Trúðasýning um pyntingar

Companía Patricia Pardo heimsækir Tjarnarbíó í annað sinn, nú með einlægu trúða-, sirkús- og leiksýninguna Kýrin sem hlær. Verkið fjallar um getu mannsins til að pynta og græða sár og teflir fram andstæðum heimum um misnotkun, dauða, breyskleika mannsins og sköpunargáfu. Sameinuðu þjóðirnar skilgreina pyntingar sem sérhvern verknað þar sem fólk er gagngert beitt sársaukafullu […]

Leiklistarnámskeið í Kópavogi

Í september hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun.Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í […]

Óríon frumsýnir Ó, fagra veröld

Leikfélagið Óríon frumsýnir leikritið Ó, fagra veröld eftir Anthony Neilson fimmtudaginn 22. ágúst. Sýnt er í leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2 í Kópavogi. Leikstjórn er í höndum Önnu Írisar Pétursdóttur. Með uppsetningunni rætist langþráður draumur leikfélagsins, enda hefur sýningin verið á radar félagsins síðan árið 2013. Ó, fögru veröld mætti lýsa sem einskonar fullorðins […]

Áheyrnarprufur – Gauragangur í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla setur upp Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar í vetur. Leitin að Ormi, Lindu, Höllu, Ranúr og félögum er hafin og haldnar verða áheyrnarprufur sunnudaginn 1. september fyrir þá sem vilja taka þátt. Leitað er að hæfileikaríku fólki á aldrinum sextán ára og uppúr til að taka þátt í […]

Flækja á ferð og flugi

Sviðslistahópurinn Flækja mæðist í mörgu þessa dagana. Á mánudag hefjast námskeið á vegum hópsins og um næstu helgi verður leiksýningin Það og Hvað sýnd á Dönskum dögum í Stykkishólmi og Blómstrandi dögum í Hveragerði. Sunnudaginn 18. ágúst verður hópurinn með fatamarkað og fjör í Borgarnesi þar sem m.a. verða til sölu glænýir ÞAÐ OG HVAÐ […]

Sannleikur á sviði

Sviðslistahópurinn Flækja býður þriggja daga leiklistarnámskeið sem er hugsað fyrir þá sem langar að bæta við sig tæknilegri þekkingu í leiklist. Námskeiðið hentar bæði áhugaleikurum og þeim sem stefna á að leggja leiklist fyrir sig. Farið verður í senuvinnu, þar sem þátttakendum er skipt í pör og vinna þau saman með handrit. Markmið námskeiðisins er […]

Stúdentaleikhúsið sýnir Upplausn/Fyrirmyndarsjálf

Stúdentaleikhúsið frumsýndi leikritið Upplausn/Fyrirmyndarsjálf fyrr í sumar. Þrjár aukasýningar verða á verkinu dagana 28. 29. og 30. júlí í Gömlu Kartöflugeymslunni við Ártúnsbrekku.  Upplausn/Fyrirmyndarsjálf fjallar um ungan vinahóp þar sem flestir eru á þeim stað að hafa ekki fundið sér sinn tilgang og farveg í lífinu og flóknar tilfinningar brjótast út í slæmum ákvörðunum og hegðun. Leikritið […]

Sumarlokun Þjónustumiðstöðvar

Þjónustumiðstöðin verður lokuð vegna sumarfría 12. – 16. júlí. Minnum á að fastur opnunartími í sumar er annars virka daga 9.00-12.00 en að öllu jöfnu er einnig opið seinnipart dags. Síminn er 551-6974 og netfangið info@leiklist.is.

Leikfélag Hafnarfjarðar loks í öruggt skjól

Leikfélag Hafnarfjarðar sem verið hefur á hrakhólum undanfarin ár er nú loks að fá aðstöðu fyrir starfsemi sína. Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að félagið fái aðstöðu í Kapellunni í gamla St. Jósepsspítalanum til eins árs. Á þeim tíma er ætlunin að finna framtíðarhúsnæði fyir félagið. Leikfélag Hafnarfjarðar er eitt af elstu leikfélögum landsins og hefur […]

Ný stjórn í Ölfusi

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss var haldinn 1. júlí síðastliðinn. Ný stjórn var kjörin á fundinum en hana skipa: Magnþóra Kristjánsdóttir formaður Jóhanna Hafdís Leifsdóttir gjaldkeri Erla Dan Jónsdóttir varaformaður Hulda Gunnarsdóttir ritari Óttar Ingólfsson meðstjórnandi Helena Helgadóttir varamaður Ingólfur Arnarson varamaður. Meðfylgjandi mynd er af nýju stjórninni. 

Breyttur opnunartími í sumar

Opnunartími Þjónustumiðstöðvar breytist í sumar. Fastur opnunartími verður 9.00-12.00. Að öllu jöfnu er opið eftir það en vissara þó að hafa samband símleiðis áður í 551-6974. Hefðbundinn opnunartími 9.00-13.00 gildir aftur frá og með 26. ágúst. 

Leikstjóri óskast í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra fyrir barnaleikrit sem félagið hyggst setja upp nú í haust. Æfingar fyrir verkið hefjast í byrjun september. Umsóknir ásamt ferilskrá sendast á netfangið leikfelagve@outlook.com fyrir 10.júlí.  Myndin að ofan er úr sýningu félagsins á Klaufum og kóngsdætrum.   

RVK Fringe Festival hefst 29. júní

Hin árlega jaðarlistahátíð RVK Fringe Festival fer fram í annað sinn dagana 29. júní til 6. júlí. Hátíðin hefur tvöfaldast að stærð frá því á liðnu ári og verða yfir 250 sýningartímar á um 100 mismunandi viðburðum á hátíðinni. Um er að ræða fjöllistahátíð sem er rekin af sjálfboðaliðum, og hafa áhorfendur val um að […]

Huldufugl sópar að sér verðlaunum

Íslenski/breski listhópurinn Huldufugl hefur nýlokið mánaðar ferðalagi um Bretland og Bandaríkin með leiksýninguna Kassann. Sýningin fer fram í sýndarveruleika, og er aðeins fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin var frumsýnd á Reykjavík Fringe Festival fyrir ári síðan, en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnu ári og mætti segja að hún verði frumsýnd að nýju á […]

Sumarnámskeið á Selfossi

Leikfélag Selfoss verður að venju með sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmsar leiklistaræfingar og spuna ásamt því að efla sjálfstraust, hugarflug, gleði og jákvæðni. Sumarið 2019 verða fimm fjörug leikhúsnámskeið í boði fyrir börn á […]

Leiklist, tónlist og jóga

Í sumar munu þrjár afar ólíkar og skapandi konur halda námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára sem inniheldur skemmtilega blöndu af jóga, tónlist og leiklist. Þær heita Guðrún Bjarnadóttir leikkona, Arndís Hreiðarsdóttir (Dísa) tónskáld/ tónlistarkona og Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir kvikmyndagerðakona og jógakennari. Námskeiðið fer fram í sumar og fyrsta námskeiðið er frá 18-21. […]

Leikróf í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Leikróf í Leikhúsinu, Funalind 2, laugardaginn 1. júní kl. 17.00. Miðasala er á á vef félagsins.  Á dagskránni eru eftirfarandi verk: Át takið Höfundur: Ólafur Þórðarson Leikstjórn: Arnfinnur Daníelsson/Hörður Sigurðarson Leikarar: Birgitta Hreiðarsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Ólöf P. Úlfarsdóttir og Þórdís Sigurgeirsdóttir Boðorðin 10 Höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir Leikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir Leikarar: Sigríður […]

Höfundar í heimsókn að Reykjum

Ákveðið hefur verið að bjóða höfundum í heimsókn í Leiklistarskólann í sumar. Þeir sem eru með leikrit í smíðum geta dvalið að Reykjum meðan námskeiðshald Leiklistarskóla BÍL stendur yfir og unnið að sínum verkefnum innblásnir af þeim leiklistaranda sem þar ríkir.  Aðeins 4 pláss eru laus. Sendið póst á info@leiklist.is. Fyrstur kemur, fyrstur fær. 

Litla hafmeyjan frumsýnd á laugardag

Þrettánda sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar er það Litla hafmeyjan sem syndir um landið og gleður landsmenn á öllum aldri með ævintýrum sínum. Sagan um Litlu hafmeyjuna gerist inni í Ævintýraskóginum eins og Lottu er von og visa en […]

Aðalfundur og ráðning leikstjóra hjá Halanum

Aðalfundur Halaleikhópsins var haldinn laugardaginn 18. maí síðastliðinn. Staða leikhópsins er góð, mannauðurinn mikill og komandi leikár spennandi. Í sumar verður fjárfest í nýjum staflanlegum áhorfendabekkjum sem koma til með að breyta miklu til hins betra. Stjórn félagsins er áfram hin sama þrátt fyrir kosningu milli frambjóðenda í tvær stöður. Formaður Hanna Margrét Kristleifsdóttir Varaform. Stefanía […]

Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga

Vilt þú starfa í leikhúsi? Almennt eru aðildarfélögin öllum opin sem áhuga hafa á að starfa við leiklist. Hafðu samband við félag á þínu svæði og fáðu nánari upplýsingar eða óskaðu inngöngu í félagið.

Hárið í Þjóðleikhúsinu 14. júní

Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins, Hárið í flutningi Leikflokks Húnaþings vestra verður sýnd í Þjóðleikhúsinu þ. 14. júní næstkomandi. Miðasala er hafin á vef Þjóðleikhússins. Í umsögn dómnefndar segir m.a. að „… sýningin sé unnin af miklum metnaði og hvergi slegið af kröfum við uppfærsluna […] Leikmynd, búningar og leikgervi, dansar, tónlistarflutningur, lýsing og hljóðblöndun skapa saman sterka heild. […]

Dansandi ljóð Gerðar Kristnýjar

Sviðslistahópurinn, Leikhúslistakonur 50+ frumsýndi sýninguna Dansandi ljóð síðastliðinn laugardaginn í Þjóðleikhússkjallaranum. Næstu sýningar eru miðvikudag 15. maí kl. 20.00 og sunnudag 19. maí kl. 20.00. Í verkinu er sögð ævisaga konu frá fæðingu til fullorðinsára og túlka leikkonurnar líf hennar, ástir og örlög í ljóðum, hreyfingum og tónlist. Sýningin byggir á ljóðum Gerðar Kristnýjar en leikstjóri er […]

Íslenskar sýningar á Brighton Fringe

Uppistandssýningin I Wouldn’t Date Me Either með Jono Duffy, sýndarveruleikhússýningin A Box In The Desert eftir Huldufugl og kabarett sýningin Ladies And A Gentleman eftir Dömur og herra halda til Bretlands nú í vikunni, þar sem þær munu taka þátt í listahátíðinni Brighton Fringe. Sýningarnar tóku allar þátt í Reykjavík Fringe Festival síðastliðið sumar. RVK […]

Aðalfundur Hugleiks og kynning á haustverkefni

Aðalfundur leikfélagsins Hugleiks verður haldinn miðvikudaginn 29. maí nk. kl. 20.00 í húsnæði félagsins að Langholtsvegi 111 (gengið inn bakatil, aðkoma á bílastæði er frá Drekavogi). Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður haustverkefni félagsins, splunkunýr söngleikur eftir Þórunni Guðmundsdóttur, kynnt með tóndæmum og lestri. Síðan má búast við spjalli frameftir, eins og gjarnt er á góðra vina […]

Aðalfundur á Húsavík 4. maí 2019

1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Formaður Bandalagsins, Guðfinna Gunnarsdóttir setti fundinn kl. 9:07. Fundarstjórar eru Halla Rún Tryggvadóttir og Benóný Valur Jakobsson frá Leikfélagi Húsavíkur. Fundarritarar eru Magnþóra Kristjánsdóttir og Jónheiður Ísleifsdóttir. Guðfinna byrjaði fundinn á því að flytja fundinum kveðju frá Leikfélagi Seyðisfjarðar […]

Hárið valið Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins

Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur valið sýningu Leikflokks Húnaþings vestra sem Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Valið var tilkynnt rétt í þessu á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Húsavík. Umsögn dómnefndar er svohljóðandi: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og sjötta sinn. Að þessu sinni sóttu alls fimmtán leikfélög […]

Falleg, skemmtileg og fræðandi sýning

Leitin að sumrinu – Sólheimaleikhúsið Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Tónlist: Hallbjörn V. Rúnarsson Þegar komið var á Sólheima í Grímsnesi þann 1. maí síðastliðinn var blíðskapar veður og auðvelt að óska sér að það væri svona alla daga. Nú þegar þetta er skrifað er kominn rigningarsuddi. En það er einmitt þetta sem leikrit Sólheimaleikhússins fjallar um; […]

Leynist skáld í þér?

Freyvangsleikhúsið heldur opna handritasamkeppni fyrir leikskáld af öllum stærðum og gerðum. Leikritið sem verður fyrir valinu verður sett upp á fjölum Freyvangsleikhússins í byrjun árs 2020. Það sem þú þarft að gera til að taka þátt: – Skrifa leikrit í fullri lengd – Merkja handritið með dulnefni – Setja alvöru nafnið þitt og símanúmer í […]

Umsóknir um Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins

Val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins verður tilkynnt á aðalfundi BÍL um næstu helgi. Að þessu sinni sóttu 15 félög um með 17 leiksýningar: Freyvangsleikhúsið og Leikfélag Hörgdæla: Gaman saman Freyvangsleikhúsið: Lína Langsokkur Halaleikhópurinn: Ástandið Leikdeild Umf. Skallagríms: Fullkomið brúðkaup Leikdeild Umf. Stafholtstungna: Rympa á ruslahaugnum Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja: Nanna systir Leikfélag Dalvíkur: Heilmikið sokka sokk […]

Leikfélag Sauðárkróks frumflytur Fylgd

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Fylgd, frumsamið leikrit Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar sem einnig leikstýrir verkinu, sunnudaginn 28. apríl. Nafnið er skírskotun í þjóðþekkt lag og ljóð en auk þess er í leikritinu fjöldi laga skagfirskra höfunda, sem sérstaklega voru samin fyrir uppsetninguna. Höfundur segir um verkið: „Fylgd, af því að lagið, sem er eftir Didda fiðlu (Sigurð […]

Lokahátíð Þjóðleiks á Hólmavík 30. apríl – 1. maí

Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni að frumkvæði Þjóðleikhússins og í góðu samstarfi við menningarráð og marga aðra aðila á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Lokahátíðir […]

Leitin að sumrinu á Sólheimum

Í ár setur Sólheimaleikhúsið upp skemmtilega sýningu sem fjallar um hann Jón sem þekkir ekki annað en eilíft sumar. Dag einn fara skrýtnar persónur að ryðjast inn í líf hans, hver á fætur annarri og skipta um árstíðir. Jón er í fyrstu alls ekki sáttur við þessar breytingar, en lærir smám saman að hver árstíð hefur […]

Hárið í Húnaþingi

Árið er 1967 og hipparnir í New York ætla sér að breyta heiminum. Þau eru villt, frjáls og sameinuð í mótmælum og söng, í skugga Víetnamsstríðsins. Leikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir hinn heimsþekkta söngleik Hárið annað kvöld, miðvikudagskvöldið 17. apríl. Þátttakendur í sýningunni eru 41 alls, allt heimafólk að undanskilinni Cassy Newby sem kemur frá London en […]

Leikhús í sýndarveruleika

Leiksýningin Kassinn er sérstök að því leiti að hún fer fram í sýndarveruleika, og er fyrsta sýndarveruleikhússýning Íslands. Íslensk/breski listhópurinn Huldufugl framleiðir verkið, sem er 20 mínútur að lengd og einungis fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin varð hlutskörpust af tugum sýninga á tölvuleikjahátíðinni A Maze sem fram fór í Berlín nú á dögunum, og […]