Addamsfjölskyldan hjá Leikflokknum

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di’Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday […]
Alþjóðaleikhúsdagurinn 27. mars – Kveðja frá BÍL og NEATA

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leikhúsfólki gleði, friðar og sköpunarkrafts á degi leikhússins. Ásamt vinum okkar í NEATA sendum við þessa kveðju í tilefni dagsins.
Vífið í Fjallabyggð

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney sun. 29. mars. Verkið fjallar um John Smith sem er ósköp venjulegur leigubílstjóri sem óvart, alveg óvart, er giftur tveimur konum. Til að þær viti ekki hvor af hinni þarf hann að vera býsna vel skipulagður. Dag nokkurn lendir hann hinsvegar í slysi og þá […]
Feedback as Dialogue in Amateur Theatre

Alþjóðaáhugaleikhússamtökin standa fyrir fyrirlestrum af ýmsu tagi og lau. 28. mars kl. 13.00 að íslenskum tíma verður haldið „Masterclass“ á vefnum undir heitinu Feedback as Dialogue in Amateur Theatre. Þar verður fjallað um hvernig endurgjöf/gagnrýni getur verið hjálpleg til frekari þróunar og þroska einstaklinga og hópa í leikhúsvinnu. Eins og segir á vef AITA/IATA: „This […]
Fjöllin vakna hjá Hugleik

Nýjasta uppfærsla Leikfélagsins Hugleiks verður frumsýnd í Hugleikhúsinu, Langholtsvegi 109-111, fimmtudaginn 19. mars. Fjöllin vakna heitir sýningin og er samsköpunarsýning upp úr þeim mikla fjársjóði sem íslenskar þjóðsögur eru, en Hugleikur hefur löngum fengist við að endurvinna efni úr íslenskri menningu, oft með nokkuð frjálslegum og galgopalegum hætti, og svo er einnig að þessu sinni. […]
Skilaboðaskjóðan á Selfossi

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar. Frumsýnt var 27. febrúar við mikinn fögnuð áhorfenda og virðist ekkert lát verða þar á, því það hefur verið nánast uppselt á allar sýningar síðan þá. Sýningar verða um helgar í mars og apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún. Í […]
Síðasta partýið í Kópavogi

Leikfæélag Kópavogs frumsýnir Síðasta partýið eftir Aðalstein Jóhannsson fimmtudaginn 12. mars. Síðasta partýið í blokkinni hefur verið haldið. Íbúarnir eru missáttir við þá ákvörðun og upp hefst leynimakk sem fljótlega fer úr böndunum. En hver er ástæðan fyrir því að það verða ekki fleiri partý? Er það brotni sófinn, bilaði glugginn á baðherberginu eða merkingarnar á […]
Heilsugæslan hápólitískur gamanleikur

Kómedíuleikhúsið og Í einni sæng frumsýna gamanleikinn Heilsugæsluna í Tjarnarbíó í kvöld, fimmtudaginn 12. mars. Um er að ræða hápólitískan gamanleik eftir Lýð Árnason lækni. Leikurinn stingur vissulega á ýmsum kýlum heilbrigðiskerfisins sem snertir okkur öll og er án vafa heitasta kartafla samfélagsins. Formið er tvíleikur þar sem leikararnir Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk […]
Gleðilega hátíð! frumsýnt á Höfn

Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir leikritið Gleðilega hátíð! laugardaginn 14. mars í Mánagarði. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur þar sem allt sem mögulegt getur fer á versta veg. Í henni fylgjum við litlu leikfélagi á frumsýningardegi frá helvíti. Tæknivandræði, brókarsótt og tengdamömmur setja strik í reikninginn, en blessast þetta að lokum? Verkið er samsköpunarverk úr smiðju leikhópsins. Leikverkið […]
Glæpsamlegur gamanleikur í Hörgárdal

Fimmtudagskvöldið 5. mars kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Hörgdæla glæpsamlega gamanleikinn Átta konur, eftir Robert Thomas á Melum í Hörgársveit. Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú […]
Leiklistarskóli BÍL 2026 – skráning hefst 1. mars

Námsskrá Leiklistarskóla BÍL sumarið 2026 hefur nú verið birt. Boðið verður upp á 4 spennandi námskeið að þessu sinni; Leiklist I, Sérnámskeið í leikritun, Improv-námskeið og Complete Vocal Technique. Kennarar verða þau Ágústa Skúladóttir, Karl Ágúst Úlfsson, Gríma Kristjánsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin og skólann er að […]
Tom, Dick og Harry í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikinn Tom, Dick og Harry eftir Ray Cooney og son hans Michael Cooney, í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Frumsýnt verður 20.febrúar og sýnt verður um helgar fram í apríl. Leikverkið segir frá hjónunum Tom og Lindu en þau eiga von á konu frá ættleiðingar skrifstofunni. Bræður Toms […]
Leikdeild Eflingar frumsýnir Þrek og tár

Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölunum hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjóri er María Pálsdóttir og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Verkið er söngleikur sem fjallar um líf söngelskrar kaupmannsfjölskyldu í Vesturbænum á sjöunda áratugnum. Í verkinu koma fyrir þrjár kynslóðir fjölskyldunnar en saga sonarins Davíðs er […]
Beint í æð hjá Litla leikklúbbnum

Litli leikklúbburinn frumsýndi farsann Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina. Sýningar verða áfram nú í febrúar. Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir: Leyndarmál, misskilningur á misskilning ofan og allt á suðupunkti. Alls koma um 30 manns að uppsetningunni og […]
Tækninámskeið í Þjóðleikhúsinu í febrúar

Fræðsludeild Þjóðleikhússins mun standa fyrir tækninámskeiðum dagana 21. og 22. febrúar þar sem farið verður yfir helstu atriði er varða ljósa- og hljóðtækni. Námskeiðíð er ætlað ljósa- og hljóðmönnum áhugaleikhúsa, félagsmiðstöðva, framhaldsskóla og þeirra sem vinna með ljós og hljóð á öðrum vettvangi. Þátttakendur þurfa að hafa náð 17 ára aldri og hafa eitthvað fengist […]
Æfingar hafnar á Skilaboðaskjóðunni á Selfossi

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Frumsýnt verður í lok febrúar og verða sýningar um helgar í mars og apríl. Í Skilaboðaskjóðunni segir frá Putta og Möddumömmu sem búa í Ævintýraskóginum, þar sem öll ævintýrin gerast og dvergarnir sinna mikilvægum störfum. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllastrák, sameinast allir íbúar skógarins um að bjarga honum áður en sólin sest á bakvið sólarlagsfjall. En nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með og þá eru góð ráð dýr. Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra […]
Námskeið í leikhúsförðun og gervagerð

Leiklistarskóli BÍL stendur fyrir námskeiði í leikhúsförðun dagana 24.-25. janúar 2026. Kennari er Ásta Hafþórsdóttir sem er einn fremsti förðunarmeistari landsins og þótt víðar væri leitað. Kennt verður í húsnæði Reykjavík Makeup School að Krókhálsi 6 í Reykjavík. Námskeiðið hefst laugardaginn 24. janúar og lýkur sunnudaginn 25. janúar. Námskeiðin hefjast kl. 10.00 hvorn dag og […]
Þér er boðið í afmæli!

Bandalag íslenskra leikfélaga er 75 ára í ár. Af því tilefni verður haldin afmælisveisla sunnudaginn 7. desember kl. 15.00 á Netinu. Aðildarfélögin eru hvött til halda upp á daginn með því að koma saman í leikhúsinu, heimahúsi eða annarsstaðar og fylgjast með afmælisstreymi á YouTube þar sem m.a. verða afmæliskveðjur frá nokkrum aðildarfélögum auk myndasýningar […]
Lápur, Skrápur og jólaskapið á aðventunni á Ísafirði

Litli leikklúbburinn á Ísafirði endurfrumsýnir jólaleikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson nú á aðventunni. Klúbburinn setti sýninguna líka upp fyrir síðustu jól en þá komust færri að en vildu. „Það er búið að vera virkilega gaman að rifja upp kynnin við Sunnu mannabarn, tröllabræðurna og fjölskyldu þeirra í Grýluhelli,“ segir Gunnar Ingi Hrafnsson, […]
Ársrit BÍL 2025 komið út

Ársrit BÍL fyrir leikárið 2024-25 er komið út. Í því eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi áhugaleikfélaganna á síðasta leikári auk svipmynda úr sýningum og annars efnis. Hægt er nálgast ársritið á PDF formi hér.
Bað Stofan um þetta?

Leikfélagið Hugleikur sýnir stuttverkadagskrána „Bað Stofan um þetta?“ Á köldum vetrarkvöldum er tilvalið að bregða sér aftur til fortíðar og inn í yl baðstofunnar. Sunnudaginn 9. nóvember býður leikfélagið Hugleikur gestum upp á sex leikþætti sem allir taka innblástur sinn frá hinni íslensku baðstofu: þar sem návígið kallar fram innstu hvatir, galdrar eru daglegt brauð, […]
Síðasta sýning á Nei, ráðherra!

Leikfélag Mosfellssveitar hefur sýnt gamanleikritið Nei, ráðherra! eftir Ray Cooney í Bæjarleikhúsinu undanfarið og nú er aðeins ein sýning eftir, þ. 8. nóvember. Verkið gerist á Hótel Borg og er dæmigerður hurðafarsi sem byggir á misskilningi. Ráðherra Samfylkingarinnar, Örvar Gauti Scheving, finnur lík inni á herbergi sínu á Hótel Borg þar sem hann ætlaði að […]
Herbergi 213 hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir Herbergi 213 eftir Jökul Jakobsson laugardaginn 25. október. Leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Rúm fimmtíu ár eru síðan verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1974. Verkið var töluvert sett upp áratuginn þar á eftir en hefur lítið verið sett upp síðan. Verkið er eitt af fyrstu verkum á íslensku leiksviði sem skrifað var fyrir […]
Leikhúsnámskeið Þjóðleikhússins í vetur

Leikárið 2025 -2026 mun Þjóðleikhúsið bjóða upp á þrjú námskeið þar sem farið verður yfir helstu þætti fjögurra ólíkra starfa innan leikhúslistarinnar. Áhugaleikfélög sem og leikfélög framhaldsskóla landsins eru mikil auðlind og sinna gríðarlega mikilvægu starfi um allt land. Námskeiðin eru liður í að nýta þá þekkingu og hæfni sem býr í Þjóðleikhúsinu til þess […]
Ó mig auman!

Leikfélag Kópavogs fagnar vorblíðunni með stuttverkadagskránni Ó mig auman, í kvöld, miðvikudag 4. júní. Sýnd verða sex verk eftir höfunda í leikritasmiðju félagsins. Leikritin eru í ýmsum dúr en eiga þó eitt og annað sameiginlegt. Dagskráin hefst kl. 20.30 í Leikhúsinu við Funalind 2 og sýningartími er um klukkustund. Verkin sem verða sýnd eru: Í kjallaranum […]
39 þrep í Þjóðleikhúsinu – miðasala opnuð

Nú hefur verið opnað fyrir miðasölu á 39 þrep, sýningu Leikfélags Hólmavíkur sem var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins fyrr í mánuðinum. 39 þrep eftir Patrick Barlowe er byggt á kvikmynd eftir Alfred Hitchcock og skáldsögu eftir John Buchan. Þetta er spennugamanleikur sem segir frá Richard Hannay sem sogast inn í æsispennandi atburðarás þar sem morð, […]
Flæktur í Netinu á Króknum

Nú standa yfir sýningar hjá Leikfélagi Sauðárkróks á farsanum Flæktur í netinu eftir Ray Cooney í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Flæktur í Netinu (Með táning í tölvunni) er sjálfstætt framhald leikritsins Með vífið í lúkunum þar sem leigubílstjórinn John Smith barðist við að lifa tvöföldu lífi með tveimur eiginkonum, Mary og Barböru. […]
39 þrep í Þjóðleikhúsið

Sýning Leikfélags Hólmavíkur 39 þrep var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleikhússins. Formaður dómnefndar, Vala Fannell tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn var í Vatnsholti 3. maí. Í umsögn dómnefndar segir: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í þrítugasta og þriðja sinn. Að þessu sinni sóttu […]
Leikhúspáskar í Kómedíuleikhúsinu

Kómedíuleikhúsið í Haukadal Dýrafirði, dalnum þar sem engin býr, tekur að vanda þátt í páskahátiðinni fyrir vestan. Á fjölunum verða tvær leiksýningar úr smiðju leikhússins. Fjölskylduleikritið ástsæla og alvestfirska Dimmalimm eftir Bílddælinginn Mugg hefur notið gífurlegra vinsælda frá því það var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2019. Dimmalimm verður sýnt á Skírdag fimmtudaginn 17. apríl kl.14.00 […]
Stöndum saman á Eyrarbakka

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir Stöndum saman, leikverk eftir Huldu Ólafsdóttur fim. 10. apríl á veitingastaðnum Rauða Húsinu á Eyrabakka. Hvað gerist þegar daglegt líf ungs pars fer að flækjast? Þegar barneignir, nám, vinnuálag, tengdaforeldrar, íbúðarkaup og samskiptaörðugleikar hrannast upp – og enginn veit nákvæmlega hvernig á að halda utan um allt? Stöndum saman, nýjasta sýning Leikfélags […]
Ærsladraugurinn á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýndi gamanleikinn Ærsladrauginn eftir Noel Coward í Höfðaborg á Hofsósi laugardaginn 29. mars. Leikstjóri er Börkur Gunnarsson. Verkið gerist á yfirstéttarheimili bresks rithöfundar sem ætlar að afla sér vitneskju um starfsemi miðla og býður í þeim tilgangi einum slíkum í heimsókn. Skemmst er frá því að segja að ýmislegt fer á annan veg […]
Ferðin á heimsenda hjá Leikfélagi Blönduóss

Leikfélagið Blönduóss hefur unnið markvisst að endurreisn félagins undanfarin ár og má segja að félagið sé að komast á frábært skrið núna. Leikfélagið setur nú á svið barnasýninguna Ferðina á Heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Stór og flottur leikhópur á öllum aldri tekur þátt í sýningunni og er það hinn reyndi leikstjóri, Sigurður Líndal sem […]
Hárið á Hornafirði

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, frumsýnir söngleikinn Hárið, næstkomandi laugardag, 29. mars. Leikstjóri sýningarinnar er Svandís Dóra Einarsdóttir, hreyfihönnuður er Sigga Soffía Níelsdóttir, tónlistarstjóri er Hörður Alexander Eggertsson, kórstjóri er Hrafnkell Karlsson, ljósahönnuður er Þorsteinn Sigurbergsson og búningahönnuður er Ágústa Margrét Arnardóttir. Að sýningunni koma 16 leikarar, sjö manna kór, fjögurra manna […]
Bjargráð Leikfélags Fjallabyggðar

Leikfélag Fjallabyggðar frumsýndi leikverkið Bjargráð eftir Guðmund Ólafsson 14. mars síðastliðinn. Verkið er gamanleikur með söngvum og er höfundurinn Guðmundur Ólafsson, jafnframt leikstjóri. Leikurinn gerist í litlu bæjarfélagi þar sem allt er í kaldakoli og allt útlit fyrir að það fari á hausinn. Fjárhagurinn í tómu tjóni og íbúar ekki ánægðir með bæjarstjórnina. Hin frábæra […]
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Fram og aftur

Leikfélag Dalvíkur frumsýndi leikritið Fram og aftur eftir Sean Grennan í íslenskri þýðingu og leikstjórn Dominique Sigrúnardóttur, föstudaginn 21 mars. Í staðfærðri þýðingu verksins fjallar það um ungan mann sem vinnur á bar á Dalvík árið 1986. Eitt kvöldið fær hann óvænta heimsókn frá eldri manni sem býður honum peninga upphæð sem hann á erfitt […]
Góðverkin kalla hjá Hugleik

Hugleikur frumsýnir Góðverkin kalla laugardaginn 15. mars í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Í litlum bæ út á landsbyggðinni, þar sem metnaður, góðmennska og samstaða einkenna fólkið, fer fram viðburður sem þú vilt ekki missa af! Hvenær verður maður of góður? Skipta gæði meira máli en magn? Hversu mikið af tækjum þarf eitt lítið […]
Glanni glæpur í Frumleikhúsinu

Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Glanna glæp í Latabæ sunundaginn 9. mars í Fumleikhúsinu í Reykjanesbæ. Leikgerðin er eftir þá Magnús Scheving og Ssigurð Sigurjónsson með tónlist Mana Svavarssonar og söngtextum eftir Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjóri er Brynja Ýr Júlíusdóttir. Íþróttaálfurinn hefur kennt öllum bæjarbúum hvað það er mikilvægt að borða íþróttanammi og hreyfa sig reglulega, því […]
Hans klaufi hjá Leikfélagi Stafholtstungna

Nýstofnað Leikfélag Stafholtstungna frumsýnir fjölskylduleikritið Hans klaufi eftir leikhópinn Lottu þann 9. mars næstkomandi. Sýnt er í Þinghamri, Varmalandi. Leikstjóri er Gunnar Gunnsteinsson. Frumsýning er sunnudaginn 9. mars kl. 14.00. Sýningar eru annars sem hér segir: Sun. 16. mars kl. 17.00 Sun. 23. mars kl. 17.00 Lau. 29 mars kl. 14.00 Sun. 30. mars […]
Leikfélag Ölfuss vaknar

Leikfélag Ölfuss rís nú úr dvala og boðar til opins fundar til ad kynna starfsemi sína. Félagið hefur á síðustu misserum verið ad setja upp glænýja aðstöðu og nú er komið ad því að hefja störf í Leikhúsinu ađ Selvogsbraut 4. Öllum sem hafa áhuga á því að starfa med félaginu er hér með boðið […]
Kokteill Halaleikhópsins

Halaleikhópurinn sýnir um helgina leiklesturssýninguna Kokteil eftir Guðjón Sigvaldason sem einnig leikstýrir. Sex sprækir Halar leika / leiklesa sumir eru splunkunýir á sviðinu aðrir reynslunni ríkari. Leikstjórinn dró fram 3 eldri stuttverk eftir sjálfan sig, sem flutt hafa verið áður, en voru skrifuð fyrir 6 til 9 ára leikara, en höfundi langaði að prófa að […]