Sex ung leikskáld ráðin til Borgarleikhússins

Nú fyrir skemmstu réð Borgarleikhúsið sex ung skáld til að skrifa leikverk fyrir húsið. Það eru þau Auður Jónsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Didda, Salka Guðmundsdóttir, Heiðar Sumarliðason, Tyrfingur Tyrfingsson. Fyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir […]

Sólarferð á Selfossi

Leikfélag Selfoss tekur stefnuna til sólríkari stranda í vetur föstudaginn 24. febrúar kl. 20 frumsýnir það Sólarferð eftir Guðmund Steinsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Þau ætla sannarlega að njóta sólarinnar, enda er hún ástæðan fyrir ferðum hins fölbleika […]

Sérstök styrktarsýning á Eldhafi miðvikudaginn 7. mars

Þann 8. mars verður Alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn hátíðlegur um allan heim eins og gert hefur verið í yfir 100 ár. Af því tilefni efnir Borgarleikúsið til sérstakrar styrktarsýningar á Eldhafi þann 7. mars næstkomandi þar sem allur ágóði rennur til samtaka UN Women á Íslandi. Sýningin hefst kl 19 og að henni lokinni gefst […]

Heillandi heimsókn í Himnaríki

HimnaríkiFrevangsleikhúsiðLeikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Föstudagskvöldið 17. febrúar s.l. frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið „Himnaríki – geðklofinn gamanleik“ eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Hönnuður lýsingar er Benedikt Axelsson og leikmyndar þeir Finnur Arnar Arnarson og Þórarinn Blöndal. Verkið var frumflutt af Hafnarfjarðarleikhúsinu haustið 1995 en hefur verið skemmtilega staðfært í meðförum Freyvangsleikhússins.

Leikfélag Kópavogs frumsýnir Hringinn

Evgenía lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn knýja örlögin dyra í mynd rykfallins lögfræðings. Erindi hans er að greina frá fráfalli föðurins sem hún aldrei kynntist og koma til hennar arfi. Föðurarfur Evgeníu er sannarlega óvanalegur og líf hennar tekur í kjölfarið heljarstökk með tvöfaldri skrúfu – upp frá […]

Hugleikur til Danmerkur fyrir Íslands hönd

Leiksýning Hugleiks, Sá glataði, hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí til 5. ágúst í sumar. Leikstjóri verksins er Ágústa Skúladóttir og handritshöfundur Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Tvær umsóknir bárust um að fara á hátíðina en auk Hugleiks sótti Leikfélagið Sýnir um að fara með […]

Breskur leiklistarháskóli með inntökupróf á Íslandi

Rose Bruford College of Theatre and Performance, einn af fremstu leiklistarskólum Evrópu, býður upp á nám á öllum sviðum leikhússins. Skólinn bíður upp á nám til BA gráðu í almennri leiklist, leiklist og tónlist, Amerískum leiklistarhefðum, Evrópskum leiklistarhefðum, búningahönnun, ljósahönnun, hljóðhönnun, sviðsstjórn, sviðslistum og leikhúshönnun. Og MA gráðu í leikhús fyrir unga áhorfendur og Ensemble […]

Halinn í hassinu

Hassið hennar mömmu eftir Daríó FóHalaleikhópurinnLeikstjórar:  Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Þann tíunda febrúar síðastliðinn frumsýndi Halaleikhópurinn enn eitt leikverkið í leihúsi sínu að Hátúni 12 í Reykjavík. Það er  alltaf jafn merkilegt að sjá sýningar Halans þar sem fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að því að brjóta niður múrana.  Hópurinn hefur komið víða […]

Leikfélag Selfoss æfir Sólarferð

Leikfélag Selfoss tekur stefnuna til sólríkari stranda í vetur en nú standa yfir æfingar á leikritinu Sólarferð eftir Guðmund Steinsson og hefur Rúnar Guðbrandsson verið fenginn til að leikstýra. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Það gengur á ýmsu og tekið er á því […]

Aukasýningar á Ég er vindurinn

Undanfarnar vikur hefur leikfélagið Sómi þjóðar sýnt uppsetningu sína á verki Jon Fosse, Ég er vindurinn, við frábærar viðtökur. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar og einnig hafa leikdómar um sýninguna verið vægast sagt jákvæðir. Sökum þess hefur Sómi þjóðar ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á verkinu. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en þýðinguna […]

Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði

Föstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar nýtt íslenskt verk, Baðstofuna eftir Gunnar Ragnar Jónsson. Í litlu koti í afskekktum dal húkir fjölskylda og lifir á litlu. Eftir að morð er framið á bæ í nágrenninu ber förumann að garði. Við það færist fjölbreytni í líf fjölskyldunnar og undarlegir atburðir fara að gerast. Hér er á ferðinni […]

Gói og Ævintýrin: Baunagrasið frumsýnt

Þann 11. febrúar næstkomandi kl. 13 verður leikritið Baunagrasið frumsýnt á Litla sviðinu. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst […]

Klerkar í klípu í Biskupstungum

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið Klerkar í klípu eftir Philip King, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsonar en þetta er fimmta leiksýningin sem Gunnar Björn setur upp hjá leikdeildinni. Sýningar eru í Aratungu og hefjast kl. 20.30, á undan sýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti.

Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum

Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot […]

Freyvangsleikhúsið æfir Himnaríki

Æfingar á aðalverkefni Freyvangsleikhússin, Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, hófust strax eftir áramót en frumsýnt verður 17. febrúar n.k. Verkið var fyrst sett upp hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu 1995 og naut strax mikilla vinsælda, en þess má geta að Leikfélag Ölfuss setti verkið upp nú á haustdögum við góðar undirtektir.

Halaleikhópurinn frumsýnir Hassið hennar mömmu

Föstudaginn 10. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo í Halanum, Hátúni 12. Þessi leikgerð er unnin af Margréti Sverrisdóttur og Oddi Bjarna Þorkelssyni sem jafnframt leikstýra. Þau byggja hana á gömlu leikgerðinni, sem Stefán Baldursson þýddi, en hafa tekið sér leyfi til að umskrifa senur, skipta um kyn á persónum og skrifa […]

Biblíusögur á Eyjarslóð

Hugleikur Sá glataði Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Tíu Hugleikarar og einn fiðluleikari frumsýndu laugardagskvöldið 4. febrúar Þann glataða, fléttuverk úr nokkrum dæmisögum sem hafðar eru eftir „Jesú nokkrum frá Nasaret“, eins og segir í leikskrá. Af þeim biblíusögum sem notaðar eru í ívaf þessa leikverks um Lúkas, glataðan son föður Abrahams, atvinnuleysingja og björgunarmann Babýlonshóru, eru Miskunnsami Samverjinn […]

Örverkahátíðin Feigð hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar stendur að örverkahátíð laugardaginn 4. febrúar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur verða frumsýnd hvorki meira né minna en sex frumsamin verk. Og eins og það sé ekki nóg að þá fengu höfundarnir ekki nema viku til að semja verkið og leikstjóri svo […]

Sá glataði frumsýndur hjá Hugleik

Laugardaginn 4. febrúar kl. 20.00 frumsýnir Hugleikur nýtt íslenskt leikrit sem hlotið hefur nafnið Sá glataði. Handritið er eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en hún vann það í samvinnu við leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Tónlist og söngtexta í verkinu samdi Þorgeir Tryggvason. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.

Uppnám á stóra sviði Þjóðleikhússins

Föstudaginn 3. febrúar kl. 21.00 verður uppistandssýningin Uppnám sýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins. Það sem upphaflega átti að vera sýningar í Leikhúskjallaranum varð að þrettán og nú er ætlunin að ljúka þessu með pompi og pragt á stóra sviðinu. Í uppnámi koma annars vegar fram Pörupiltar og hins vegar Viggó og Víóletta.

Umóknarfrestur fyrir NEATA-hátíðina rennur út 15. febrúar

neata-farve-small

Frestur til að sækja um að fara með leiksýningu á leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí – 5. ágúst rennur út þann 15. febrúar nk. Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga á eyðublöðum sem finna má hér . Upptökur […]

Skrímslið litla systir mín í Norræna húsinu

litla_skrimslid_systir_min

Brúðuleiksýningin Skrímslið litla systir mín verður frumsýnt í Norræna húsinu 4. febrúar. Það er Helga Arnalds sem er aðalhöfundur verksins og flytjandi en leikstjóri og meðhöfundur er Charlotte Böving og Eivör Pálsdóttir semur og flytur tónlist verksins. Sýningin er ætluð börnum frá 3 til 9 ára. Hún tekur um 40 mínútur í flutningi og vinnustofan […]

Listahátíðin Æringur í Frystiklefanum í Rifi 2012

Nú í ár mun listahátíðin Æringur koma sér fyrir í Frystiklefanum norðanmeginn við Snæfellsnes í sjávarþorpinu Rifi. Hátíðin er staðbundin og munu listamennirnir dvelja um 10-14 daga á staðnum við vinnslu á verkum sínum, verða fyrir áhrifum, anda að sér söltu sjávarloftinu og upplifa einstaka náttúru sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Opnun hátíðarinnar […]

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 4. og 5. febrúar veður haldið námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús í Tæknikskólanum við Háteigsveg (Gamla stýrimannaskólanum) Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri og eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, […]

Sómi þjóðar sýnir Ég er vindurinn

Leikfélagið Sómi þjóðar frumsýnir í Þjóðleikhúskjallararnum sunnudaginn 29. janúar Ég er vindurinn, nýtt verk eftir Jon Fosse. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en leikhópinn mynda Hannes Óli Ágústsson og Hilmir Jensson, sem einnig þýðir verkið. Ég er Vindurinn frá árinu 2007 er nýjasta verk Fosse og gæti jafnframt verið það síðasta en Fosse gaf nýlega […]

Aukasýningar á Póker í Tjarnarbíó

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á Póker eftir Patrick Marber 26. 27. og 28. janúar. Leikverkið er svört kómedía sem kafar í heim karlmennsku, valdatafls, pókerspilamennsku, keppnisanda, fíknar og kennir öllum að þú skalt ávallt spila með andstæðinginn en ekki spilin sjálf, sama hvað er í húfi. Þetta er bráðskemmtilegt verk […]

Æfingar á Sólarferð hafnar á Selfossi

litlaleikhsid

Starf Leikfélags Selfoss er komið á fullt eftir stutt jólafrí. Æfingar á stóru uppsetningu vetrins hófust í byrjun janúar en að þessu sinni mun leikfélagið setja upp leikritið Sólarferð sem sýnt var fyrir nokkrum árum í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir. Höfundur verksins er Guðmundur Steinsson en hans þekktasta verk er Stundarfriður sem m.a. hefur verið […]

Námskeið á vegum Leiktækniskóla Magnúsar og Þorsteins

Leiktækniskóli Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann stendur fyrir námskeiði í hagnýtri og skapandi leiklist og hefst það laugardaginn 28. janúar og stendur frá kl. 13.00 til 16.30. Kennt verður sex laugardaga í röð. Námskeiðið er haldið í húsnæði Dansverkstæðisins á Skúlagötu 28 (efstu hæð KEX hostel). Námskeiðsgjald er  38.000 kr. sem greiðist að fullu við […]

Saga þjóðar á Litla sviði Borgarleikhússins í janúar og febrúar

Þann 27. janúar hefjast á Litla sviðinu sýningar á sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum. Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika. Haugur […]

Kviss búmm bang með óvenjulegt leikverk

Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang frumsýnir nýtt verk í febrúar: Hótel Keflavík. Hótel Keflavík er 24 stunda langt þátttökuverk sem hefst á BSÍ kl. 14:00 á sýningardag og lýkur á BSÍ kl. 14:00 næsta dag. Þátttakendur eru beðnir um að mæta án hverskyns tímamæla, farsíma, tölvu eða annarra samskiptatækja og með persónulegt myndaalbúm með sér. Við […]

Málþing um Jón Múla og Jónas Árnasyni þann 16. janúar

Í dag, 11. janúar 2011 er Leikfélag Reykjavíkur 115 ára. Það var stofnað 11. janúar 1897 og er eitt af elstu starfandi félögum landsins. Á undanförnum árum hafa verið haldin málþing/félagsfundir í tengslum við afmæli félagsins. Fjallað hefur verið um leikskáldin Jóhann Sigurjónsson og Guðmund Kamban, verk þeirra og æviferil. Nú er röðin komin að […]

Eldhaf frumsýnt á Nýja sviðinu

Þann 26. janúar næstkomandi verður leikritið Eldhaf eftir Wajid Mouwad frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Eldhaf er stór saga, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann, sem höfðar beint til hjartans. Verkið hefur farið sigurför um heiminn, verið þýtt á tuttugu tungumál og sýnt í yfir 100 uppsetningum. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og þýðingu annaðist […]

Axlar-Björn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Axlar-Björn, nýtt rammíslenskt verk úr smiðju Vesturports verður frumsýnt í Borgarleikhússins á miðvikudagskvöld kl. 20. Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa eins kaldrifjaðasta morðingja Íslandssögunnar en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka. Björn Hlynur Haraldsson skrifar verkið og leikstýrir en þeir Alti Rafn Sigurðarson og Helgi Björnsson fara með […]

Leikdeild Skallagríms setur upp Skugga-Svein

Leikdeild Skallagríms hefur upp á síðkastið æft af fullum krafti leikritið Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Leikdeildin setur Skugga-Svein upp en það var síðast gert árið 1948 og fannst fólki kominn tími á að setja þetta vinsæla leikverk upp aftur. Skugga-Sveinn verður í þetta sinn […]

Leikfélag Kópavogs 55 ára

Leikfélag Kópavogs var stofnað 5. janúar 1957 þegar 46 áhugamenn komu saman í barnaskólanum, Kópavogsskóla, gagngert til þess að stofna leikfélag. Í gær 5. janúar 2012 fagnaði félagið því 55 ára afmæli sínu. Haldið verður upp á afmælið á árlegu Stjörnuljósakvöldi í Leikhúsinu laugardaginn 7. janúar kl. 20.00. Meðlimir, vinir og vandamenn eru hvattir til […]

Námskeið fyrir börn hjá Leynileikhúsinu

Leynileikhúsið hefur nýja önn á áttunda starfsári sínu af miklum krafti og stórkostlegri leikgleði! Vornámskeið Leynileikhússins 2012 hefjast í byrjun febrúar. Námskeiðin eru aldursskipt fyrir börn og unglinga í 2-10. bekk og eru haldin í samstarfsskólum okkar víðsvegar um höfðuborgarsvæðið. Hvert námskeið tekur 12 vikur og lýkur með sýningu í atvinnuleikhúsi þar sem afrakstur vinnunnar […]

Frystiklefinn sýnir Góðir hálsar

Nýjasta atvinnuleikhúsið á Íslandi, Frystiklefinn í Rifi, tekur nú aftur upp sýningun Góðir Hálsar. Sýningin er byggð á sögu Axlar-Bjarnar og var frumsýnd í ágúst 2011. Þar sem leikarar sýningarinnar höfðu öðrum hnöppum að hneppa þá var sýningatíminn stuttur en sýningin fékk frábæra gagnrýni og góðar viðtökur áhorfenda og því var ráðistí að setja hana […]

Nýdönsk í nánd aftur á svið laugardaginn 7. janúar

Nýdönsk snýr aftur á Litla svið Borgarleikhússins á laugardagskvöld. Þessi einstaki tónleikur Nýdanskrar sló rækilega í gegn á síðasta leikári, hætti fyrir fullu húsi og snýr því aftur í takmarkaðan tíma. Alls verða fimm sýningar á verkinu, allar um helgar kl. 22. Höfundar verks og flytjendur eru meðlimir Nýdanskrar.

Annáll Kómedíuleikhússins 2011

„Nú árið er liðið í aldana skaut og aldrei það kemur til baka“ það er nebblega það þá er best að pára hér niður helstu Kómedíufréttir ársins 2011. Árið var vissulega mjög kómískt og annasamt hjá litla atvinnuleikhúsinu fyrir vestan. Þrjú ný íslensk leikverk voru frumsýnd en óhætt er að segja að Kómedíuleikhúsið sé með […]

Gott kvöld á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Flestir í leikarahópnum eru á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20.00. Aðrar sýningar […]