Jólakveðja frá Bandalaginu
Bandalag íslenskra leikfélaga sendir Bandalagsfólki, viðskiptavinum og bara öllum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári með þökkum fyrir árið sem er að líða. Athugið að lokað verður í verslunni okkar frá kl. 13.00 22. desember til 2. janúar 2012.
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu
Hjartnæm og fjörmikil sýning um tilfinningaríka vináttu og samskipti skrímslanna vinsælu verður frumsýnd í Kúlunni 28. desember 2011. Ævintýri litla skrímslisins og stóra skrímslisins og innileg samskipti þeirra láta engan ósnortinn. Skrímslin tvö hafa eignast ótal aðdáendur en bækurnar um þau hafa komið út víðsvegar um heiminn, hlotið lofsamlega dóma og fjölda verðlauna. Ekkert lát […]
Fanný og Alexander frumsýnt 6. janúar
Fanný og Alexander hin ástsæla fjölskyldusaga Ingmars Bergmans verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á þrettándanum, 6. janúar næstkomandi. Hér er sögð saga systkinanna Fannýjar og Alexanders sem alast upp á ástríku, hlýju heimili þar til faðir þeirra fellur óvænt frá og líf þeirra umbreytist í vondan draum. Leikgerðin byggir á sjónvarpsþáttum Bergmans sem hann […]
Leikhópurinn Fullt hús sýnir Póker
Þann 5. janúar frumsýnir leikhópurinn Fullt hús leikritið Póker eftir Patrick Marber í Tjarnarbíói. Póker (Dealer’s Choice) hefur farið sigurförum um allt Bretland og Bandaríkin og unnið til margra verðlauna. T.d. Besta West End leikritið valið af samtökum leikskálda árið 1995 og var einnig valinn besti gamanleikurinn sama ár af Evening Standard. Leikstjóri er Valdimar […]
Þorri og Þura bjarga jólunum í Bæjarleikhúsinu
Álfabörnin Þorri og Þura ætla að kíkja í heimsókn í Bæjarleikhúsið í Mosfellsbæ um jólin með glænýja jólasýningu. Þorri og Þura hafa í nógu að snúast við að undirbúa jólin, pakka inn gjöfum, skreyta og skrifa jólakort þegar þau finna Kertasníki sjálfan steinrotaðan fyrir utan gluggan þeirra með gjafirnar handa öllum börnunum á Íslandi. Upp […]
Síðustu sýningar á Andakt
Jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar.Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Peðið sýnir síðustu sýningar á Andakt nú fyrir jól á sunnudaginn kemur, 18. desember kl. 16.00 og 18.00 á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46, Reykjavík.
Sá glataði æfður hjá Hugleik
Hugleikur fæst nú við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Nánar tiltekið dæmisögurnar í Nýja Testamentinu. Bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann og aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga, merkilegt nokk. Ágústa Skúladóttir sér um að þræða þessar perlur upp á band með leikhópnum sem innheldur bæði gamlar og […]
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Heimsljós
Heimsljós eftir Halldór Laxness í leikgerð Kjartans Ragnarssonar er jólafrumsýning Þjóðleikhússins 2011. Heimsljós, ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins, er heillandi verk um fegurðarþrána, veraldlega fátækt og andleg auðæfi. Verkið er nú sett á svið í nýrri leikgerð Kjartans Ragnarssonar leikstjóra, en leikgerðinni til grundvallar liggur skáldsagan í heild sinni. Frumsýnt verður 26. desember.
Hilmar Guðjónsson valinn í Shooting Star
Hilmar Guðjónsson leikari hefur verið valinn í hóp 10 efnilegustu leikara Evrópu, Shooting Star (http://www.shooting-stars.eu/) . Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn í þennan hóp (eftir að skilyrði voru sett sem takmarka fjölda útvalinna við 10 leikara í allri Evrópu). Shooting Star hópurinn kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og kynntur fyrir alþjóðlegum fagaðilum […]
Jólagjafir leikhúsáhugafólks!

Í verslun Bandalags íslenskra leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8 er hægt að kaupa frumlegar og skemmtilegar jólagjafir fyrir leikhúsáhugafólk og börn. Þar fást t.d. andlitslitir í yfir 40 litum, bæði stakir og í pallettum, gerviskegg, augnhár, gerviblóð og margt fleira spennandi. Þar fást að sjálfsögðu líka fjölmörg leikrit og ekki má gleyma sögu Bandalagsins, Allt fyrir […]
Leiklestraröðin Salon í Tjarnarbíói

Mánudaginn 12. og þriðjudaginn 13. desember munu Pörupiltarnir ásamt „sjúklega heitri skvísu“ leiklesa leikritið The Night before Christmas eftir Anthony Neilson í Tjarnarbíói. Þetta er liður í leiklestrarröðinni Salon þar sem íslenskir leikarar leiklesa ný og spennandi bresk verk sem ekki hafa verið sett hér á landi. Húsið opnar kl. 20 og lestur hefst kl. […]
Kynningarfundur fyrir vorverkefni Leikfélags Kópavogs
Aðalverkefni vormisseris hjá Leikfélagi Kópavogs er heimasmíðað verk sem gengið hefur undir vinnuheitinu Hringurinn. Fimmtudaginn 15. desember er komið að því að ýta því formlega úr vör með kynningarfundi í Leikhúsinu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppsetningunni mæti þá sem og aðrir félagar sem vilja fylgjast með. Kynningarfundurinn er í Leikhúsinu, […]
Ársrit Bandalagsins 2011 komið út
Út er komið Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 og er nú hægt að hala því niður hér í PDF-formati. Auk hefðbundins efnis eins og fundargerða stjórnar og aðalfunda, ársreiknings og skýrslna leikfélaga má m.a. finna umfjöllun um NEATA-hátíðina á Akureyri sumarið 2010. Mikið er af myndum í ritinu og er það hin ágætasta […]
Andakt á Gallery-Bar 46
Frá því Leikfélagið Peðið var stofnað á kránni Grand Rokk við Smiðjustíg árið 2005 hefur félagið sýnt fjölda verka, flest eftir félagsmenn og auk þess hafa félagar Peðsins samið tónlist og söngva þegar við á. Þannig er það líka að þessu sinni en jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn […]
Verkstæði jólasveinanna í Mosfellsbæ
Það er sannkallað jólafjör í jólasýningu Leikfélags Mosfellssveitar, en sunnudaginn 20. nóvember var barnaleikritið Verkstæði jólasveinanna frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri er Stefán Bjarnarson. Í sýningunni fylgjast áhorfendur með undirbúningi jólanna hjá jólasveinunum á verkstæði jólasveinanna. Verkstæði jólasveinanna kom út árið 1973 og er upphaflega útvarpsleikrit eftir Thorbjörn Egner en þær Agnes Þorkelsdóttir Wild og María […]
SL-hópar með 217 þúsund áhorfendur á síðasta leikári
Heildaráhorfendafjöldi sjálfstæðra dans, og atvinnuleikahópa á síðasta leikári var rúmlega 217 þúsund áhorfendur innanlands og erlendis en alls voru sýndar 104 uppfærslur á vegum þessara hópa á þessu tímabili. Það er 20% auking milli ára sem verður að teljast framúrskarandi árangur á þeim miklu samdráttar tímum sem eiga sér stað í öðrum starfsgreinum á Íslandi. […]
Ein aukasýning á Saknað
Eftir frábærar viðtökur á Saknað eftir Jón Gunnar Þórðarson hafa Leikfélag Akureyrar og Silfurtungið ákveðið að bæta við einni aukasýningu á verkinu laugardaginn 3.desember klukkan 19.00. 10 ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri von að einn daginn muni Anna koma heim. Líf þeirra stendur í stað, en skyndilega kemur […]
Borgarbörn frumsýna Óværuenglana í Iðnó
Þann 1. desember frumsýna Borgarbörn nýtt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna í Iðnó. Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Óværuenglarnir. Er þetta sjötta árið í röð sem Borgarbörn setja um jólasýningu. Höfundur og leikstjóri er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningin er um klukkustund í flutningi.
Jólastemmningin er í Bæjarleikhúsinu
Verkstæði jólasveinannaLeikfélag MosfellsbæjarLeikstjóri: Stefán Bjarnarson Það er ekki laust við að ég hafi verið spenntur fyrir frumsýningu Leikfélag Mosfellsbæjar á Verkstæði jólasveinanna í Bæjarleikhúsinu. Alinn upp með þessu verki var ég að minnsta kosti örugglega spenntari en fimm ára dóttir mín, sem var alveg steinhissa á því að jólasveinarnir væru með verkstæði í Mosfellbæ.Hér á […]
Nemendaleikhúsið sýnir Jarðskjálfta í London
Föstudaginn 2. desember næstkomandi frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands verkið Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í Smiðjunni, Leikhúsi Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13. Verkið er nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í þýðingu Heiðars Sumarliðasonar og leikstjórn Halldórs E. Laxness. Í þessari mögnuðu rússíbanaferð þeytumst við um í tíma og rúmi frá 1968 til […]
Salka Valka á svið í Borgarfirði
Í kvöld frumsýnir Umf. Dagrenning í Lundarreykjadal í Borgarfirði leikritið Sölku Völku í leikstjórn Jakobs S. Jónssonar. Er þetta þriðja verkið eftir Halldór Laxness sem félagið setur upp, en áður hefur verið tekist á við Sjálfstætt fólk og Íslandsklukkuna. Segja má að um afmælissýningu sé að ræða þar sem félagið fagnaði 100 ára afmæli sínu […]
Leitin að jólunum hefst 27. nóvember
Sjöundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Að jafnaði verða þrjár sýningar hvern laugardag og sunnudag kl. 11, 13 og 14:30 allar helgar til jóla. Leitin að jólunum er eftir Þorvald Þorsteinsson og er sýningin ríkulega hljóðskreytt með tónlist Árna Egilssonar við Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum. Sýningin var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á […]
Bjálfansbarnið og bræður hans á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt jólaleikrit í Listakaupstað á Ísafirði um helgina. Leikurinn heitir Bjálfansbarnið og bræður hans, og er sannkallað jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna. Hér er sagt frá vestfirsku jólasveinunum sem hafa ekki sést í mannabyggðum í hundrað ár ef ekki meira. Þessir sveinar eru skrítnir og skondnir enda heita þeir undarlegum nöfnum á borð […]
Jesús litli snýr aftur á Litla sviðið
Jólin koma með guðspjalla trúðanna. Jesús litli hefur slegið rækilega í gegn síðustu tvö ár og fer nú aftur á svið fyrir jólin þriðja leikárið í röð, nk. laugardag 26.11.11. Jesús litli hlaut Menningarverðlaun DV 2009 og var valin besta leiksýning ársins á Grímunni vorið 2010. Jesús litli er nýsnúinn aftur úr leikferð til Spánar […]
Elsku barn snýr aftur á Nýja sviðið á fimmtudag
Verðlaunaverkið Elsku barn, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, snýr aftur á fjalir Nýja sviðsins fimmtudaginn 24. nóvember nk. Elsku barn er nístandi saga móður sem sökuð er um að myrða börnin sín tvö. Hér er á ferðinni áleitið verk sem veltir upp ýmsum heimspekilegum spurningum um eðli sannleikans, réttlæti og lygi, hvernig lifa má við […]
Ferna í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Fernu fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20.00. Dagskráin samanstendur af 4 leikþáttum, tveimur íslenskum og tveimur erlendum. Íslensku þættirnir eru XXX eftir Jónínu Leósdóttur og Verann eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Erlendu þættirnir nefnast Fjölskylda 2.0 og Vegsummerki minninga. Átta leikarar taka þátt og þar af eru fimm að þreyta frumraun sína með leikfélaginu. […]
Síðustu sýningar á Töfraflautunni
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari bregður sér í hlutverk Sarastrós á einni sýningu á Töfraflautunni í Íslensku óperunni í haust, en það verður á aukasýningunni næstkomandi sunnudag 20. nóvember kl. 16.00. Á öllum öðrum sýningum syngur hins vegar Jóhann Smári Sævarsson hlutverkið, og um helgina syngur ennfremur Hlöðver Sigurðsson hlutverk Annars reglubróður í stað Kolbeins Ketilssonar. […]
Síðustu sýningar á Himnaríki
Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, var frumsýndur í Versölum í Þorlákshöfn þann 14. október og hafa nú verið sýndar 9 sýningar. Viðtökur hafa verið vægast sagt frábærar og mikið fjör verið á sýningum. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikarar í sýningunni eru þau Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Ottó Rafn Halldórsson […]
Silfurtunglið frumsýnir Saknað
Leikfélagið Silfurtunglið heldur áfram starfsemi en fyrr á þessu ári sýndi leikfélagið söngleikinn Hárið í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og í Hörpu í Reykjavík fyrir um 19.000 áhorfendur. Á föstudag, 18. nóvember, frumsýnir Silfurtunglið nýtt frumsamið verk eftir Jón Gunnar Þórðarson „Saknað“; Tíu ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri […]
Fertugsafmæli Leikklúbbs Laxdæla
Leikklúbbur Laxdæla heldur uppá fertugsafmælið sitt um næstu helgi í Dalabúð í Búðardal. Í tilefni afmælisins setur félagið upp leiktirið Skóarakonan dæmalausa eftir Federico Garcia Lorca í þýðingu Geirs Kristjánssonar og í leikstjórn Margrétar Ákadóttur.Skóarakonan dæmalausa var einnig fyrsta leikritið sem félagið setti upp árið 1971.
Síðustu sýningar á Dampskipinu Ísland
Föstudaginn 18. og laugardaginn 19. nóvember verða síðsutu sýningar hjá Litla leikklúbbnum á leikritinu Dampskipið Ísland eftir Kjartan Ragnarsson í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Frumsýnt var 21. október og hafa nú þegar verið sýndar 8 sýningar. Leikstjóri er Halldóra Björnsdóttir.
Vertu úti! í Kópavogi
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir glænýtt leikverk er nefnist Vertu úti sunnudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Verkið er byggt á þekktum þjóðsögum og þjóðsagnaminnum. Hér segir frá systkinum sem leggja á Heiðina þegar allra veðra er von, fleiri reynast vera á sveimi á sama tíma. Fólk hittist eða fer á mis og allra bíða margvísleg örlög. […]
Mikið um að vera hjá Leikfélagi Selfoss
Það er mikið um að vera í Litla leikhúsinu við Sigtún um þessar mundir hjá Leikfélagi Selfoss. Sýningum á hinu skemmtilega barnaleikriti Rúi og Stúi er nýlokið og vill leikfélagið þakka öllum þeim sem komu á sýninguna kærlega fyrir komuna en aðsókn og viðtökur voru einstaklega góðar. En þó að sú sýning hafi runnið sitt […]
Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund
Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember kl 20.00 að Sogavegi 115, 2. hæð til vinstri. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. kosning nýrrar stjórnar en ljóst er að kosinn verður nýr formaður og nýr gjaldkeri. Einnig verða ræddar hugmyndir um starfið framundan. Gamlir jafnt sem nýir félagar velkomnir og áhugasamir eru hvattir til […]
Aukasýning á Fjalla-Eyvindi
Sökum mikillar eftirspurnar hefur leikhópurinn Aldrei óstelandi ákveðið að bæta við aukasýningu Á Fjalla-Eyvindi næstkomandi laugardag, 12.nóvember kl 20:00. Leiksýningin Fjalla-Eyvindur var frumsýnd í Norðurpólnum í janúar 2011. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Grímunnar 2011 sem besta sýning ársins og í kjölfarið var henni boðið á alþjóðalegu leiklistarhátíðina Lokal. Fjalla-Eyvindur er […]
Opinn dagur í Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 12. nóvember næstkomandi verður Opinn dagur í Listaháskóla Íslands, í húsnæði skólans við Laugarnesveg 91 kl. 11 – 16. Áhugasömum er boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Þennan dag verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar og til sýnis verða inntökumöppur og kynningar á inntökuferli, verkstæðum og aðstöðu skólans.
Leikfélag Rangæinga sýnir Vodkakúrinn
Leikfélag Rangæinga frumsýnir á laugardaginn næstkomandi leikritið Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar. Um er að ræða gamanleikrit með örlítið alvarlegum undirtóni þar sem það er skoðun höfundar að megrunarkúrar virki ekki og séu frekar til að fita fólk en hitt. Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir […]
Gyllti drekinn frumsýndur á Nýja sviðinu
Verðlaunaverkið Gyllti drekinn eftir þekktasta samtímaleikskáld Þjóðverja um þessar mundir, Roland Schimmelpfenning, verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins föstudaginn 11. nóvember næstkomandi. Gyllti drekinn var valið besta leikritið í Þýskalandi árið 2010. Verkið gerist á og í næsta nágrenni austurlensks skyndibitastaðar Gyllta drekans einhvers staðar í Evrópu. Það segir segir sárar sögur af skrítnu fólki […]
Skemmtilegir Rúar og Stúar á Selfossi
Rúi og Stúi Leikfélag SelfossLeikstjórn: F. Elli Friðjónsson Það er aðeins 45 mínutna akstur að aka frá Hafnarfirði til Selfoss, yfir Sandskeið og Hellisheiði. Það er ekki langt að fara til að sjá skemmtilega leiksýningu eins og ég og 5 ára afastelpan mín, hún Embla Sól gerðum eina kvöldstund í vikunni. Og á leiðinni er […]
Mórar og meyjar í Bæjarleikhúsinu í kvöld
Leikfélag Mosfellssveitar fagnar um þessar mundir 35 ára starfsafmæli. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Bæjarleikhúsinu dagana 1.-4. nóvember. Í kvöld, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20, verður sýnd sýningin Mórar og meyjar – draugasögur í tali og tónum eftir Maríu Guðmundsdóttur og BirgiSigurðsson. Í sýningunni eru sviðsettar magnaðar draugasögur úr Mosfellssveitinni og af Akranesi. […]