðmundur L. Þorvaldsson Árni Friðriksson rýnir í sýningu Þann 3. október frumsýndi Leikfélag Norðfjarðar Benedikt búálf í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Um er að ræða söngleik fyrir börn á öllum aldri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Leikritið er í raun mjög hefðbundið ævintýraleikrit um baráttu góðs og ills. Benedikt búálfur verður […]

Fallegar myndir af mæðrum og dætrum

Mæður Íslands Leikfélag Mosfellssveitar og Miðnætti Leikstjórn: Agnes Wild Hrund Ólafsdóttir rýnir sýningu Listahópurinn Miðnætti er alinn upp í Leikfélagi Mosfellssveitar. Þær Agnes Wild leikstjóri, Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður og Sigrún Harðardóttir tónlistarhöfundur, og flytjandi ásamt Lofti S. Loftssyni, eru ungar og flottar listakonur sem hafa gerst atvinnumenn eftir nám í útlöndum. Sem […]

Benedikt búálfur á Norðfirði

Leikfélag Norðfjarðar frumsýnir söngleikinn um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í Egilsbúð laugardaginn 3. október. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Dídí mannabarn rekur augun í Benedikt, þar sem hann stendur nakinn, en með handklæði um sig miðjan, í einu horninu á herbergi hennar – en búálfar eru aðeins sýnilegir mannabörnum þegar þeir eru blautir. […]

Lokaæfing í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman mást út mörk raunveru og ímyndunar. Umgjörð […]

Heimkoman í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. október á Stóra sviðinu leikritið Heimkomuna eftir nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar leikara og leikstjóra en það er einmitt afmælisdagur leikskáldsins Harolds Pinters. Óhætt er að segja að einvalalið íslenskra leikara fari með helstu hlutverk í sýningunni. Ingvar E. Sigurðsson leikur slátrarann Max en Ingvar hefur síðustu vikur fengið feykigóða […]

Mæður Íslands hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Miðvikudaginn 30. september verður leikverkið Mæður Íslands frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Mæður Íslands er nýtt, íslenskt leikverk, þar sem sagan er sögð frá sjónarhorni konunnar, móðurinnar og dótturinnar. Leikverkið er unnið út frá frásögnum og sögum um íslenskar konur, líf þeirra, tilfinningar, hvernig þær hafa áhrif á aðra og hvernig aðrir upplifa þær. Verkefnið er unnið með […]

Ný trúðasýning í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 1. október kl. 20 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á Litla sviði Borgarleikhússins nýtt íslenskt verk, Sókrates eftir Berg Þ. Ingólfsson og Kristjönu Stefánsdóttur í leikstjórn Rafael Bianciotto og Bergs Þórs Ingólfssonar. Egill Ingibergs gerir leikmynd og lýsingu en Kristjana Stefánsdóttir samdi tónlistina. Leikarar eru Kristín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Bergur Þór Ingólfsson og […]

Jólasýning Borgarbarna 2015

Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið ber vinnuheitið „Ferðalagið“.  Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau hafa […]

Gel Foam frá Kryolan

Vara uppseld í bili. Væntanleg um 20. október. Gel Foam frá Kryolan. Ætlað til að búa til viðbætur í andlit, s.s. nef, kinnbein, enni, hökur o.þ.h. Þetta eru kubbar úr gelatini sem hita þarf í örbylgjuofni. Þegar efnið er uppleyst og farið að bólgna út er því hellt í mót, látið kólna og síðan losað […]

Arty Hour #13 í Tjarnarbíói

Listastundin í Tjarnarbíó: verk í vinnslu og nýjar sýningar kynntar Nú er komið að því! Leikárið er farið af stað af krafti og því ekki seinna vænna en að opna dyrnar og skyggnast á hvað listamenn Tjarnarbíós eru að skapa og skipuleggja. Á Arty Hour eru kynnt verk sem verið er að setja upp í […]

65 ára afmælishátíð!

Við ætlum að blása í lúðra og efna til handritasamkeppni og leiklistargjörnings um allt land í tilefni af 65 ára afmæli Bandalagsins 2015, en það var stofnað 12. ágúst 1950. Þema samkeppninnar er afmæli og lykilorð sem hafa má í huga eru: 65 – áhugaleikari – veisla – tími. Miðað er við að tímalengd sé […]

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2014–15 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2014–2015 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með […]

Nazanin í Tjarnarbíói

Nazanin er nýtt sviðslistaverk í leikstjórn Mörtu Nordal um írönsku flóttakonuna Nazanin Askari. „Ég fæddist fyrir 28 árum. Það eru liðin 36 ár síðan íran varð íslamskt ríki, síðan öllum konum var gert að ganga með slæður, ritskoðun komið á og frelsi borgara skert. Fyrir 36 árum breyttist allt í mínu landi. Það sem áður […]

Frami í Tjarnarbíói

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Það var frumsýnt á leiklistarhátíðinni Lókal/Reykjavík Dance Festival á dögunum, en snýr nú aftur í Tjarnarbíó […]

Breska verðlaunaverkið At í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 18. september kl. 20 mun Leikfélag Reykjavíkur frumsýna á Nýja sviðinu breska verðlaunaverkið At eftir Mike Bartlett í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Gretar Reynisson gerir leikmynd og búninga en Hallur Ingólfsson samdi tónlistina. Tveir nýútskrifaðir leikarar eru í leikhópnum, leikarar eru Valur Freyr Einarsson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Eysteinn Sigurðarson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Sagan: Tvö […]

Leiklistarsaga Bíldudals á bók

Sögusagnir eru margar. Ein þeirra er sú að Bílddælingar geri meira af því að skemmta sér en að vinna. Meðan íbúar næsta þorps geri akkúrat öfugt. Ekkert skal fullyrt um þessa sögn enda er hún bara saga ef til vill bara þjóðsaga. Hitt er hinsvegar alveg ljóst og marg vitað að list hefur allt frá […]

Ný íslensk óperetta á Ísafirði

Hin nýstofnaða Ópera Vestfjarða frumsýnir sitt fyrsta verkefni núna á fimmtudag. Það er óperettueinleikurinn „Eitthvað sem lokkar og seiðir…“. Verkið fjallar um söng- og leikkonuna Sigrúnu Magnúsdóttur, sem nefnd hefur verið „óperettudrottning Íslands“. Það er Elfar Logi Hannesson sem samdi verkið og er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Óperusöngkonan Sigrún Pálmadóttir bregður sér í ýmis gervi óperettudrottningarinnar […]

Í hjarta Hróa hattar, frumsýning um helgina

Leikritið Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í uppfærslu Vesturports verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 12. september kl. 19.30 . Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í magnaðri nýrri leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn […]

Lokaæfing í Tjarnarbíói

Tjarnarbíó kynnir með stolti fyrstu samstarfssýningu leikársins. Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur á afmælisdegi höfundar 4. október. Uppsetningin er hluti af lestrarhátíð Bókmenntaborgar sem í ár er tileinkuð Svövu og hennar verkum. Hjón á fertugsaldri loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman […]

4:48 PSYCHOSIS

Frumuppfærsla á Íslandi á bresku verki eftir Söru Kane, 4:48 Psychosis, sem frá því það var frumsýnt árið 2000 hefur vakið gríðarlega athygli og umtal víða um heim. Frumsýnt í Kúlunni 10. september kl. 19.30. Munið ljósið og trúið á ljósið Augnablikið heiðskírt rétt fyrir eilífa nótt ekki láta mig gleyma Verk leikskáldsins Söruh Kane […]

BRÍET í Tjarnarbíói

Dansverk um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur – aðeins þrjár sýningar 4., 10. og 13. september. Dansverkið Bríet var nýlega frumsýnt á Reykjavík Dance Festival við frábærar viðtökur og heldur nú áfram í Tjarnarbíó. Athugið að verkið verður aðeins sýnt þrisvar sinnum og því ekki gott að fresta miðakaupum! Verkið er samið til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur kvenréttindakonu. Það er […]

Móðurharðindin, frumsýning í Þjóðleikhúsinu

Móðurharðindin eftir Björn Hlyn Haraldsson verður frumsýnt í Kassanum 5. september. Þetta er annað leikrit Björns Hlyns en verk hans Dubbeldusch var frumsýnt við góðan orðstýr á leikfélagi Akureyrar fyrir nokkrum árum. Björn Hlynur er einn af okkar fremstu kvikmynda- og sviðsleikurum og er einn af stofnmeðlimum leikhópsins Vesturports. Á þessu leikári mun Björn Hlynur […]

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa […]

Opið hús í Borgarleikhúsinu

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag, 29. ágúst kl 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Kristín Eysteinsdóttir mun reiða fram af myndarskap ásamt […]

Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Laugardaginn 29. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega aftur á dagskrá hjá Leikfélagi Hagnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Síðasta sýning heppnaðist glimrandi vel og og voru sjö verk sýnd á föstudaginn var. Að þessu sinni verða 8 verk tekin til sýninga og því 15 ný íslensk verk sem félagið býður upp á að þessu sinni. Hið vikulega þessa vikuna […]

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Líkt og undanfarin ár stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6. og 7. bekk) og hinsvegar fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára (8. bekk og eldri). Þau hefjast 8. sept. og standa til loka nóvember. Námskeið verða vikulega á þriðjudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri hóp […]

Námskeið í leikritun hjá Karli Ágústi Úlfssyni

Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í leikritun nú í byrjun september í húsnæði sínu að Eyjarslóð 9. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á að spreyta sig við leiktextasmíð, jafnt algerum byrjendum og þeim sem einhverja reynslu hafa. Í gegnum nokkrar æfingar skoðum við grunneiningar leikritsins – upphaf, miðju […]

Nýtt leikár kynnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið kynnir leikárið 2015-2016 með glæsilegu blaði sem kom út í dag. Dagskrá vetrarins eru mjög fjölbreytt og er öllu tjaldað til. Aðsókn í Borgarleikhúsið hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum og er meiri en nokkru sinni fyrr í sögu íslensks leikhúss. Fjöldi kortagesta hefur margfaldast og hafa þeir aldrei verið fleiri. Úr […]

Hið vikulega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Nú á föstudaginn 21. ágúst kl. 20 verður Hið vikulega frumsýnt hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í Gaflaraleikhúsinu. Að þessu sinni verða sjö verk tekin til sýningar eftir jafn marga höfunda. Þema vikunnar að þessu sinni var Fíflið – The Fool og munu því öll verkin að þessu sinni fjalla að einhverju leyti um fíflið í einni […]

Ævintýraóperan Baldursbrá í Hörpu

Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson verður frumflutt á sviði í Norðurljósasal í Hörpu laugardaginn 29. ágúst 2015 og er miðasala hafin Hér er um tónleikauppfærslu að ræða. Tónlistin byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Söngvarar eru Fjóla Nikulásardóttir sópran […]

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur leikárið á Hinu Vikulega

Höfundar Leikfélags Hafnarfjarðar sitja nú við að skrifa leikrit fyrir Hið vikulega, en æfingar hefjast á því næstkomandi laugardag, 15. ágúst, kl. 14:00, en þá verður samlestur á nýskrifuðum verkum í anddyri Gaflaraleikhússins. Þeir sem hug hafa á því að taka þátt í hinu vikulega, endilega mætið á samlesturinn. Frumsýning á Hinu vikulega verður föstudaginn […]

Stuttverkasýning í Logalandi

Leikfélagið Sýnir stendur fyrir sýningu nokkurra nýrra íslenkra stuttverka í og við Félagsheimilið Logaland í Reykholtsdal laugardaginn 8. ágúst kl. 17.00. Sýning er líður „ríjúnioni“ Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga en Leikfélagið Sýnir sér um skipulagningu og utanumhald á því. Sýnd verða verk eftir F. Ella Hafliðason, Gísla Björn Heimisson, Ingveldi Láru Þórðardóttur, Ólaf Þórðarson og […]

Tjarnarbíó opnar á ný

Tjarnarbíó opnar aftur í ágúst eftir breytingar á sal og búnaði. Fyrsta sýning haustsins kemur frá Spáni, en það er leikhópurinn Patricia Pardo sem sýnir sirkusverkið Comissura. Verkið er sýnt 6. og 7. ágúst kl. 20:00. Miðasala er hafin, en miðinn kostar 2500 kr. Sirkusverkið Comissura inniheldur nærbuxnalausan loftfimleikamann í rólu, ótrúan slagverksleikara, konu þakta […]

Act alone í sjávarþorpinu Suðureyri

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 5. – 8. ágúst. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á hátíðina. Já, frítt á alla þá 21 viðburð sem verður í boði á Act alone 2015. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja óskar eftir hugmyndaríkum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem verður barna- og fjölskyldusýning. Áætlaður æfingatími er frá byrjun september til byrjun nóvember. Leikfélagar eru opnir fyrir öllum hugmyndum að uppsetningu. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar berast á netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 25. ágúst nk.

Sumarlokun

Þjónustumiðstöðin, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn loka vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 4. ágúst. Athugið að Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er líka lokuð. Sólarkveðja, Bandalag íslenskra leikfélaga

Rakarinn í Sevilla í haust

Hin vel þekkta gamanópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, er næsta verkefni Íslensku óperunnar og verður frumsýning þann 17. október næstkomandi í Eldborg í Hörpu. Með titilhlutverkið, hlutverk rakarans Fígaró, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem sló rækilega í gegn í Don Carlo hjá Íslensku óperunni síðastliðið haust og var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum […]

Leikfélag Selfoss til Danmerkur

Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu. Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er […]