Ljósa- og hljóðvinnslunámskeið á Egilsstöðum

Í október verður boðið upp á tækninámskeið sem nýst geta vel leikfélögum á Austurlandi og nágrenni.   Helgina 12. – 14. október verður haldið ljósanámskeið fyrir fólk sem vinnur í leikhúsi og öðrum sviðslistum. Kennari er Þorsteinn Sigurbergsson, námskeiðsgjald kr. 10.000.- og skráning hjá vegahusid@gmail.com   Helgina 26. – 28. október verður haldið hljóðvinnslunámskeið þar […]

Jólasveinar óskast

Nú fer að líða að jólum og undirbúningur jólaballa að hefjast. Við hjá Kraðaki ehf. leitum nú leikara til að manna jólaböll vetrarins. Við leitum að sjálfstæðu og hressu fólki til að leika jólasveina, Grýlu, Leppalúða og ýmislegt annað tilfallandi. Góð laun í boði. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við okkur á kradak@kradak.is eða í símum 698-1293 Anna Begga / 699-3993 […]

Margt smátt í Borgarleikhúsinu 6. október

Þann 6. október nk. verður Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, haldin í Borgarleikhúsinu. Í þetta skiptið sýna sex leikfélög alls 15 þætti og eru það allt ný íslensk verk, samin af fólki í leikfélögunum sjálfum. Það eru Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir sem taka þátt í Mörgu smáu þetta […]

Leikfélag Dalvíkur æfir Sölku Völku

Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á Sölku Völku eftir sögu Halldórs Laxness í leikgerð Ingu Bjarnasonar og fleiri. Inga Bjarnason hefur verið ráðin leikstjóri að verkinu.  Þetta er viðamikil uppfærsla, en um 40 manns taka þátt í henni, konur, karlar og unglingar og börn. Í uppfærslunni er bæði tónlist og söngur. Það er […]

Hálsfesti Helenu aftur á svið

Fimm sýningar á verkinu Hálsfesti Helenu verða sýndar núna í haust en verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í vor. Sú fyrsta verður í kvöld, föstudaginn 28. september. Leikritið er eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette, en hún skrifaði verkið eftir að hafa dvalið um tíma í Líbanon árið 2000.  Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir […]

Halaleikhópurinn 15 ára

Halaleikhópurinn er 15 ára í dag. Leiklistarvefurinn óskar afmælisbarninu innilega til hamingju með daginn. Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fatlaðra og ófatlaðra og hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“. Ýmislegt er á döfinni hjá leikhópnum. Nú í september hefur Ágústa Skúladóttir verið með uppistandsnámskeið. Afrakstur þess verður að hluta til sýndur á afmælishátíð Halaleikhópsins […]

Aðalfundur hjá Leikfélagi Hörgdæla

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla verður haldinn á Melum, Hörgárdal, mánudagskvöldið 1. okt. nk. og hefst kl: 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf ásamt lagabreytingum. Rætt verður um starfið á komandi vetri. Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins. Stjórnin.

Aðalfundur hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Föstudaginn 28. september kl. 20 verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í húsakynnum félagsins, Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þar verður, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, rædd starfsemi vetrarins og er allt áhugafólk um leiklist boðið velkomið, ekki síst þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við félagið. Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar 

Hamskiptin frumsýnd

Þjóðleikhúsið frumsýnir Hamskiptin eftir Franz Kafka á Stóra sviðinu, fimmtudaginn 27. september nk. Hér er á ferðinni ný íslensk uppfærsla á rómaðri sýningu leikhópsins Vesturports sem frumsýnd var í Lyric Hammersmith leikhúsinu London í fyrra og hlaut frábærar viðtökur. Hamskiptin eftir Franz Kafka er ein af þekktustu skáldsögum 20. aldarinnar en sagan þykir í senn […]

Æfingar hafnar á Alina

Leikfélag Sauðárkróks er komið vel á veg með æfingar á splunku-, flunku-, glænýju barnaleikriti sem heitir Alína. Leikritið er eftir Skagfirðinginn Stefán Sturlu Sigurjónsson og Valgeir Skagfjörð semur tónlistina. Stefán leikstýrir hópnum sjálfur og færist mikið í fang því leikendur verða yfir 30 talsins, þar af þrennir tvíburar hvorki meira né minna.  Leikritið fjallar um […]

Stoppleikhópurinn frumsýnir Óráðni maðurinn

Laugardaginn 22. september kl. 20:00 frumsýnir Stoppleikhópurinn Óráðna manninn, nýtt verk eftir Þorvald Þorsteinsson, í Tjarnarbíói. Viðfangsefnið verksins er í senn sígilt og óvenjulegt; nefnilega leit mannsins að „réttu útgáfunni“ af sjálfum sér inni í öllum þeim aragrúa hlutverka sem hann verður að leika á lífsleiðinni. Uppselt er á frumsýningu en önnur sýning verður sunnudaginn […]

Hnerrað aftur á Selfossi

Vegna væntanlegar leikferðar Leikfélags Selfoss til Litháen í október, sýnir félagið tvær aukasýningar af gamanleiknum Hnerrinn eftir Anton Tsjekoff síðustu helgina í september. Hnerrinn er safn einþáttunga og smásagna og það er Hörður Sigurðarson sem leikstýrir verkinu. Hann þýddi einnig enska leikgerð Michaels Frayn og er þetta frumflutningur á þessari leikgerð hér á landi. Sýnt […]

Heimsendir frumsýndur í Sjallanum

Það að heimurinn sé að enda, það er að segja líða undir lok, er hugtak sem fæstir tengja við gamansemi eða glens.  Þrátt fyrir þetta háalvarlega og marghótaða hugtak hefur þremur listamönnum tekist að setja upp sýningu sem fjallar um hversu afbrigðilegt og súrealískt hugtakið heimsendir er í raun og veru. Það að heimurinn sé […]

Gott kvöld í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt barnaleikrit næstkomandi sunnudag, þann 23. september kl 13:30. Verkið Gott kvöld, eftir hina vinsælu bókverkakonu Áslaugu Jónsdóttur, verður fyrsta sýning leikársins í Kúlunni. Áslaug byggir leikritið á samnefndri bók sinni sem kom út fyrir tveimur árum, en hún hefur unnið verkið að nýju fyrir leikhús og meðal annars samið nýja söngtexta […]

Þjóðleikhúsið frumsýnir Óhapp!

Óhapp!, nýtt verk eftir Bjarna Jónsson, verður frumsýnt í Kassanum við Lindargötu 7 nk. föstudag. Meðal leikara í sýningunni eru Atli Rafn Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson en leikstjóri er Stefán Jónsson.

Veturinn í Óperunni er að hefjast

Nú liggur dagskrá starfsársins 2007-2008 hjá Íslensku óperunni fyrir. Í vetur koma við sögu kvenhetjur frá ýmsum tímabilum, íslenskir sem erlendir stórsöngvarar, nýjungar í bland við dagskrárliði sem þegar hafa fest sig í sessi og ýmislegt fleira spennandi. Fyrsta frumsýning vetrarins verður 4. október, en þá verður frumsýnd hér á landi óperan Ariadne (Ariadne auf […]

Fyrsta vinnusmiðja vetrarins

Nú er vetrarstarf FLÍSS- (Félags um leiklist í skólastarfi) og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins að fara í gang. Dagskrá vetrarins er í smíðum og mun yfirlit yfir hana verða sent innan tíðar. Stefnt er að frábærri dagskrá í vetur og mun þar bjóðast frábært tækifæri til að dýpka notkun sína á leiklist í skólastarfi.   Fyrsta vinnusmiðja […]

Margt smátt 2007 í Borgarleikhúsinu

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu í fjórða skipti þann 6. október nk. Hún verður með aðeins breyttu sniði frá síðustu hátíð, þ.e. hún verður haldin um miðjan daginn en um kvöldið verður haldið teiti þar sem öllum þátttakendum og öðru bandalagsfólki gefst kostur á skemmta sér saman. Meiri áhersla verður lögð á að […]

Námskeið í leikhúsförðun

Fyrirhugað er að halda tvö námskeið í leikhúsförðun í október. Það fyrra, sem er byrjendanámskeið, er þegar orðið fullt og kominn biðlisti en enn er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeiðið. Skráningu lýkur laugardaginn 15. september

Leikárið að hefjast hjá Stoppleikhópnum

Þá er nýtt leikár að hefjast hjá Stoppleikhópnum og óhætt að fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi dagskráin verið eins fjölbreytt en leikhópurinn mun í vetur sýna 6 íslensk verk ætluð börnum og unglingum. Þar af frumsýnir leikhópurinn 3 ný verk, 2 fyrir unglinga og eitt fyrir börn. Allar sýningarnar eru farandsýningar sem unnt er […]

Fjárföflunarsýningar á Hnerranum

Leikfélag Selfoss er á leið með gamanleikinn Hnerrann eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Rokiskis í Litháen dagana 5.-.7. október nk. og sýnir af því tilefni tvær aukasýningar af verkinu síðustu helgina í september. Sýnt er í Leikhúsinu við Sigtún og leikstjóri Hnerrans er Hörður Sigurðarson.   Þeir sem misstu af þessari skemmtilegu sýningu ættu […]

Verkefni Kómedíuleikhússins leikárið 2007 – 2008

Kómedíuleikhúsið fagnar 10 ára afmæli í ár og er því komandi leikár sérlega viðmikið og glæsilegt. Í nóvember frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan einleik Jólasveinar Grýlusynir eftir Elfar Loga Hannesson og Soffíu Vagnsdóttur. Leikurinn er byggður á nýjum jólasveinakvæðum eftir Soffíu. Kvæðin úr sýningunni verða gefin út á bók í tilefni að frumsýningunni með teikningum eftir Marsibil […]

Leikárið 2007-2008 í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið endurheimtir brátt sinn forna glæsileika eftir viðamiklar utanhússviðgerðir. Vetrardagskráin verður ekki síður glæsileg en húsið sjálft en í vetur frumsýnum við fjögur ný íslensk leikrit, tvö eldri íslensk verk og sjö erlend leikrit. Á nýju leikári verða fjögur ný íslensk verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Áslaug Jónsdóttir, margverðlaunuð bókverkakona, skrifar sitt fyrsta leikverk fyrir Þjóðleikhúsið […]

Nýtt leikár hafið hjá Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið er nú að hefja átjánda leikár sitt, en frá upphafi hefur leikhúsið lagt áherslu á að bjóða upp á frumsamið íslenskt efni fyrir börn og unglinga og verður þetta leikár svo sannarlega engin undantekning frá þeirri reglu. Það verða níu íslensk verk á boðstólum hjá Möguleikhúsinu í vetur, ein ný sýning, ein sem tekin […]

Opið hús í Borgarleikhúsinu

Í tilfefni af því að 111 leikár Leikfélags Reykjavíkur er að hefjast verður opið hús í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 2. september, á milli klukkan 15 og 17. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Jafn framt verður boðið upp á veitingar fyrir unga sem aldna og starfsfólk Borgarleikhússins, með leikhússtjórann […]

Lík í óskilum í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 1. september verður fyrsta frumsýning leikársins hjá Leikfélagi Reykjavíkur og er hún á Litla sviði Borgarleikhússins. Það er farsinn Lík í óskilum eftir Anthony Neilson sem opnar leikárið hjá LR og það er Steinunn Knútsdóttir sem leikstýrir.


Aðalfundur Leikfélags Kópavogs haldinn í nýju leikhúsi

Mánudaginn 27. ágúst kl. 20:00 mun Leikfélag Kópavogs halda aðalfund sinn í nýju húsnæði félagsins að Funalind 2 í Kópavogi. Miklar breytingar hafa átt sér stað að undanförnu hjá félaginu og miklar breytingar eru í vændum. Á aðalfundinum verður, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, kynntur nýr rekstrarsamningur, rætt um fyrirhugaðar breytingar á Funalindinni, ásamt mörgu öðru. Stjórn […]

Nýtt leikár kynnt hjá Leikfélagi Akureyrar

Leikfélag Akureyrar hefur nú kynnt dagskrá leikársins 2007-2008. Áfram er unnið eftir sömu stefnu og sérstök áhersla er lögð á að ná ekki síður til yngri leikhúsgesta en þeirra sem eldri eru. Sem fyrr einbeitir leikhúsið sér að uppsetningu nútímaverka, íslenskra og erlendra. Fyrsta frumsýning vetrarins er á fjölskylduleikritinu Óvitar! eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn […]

Síðustu sýningar á Dýrunum í Hálsaskógi

  Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt barnaleikritið sívinsæla, Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner, undir berum himni víða um land. Nú eru aðeins fimm sýningar eftir, þar eru 4 í Elliðaárdalnum í Reykjavík og ein á Blómstrandi dögum í Hveragerði en þar verður sýnt í Lystigarðinum. Sýningarnar í Elliðaárdalnum eru í dag, miðvikudaginn 22. […]

Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni

Lýðveldisleikhúsið flytur annan hluta fjölleiksýningarinnar Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni við Barónsstíg á Menningarnótt. Þessi hluti ber nafnið Uppflosnað fólk og er eftir Benóný Ægisson. Fyrsti hluti verksins, Þeir stífluðu dalinn minn, var fluttur í innilauginni í Laugardalnum fyrr í mánuðinum. Leikarar í þessum hluta eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og […]

Bubbi kóngur á Menningarnótt

artFart sviðslistahátíðinni lýkur á uppfærslu á hinu klassíska verki Alfred Jarry, Bubba Kóng, en hún verður sýnd á Menningarnótt kl. 21.30 í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13. Aðeins verður sýnd þessi eina sýning.

artFart 2007

Nú stendur yfir hátíðin artFart. Hátíðin er samstarf ungra sviðslistamanna á Íslandi og er skipulögð af sambandi ungra sviðslistamanna, en skipuleggjendur hátíðarinnar í  ár eru þau Ásgerður G. Gunnarsdóttir, Karl Ágúst Þorbergsson og Sigurður Arent Jónsson. Hátíðin stendur yfir dagana 28.júlí. – 19. ágúst. Verkin verða sýnd í húsnæði leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu (gamla nemendaleikhúsinu) […]

Góð álfastund í Öskjuhlíð

Það var skemmtilegt að ganga í svalri kvöldgolunni upp göngustíginn í Öskjuhlíð og setjast síðan í grasið í einu af gömlu olíutankastæðum Breta úr seinni heimsstyrjöld. En það var ekki neinn stríðsógn í lofti heldur var leikfélagið Sýnir að kynna áhorfendum fyrir álfum og huldufólki með tveimur leikþáttum sem eiga uppruna sinn úr þjóðsögunum. Á […]

Leikfélagið Sýnir í Öskjuhlíð

Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Vakandi manns draumur næstkomandi miðvikudag, þann 1. ágúst klukkan 20 í Öskjuhlíð. Verkið er spunaverk unnið úr þjóðsögum um álfa og huldufólk. Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu og á það einmitt 10 ára afmæli nú í ár. Félagið hefur sett upp útileiksýningar á hverju sumri síðan 1998. Leikstjórar […]

Íslenskur leikhópur sýnir í Suður-Kóreu

Annað hvert ár heldur Alþjóðasamband áhugaleikhúsa (IATA/AITA) leiklistarhátíð samhliða aðalfundi hreyfingarinnar. Í annað hvert skipti er viðburðurinn í Mónakó, en á móti annars staðar í heiminum. Þetta árið verður hátíðin haldin í borginni Masan í Suður-Kóreu. Hér má sjá nánari upplýsingar um hana. Í annað skiptið í röð á Bandalag íslenskra leikfélaga sýningu á þessari […]

Galdrakarlinn á Suðureyri

Leikfélagið Hallvarður Súgandi frumsýnir í kvöld leikritið Galdrakarlinn í Oz á Suðureyri við Súgandafjörð. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Sýningin er hluti af bæjarhátið Súgfirðinga, Sæluhelgi, sem haldin verður þar um helgina. Ólánið hefur elt þá sem starfa við leiksýninguna. Þar sem liðið er af æfingum hafa sjö þurft að leita sér lækninga og á síðustu […]

Ráðstefna um samvinnu kynslóðanna í áhugaleikhúsi

Ráðstefna um samstarf kynslóðanna í áhugaleikhúsi verður haldin í Lingen í Þýskalandi í október. Leikstjórum, leikhúsfræðingum og fulltrúum áhugaleikhópa frá Evrópulöndum er boðið að taka þátt í þessari ráðstefnu. Hún stendur frá fimmtudeginum 11. október kl. 17.00 til sunnudagsins 14. október kl. 12.00. Þáttökugjald eru 220 evrur, fæði, húsnæði og leiksýningar eru innifaldar. Nánari upplýsingar […]

Memento mori, aðeins um helgina!

Í lok júlímánaðar heldur hópur frá leikfélaginu Hugleik og Leikfélagi Kópavogs á leiklistarhátíð alþjóðlega áhugaleikhússambandsins IATA í Masan-borg í Suður-Kóreu. Þar verður sýnt leikritið Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. júlí verða haldnar opnar æfingar til fjáröflunar fyrir ferðina. Þetta verður í fyrsta sinn í tvö ár […]

Act alone 2007 hefst í dag

Leiklistarhátíðin Act alone verður sett í dag, miðvikudaginn 27. júní, í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Næstu dagar verða svo alveg einleiknir með fullt af sýningum og viðburðum. Kómedíuleikhúsið á Ísafirði stendur fyrir hátíðinni sem helguð er einleikjum og verður haldin fjórða árið í röð nú í sumar. Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum og […]

Gríman – verðlaunahafar 2007

Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Íslensku óperunni og í beinni útsendingu Sjónvarpsins 15. júní síðastliðinn. Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson hlutu heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands en sigurvegari kvöldsins var án vafa Benedikt Erlingsson sem rakaði að sér verðlaunum, m.a. sem leikari og leikstjóri ársins. Sjá má yfirlit yfir alla verðlaunahafa á vef Grímunnar, www.griman.is.