Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2019

LOKAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR UMSÓKNIR! Frestur til að skila umsóknum vegna Athyglisverðustu áhugaleiksýningar ársins rennur út 23. apríl. Fulltrúi Þjóðleikhússins mun tilkynna val dómnefndar á aðalfundi BÍL á Húsavík 5. maí. Sækja skal um á Leiklistarvefnum. Minnt er á að einungis er hægt að skila upptökum á YouTube eða Vimeo.

Rannsóknarstöð Hugleiks

Sunnudaginn 14. apríl frumsýnir leikfélagið Hugleikur leikdagskrána Rannsóknarstöðina sem unnin er að öllu leyti af meðlimum félagsins. Önnur sýning verður þriðjudaginn 16. apríl en aðeins verða sýndar þessar tvær sýningar. Sýningar hefjast kl. 20 og sýnt er í Hugleikhúsinu að Langholtsvegi 109-111. Undanfarnar vikur hefur Hugleikur staðið fyrir námskeiðum fyrir leikara og leikstjóra undir stjórn […]

Blúndur og blásýra í Eyjum

Leikfélags Vestmannaeyja frumsýndi vorverkefni sitt liðna helgi en það er gamanleikritið Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring. Verkið segir frá öldnu systrunum Mörtu og Abbý Brewster sem búa ásamt léttgeggjuðum frænda sínum á ættaróðali Brewster fjölskyldunnar í Brooklyn. Systurnar eru annáluð gæðablóð en undanfarið hafa þær uppgötvað nýja ástríðu á seinni árum ævi sinnar, sem […]

Blúndur og blásýra í Mosfellssveit

Undanfarnar vikur hefur mikið verið um að vera hjá Leikfélagi Mosfellssveitar við undirbúning og æfingar á hinu sprenghlægilega og hrollvekjandi gamanverki Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesserling. Verkið verður frumsýnt laugardaginn 6. apríl, en leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. Sagan segir frá piparjónkunum og systrunum Mörtu og Abbý sem eru bæði elskulegar og hlýlegar persónur, […]

Gullregn á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýnir Gullregn eftir Ragnar Bragason í Höfðaborg á Hofsósi fimmtudaginn 4. apríl kl. 20:30. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson.  Leikritið Gullregn segir frá Indíönu Georgíu Jónsdóttur, öryrkja í Fellahverfinu. Það stendur að vísu ekki mjög vel á hjá Indíönu þessa dagana, fulltrúi umhverfisráðuneytisins er nýbúinn að heimsækja hana og flytja henni óþægilegar fréttir […]

Allir á Trúnó á Suðurnesjum

Leikfélag Keflavíkur frumsýndi revíuna Allir á Trúnó þ. 8. mars sl. Revían er skrifuð af nokkrum meðlimum félagsins, en þeir eru Júlíus Guðmundsson, Arnór Sindri Sölvason, Jón Bjarni Ísaksson, Yngvi Þór Geirsson, Ómar Ólafsson og Sigurður Smári Hansson. Leikstjórn er í höndum Bjarkar Jakobsdóttur. Í revíunni er lítið yfir það sem gerst hefur á Suðurnesjum og […]

Kynning á kennaranámi við Listaháskólann

Í Listaháskóli Íslands getur fólk lagt stund á kennaranám og útskrifast með kennsluréttindi á leik- grunn-, og framhaldsskólastigi. Kynning á kennaranámi LHÍ fer fram fimmtudaginn 4. apríl í stofu 211 á annari hæð. Um kennaranám í LHÍ: Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á fimm námsleiðir á meistarastigi. Meistaranám í listkennslufræðum- Fyrir fólk með bakkalárgráðu í […]

Heilmikið sokkasokk

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir „Heilmikið sokka sokk“  eftir Katrínu Sif Ingvarsdóttur og Ösp Eldjárn miðvikudaginn 3. apríl. Öll tónlist í verkinu er einnig eftir Ösp Eldjárn og eiga þær stöllur saman textana. Sýningin gerist í „Landi hina stöku sokka“ þar sem sokkar eiga það til að hverfa úr þvottavélum heimilanna og enda stakir. Fylgst er með sokkunum […]

Aðalfundur BÍL á Húsavík 4.-5 maí

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2019 verður haldinn á Húsavík dagana 4.-5. maí nk. Aðalfundurinn verður settur kl. 9.00 laugardaginn 4. maí og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 5. maí. Dagskrá aðalfundar er að finna í lögum Bandalagsins. Matur, gisting og fundur verður á Hótel Húsavík. Verð miðað við 1 mann í 2ja manna herbergi 3. […]

Nanna systir á Ströndum

Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við uppsetningu á upp gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, undir styrkri leikstjórn Skúla Gautasonar. Frumsýnt verður sunnudaginn 7. apríl. Leikarar í leikritinu eru tíu, fimm konur og fimm karlar. Sumir leikararnir eru gamalreyndar kanónur og aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á […]

Rock of Ages á Skaganum

Nemendafélag Fjölbrautaskólans á Akranesi sýnir um þessar mundir söngleikinn Rock of Ages í samstarfi við Tónlistarskólann á Akranesi. Rock Of Ages er kraftmikill Broadway söngleikur eftir Chris D’Arienzo. Sýningin býður upp á allan tilfinningarússíbanan og er stanslaus skemmtun sem enginn má missa af! Rock Of Ages hefur bæði verið kvikmynduð og sýnd í leikhúsum út […]

Samtal við leikhús – Jónsmessunæturdraumur

Samtal við leikhús er málfundaröð til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur þar sem atvinnuleikhúsfólk og fræðimenn koma saman og ræða uppsetningar á leikverkum sem eru í sýningu hjá leikhúsunum. Viðburðurinn er að þessu sinni tileinkaður Jónsmessunæturdraumi eftir breska leikskáldið William Shakespeare sem nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Hvaða erindi á verkið við okkur í dag? […]

Brúðkaup hjá Eflingu

Leikdeild Eflingar í Reykjadal, Þingeyjarsveit frumsýndi Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson, í leikstjórn Völu Fannell og tónlistarstjórn Jaan Alavere þann 9. febrúar síðastliðinn. Verkinu var mjög vel tekið og eru sýningar nú orðnar 15, flestar fyrir fullu húsi og síðasta sýningarhelgi er framundan. 17 leikarar taka þátt í verkinu ásamt 4 manna hljómsveit auk fjölmargra annara […]

Nokkur orð um hlutverk Soffíu frænku

Ávarp í tilefni af Alþjóðadegi leiklistarinnar – Tyrfingur Tyrfingsson Það er fræg sagan af íslenskri leikkonu á 20. öld sem fékk hlutverk Soffíu frænku í Kardemommubænum og sló í gegn, þannig að í næstu uppfærslu á allt öðru leikriti ákvað hún að leika Soffíu frænku bara aftur. Og í næstu uppfærslu aftur. Þeir segja að […]

Saumastofan syngur sitt síðasta

Síðustu sýningar á Saumastofunni hjá Leikfélagi Ölfuss verða í þessari viku, þri. 26.  og fös. 29. mars.  Saumastofan var frumsýnd í byrjun febrúar og hefur verið afar vel tekið. Í umfjöllun segir Harpa Rún Kristjánsdóttir m.a.: „Saumastofan er bráðfyndin sýning og var auðheyrt á salnum að sú skoðun var almenn. Hún er líka beitt og […]

Ástandinu lýkur

Síðustu sýningar á Ástandinu sem Halaleikhópurinn hefur sýnt undanfarið verða 23. mars kl. 17.00 og 24. mars kl. 17.oo. Aðeins örfáir miðar eru lausir á þessar síðustu sýningar. Leikritið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast á kaffihúsi 50 árum eftir hernámið og rifja upp sögur sínar frá þeim árum. Þær eiga sér sameiginlegar minningar því […]

Gaman saman á Norðurlandi

Leikfélag Hörgdæla og Freyvangsleikhúsið hafa tekið höndum saman og frumsýna stuttverkadagskrá föstudagskvöldið 22. mars og laugardagskvöldið 23. mars í Freyvangi. Eingöngu verða þessar tvær sýningar. Verkin sem sýnd verða eru sambland af glensi og gleði, hádramatík og fúlustu alvöru og eru skrifuð, leikin og leikstýrð af meðlimum þessa tveggja farsælu leikfélaga sem sameina hér krafta sína […]

Nanna systir í Árnesi

Föstudaginn 8. mars frumsýndi Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja leikritið „Nanna systir“ eftir Kjartan Ragnarsson og Einar Kárason. UMFG hefur um áratugaskeið haldið úti sérlega kraftmiklu og metnaðarfullri leiklistarstarfsemi á svæðinu en frá árinu 2010 hefur félagið rekið sérstaka leikdeild. Leikstjóri Nönnu systur er hinn vel þekkti leikari og Spaugstofumaður Örn Árnason en sýnt er í félagsheimilinu […]

Senuþjófurinn sýnir stuttleikrit Becketts

Senuþjófurinn, nýtt leikhús í hjarta Garðabæjar, er í burðarliðnum og sýnir laugardaginn 30. mars sviðsetta leiklestra á þremur stuttleikritum eftir Samuel Beckett. Þar stíga á svið þaulreyndir leikarar, Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Pálína Jónsdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir, auk Guðrúnar Kristinsdóttur, sem nam leiklist í París en hefur lítið sést á sviði hérlendis. Leikritin sem […]

Frásagnir sjómannskvenna á Akureyri

Leikhópurinn Artik stendur nú að uppsetningu á nýja leikverkinu Skjaldmeyjar hafsins, sem frumsýnt verður í Samkomuhúsinu í lok mars. Verkið er sannsögulegt leikverk um líf eiginkvenna sjómanna og er fyrsta frumsýningin í röð gróðurhúsaverkefna Leikfélags Akureyrar. Verkið er unnið eftir aðferð sem á ensku kallast Verbatim og er best þýtt sem beinheimildaverk, en þá eru […]

Leiklistarskóli BÍL 2019 – umsókn

LOKAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR SKRÁNINGAR ! Hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda póst á info@leiklist.is.   Sjá námskeið í boði

Opnað fyrir umsóknir í Leiklistarskóla BÍL

Opnað verður fyrir umsóknir í Leiklistarskóla Bandalagsins eftir miðnætti föstudaginn 15. mars. Hér má sjá upplýsingar um námskeið í boði. Að þessu sinni er ekki tekið við umsóknum í tölvupósti heldur þarf að fylla út umsókn á vefnum. Upplýsingar sem nauðsynlegar eru: Námskeið sem sótt er um, nafn, kennitala, netfang, sími, heimilisfang, póstnr. og staður. […]

BarPar á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýndi hið þekkta leikrit BarPar eftir Jim Cartwright laugardaginn 9. mars. Leikarar eru sjö talsins í fjórtán hlutverkum en leikstjóri verksins er Vala Fannell. Leikritið Barpar gerist á bar í smábæ á Norður-Englandi. Þessi ónefndi bar sem einkum er frægur fyrir það “að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum”. […]

Alþjóðleg leiklistarhátíð barna á Indlandi

Alþjóðleg hátíð barnaleiklistar verður haldin í Delhi á Indlandi í 16. sinn í desember næstkomandi. Delhi International Children’s Festival (DICF) er á vegum Ryan International Schools sem reka hátt í 200 skóla á Indlandi og víðar. 20 leikhópum verður boðið á hátíðina sem stendur í 5 daga í desember næstkomandi. Kennarar sem vinna með börn og unglinga á […]

Leiklistarnámskeið í Evrópu

Töluvert framboð er af námskeiðum og vinnustofum í leiklist á meginlandi Evrópu fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu og þjálfun í leiklistinni.  Námskeið í leik, leikstjórn og sviðshreyfingum er t.d. að finna hér í fjölbreyttri flóru slíkra í Þýskalandi og Austurríki á þessu ári og næsta: * International Theatre Workshop 10. – 17. […]

Rympa í Stafholtstungum

Leikdeild Umf. Stafholtstungnafrumsýndi Rympu á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur síðastliðinn laugardag í Félagsheimilinu Þinghamri. Verkið er barna- og fjölskylduleikrit sem gerist á ruslahaug þar sem Rympa býr ásamt honum Volta sínum. Óhætt er að segja að Rympa sé persónugervingur óæskilegs félagsskapar og finnst henni hrekkir og þjófnaðir lítið mál og raunar hin mesta skemmtun. En […]

Rjúkandi ráð hjá Leikfélaginu Borg

Leikfélagið Borg frumsýndi Rjúkandi ráð eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni og Stefán Jónsson með tónlist eftir Jón Múla á laugardaginn 2. mars síðastliðinn. Leikstjóri er Hera Fjord og sýnt er í Félagsheimilinu Borg. Miðaverð á sýninguna er 2500 kr og 1500 fyrir börn 12 ára og yngri. Miðapantanir í s. 771-4465 eða í skilaboðum […]

Leiklistarskóli BÍL 2019

Leiklistarskóli BÍL verður settur í 23. sinn í sumar og er námsskráin fjölbreytt og spennandi eins og vant er. Boðið er upp á þrjú námskeið; grunnámskeið fyrir styttra komna, framhaldsnámskeið í leikritun auk sérnámskeiðs fyrir leikara. Tveir nýir og spennandi kennarar, þau Aðalbjörg Árnadóttir og Árni Kristjánsson mæta í skólann en auk þeirra snýr Rúnar […]

Leiklistarskóli BÍL 2019

Starfstími skólans á þessu ári er frá 8. til 16. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði Bæklingur skólans starfsárið 2019 á PDF formi Kveðja frá skólanefnd:     Kæru leiklistarvinir!   Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og þriðja sinn. Við […]

Er trúðurinn í þér týndur?

Leikhúsbúðin hefur fengið sendingu af trúðanefjum frá Just Clown Noses. Annarsvegar Roundo trúðanef úr þykku, mjúku plasti sem ekki meiðir nefið og hinsvegar ódýr nef úr svampi. Gerðu vel við trúðinn í þér og fáðu þér gott á nefið.

Dagskrá skólans að taka á sig mynd

Nú er orðið ljóst hvaða námskeið verða í boði í Leiklistarskóla BÍL í sumar. Í boði verða eftirtalin námskeið: Leiklist I – Kennari Aðalbjörg Árnadóttir, Leikritun II – kennari Árni Kristjánsson og Sérnámskeið fyrir leikara, kennari Rúnar Guðbrandsson.  Skólinn sem haldinn verður á Reykjum í Hrútafirði eins og undanfarin ár, stendur frá 8. – 16 […]

Sýning Rauða skáldahússins

Á alþjóðlegum degi kvenna þann 8. mars fer fram 8. sýning Rauða skáldahússins, sem verður eingöngu skipuð konum. Rauða skáldahúsið heldur uppi ljóðaveislum í leikhúsanda sem fara fram í Iðnó fjórum sinnum á ári þar sem ljóðalestri er blandað saman við leikhús, kabarett, börlesk, sirkús og tónlist. Iðnó er breytt í athvarf listamanna sem ættu […]

Skapandi aðferðir í leiklist

Leikfélagið Hugleikur stendur næsta rúma mánuðinn fyrir námskeiðum fyrir leikara og leikstjóra sem vilja kynna sér skapandi aðferðir (devised) við vinnslu leikverka fyrir svið. Námskeiðin henta jafnt byrjendum sem lengra komnum og standa opin jafnt félagsmönnum sem öðrum. Nánar um námskeiðin: 1. Leiklistarnámskeið, um 17-20 tímar. Lágmarksfjöldi þátttakenda: 12 Leikarinn sem skapandi listamaður. Gegnum ýmis […]

Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms setur nú í fyrsta sinn á fjalirnar hið sívinsæla leikrit Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi verksins er Örn Árnason og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Frumsýnt verður 22. febrúar 2019 kl. 20:30 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Fullkomið brúðkaup er bráðskemmtilegt og rómantískt gamanleikrit sem fjallar um ungt par sem er að fara […]

Að máta sig í mismunandi hlutverk

Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikfélag Ölfuss – Leikstjóri Guðfinna Gunnarsdóttir Gengið er inn gegnum dökkleitt tjald, við okkur blasa saumavélarnar, straubrettin og sniðin sem mörgum eru í barnsminni, en koma þó yngri áhorfendum spánskt fyrir sjónir. Það er viðeigandi að láta áhorfendur stíga gegnum efni til að njóta þessa verks, því það er einmitt efnið, […]

Ástandið, sögur kvenna frá hernámsárunum

Halaleikhópurinn, sýnt í Hátúni 10 Höfundar Brynhildur Olgeirsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir Leikstjórn Sigrún Valbergsdóttir Halaleikhópurinn er löngu orðin föst stærð í menningarlífi Reykjavíkur og sá sem ekki fer á sýningar hans er ekki að fylgjast með. Í ár sýnir hópurinn Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur undir öruggri leikstjórn Sigrúnar. Verkið byggir á frásögnum […]

Ástandið – saga kvenna frá hernámsárunum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Ástandið eftir Brynhildi Olgeirsdóttur og Sigrúnu Valbergsdóttur, föstudaginn 8. febrúar. Leikritið byggir á útvarpsþáttum Brynhildar um upplifun hennar af hernámsárunum. Sigrún Valbergsdóttir er leikstjóri og meðhöfundur Brynhildur. Verkið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast á kaffihúsi 50 árum eftir hernámið og rifja upp sögur sínar frá þeim árum.  Þær eiga sér sameiginlegar minningar því að allar […]

Tvær ævintýraóperur í Iðnó

Laugardaginn 2. febrúar munu Hugleikur og Menntaskóli í tónlist frumsýna tvær íslenskar óperur byggðar á þekktum ævintýrum. Fyrir hlé birtast Þyrnirós, prins og norn í splunkunýrri óperu sem nefnist Ár og öld. Ungur prins hefur brotist í gegnum þyrnigerði og kemur inn í höll þar sem allir hafa sofið í hundrað ár en ævintýrið tekur […]