Sex í sveit í Árnesi

Leikdeild UMFG leggur þessa dagana lokahönd á undirbúning fyrir sýningar á hinu geysivinsæla leikverki Sex í sveit. Leikstjórn er í höndum Bjarkar Jakobsdóttur. Frumsýnt verður í Árnesi föstudagskvöldið 28. febrúar kl. 20:00. Verkið sem er eftir Marc Camoletti í íslenskri þýðingu og staðfæringu Gísla Rúnars Jónssonar, er bráðskemmtilegur farsi sem gerist í íslenskum sumarbústað þar sem óvæntar uppákomur, […]
Land míns föður í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Land míns föður föstudaginn 28. febrúar. Verkið er leikrit með söngvum um stríðsárin í Reykjavík, hernámið og það sem því fylgdi. Kjartan Ragnarsson skifaði verkið sem er með tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson. Hvaða áhrif hafði hernámið á íslendinga, einstaklinga og þjóðlífið í heild? Athyglin beinist að unga parinu Báru og Sæla og […]
Sex í sveit á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Sex í sveit í Samkomuhúsinu lau. 1 .mars næstkomandi. Verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti er hefðbundinn gamanleikur með alls konar misskilningi, flækjum, lygum, framhjáhaldi og almennu fjöri. Valgeir Skagfjörð leikstýrir hjá LH að þessu sinni. Sex í sveit fjallar um hjónin Benna og Þórunni sem fara í bústaðinn sinn í […]
Epli og eikur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla á Melum æfir nú söngleikinn Epli og eikur sem frumsýndur verður þann 27. febrúar. Söngleikurinn er skrifaður af Þórunni Guðmundsdóttur og var það fyrst sýnt af leikfélaginu Hugleik í Reykjavík árið 2007. Söngleikurinn Epli og Eikur fjallar um óhefðbundin ástarsambönd og glæpsamleg áhugamál nokkurra einstaklinga sem fléttast saman í sprenghlægilegan og flókinn eltingaleik. […]
Rokksöngleikurinn Ólafía hjá Eflingu

Leikdeild Eflingar frumsýnir laugardaginn 15. febrúar rokksöngleikinn Ólafíu eftir Hörð Þór Benónýsson með tónlist eftir Jaan Alavere. Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen og tónlistarstjórn er í höndum Mariku Alavere. Söngleikurinn fjallar um líf ungs fólks í dag og áreiti sem það verður fyrir, vímuefni, útlitsdýrkun, samfélagsmiðla og tvískinnungshátt fullorðna fólksins. Hressandi tónlist og fjör í […]
Námskeið í sýningarstjórnun og tækni leikhússins

Helgina 15. og 16. mars stendur Þjóðleikhúsið fyrir námskeiðum í sýningarstjórnun annars vegar og tækni leikhússins hins vegar. Námskeiðin verða kennd af sýningarstjórum og tæknimönnum hússins og verða kennd í Þjóðleikhúsinu. Skráning er á vef Þjóðleikhússins. Nánar um námskeiðin: Sýningastjóranámskeið Laugardaginn 15. Mars kl. 09:30 – 15:00 og sunnudaginn 16. Mars kl. 09:30 – 15:00 […]
Átta konur hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss vinnur nú hörðum höndum að 88. uppsetningu félagsins. Æfingar hófust í desember sl. og stefnt er á frumsýningu þann 14.febrúar. Rakel Ýr Stefánsdóttir leikstýrir verkinu sem heitir Átta konur og er „glæpsamlegur gamanleikur“ eftir franska leikskáldið Robert Thomas. Þýðing og aðlögun var í höndum Sævars Sigurgeirssonar. Við kynnumst glæsilegri eiginkonu, tveimur ungum og […]
Frumsýning á Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs frumsýnir fimmhurðafarsann Bót og betrun laugardaginn 1. febrúar kl. í Leikhúsinu að Funalind. Bót og betrun segir frá bótasvindlaranum Eric Swan sem grípur til þess ráðs að svíkja bætur út úr félagslega kerfinu, þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara […]
Blóðug myrkraverk í Tjarnarbíó

Kómedíuleikhúsið er mætt til borgarinnar með blóðuga en sögulega leikstykkið Ariasman eftir Tapio Koivukari. Árið 2011 kom út samnefnd bók eftir Tapio sem vakti mikla athygli. Enda er hér á ferð sönn saga um Baskamorðin hrottalegu á Vestfjörðum árið 1615. Leikritið Ariasman verður sýnt í Tjarnarbíó í Reykjavík og verða aðeins þrjár sýningar í boði. […]
NEATA Youth Festival í Litháen 2025

NEATA, Norður-Evrópsku áhugaleikhússamtökin bjóða íslenskum leikhóp ungmenna á leiklistarhátíð í Kreting í Litháen 8.-12. maí 2025. Hátíðin er ætluð leikhópum ungmenna á aldrinum 14.-17. ára. Leiksýningar skulu vera á bilinu 30-60 mínútna langar en að öðru leyti eru ekki gerðar kröfur um form eða innihald. Nánar má fræðast um hátíðina og skipulag hennar hér. Umsóknareyðublað […]
Lápur, Skrápur og jólaskapið á Ísafirði

Litli leikklúbburinn frumsýndi jólaleikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson, í leikstjórn Tinnu Ólafsdóttur um liðna helgi en þetta er fyrsta verkið sem Tinna leikstýrir. Uppselt var á báðar sýningarnar um helgina og fóru leikhúsgestir uppfullir af jólaskapi af sýningunni. Miðasala er í fullum gangi á sýningarnar á næstu helgi og hægt að kaupa […]
Fjórtándi jólasveinninn í Freyvangi

Fjórtándi jólasveinninn er frumsamið barnaleikrit eftir Ásgeir Ólafsson Lie og segir sögu af hinum hefðbundnu jólasveinunum 13 sem og Grýlu, Leppalúða og jólakettinum. Nema í þessu leikverki eru jólasveinarnir ekki bara þrettán heldur er þarna sá fjórtándi sem enginn átti von á. Þetta jólaævintýri er hugljúf jólasaga sem segir söguna af barni sem kemur óvænt […]
Blái hnötturinn á Flateyri

Laugardaginn 16. nóvember kl. 16:00 frumsýnir Leikfélag Flateyrar hið æsispennandi ævintýri um Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason. Sýnt verður í Samkomuhúsinu á Flateyri og er sýningin skemmtileg fyrir unga sem aldna. Í þessu spennandi og hlýja leikriti verða villibörnin sem búa á Bláa hnettinum logandi hrædd þegar geimskip brotlendir á plánetunni þeirra. Þar er […]
Uppselt fram að jólum í Ávaxtakörfunni

Leikfélag Hveragerðis frumsýndi Ávaxtakörfuna í lok september og hafa viðtökurnar ekki staðið á sér. Uppselt er á allar sýningar fram að jólum en síðasta sýning fyrir jól er sunnudaginn 8. desember. Þá fá leikarar og baksviðsfólk kærkomið jólafrí en þá verður búið að sýna 22 sýningar fyrir fullu húsi. Það er alltaf ánægjulegt þegar sýningar […]
Svarta kómedían á Borg

Leikfélagið Borg sýnir hinn sprenghlægilega farsa Svörtu kómedíuna í Félagsheimilinu Borg. Svarta kómedían er sprenghlægilegur farsi um ungan mann sem þarf að kljást við þrjá elskhuga sína, tannhvassan verðandi tengdaföður, og heyrnalausan miljónamæring – og það allt í algjöru rafmagnsleysi á regnvotu sunnudagskvöldi í London ca. 1965. Ungur listamaður og mikill elskandi að nafni Brindsley […]
Auglýst eftir leikskáldum og leiklesurum

Halaleikhópurinn skipuleggur leiklestra af ýmsu tagi í vetur. Í tilefni að því sendir hópurinn eftirfarandi skilaboð til allra sem áhuga kunna að hafa: Ertu blundandi skúffuskáld? Áttu handrit að leikverki sem þig langar að hlusta á leiklesið ? Handritin þurfa ekki að vera fullbúin og þau mega vera drög eða hlutar – stutt eða löng […]
Leikfélag Blönduóss 80 ára

Leikfélagi Blönduóss heldur upp á 80 ára afmæli félagsins næstkomandi laugardag með viðburði í Félagsheimili Blönduóss. Saga leiklistar á Blönduósi spannar allt aftur til ársins 1897 en leikfélagið á staðnum var stofnað árið 1944. Í tilefni af þessu merkisafmæli verður sögusýning, sýndar gamlar upptökur af sviði og félagsstarfinu og veittar heiðursviðurkenningar svo eitthvað sé nefnt. […]
Allir á svið í Frumleikhúsinu!

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á föstudaginn farsann Allir á svið, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson sem hefur áratuga reynslu í leiklist. Farsinn Allir á svið er oft kallaður Drottning farsana enda er hér um að ræða sprenghlægilegt verk sem hefur slegið í gegn hvar sem það hefur verið sett upp. Sýningin […]
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga 2024

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2024 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á síðasta leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Ársritið má skoða hér og/eða hlaða því niður.
Listin að lifa í Litla leikhúsinu við Sigtún

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur föstudaginn 25. október. Leikstjóri er Jónheiður Ísleifsdóttir. Sýningin fjallar um vinina Dúu, Duddu og Didda og er þeim fylgt gegnum lífið nánast frá vöggu til grafar með öllu því sem líf þeirra hefur upp á að bjóða, í blíðu og stríðu. Fimm leikarar eru […]
Leikfélag Sauðárkróks sýnir Ávaxtakörfuna

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í dag, þriðjudag 15. okt. Höfundur tónlistar er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Æft hefur verið síðastliðnar sex vikur og hefur æfingatímabilið gengið mjög vel. 9 leikarar leika í sýningunni en um 40 manns eru í leikhópnum sem koma að sýningunni með einum eða […]
Æfingar á haustverki Leikfélags Selfoss á fullu

Leikfélag Selfoss hefur nú heldur betur slegið í klárinn eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara síðustu tvö ár vegna framkvæmda við leikhúsið. Haustsýning leikfélagsins er leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Jónheiðar Ísleifsdóttur. Æfingar hófust um miðjan september og hafa gengið vel, mikil gleði er í leikhópnum og stjórn […]
Lokað föstudag 13. sept.

Lokað verður á Þjónustumiðstöð föstudaginn 13. september vegna fundar NEATA samtakanna í Noregi. Vefverslun Leikbúðarinnar ávallt opin.
Leiklistarnámskeið fyrir nýliða

Leikfélag Kópavogs býður upp á leiklistarnámskeið í byrjun september. Leiklistarnámskeiðið er ætlað nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í 6 skipti og aldurstakmark er 20 ára. Nánari upplýsingar má fá á vef leikfélagsins, […]
Opnunartímar í sumar

Fastur opnunartími í Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga og Leikhúsbúð verður 9,00-12.00 til og með 30. september. Athugið að vefverslun Leikhúsbúðarinnar er áfram opin allan sólarhringinn. Afgreiðsla pantana gæti þó tekið ögn lengri tíma en venjulega. Fyrirspurnir má senda á info@leiklist.is.
Leiklistarskóla BÍL slitið í 27. sinn

Leiklistarskóla BÍL var slitið í 27. sinn sunnudaginn 23. júní að Reykjum í Hrútafirði. 52 nemendur luku þar námí á fjórum námskeiðum; Leiklist I, Leikritun I, Leikstjórn IV og Sérnámskeiði fyrir leikara. Daginn áður fór fram ógurleg leikhúsveisla þar sem fluttir voru alls 19 leikþættir sem unnið hafði verið með vikuna á undan. Skólanefnd og […]
Þjóðleikhúsið setur á laggirnar nýjan leikhússkóla

Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára, með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí. Leikhússkóli Þjóðleikhússins býður upp […]
Fríðuþættir Hugleiks

Sunnudaginn 26. maí kl. 16 sýnir leikfélagið Hugleikur Fríðuþætti í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Aðeins þessi eina sýning. Og tilefnið er verðugt; höfundur verkanna – Fríða Bonnie Andersen er 60 ára og Hugleikur er 40 ára. Hér má sjá leikskrá sýningarinnar og þar er fallegt ávarp frá höfundi verkanna. Myndin er af henni Jonnu, […]
Fiðlarinn á þakinu er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2024

Sýning Litla leikklúbbsins á Ísafirði á Fiðlaranum á þakinu hefur verið valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnenfd Þjóðleikhússins. Vala Fannell frá Þjóðleikhúsinu tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði á aðalfundi Bandalagsins fyrir stundu síðan. Vala var formaður dómnefndar Þjóðleikhússins en með henni sátu leikararnir Örn Árnason og Björn Thors. Umsögn dómnefndar um sýninguna: „Það er samdóma álit […]
Rangæingar með Vífið í lúkunum

Leikfélag Rangæinga frumsýnir hinn sívinsæla farsa Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney föstudaginn 3. maí í Njálsbúð. Þýðandi verksins er Árni Ibsen og leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson. Sýningar eru í Nálsbúð eins og áður segir: Frumsýning föstudaginn 3. maí klukkan 20:00 2. sýning: 5. mai kl. 16:00 3. sýning 7. míi kl. 20:00 Miôapantanir […]
Hryllingur og sæla á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks setur nú upp verkið Litlu hryllingsbúðina í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð, en 13 manns fara með hlutverk í sýningunni. Litla hryllingsbúðin eftir Howard Ashman með tónlist eftir Alan Menken er verk sem flestir ættu að þekkja. Gísli Rúnar Jónsson þýddi leiktextannn en söngtextar eru í þýðingu Magnúsar Þór Jónssonar (Megasar). Söngleikurinn fjallar um hann […]
Lokað á Þjónustumiðstöð 19. og 22. apríl

Lokað verður á Þjónustumiðstöð BÍL fös. 19. og mán. 22. apríl. Tölvupóstum á info@leiklist.is svarað eins og kostur er og vefverslunin er ávallt opin.
Öfugu megin upp í á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur heldur uppteknum hætti að setja árlega upp leiksýningu og þetta árið er það farsinn Öfugu megin uppí eftir Derek Benfield sem varð fyrir valinu. Skúli Gautason er leikstjóri, fimm leikarar taka þátt í verkefninu og fjöldi fólks leggur sitt af mörkum. Í leikritinu segir frá Fríðu sem tekur að sér að gæta sveitahótels […]
Djöflaeyjan hjá Leikfélagi Keflavíkur

Leikfélag Keflavíkur frumsýndi leiksýninguna Þar sem Djöflaeyjan rís síðastliðið föstudagskvöld við mikið lof áhorfenda. Sýningin fjallar í stuttu máli um fjölskyldu Karólínu spákonu og líf þeirra í braggahverfinu í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. Leikgerðin, sem samin er af Kjartani Ragnarssyni, er byggð á bókum Einars Kárasonar Þar sem Djöflaeyjan rís og Gulleyjan. Leikarahópurinn er fjölbreyttur og […]
Beint í æð í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar sýnir um þessar mundir gamanleikritið Beint í æð eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Verkið er sannkallaður flækjufótur sem kallar á að áhorfandi taki ekki augun af sviðinu og fylgist með af öllum kröftum. Leikstjóri verksins er Valgeir Skagfjörð en þetta er í fyrsta skipti sem Valgeir leikstýrir fyrir Leikfélag Fjallabyggðar. […]
Lísa í Undralandi hjá Leikfélagi Hornafjarðar

Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir söngleikinn Lísu í Undralandi, laugardaginn 9. mars. Lísa leggur af stað í ótrúlegt ferðalag þar sem á vegi hennar verða ýmsar furðuverur og og hún lendir í allskonar óvæntum uppákomum. Leikstjóri er Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir og er þetta frumraun hennar sem slíkur. Alls taka 14 leikarar þátt í sýningunni en í hlutverki […]
Lína langsokkur í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar sýnir um þessar mundir leikritið Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren sem fólk á öllum aldri ætti að þekkja. Þegar ný stelpa flytur inn í Sjónarhól með apann sinn Herra Níels og hestinn Litla Kall umturnast líf Tomma og Önnu og þau lenda í hverju ævintýrinu á eftir öðru. Aron Martin Ásgerðarson leikstýrir verkinu, […]
Bróðir minn Ljónshjarta í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir núna á fimmtudag 7. mars hið heimþekkta leikverk Bróður minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren. Sýnt er að Melum í Hörgársveit. Uppselt er á frumsýningu en örfáir miðar lausir á sýningar um helgina. Bróðir minn Ljónshjarta er hugljúf stríðssaga af þeim bræðrum Snúð og Jónatan. Yngri bróðirinn Snúður er dauðvona en Jónatan reynir […]
Kirkjugarðsklúbburinn frumsýndur hjá Halanum

Halaleikhópurinn frumsýnir bandaríska gamanleikritið Kirkjugarðsklúbbinn eftir Ivan Menchell fös. 8. mars. Leikstjóri er Pétur Eggerz og þýðandi verksins er Elísabet Snorradóttir, Leikritið fjallar af einstakri næmni og kímni um þrjár miskátar ekkjur. Þær hafa verið vinkonur árum saman og hafa nú misst lífsförunauta sína. Hver og ein þeirra hefur fundið sína leið til þess að […]
Allt á síðasta snúningi hjá Leikdeild Skallagríms

Leikdeild Skallagríms frumsýndi í Lyngbrekku þann 29.febrúar sl. farsann Allt á síðasta snúningi eftir Aðalstein Bergdal. Áætlaðar eru sýningar fram að og með laugardeginum 16.mars n.k. Leikstjórar eru þau Margrét Jóhanssdóttir og Jónas Þorkelsson. Sýningar eru sem hér segir: 2. sýning 1. mars kl 20:30 3. sýning 3. mars kl 20:30 4. sýning 5. mars […]