Skrifin um Djáknann á Myrká

Jón Gunnar Þórðarson skrifar um tilurð Djáknans á Myrká. Þegar ég kynntist bændunum úr Hörgárdal höfðu þeir hug á að afklæðast í leikritinu Með fullri reisn og vildu ráða mig til að leikstýra. Sú hugmynd var skondin og skemmtileg en ég vildi síðar setja upp Djáknann á Myrká. Það var samþykkt. Og nú er verkið […]
Málþing um Kjartan Ragnarsson 4. mars

Mánudaginn 4. mars nk. stendur Leikfélag Reykjavíkur fyrir sínu árlega málþingi sem að þessu sinni fjallar um samtímalistamanninn Kjartan Ragnarsson, leikstjóra, leikskáld, leikara og frumkvöðul. Dagskráin er fjölbreytt, stuttir fyrirlestrar, pallborðsumræður, flutt brot úr leikverkum, tónlistaratriði og upptökur frá uppsetningum Kjartans. Auk listamanna Borgarleikhússins munu KK og hljómsveitin 4 á palli taka þátt í flutningnum. […]
LA frumsýnir Kaktusinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 1. mars Kaktusinn eftir þýska mannréttindalögfræðinginn Juli Zeh. Þetta er ólíkindalegt verk þar sem fjallað er á spaugilegan hátt um ótta, öryggisfíkn, raunveruleika og skáldskap. Það er leikhópur Leikfélags Akureyrar sem fara með öll hlutverk sýningarinnar, enn hann skipa Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Ragnheiður […]
Eyrnalangir og annað fólk á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur hefur á undanförnum vikum æft fjölskylduleikritið, Eyrnalangir og annað fólk eftir þær systur, Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist er eftir Ragnhildi Gísladóttur. Leikritið gerist á Dalvík í dag og segir frá því þegar flóttamenn frá eyjunni Sebrakapra koma í bæinn með nýja siði og annað útlit en bæjarbúar. Frumsýning verður föstudaginn 8. Mars. […]
Djákninn á Myrká sýndur á Melum

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir glænýtt íslenskt verk fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20.00 á Melum í Hörgárdal. Verkið er byggt á þjóðsögunni um Djáknann á Myrká og er eftir Jón Gunnar Th. sem jafnframt leikstýrir verkinu. Tónlistin er eftir Skúla Gautason og er samin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Þarna er á ferðinni klassísk ástar- og draugasaga sem […]
Bar par í Reykholtsdal

Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir 1. mars nk. leikritið Bar par eftir Jim Cartwright. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, og er þetta þriðja skiptið í röð sem hann leikstýrir hjá UMFR. Leikendur, sem eru tólf talsins, eru á ýmsum aldri, sá yngsti 10 ára og sá elsti á óræðum aldri. Sumir að taka þátt í sinni fyrstu sýningu, […]
Aukasýning á Gutta og félögum

Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs, sunnudaginn 3. mars kl. 16.00. Uppselt er á sýningar laugardaginn 2. og 3. mars kl. 14.00. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti […]
Kardimommubærinn sýndur á Egilsstöðum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum hafa sameinað krafta sína þennan veturinn og vinna nú að uppsetningu á Kardimommubænum eftir Torbjörn Egner. Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson sem er landsmönnum að góðu kunnur m.a. fyrir leikstjórn kvikmyndanna Gauragangs og Astrópíu auk Áramótaskaupa síðustu fjögurra ára. Gunnar hefur einnig leikstýrt heilmörgum áhugaleiksýningum og setti […]
Með vífið í lúkunum frumsýnt í Hveragerði.

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudagskvöldið 1. mars klukkan 20.00 sprenghlægilega farsann Með vífið í lúkunum eftir breska leikskáldið Ray Cooney. Leikritið fjallar um leigubílstjórann Jón Michelsen sem býr bæði á Selfossi og í Hveragerði með tveimur konum, einni á hvorum stað án þess að önnur viti af hinni. Leikarar eru átta en með helstu hlutverk fara […]
Pörupiltar snúa aftur

Pörupiltar ætla að sýna þrjár aukasýningar á Uppistandinu Homo Erectus í Þjóðleikhúskjallaranum í mars. Uppistandið var sýnt sl. vetur við frábærar undirtektir gagnrýnenda og áhorfenda. Pörupiltar eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Aðeins verða sýningar, 2. 16. og 23. mars. Húsið er opnað kl. 20.30 og sýningin hefst kl. 21.00.
Karma fyrir fugla frumsýnt 1. mars

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk þann 1. mars í Kassanum. Verkið, Karma fyrir fugla, er eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem báðar eru myndlistarmenntaðar. Karma fyrir fugla er í senn ljóðrænt og sálfræðilegt verk um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur á […]
Gutti og félagar – sögu vil ég segja stutta

Nýtt íslenskt barnaleikrit, Gutti og félagar, byggt m.a. á Guttavísum Stefáns Jónssonar, verður frumsýnt föstudaginn 22. febrúar næstkomandi hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum […]
Kómedíuleikhúsið sýnir leikrit um Sigvalda Kaldalóns

Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, Sigvaldi Kaldalóns, í Hömrum á Ísafirði á föstudag. Hér er á ferðinni leikverk sem fjallar um ár Sigvalda í Djúpinu fyrir vestan. Þar dvaldi hann í ein ellefu ár sem læknir. Þrátt fyrir mikið annríki í hinu afskekkta en víðferma læknishéraði gaf hann sér tíma til að semja lög. Á […]
Snúður og snælda frumsýna í Iðnó

Nýtt íslenskt leikverk, Ráðabruggið og bland í poka eftir Sellu Páls, Bjarna Ingvarsson og leikhóp Snúð og Snældu, verður frumsýnt í Iðnó laugardaginn 16. febrúar kl. 14. Verkið gerist á vistheimili þar sem aldraðir búa. Vistheimilið er 50 ára og í tilefni þess hefur hópur vistmanna tekið að sér að æfa upp skemmtidagskrá. Dagskráin inniheldur […]
Fjör á Ruslahaugnum

HalaleikhópurinnRympa á ruslahaugnum eftir Herdísi EgilsdótturLeikstjóri: Herdís Ragna Þorgeirsdóttir Ég skrapp á laugardaginn á Rympu á Ruslahaugnum sem Herdís Ragna Þorgeirsdóttir setur upp með Halaleikhópnum í Halanum í Hátúni 12. Verkið sem er eftir Herdísi Egilsdóttur var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1987 við góðar viðtökur og hefur verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga víða um […]
Mary Poppins frumsýnd á Stóra sviðinu

Föstudaginn 22. febrúar kl. 20 verður söngleikurinn Mary Poppins frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (15 leikarar, 17 […]
Fyrirheitna landið frumsýnt 23. febrúar

Þann 23. febrúar mun Þjóðleikhúsið frumsýna Fyrirheitna landið, nýtt verðlaunaleikrit eftir breska leikskáldið Jez Butterworth, á Stóra sviðinu. Fyrirheitna landið (Jerusalem) var frumflutt hjá Royal Court leikhúsinu í London árið 2009 og hlaut strax frábærar undirtektir og hefur verið sýnt við miklar vinsældir beggja vegna Atlantshafsins. Verkið hefur sópað að sér verðlaunum og hefur meðal […]
Æfingar hafnar á Sjóræningjaprinsessunni

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið æfingar á barna- og fjölskylduleikritinu Sjóræningjaprinsessan eftir Ármann Guðmundsson. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson. Það er gaman að geta sagt frá því að á fyrsta samlestur mættu yfir 20 manns og enn skemmtilegra að allir sem vildu fengu hlutverk. Tónlistin í verkinu er eftir Ármann sjálfan ásamt Guðmundi Svafarssyni og söngtexta gerir […]
Styrkir til atvinnuleikhópa 2013

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 82 verkefna. Þá bárust 4 umsóknir um samstarfssamning til lengri tíma og 4 umsóknir um rekstrarstyrki. Á fjárlögum 2013 eru 89,8 milljónir króna á fjárlagaliðnum „Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa“ en voru á síðasta ári […]
Hjólastólasveitin í Gaflaraleikhúsinu

Miðvikudaginn 13. febrúar kl. 20.30 mun uppistandsgengið Hjólastólasveitin ganga af göflunum í Gaflaraleikhúsinu. Tilgangur félagsins er að skemmta fólki með uppistandi víðs vegar, innan lands sem utan. Vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra í samfélaginu og efla heilsu allra landsmanna með hlátri. Hjólastólasveitina skipa þau Ágústa Skúladóttir, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, […]
Grease í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja hefur hafið æfingar á stórsöngleiknum Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, en félagið undirritaði samning við Nordiska ApS um sýningarétt á verkinu í nóvember síðastliðinn. Almennar æfingar hófust mánaðarmótin janúar/febrúar, en dansæfingar hófust fyrir áramót og ganga þær mjög vel.
Tengdó – Sigurvegari Grímunnar 2012 snýr aftur

Tengdó – Sönn saga um leitina að sannleikanum, snýr aftur á fjalir Borgarleikhússins 7. febrúar. Í Tengdó birtist sönn saga ástandsbarns sem leitar föður síns áratugum saman. Við fylgjumst með djúpstæðri þrá barnsins til að kynnast uppruna sínum en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag. Í sögunni takast á gleði og sorg […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Rympu á ruslahaugnum

Halaleikhópurinn setur um þessar mundir á svið fjölskylduleikritið Rympa á ruslahaugnum í leikstjórn Herdísar Rögnu Þorgeirsdóttur. Frumsýnt verður sunnudaginn 10. febrúar, í Halanum, Hátúni 12. Höfundur verksins er Herdís Egilsdóttir kennari, sem kenndi lengst af við skóla Ísaks Jónssonar. Herdís hefur gefið út heilmikið af bókum, sjónvarpsefni og leikritum fyrir börn. Hún hefur hlotið ótal […]
Ormstunga/Ástarsaga í Borgarleikhúsinu

Ormstunga/Ástarsaga, leikverk byggt á Gunnlaugs sögu Ormstungu eftir óþekkta konu eða mann í leikgerð Benedikts Erlingssonar og Halldóru Geirharðs, verður frumsýnt þann 8. febrúar á Nýja sviði Borgarleikhússins. Gunnlaugs saga er saga um ástir og afbrýði. Fyrsti og langfrægasti ástarþríhyrningur heimsbókmenntanna. Þar er rakin saga skáldsins Gunnlaugs Ormstungu frá Hvítársíðu, Helgu fögru úr Borgarnesi og […]
Macbeth og Jónsmessunótt kveðja

Tvær sýningar, sem hafa vakið mikla athygli og fengið frábærar viðtökur, verða sýndar í Þjóðleikhúsinu í síðasta sinn nú um helgina. Um er að ræða Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn Benedicts Andrews og Jónsmessunótt eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Síðustu sýningar á Macbeth eru 1. og 2. febrúar en síðasta sýning á Jónsmessu […]
Nemendafélag Borgarholtsskóla sýnir Grimmd

Leikfélag Borgarholtsskóla frumsýnir þann 8. febrúar leiksýninguna Grimmd sem er byggt á hryllilegustu og blóðugustu Grimms ævintýrunum, eins og þau voru upphaflega skrifuð – sem er ávísun á martraðir! Með samvinnu bjó hópurinn handritið til upp úr þremur sögum undir handleiðslu leikstýrunnar Jenný Láru Arnórsdóttur. Nemendur skólans sjá um að vinna allar hliðar leiksýningarinnar; hönnun, […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Dagatalsdömurnar

Þann 1. febrúar mun Freyvangsleikhúsið frumsýna leikritið Dagatalsdömurnar eða Calendar girls eftir Tim Firth. Verkið er gamanleikrit og var valið besta gamanleikritið í London árið 2010. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp á Íslandi og fékk leikfélagið Davíð Þór Jónsson til að skella því yfir á íslensku. Leikstjóri er svo hin […]
Sýningar hefjast að nýju á Með fulla vasa af grjóti

Sýningar á tvíleiknum Með fulla vasa af grjóti hefjast að nýju á Stóra sviði Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið, en sýningin gekk þar fyrir fullu húsi í haust, þar til gera þurfti hlé á sýningum vegna annarra anna leikara. Tekið var forskot á sæluna með tveimur sýningum á Akureyri um liðna helgi, og er skemmst frá því […]
Norræn barnaleikhúshátíð í Svíþjóð 2013

Skrímslið í fornsögum og þjóðtrú Norræn barnaleikhúshátíð verður haldin í Östersund, Svíþjóð, dagana 6.-11. ágúst 2013.Skipuleggjandi er Sænska áhugaleikhúsbandalagið, ATR, í samvinnu við NAR, SAR og Östersunds Teaterverkstad með styrk frá Norræna menningarsjóðnum. Til þátttöku er boðið leikhópum með þátttakendum á aldrinum frá 10-12 ára frá Danmörk, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, suður-Samalandi, Svíþjóð og […]
Nóttin nærist á deginum frumsýnt 1. febrúar

Föstudaginn 1. febrúar verður nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson, Nóttin nærist á deginum, frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhúsins. Í aðalhlutverkum eru Elva Ósk Ólafsdóttir og Hilmar Jónsson en Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir verkinu. Hjón á fimmtugsaldri standa allslaus og ein eftir hrunið. Þau búa í hálfkláruðu einbýlishúsi með kjallaraíbúð sem var ætluð dóttur þeirra […]
Þrek og tár á Selfossi

Leikfélag SelfossÞrek og tár eftir Ólaf Hauk SímonarsonLeikstjóri: Lilja Nótt Þórarinsdóttir Margir þekkja Þrek og tár eftir Ólaf Hauk, enda sló það eftirminnilega í gegn þegar það var frumsýnt fyrir ekkert alltof mörgum árum. Verkið er góð blanda af gríni og alvöru, textinn vel skrifaður og lögin fyrir löngu búin að stimpla sig inn í […]
Fimm listamenn fá styrk úr Egnersjóðnum

Á fimmtugustu sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi nú um helgina var fimm listamönnum veittur styrkur úr Egnersjóðnum. Styrkþegar að þessu sinni eru þau Ágústa Skúladóttir, leikstjóri sýningarinnar, Jóhannes Haukur Jóhannesson sem leikur Mikka ref, Friðrik Friðriksson sem fer um þessar mundir með hlutverk Karíusar í Karíusi og Baktusi í Kúlunni, Bernd Ogrodnik brúðulistamaður og Trygve […]
Með fulla vasa af grjóti sýnt á Akureyri

Um næstu helgi, 26. og 27. janúar, heldur Þjóðleikhúsið í leikferð norður yfir heiðar með Með fulla vasa af grjóti. Í verkinu kynnumst við fjölda skrautlegra og skemmtilegra persóna. Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson fara með öll fjórtán hlutverkin í sýningunni, og bregða sér jafnt í gervi karla sem kvenna, og ungra sem […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir Þrek og tár

Föstudaginn 18. janúar frumsýnir Leikfélag Selfoss leikritið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur. Í verkinu fáum við að fylgjast með upprifjun ungs manns á æskuárum sínum og lífi ósköp venjulegrar fjölskyldu á sjötta áratugnum. Mörg kunnug og skemmtileg dægurlög prýða verkið og ekki ólíklegt að leikhúsgestir finni hjá sér […]
Leikhópurinn ONE sýnir Tamam Shud í Leikhúsinu

Næstkomandi föstudag, 18. janúar, frumsýnir leikhópurinn ONE leikritið Tamam Shud í Leikhúsinu. Þar er rifjuð upp furðuleg óleyst gáta um ókunnan mann sem fannst látinn á sjávarströnd í Ástralíu árið 1948. Nafnið vísar til texta á smámiða sem hinn látni bar á sér og mun þýða „endir“. Á sögunni eru margar kynlegar hliðar og menn […]
Úthlutað úr Egner-sjóðnum á sunnudaginn

Nú á sunnudaginn verður fimmtugasta sýning á Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu og í lok hennar verða afhentir styrkir úr Egner-sjóðnum. Jafnframt er von á 25 þúsundasta gestinum á sýninguna. Í ár er haldið upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners í Þjóðleikhúsinu með margvíslegum hætti. Tvö af leikritum hans eru í sýningu um þessar […]
Lokasýning á Harmi, hundum og hýrum konum

Lokasýning verður á næstunni á leikdagskránni Harmi, hundum og hýrum konum hjá Leikfélagi Kópavogs laugardagardaginn 19. janúar kl. 20.00. Leikdagskráin samanstendur af fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi […]
Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur

Langar þig að spreyta þig á leiksviði? Viltu láta gamlan draum rætast? Viltu taka þátt í liststarfi þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum? Í janúar og febrúar býður Leikfélag Kópavogs upp á leiklistarnámskeið sem er aðallega hugsað fyrir byrjendur og styttra komna í leiklist. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi er Hörður […]
Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 12. janúar verður Skoppa og Skrítla í leikhúsinu frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Skoppa og Skrítla í leikhúsinu var fyrsta leiksýning þeirra vinkvenna. Hún var frumsýnd 2006 í Þjóðleikhúsinu og gekk fyrir fullu húsi í nær 100 skipti. Sýningin fór í margar leikferðir erlendis m.a nokkrum sinnum til Bandaríkjanna, Danmerkur og til Afríku. Síðan hefur margt […]
Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið frumsýna þann 12. janúar nýtt íslenskt verk sem heitir Hjartaspaðar. Í þessu verki er farið alveg nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið fjallar um drephlægileg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo […]