Danir í heimsókn hjá Leikfélagi Húsavíkur

Í október sl. kom danskt vina leikfélag, Bagsværd Amatør Scene í heimsókn til Leikfélags Húsavíkur. Bagsværd Amatør Scene og Leikfélag Húsavíkur hafa verið vinaleikfélög til margra ára og heimsótt hvort annað í gegnum árin. Í ár kom BAS með sýninguna Jøklen Brænder sem byggir á íslenskri þjóðsögu en handritið skrifaði Grete Thorulf. Anne Bille leikstýrði […]

Hauststarf Leikfélags Rangæinga

Á haustdögum hófst vetrarstarf hjá Leikfélagi Rangæinga. Verið er að hlúa ungliðunum og farið var af stað með starf með þeim.  Í gangi hefur verið leikþáttur um Gunnar á Hlíðarenda, og var hann sýndur á Héraðsvöku Rangæinga, í sögusetrinu á Hvolsvelli nú nýverið og víðar.

Lápur, Skrápur og jólakskapið í Skemmtihúsinu

Þann 1. desember næstkomandi verður frumsýtt glænýtt, íslenskt jólaleikrit með söngvum í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Leikritið ber nafnið „Lápur, Skrápur og jólaskapið“. Höfundur verksins er Snæbjörn Ragnarsson en hann skrifar meðal annars Ævintýri Stígs og Snæfríðar í Stundinni okkar. Snæbjörn semur einnig tónlistina í verkinu ásamt Arngrími Arnarsyni. Leikstjórn er í höndum Önnu Bergljótar Thorarensen.

Stúfur heimsækir Leikfélag Akureyrar

Fjölskyldusýningin „Þú ert nú meiri jólasveinninn“ verður frumsýnd í Rýminu hjá LA  sunnudaginn 2. desember klukkan 14:30. Sýningin er samstarf Smilblik og LA. Hér birtist leikarinn, tenórinn, trúðurinn, heimsmaðurinn og eineltisbarnið Stúfur eins og við höfum aldrei séð hann áður; geislandi af hæfileikum, ljúfur, hrjúfur, spriklandi og sprellfjörugur.

Siðmenningin og villimennskan

Fyrsti samlesturinn á leikritinu Vígaguðinn eftir franska leikskáldið Yasminu Reza fór fram í Þjóðleikhúsinu á dögunum. Verkið verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í janúar í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Leikrit þetta er nýjasta verk Reza sem er eitt þekktasta leikskáld samtímans. Mörgum er minnistætt leikrit hennar, Listaverkið, sem sló í gegn í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1997. […]

Leikið í Litháen

Leikfélag Selfoss brá á haustdögum undir sig betri fætinum og fór með sýninguna Hnerrinn, eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Roskisis í Litháen. Formaður félagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir, var í leikhópnum og ritaði ferðasögu sem hér er birt með góðfúslegu leyfi Suðurgluggans.

Brúðulistahátíð í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg

Á menningarnótt sl. stóð Leikminjasafn Íslands fyrir opinni brúðulistahátíð og sýningu á íslenskum leikbrúðum í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg.  Viðburðurinn vakti mikla athygli og komu um 2000 manns á sýninguna þennan dag.  Nú verður sýningin opnuð að nýju þrjá næstu laugardaga, 17. nóv., 24. nóv. og 1. des.  Eins og á menningarnótt verða lifandi leikbrúðusýningar á […]

Nýtt íslenskt jólaleikrit frumsýnt á Ísafirði

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir nýtt íslenskt jólaleikrit laugardaginn 17. nóvember í Tjöruhúsinu. Leikurinn heitir Jólasveinar Grýlusynir og er einleikur einsog flest verk Kómedíuleikhússins. Höfundar eru þau Elfar Loga Hannesson og Soffía Vagnsdóttur. Hér er á ferðinni leikur um gömlu íslensku jólasveinanna og ýmsum spurningum reynt að svara um þessa skrítnu sveina. Hvers vegna er Stúfur […]

María, asninn og gjaldkerarnir í Borgarleikhúsinu

Þriðjudaginn 20. nóvember frumsýna krakkarnir í leikhópnum Borgarbörn, jólaleikritið María, asninn og gjaldkerarnir á Nýja sviði Borgarleikhússins. Þetta er söngleikur þar sem öll hlutverk er skipuð börnum og unglingum úr söng- og leiklistarskólanum Sönglist sem starfræktur er í samstarfi við Borgarleikhúsið. Í fyrra setti sami hópur upp jólasýninguna Rétta leiðin við frábærar undirtektir.

Íslandsklukkan frumsýnd á Húsavík

Þann 17. nóvember n.k. frumsýnir Leikfélag Húsavíkur, Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness, í leikstjórn Arnórs Benónýssonar. Tónlist er eftir Guðna Bragason og hann er einnig tónlistarstjóri sýningarinnar.
Byggt er á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leiklistarskólann árið 1980. Hér er um að ræða eina af bókmenntaperlum þjóðarinnar sem ekki má falla í gleymskunnar dá.

Íslensk sýning óskast til Riga

Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Næsta sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi.  

Konan áður frumsýnt

Leikritið Konan áður hefst á stórri spurningu þegar fjölskyldufaðirinn Frank mætir fortíð sinni í dyragættinni. Fyrir utan stendur kona, komin til að krefja hann um gamalt loforð því hún er konan sem hann sagðist alltaf ætla að elska. Þjóðleikhúsið frumsýnir verkið á Smíðaverkstæðinu þann 16. nóvember nk. í leikstjórn Hafliða Arngrímssonar.

Leikfélag Selfoss hefur æfingar á nýjum gamanleik

Félagar í Leikfélagi Selfoss undirbúa nú af krafti afmælissýningu félagsins, en félagið hefur hafið æfingar á gamanleikritinu „Með táning í tölvunni“ eða „Caught in the net“ eins og það heitir á frummálinu. Verkið er eftir Ray Cooney, en þýðing er í höndum Jóns Stefáns Kristjánssonar, sem einnig mun leikstýra því. Verkið er framhald af leikritinu […]

Frelsarinn kemur 22. nóvember!

Leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson er höfundur sýningarinnar Frelsarinn sem sýnd verður á Íslandi í lok nóvember. Sýningar verða á Stóra sviði Þjóðleikhússins 22. nóvember og hjá Leikfélagi Akureyrar 24-25. nóvember. Leikhópur Kristjáns, Neander, hefur sýnt sýningu þessa við glimrandi undirtektir í Danmörku að undanförnu. 

Opinn dagur í Listaháskóla Íslands

Föstudaginn 9. nóvember n.k. verður opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og er áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Kynningar fara fram í húsakynnum skólans á eftirfarandi stöðum: Sölvhólsgötu 13 – Leiklistardeild og tónlistardeild kl. 14-18 Laugarnesvegi 91 – Myndlistardeild og kennaranám kl. 11-18 Skipholt 1 – Hönnunar- og arkitektúrdeild […]

Þetta mánaðarlega hjá Hugleik

Fyrsta leikdagskrá leikfélagsins Hugleiks í vetur verður flutt í Þjóðleikhúskjallaranum sunnudaginn 11. nóvember og þriðjudaginn 13. nóvember. Að þessu sinni verða á boðstólum sex ný leikverk eftir félagsmenn, í leikstjórn nemenda af leikstjórnarnámskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir í haust undir leiðsögn Sigrúnar Valbergsdóttur.

Leg rennur sitt skeið

Það fer hver að vera síðastur að sjá Leg, söngleik Hugleiks Dagssonar og tríósins Flís, í Þjóðleikhúsinu. Sýningum lýkur þann 17. nóvember nk. en uppselt er á næstu tvær sýningar. Örfá sæti eru laus á síðustu sýninguna og hefur verið brugðið á það ráð að efna til aukasýningar kl. 16 þann sama dag.

Ég bið að heilsa

Jónasardagskrá á Ísafirði Kómedíuleikhúsið, í samstarfi við Þröst Jóhannesson tónlistarmann, frumsýnir ljóðaleikinn „Ég bið að heilsa“ miðvikudaginn 7. nóvember á veitingastaðnum Við Pollinn á Ísafirði. Leikurinn er settur upp í tilefni af 200 ára fæðingarafmælis Jónasar Hallgrímssonar þann 16. nóvember nk.

Ársrit BÍL 2006-2007

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2006–2007 er komið út. Að venju kennir þar ýmissa grasa en þar eru birtar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaganna og Bandalagsins á liðnu leikári. Prentuð útgáfa hefur verið send til formanna leikfélaganna en einnig er hægt að nálgast ritið á PDF-formi hér .

Skilaboðaskjóðan frumsýnd 7. nóvember

Ævintýrasöngleikurinn Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson verður frumsýndur á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu miðvikudagskvöldið 7. nóvember kl. 20. Hér er á ferðinni litríkt og fjörugt ævintýri fyrir alla fjölskylduna þar sem kunnuglegar persónur skjóta upp kollinum. Leikritið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og sló eftirminnilega í gegn, enda hefur verk þetta […]

Leikhús í smíðum í Kópavogi

Laugardaginn 3. nóvember var undirritaður rekstrar- og samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs í nýju húsnæði leikfélagsins að Funalind 2 í Kópavogi. LK, sem varð 50 ára á árinu, tók um leið formlega við húsnæðinu. Hér er um tímamót að ræða því húsið að Funalind verður fyrsta eiginlega leikhúsið í Kópavogi, þ.e. hús sem er […]

Freyvangsleikhúsið „Í beinni“

Á hverju ári heldur Freyvangsleikhúsið grín- og söngskemmtun að síðhausti. Sýningin „Í beinni“ verður sýnd 2. og 3. nóvember næstkomandi í Freyvangi. Leikmynd leikhússins er nú sviðsmynd nýs sjónvarpsþáttar en allt gengur á afturfótunum svo ekki er annað hægt en að bresta í söng af og til.

Blái hnötturinn í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir nú um helgina leikritið Blái Hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson.

Söngleikurinn Oliver frumsýndur

Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi frumsýnir söngleikinn Oliver eftir Lionel Bart, föstudaginn 2. nóvember kl 20:00. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason og þýðinguna gerði Flosi Ólafsson en verkið byggir á hinni frægu sögu Charles Dickens, Oliver Twist.

Íslandsklukkan á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur æfir nú Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness og byggir á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leikslistarskólann árið 1980. Mikil tónlist verður í þessari uppsetningu og er hún öll samin af Guðna Bragasyni tónlistarkennara og tónlistarstjóra uppsetningarinnar. Leikstjóri er Arnór Benónýsson.   Æfingar hófust seint í ágúst og frumsýning er ákveðin 17. nóvember […]

Ökutímar frumsýnt Hjá LA

Föstudaginn 2. nóvember verður verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningu LA á verkinu en meðal þeirra eru […]

Engin leiksýning hjá Hallvarði súganda sumarið 2008

Aðalfundur var haldinn hjá Leikfélaginu Hallvarði súganda laugardaginn 27. október sl. Aðeins stjórn félagsins mætti á fundinn en tekið skal fram að fundur telst löglegur ef löglega sé til hans boðað. Farið var yfir stöðu mála félagsins og framtíðin rædd. Ákveðið var af stjórn félagsins að taka sér leyfi frá störfum til næsta aðalfundar og […]

Endastöð Ameríka sýnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið býður uppá gestaleik frá Volksbühne í Berlín. Verkið og leikstjórinn eru ekki af síðri endanum en Frank Castorf er einn af virtustu leikstjórum í Evrópu í dag. Verkið sem sýnt verður er Endastöð Ameríka og er túlkun Castorfs á leikriti Tennesee Williams Sporvagninn Girnd . Sýningin er samstarfsverkefni Volksbuhne í Berlín og Salzburg Festspiel […]

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Lífið liggur við

Laugardaginn 27. frumsýnir Stúdentaleikhúsið splunkunýjan íslenskan gamanleik, Lífið liggur við – grafalvarlegan skrifstofufarsa eftir Hlín Agnarsdóttur, leikstjóra verksins, í samvinnu við leikhópinn. Sýnt er í kjallara Norræna hússins.

Ræðismannsskrifstofan frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 25.október verður leikritið Ræðismannsskrifstofan frumsýnt á Nýja svið Borgarleikhússins. Leikstjóri og höfundur Jo Strömgren og sýningin er unnin í samstarfi við Jo Strömgren Kompani. Sunnudaginn 28. október kl.  20 verður svo haldin dagskrá í tengslum við sýninguna þar sem hlutverk tungumálsins verður skoðað í víðu samhengi.


Mikil aðsókn hjá sjálfstæðum leikhúsum

Aðsókn á sýningar sjálfstæðu leikhúsanna hefur stóraukist undanfarin ár. Síðastliðið leikár er engin undantekning þar sem heildaráhorfendafjöldi á sýningar sjálfstæðra leikhúsa var 255.000. Áttatíu og tvö sviðsverk voru sýnd á liðnu leikári og að meðaltali voru sýndar fjórar sýningar á dag alla tólf mánuði leikársins hjá sjálfstæðum leikhúsum.

Allt í plati hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Sunnudaginn 21. október klukkan 16:00 verður barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjórar eru þau Herdís Þorgeirsdóttir og Ólafur Haraldsson en alls standa yfir 30 manns að sýningunni. 

Leikhússport í Kópavogi

Nú á haustdögum fer af stað námskeið í leikhússporti hjá Leikfélagi Kópavogs. Félagar LK eru búinr að rýma til í nýju húsnæði sínu í Funalind í Kópavogi og útbúa æfingaaðstöðu þannig að nú er þeim ekki til setunnar boðið og mun námskeiðið hefjast fimmtudaginn 25. október næstkomandi. Námskeiðið er öllum opið sem áhuga hafa á […]

Alína frumsýnd á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir næstkomandi laugardag, 20. október kl. 17:00, barna- og fjölskylduleikritið Alína. Höfundur og leikstjóri verksins er Skagfirðingurinn Stefán Sturla Sigurjónsson og tónlistin er eftir Valgeir Skagfjörð. Sýnt er í Bifröst. 

Umfjöllun um sýningar á Mörgu smáu

Þann 6. október sl. var Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga haldin í Borgarleikhúsinu með pompi og prakt. Að þessu sinni tóku sex leikfélaög þátt, Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélög Kópavogs og Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir. Að venju var fengin fagmaður til taka út hvert til tókst og þetta árið var það leikkonan og leikstjórinn Harpa […]

Kafka krufinn á alla kanta

Í tilefni þess að í vikunni verða tvær sýningar á fjölum Þjóðleikhússins sem tengjast rithöfundinum Franz Kafka gengst leikhúsið fyrir Kafka-kvöldi í Þjóðleikhúskjallaranum næstkomandi miðvikudagskvöld. Verkið Hamskiptin, sem byggt er á einni af frægustu sögum tékkneska rithöfundarins Franz Kafka, er nú sýnt á Stóra sviðinu í rómaðri uppfærslu leikhópsins Vesturports en næstkomandi fimmtudag verður gestaleikur frá […]

Gosi frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 13. október kl. 14.00 verður leikritið Gosi eftir Karl Ágúst Úlfsson frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins. Verkið byggir á hinni heimsfrægu sögu ítalans Carlo Collodi um spýtustrákinn sem öðlast líf og ratar í einfeldni sinni í ótal ævintýri. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og tónlist er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.

Halaleikhópurinn með kaffileikhúskvöld

Í tilefni af 15 ára afmæli Halaleikhópsins verður kaffihúsakvöld í Halanum, Hátúni 12. föstudaginn 12. og sunnudaginn 14. október og hefjast þau kl. 20.30. Félagar í Halaleikhópnum munu flytja afrakstur af námskeiði sem haldið var nú á haustdögum undir stjórn Ágústu Skúladóttur og bar nafni𠠄 Sólóstund leikarans”. Einnig verður ljóðalestur og sýnt stuttverkið „Hvað drap […]

Draumasmiðjan frumsýnir Ég á mig sjálf

Miðvikudaginn 10. október frumsýnir Draumasmiðjan „Ég á mig sjálf“, forvarnarleikrit gegn átröskunarsjúkdómnum anorexíu,. Verkið er samið af leikhópnum og Gunnari Gunnsteinssyni. Leikarar eru Ásta Sighvats Ólafsdóttir og Bryndís Petra Bragadóttir en leikstjóri er Margrét Pétursdóttir. Frumsýningin verður  í Hagaskólanum í Reykjavík klukkan tíu árdegis.

Hversu lengi logar?

Leikritið Hjónabandsglæpir eftir franska leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt verður tekið til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu. Sýningar hefjast þann 11. október í Kassanum á Lindargötu 7. Verkinu var afar vel tekið í vor og var þéttsetið á allar sýningarnar sem og aukasýningar. Sýningin hlaut ennfremur afar góða dóma hjá gagnrýnendum.