Harmur, hundar og hýrar konur í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi fimmtudag, 10. janúar, Harmur, hundar og hýrar konur. Hér er á ferðinni dagskrá úr fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta. Örn […]
Nanna systir sýnt í Lyngbrekku

Leikdeild Skallagríms setur upp gamanleikinn Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Eins og undanfarin ár sýnir Leikdeildin í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum og verður frumsýning á verkinu þann 11. Janúar næstkomandi. Tíu manna hópur leikara stendur á sviði að þessu sinni og eru það að miklu leiti andlit sem […]
Stundarbrot frumsýnt á Nýja sviðinu

Stundarbrot, nýtt íslenskt verk eftir Leif Þór Þorvaldsson verður frumsýnt á Nýja sviðinu 8. janúar næstkomandi. Þetta er verk á mörkum vísinda, leikhúss og dans. Framsækið sviðslistaverk sem notar viðgangsefnið til þess að skapa ógleymanlega sjóræna upplifum fyrir áhorfendur. Í Stundarbroti er fjallað um tímann – hann teygður, beygður og afmyndaður með aðferðum leikhússins þar […]
Gleðilegt ár!

Bandalag íslenskra leikfélaga sendir aðildarfélögum sínum, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleði og farsæld á nýju ári og þakkar samskiptin á því liðna. Þjónustumiðstöðin verður opin að venju frá 9.00 til 13.00 alla virka daga og síðdegis eftir samkomulagi.
Karíus og Baktus í Kúlunni

Þjóðleikhúsið heldur upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners með því að setja á svið tvö af hans vinsælustu leikritum, Dýrin í Hálsaskógi á Stóra sviðinu og Karíus og Baktus í Kúlunni. Frumsýning á Karíusi og Baktusi verður í Kúlunni 29. desember. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson […]
Lokað um hátíðirnar

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga Kleppsmýrarvegi 8 verður lokuð frá kl. 13.00 föstudaginn 22. desember og til miðvikudagsins 2. janúar. Bandalag íslenskra leikfélaga óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á árinu sem er að líða!
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Macbeth

Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth […]
Mýs og menn á Stóra sviðinu

Jólasýning Borgarleikhússins, Mýs og menn, verður frumsýnd á Stóra sviðinu laugardaginn 29. desember næstkomandi. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið, […]
Leikfélag Selfoss æfir Þrek og tár

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur. Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er hvort tveggja fjölskyldusaga og þroskasaga ungs manns á 7. áratug síðustu aldar. Leikritið innheldur mikið af söngvum sem margir hverjir eru löngu orðnir landskunnir. […]
Nóttin var sú ágæt ein í Tjarnarbíói

Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir mánudaginn 17. desember leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetreitor, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummálinu The Night Before Christmas. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson, en hann þýddi og staðfærði verkið ásamt Hirti Jóhanni Jónssyni. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er […]
100 ár frá fæðingu Thorbjørns Egner

Í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru 100 ár liðin frá fæðingu norska barnabóka og leikritahöfundarins Thorbjørns Egner, stendur Landsbókasafnið – Háskólasafn, í samvinnu við sendiráð Noregs, Nasjonalbibliteket í Osló, Þjóðleikhúsið og Leikminjasafnið, fyrir sýningu tengdri Egner en hann, auk þess að semja verkin og tónlistina við þau, hannaði hann gjarnan búninga, […]
Ferðalagið hefst á morgun!

Mary Poppins hópurinn, listrænir stjórnendur, leikarar, dansarar, söngvarar, tónlistar- og tæknimenn koma saman á fyrstu samæfingu á morgun sem markar upphafið af spennandi og krefjandi æfingaferli. Þá verður leikmynd kynnt, verkið leiklesið í heild sinni í fyrsta sinn og að endingu mun danshöfundur sýningarinnar Lee Proud drífa hópinn út á gólf á fyrstu dansæfinguna. Hátt […]
Jólahlaðborð Hugleiks

Hugleikur býður til jóladagskrár undir heitinu Jólahlaðborð fimmtudaginn 13. desember kl. 20.00 og sunnudaginn 16. desember kl. 17.00. Eins og nafnið gefur til kynna verður fjölbreytt efni á boðstólum, leiknir þættir og tónlist í bland. Á krepputímum er í tísku að endurnýta og betrumbæta. Sýnt er í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9.
Faust sýnt á BAM hátíðinni í New York

Sýningar á Faust uppsetningu Vesturports og Borgarleikhússins á BAM hátíðinni í New York hefjast nk. miðvikudag 12. desember. BAM er stærsta og þekktasta leiklistarhátíð Bandaríkjanna sem haldin er ár hvert í New York. Alls eru fyrirhugaðar 6 sýningar á Faust á hátíðinni, dagana 12.–16. desember. Hópur listamanna og tæknifólks frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu hélt utan […]
Hyldýpi í Gamla bíói

Föstudaginn 14. desember kl. 20 frumsýnir Ragnheiður Harpa Leifsdóttir leikverkið Hyldýpi í Gamla bíói, Ingólfstræti 2a. Hyldýpi er leikverk sem fjallar um myrkrið, geimryk, ókönnuð djúp og kafbáta. Verkið er dagskrá um dýpsta dýpi sjávar og endaleysu himingeimsins, sorgina og sköpunarkraftinn. Sjónrænt ljóð hins óvænta og undarlega. Flytjandi, leikstjóri og höfundur er Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Verkið […]
Jólagjafirnar hjá Bandalaginu

Hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga fæst mikið úrval af „óhefðbundum“ jólagjöfum fyrir þá sem gaman hafa af því að bregða sér í allra kvikinda gerfi. Andlitslitir fyrir börn, smink fyrir fullorðna, skallar, gerfiaugnhár, gerfiskegg, tannlitur, litahársprey, glimmer, fljótandi latex, gerfiblóð, gerfinef og margt fleira. Við erum til húsa að Kleppsmýrarvegi 8 og opnunartími er frá 9-13 […]
Halaleikhópurinn æfir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn æfir um þessar mundir barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur, í leikstjórn Herdísar Þorgeirsdóttur. Verkið er leikrit fyrir börn á öllum aldri og hófust æfingar þann 1. nóvember og verður það frumsýnt snemma næsta árs. Leikritið fjallar um hana Rympu sem lifir og býr nú á ruslahaugnum, er frekar ófyrirleitin og hagar lífi […]
Leikárið 2011-12 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Hér er síðbúið yfirlit yfir starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2011-12. 39 leikfélög settu upp leiksýningar á árinu sem er nákvæmlega sami fjöldi og á síðasta leikári en aðildarfélögunum fjölgaði úr 60 í 63 á leikárinu. Alls settu félögin upp 104 verk sem sýnd voru í heildina 579 sinnum og í þeim tóku þátt […]
Jesús litli kemur með jólin

Sýningar á Jesú litla eru orðnar fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum Íslendingum og hann snýr aftur á Litla sviðið 4. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Jesús litli er sýndur í Borgarleikhúsinu í aðraganda jólanna og ekkert lát á vinsældum hans. Sýningin var ótvíræður sigurvegari Grímunnar árið 2010, hlaut alls 7 tilnefningar […]
Ársrit Bandalagsins 2011–12 komið út

Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar […]
Jólaleg dagskrá hjá LA í desember

Mikið verður um að vera hjá Leikfélagi Akureyrar í desember, tvö jólaleikrit verða á fjölum þess auk þess sem leikfélagið stendur fyrir leiklestri í samvinnu við Akureyrarakademíuna og Minjasafn Akureyrar og hefur hann hlotið nafnið Upprisa hinna nafnlausu. Jólaleikritin eru Ef ég væri jólasveinn… og Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson.
Jólaævintýrið sýnt í Iðnó

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember. Sýningin er rétt undir klukkustund í flutningi.
Hinn eini sanni jólaandi frumsýnt á Litla sviðinu

Næstu helgi hefjast sýningar á jólasöguni Hinn eini sanni jólaandi eftir Guðjón Davíð Karlsson á Litla sviði Borgarleikhússins. Hér er á ferðinni notarleg sögustund fyrir alla fjölskylduna í flutningi Góa og Þrastar, kærkomið tækifæri til að kúpla sig út úr jólaösinni og eiga stund saman í leikhúsinu. Að sýningu lokinni verður boðið upp á kakó […]
Aukasýningar á Bjarmalandi

Leikfélagið Peðið gefur ekkert eftir og býður uppá 3 aukasýningar á óperunni Bjarmalandi II eftir Jón Benjamín Einarsson. .Sýnt er í Kjallaranum Laugarvegi 73 og miðapantanir eru í síma 866 7677. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Velkomin til Bjarmalands!
Leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla verður með leiklistarnámskeið á Melum í Hörgárdal þriðjudaginn 27., miðvikudaginn 28. og fimmtudaginn 29. nóvember nk. kl. 20:30. Leiðbeinandi er Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri og mun hann m.a. taka fyrir draugasögur, ljóðalestur og grímuleik. Einnig verður verkefni vetrarins, Djákninn á Myrká, skoðað. Allir velkomnir. Námskeiðisgjald 3.000 kr., frítt fyrir skuldlausa félagsmenn. Nánari upplýsingar […]
Ef ég væri jólasveinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikritið Ef ég væri jólasveinn, sannkallað jólaævintýri fyrir börn á öllum aldri, þann 25. nóvember nk. Sveinn J. Ólason er ungur drengur í Giljaskóla og á þann draum heitastan að vera jólasveinn. Getur verið að ósk hans rætist? Sýnt verður í Samkomuhúsinu á sunnudögum til 9. desember.
Ekkert venjulegt brúðkaup

Leikdeild Umf. ÍslendingsSmáborgarabrúðkaupeftir Bertold Brechtþýðing Þorsteinn Þorsteinssonleikstjórn Ingrid Jónsdóttir Það er brúðkaupsveisla og þar eru glæsileg brúðhjón ásamt fjölskyldu sinni og vinum sem eru komnir til að skála fyrir þeirra björtu framtíð. Veisluborðið er þrungið mat og víni, það er ljósadýrð og prúðbúnir gestirnir ganga um og spjalla um hvað þetta sé nú allt efnilegt […]
Macbeth í Þjóðleikhúsinu, miðasala hafin

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins margverðlaunaða leikstjóra Benedicts Andrews. Miðasala er hafin en sýningatímabilið verður óvenju stutt, einungis verður sýnt út janúar. Margir bíða jólafrumsýningar Þjóðleikhússins með eftirvæntingu og sýningin á Macbeth verður sannkölluð hátíðarsýning. Einn af eftirsóttari leikstjórum samtímans leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur […]
Ekki alveg barn og ekki alveg fullorðinn

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir frumsamið leikverk er nefnist Milli tveggja heima, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.00. Milli barnæsku og fullorðinsára er undarlegur heimur unglingsáranna. Spennandi og ógnvænlegur í senn, og ekki alltaf blíður þeim sem hann gista.„Hvernig er að vera ung manneskja í samfélagi okkar nútildags?“ Þannig spurðu krakkarrnir í unglingadeild Leikfélags Kópavogs sjálf sig […]
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Hamagang í helli mínum

Sunnudaginn 18. nóvember var leikritið Hamagangur í helli mínum frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Maríu Guðmundsdóttur. Leikstjórar eru Ólöf Þórðardóttir og Eva Björg Harðardóttir. Um tuttugu manns koma að sýningunni sem er full af söng, glensi og gríni. Sýningar verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ á sunnudögum kl. 16.
Enn er leitað að jólunum í Þjóðleikhúsinu

Áttundu aðventuna í röð sýnir Þjóðleikhúsið ævintýrið Leitina að jólunum. Undanfarin sjö ár hefur verið uppselt á allar sýningarnar og ef fer sem horfir verða 200 uppseldar sýningar á þessu skemmtilega aðventuævintýri komnar í hús fyrir jól. Það er því um að gera að bregðast skjótt við því að miðarnir renna út eins og heitt […]
Silfurtunglið frumsýnir Ég var einu sinni frægur

Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýnir föstudaginn 23. leikverkið Ég var einu sinni frægur þar sem stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Aðalsteinn Bergdal leika sig sjálfa, gamla, bitra, geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr […]
Ást á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur hefur að undanförnu æft Söngleikinn Ást eftir þá Vesturportsfélaga Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson. Söngleikurinn Ást er íslensk saga, sem tekur á ástinni á fjörugum nótum en – eins og vera ber – með alvarlegum undirtón. Víst er, að áhorfendur munu skemmta sér konunglega og finna til samúðar með persónum verksins – […]
Síðustu sýningar á Rummungi ræningja

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Rummung ræningja hjá Leikfélag Ölfuss því nú fara í hönd síðustu sýningar á þessu þýska fjölskylduleikriti eftir barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað […]
Kæra Jelena í Verslunarskólanum

Listafélag Verslunarskóla Íslands sýnir um þessar mundir leikritið Kæra Jelena í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar. Leikritið var skrifað árið 1980 í Sovétríkjunum, þar sem sagan á sér stað, og uppreisn ríkti á meðal ungu kynslóðarinnar. Ljúdmíla Razúmovskaja er höfundur verksins. Yfirvöld lögðu í fyrstu bann við sýningu þess en árið 1986 sló það í gegn. Síðan […]
Spunanámskeið í Gaflaraleikhúsinu

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur námskeið í spuna og leikhússporti næstu 5 laugardaga í Gaflaraleikhúsinu frá kl. 14.00 til 17.00. Námskeiðinu lýkur laugardagskvöldið 15 desember með æsispennandi leikhússportkeppni. Leiðbeinandi er Gísli Björn Heimisson, Norðurlandameistari í Leikhússporti. Hámarksfjöldi nemenda er 12 og námskeiðsverð er 8.000 krónur. Skráning fer fram í namskeid@gaflaraleikhusid.is (fyrstur kemur fyrstur fær).
Stúdentaleikhúsið frumsýnir Nashyrningana

Stúdentaleikhúsið í samstarfi við Norðurpólinn sýnir eitt helsta verk Absúrdleikhússins, Nashyrningana, eftir franska skáldið Eugéne Ionesco. Verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í 23 ár en þess hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Stúdentaleikhúsið hefur leikið sig inn í hjörtu landsmanna með framsæknum sýningum í áraraðir og nú verður sannarlega haldið í […]
Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Ævintýrið um Augastein er hugljúft jólaævintýri sem frumsýnt var fyrir 10 árum og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni bæði hér á landi og í Bretlandi. Nú hafa orðið kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýninguna frá byrjun. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt […]
Ertu með hugmynd að sögu, leikriti eða kvikmynd?

Ritsmiðja verður sett á laggirnar 21. nóvember næstkomandi. Farið verður í gegnum bókina Anatomy of Story eftir John Truby. Aðferðir Trubys við að skrifa sögur verða skoðaðar og ræddar. Ritsmiðjan verður haldin á þriðjudagskvöldum fram í febrúar á næsta ári. Á þeim tíma mun hver þátttakandi skrifa eigið verk; smásögu, skáldsögu, leikrit eða kvikmyndahandrit.
Velkomin til Bjarmalands!

Föstudagskvöldið 9. nóvember kl. 21.00 frumsýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson í Kjallaranum Laugarvegi 73. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Bjarmaland II er sjálfstætt framhald óperunnar Bjarmaland rísandi land, sem flutt var af Peðinu í fyrra. Þá kynntumst við ástföngnu fólki sem var í giftingarhugleiðingum á barnum.