{"id":3186,"date":"2011-03-09T00:00:00","date_gmt":"2011-03-09T00:00:00","guid":{"rendered":"http:\/\/wp.leiklist.is\/?p=3186"},"modified":"2011-03-09T00:00:00","modified_gmt":"2011-03-09T00:00:00","slug":"leiklistarskoli-bandalagsins-2011","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/leiklistarskoli-bandalagsins-2011\/","title":{"rendered":"Leiklistarsk\u00f3li Bandalagsins 2011"},"content":{"rendered":"<\/p>\n<p> Sk\u00f3linn starfar a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00ed A-H\u00fanavatnss\u00fdslu dagana 11. til 19. j\u00fan\u00ed. <\/p>\n<p>Haldin ver\u00f0a \u00ferj\u00fa n\u00e1mskei\u00f0 og bo\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur upp\u00e1 a\u00f0st\u00f6\u00f0u fyrir h\u00f6funda. \u00cd fyrra var l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 byrjendan\u00e1mskei\u00f0 og fylgt er \u00feeirri hef\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir mun \u00fev\u00ed m\u00e6ta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan \u00e1 \u00feann g\u00f3\u00f0a grunn sem h\u00fan lag\u00f0i \u00ed fyrra. Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttur m\u00e6tir einnig aftur til leiks. H\u00fan kennir n\u00fa Leikstj\u00f3rn II \u00fear sem nemendum gefst kostur \u00e1 a\u00f0 d\u00fdpka enn skilning sinn og reynslu af leikstj\u00f3rn. Reyndari leikurum stendur til bo\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 Steinunnar Kn\u00fatsd\u00f3ttur \u00fear sem l\u00f6g\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1hersla \u00e1 vinnu leikarans me\u00f0 leikverki\u00f0. Steinunn hefur einu sinni \u00e1\u00f0ur kennt svipa\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f3lann sem \u00fe\u00f3tti b\u00e6\u00f0i krefjandi og s\u00e9rstaklega l\u00e6rd\u00f3msr\u00edkt. <strong>Ath. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson mun kenna n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00ed forf\u00f6llum Steinunnar. <\/strong>\u00de\u00e1 ver\u00f0ur h\u00f6fundum aftur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 dvelja a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum vi\u00f0 skapandi skrif me\u00f0 sama sni\u00f0i og reynt var \u00ed fyrsta sinn \u00ed fyrra.<\/p>\n<p>B\u00e6klingur sk\u00f3lans starfs\u00e1ri\u00f0 2011 er <a href=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2011\/03\/BIL_Skolinn_2011_baeklingur.11.pdf\">h\u00e9r \u00e1 PDF<\/a> formi.<\/p>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p> Fr\u00e1 sk\u00f3lanefnd: <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p> <strong> <\/strong><em>K\u00e6ra leiklistarf\u00f3lk<\/em> <\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er okkur s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a ykkur velkomin a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00ed sumar \u00fear sem Leiklistarsk\u00f3li Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga ver\u00f0ur settur \u00ed fimmt\u00e1nda sinn \u00feann 11. j\u00fan\u00ed 2011.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2010 var okkar fyrsta starfs\u00e1r a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum eftir margra \u00e1ra fars\u00e6lt starf a\u00f0 H\u00fasabakkask\u00f3la \u00ed Svarfa\u00f0ardal. H\u00e9r t\u00f3kst einstaklega vel til, a\u00f0sta\u00f0an er til fyrirmyndar, a\u00f0b\u00fana\u00f0ur mj\u00f6g g\u00f3\u00f0ur og m\u00f3tt\u00f6kur allar eins og best ver\u00f0ur \u00e1 kosi\u00f0. Hinn eini sanni sk\u00f3laandi sveik okkur ekki frekar en fyrri daginn og \u00f3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 leiklistarsk\u00f3linn hafi skoti\u00f0 n\u00fdjum r\u00f3tum og n\u00e1\u00f0 a\u00f0 bl\u00f3mstra.<\/p>\n<p>\u00cd sumar ver\u00f0a \u00ferj\u00fa n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i. \u00cd fyrra var l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 byrjendan\u00e1mskei\u00f0 og fylgt er \u00feeirri hef\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir mun \u00fev\u00ed m\u00e6ta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan \u00e1 \u00feann g\u00f3\u00f0a grunn sem h\u00fan lag\u00f0i \u00ed fyrra. Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttur m\u00e6tir einnig aftur til leiks. H\u00fan kennir n\u00fa Leikstj\u00f3rn II \u00fear sem nemendum gefst kostur \u00e1 a\u00f0 d\u00fdpka enn skilning sinn og reynslu af leikstj\u00f3rn. Reyndari leikurum stendur til bo\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 Steinunnar Kn\u00fatsd\u00f3ttur \u00fear sem l\u00f6g\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1hersla \u00e1 vinnu leikarans me\u00f0 leikverki\u00f0. Steinunn hefur einu sinni \u00e1\u00f0ur kennt svipa\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f3lann sem \u00fe\u00f3tti b\u00e6\u00f0i krefjandi og s\u00e9rstaklega l\u00e6rd\u00f3msr\u00edkt.<strong> Ath. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson mun kenna n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00ed forf\u00f6llum Steinunnar. <\/strong><\/p>\n<p> \u00de\u00e1 ver\u00f0ur h\u00f6fundum aftur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 dvelja a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum vi\u00f0 skapandi skrif me\u00f0 sama sni\u00f0i og reynt var \u00ed fyrsta sinn \u00ed fyrra. Ekki er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a n\u00e1mskei\u00f0 e\u00f0a lei\u00f0s\u00f6gn heldur gefst h\u00f6fundum \u00fearna fyrst og fremst t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 f\u00e1 \u00fatr\u00e1s fyrir sk\u00f6punargle\u00f0ina. <\/p>\n<p><em>Hl\u00f6kkum miki\u00f0 til a\u00f0 sj\u00e1 ykkur &#8211; me\u00f0 bestu kve\u00f0ju<\/em><br \/><em>Hrefna, D\u00fdrleif, Gunnhildur, Sirr\u00fd og Herd\u00eds.<\/em><\/p>\n<hr \/>\n<p> Skr\u00e1ning \u00e1 \u00f6ll n\u00e1mskei\u00f0in stendur yfir fr\u00e1 15. mars til 15. apr\u00edl. Reglan \u201efyrstur kemur \u2013 fyrstur f\u00e6r\u201c gildir vi\u00f0 skr\u00e1ningar gegn grei\u00f0slu sta\u00f0festingargjalds, kr. 30.000 ef innt\u00f6kuskilyr\u00f0um er fulln\u00e6gt a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti. N\u00e1ist ekki \u00e1s\u00e6ttanlegur fj\u00f6ldi \u00e1 eitthvert n\u00e1mskei\u00f0anna fellur \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. Aldurstakmark \u00ed sk\u00f3lann er 18 \u00e1r. Sk\u00f3linn hefur sett s\u00e9r reglur, m.a. um umgengni, reykingar og \u00e1fengisneyslu, sem nemendur sam\u00feykkja a\u00f0 fara eftir \u00e1 starfst\u00edma sk\u00f3lans. <\/p>\n<p>Sk\u00f3lasetning er laugardaginn 11. j\u00fan\u00ed kl. 9.00 og hefjast n\u00e1mskei\u00f0in strax \u00fear \u00e1 eftir. Nemendur eru velkomnir a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir sk\u00f3lasetningu, fr\u00e1 kl. 20.00, ekki er bo\u00f0i\u00f0 upp\u00e1 kv\u00f6ldver\u00f0. Sk\u00f3laslit eru kl. 12.00 sunnudaginn 19. j\u00fan\u00ed. Vi\u00f0urkenningarskj\u00f6l og merki sk\u00f3lans ver\u00f0a afhent vi\u00f0 sk\u00f3laslit.<br \/>A\u00f0sta\u00f0a a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum: Svefnherbergin eru b\u00fain 2 r\u00famum \u00e1n r\u00famfata, sk\u00e1p, litlu bor\u00f0i og tveim st\u00f3lum. G\u00f3\u00f0um d\u00fdnum ver\u00f0ur b\u00e6tt inn \u00e1 st\u00e6rstu herbergin og \u00feau \u00feannig ger\u00f0 \u00feriggja manna. Nemendur hafi me\u00f0 s\u00e9r handkl\u00e6\u00f0i, s\u00e6ng og kodda \u00e1samt r\u00famf\u00f6tum, e\u00f0a svefnpoka. Sundlaug og heitur pottur eru \u00e1 sta\u00f0num. Haldi\u00f0 ver\u00f0ur lokah\u00f3f s\u00ed\u00f0asta kv\u00f6ldi\u00f0 \u00fear sem f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ir sig upp\u00e1, kve\u00f0ur kennarana s\u00edna og skemmtir hvort \u00f6\u00f0ru me\u00f0 dansi og s\u00f6ng.<\/p>\n<p><em><strong>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald \u00e1 \u00f6ll n\u00e1mskei\u00f0in er 59.500 kr. \u00dea\u00f0 skal vera a\u00f0 fullu greitt 10 d\u00f6gum fyrir sk\u00f3lasetningu. Innifali\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1ttt\u00f6kugjaldi er gisting, matur, kennsla og g\u00f6gn. \u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald \u00e1 H\u00f6fundar \u00ed heims\u00f3kn er 45.000. Sta\u00f0festingargjald allra er kr. 30.000 kr. \u00dea\u00f0 grei\u00f0ist vi\u00f0 skr\u00e1ningu og er \u00f3endurkr\u00e6ft nema gegn framv\u00edsun l\u00e6knisvottor\u00f0s. H\u00e6gt er a\u00f0 grei\u00f0a me\u00f0 grei\u00f0slukorti.<\/strong><\/em><\/p>\n<p><em><strong>Ums\u00f3kn m\u00e1 senda \u00e1 netfangi\u00f0 info@leiklist.is og leggja sta\u00f0festingargjaldi\u00f0 inn \u00e1 reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239<br \/><\/strong><\/em><\/p>\n<hr \/>\n<p><strong><img decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-3184\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"sigrun\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2011\/03\/BIL_Skolinn_2011_sigrun.jpg\" height=\"131\" width=\"110\" \/>Framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikstj\u00f3ra<\/strong><br \/><strong>Leikstj\u00f3rn II &#8211; kennari Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir<\/strong><br \/><em>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 59.500<\/em><br \/><em>T\u00edmi: 11. til 19. j\u00fan\u00ed 2011<\/em><br \/><em>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<\/em><br \/><em>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/em><\/p>\n<p><strong>Sigr\u00fan Valbergsd\u00f3ttir<\/strong> \u00fatskrifa\u00f0ist \u00far Leiklistarsk\u00f3la \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins og nam s\u00ed\u00f0ar leikh\u00fasfr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed K\u00f6ln. H\u00fan hefur leikst\u00fdrt um 50 s\u00fdningum, j\u00f6fnum\u00a0h\u00f6ndum me\u00f0 atvinnu- og \u00e1hugaf\u00f3lki, \u00e1 \u00cdslandi og \u00ed F\u00e6reyjum og haldi\u00f0 auk \u00feess m\u00f6rg n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed leiklist og leikstj\u00f3rn, h\u00e9r heima og erlendis. Einnig hefur h\u00fan \u00fe\u00fdtt og skrifa\u00f0 fyrir leikh\u00fas. Sigr\u00fan hefur veri\u00f0 framkv\u00e6mda-stj\u00f3ri Bandalags \u00edslenskra leikf\u00e9laga, leikh\u00fasstj\u00f3ri Al\u00fe\u00fd\u00f0uleikh\u00fassins, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri erlendra verkefna hj\u00e1 Reykjav\u00edk, menningarborg Evr\u00f3pu \u00e1ri\u00f0 2000 og kynningarstj\u00f3ri Borgarleikh\u00fassins. H\u00fan starfar n\u00fana sem leikstj\u00f3ri og lei\u00f0s\u00f6guma\u00f0ur. <br \/>\u00deetta er \u00ed t\u00edunda sinn sem Sigr\u00fan kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa s\u00f3tt Leikstj\u00f3rn I vi\u00f0 sk\u00f3lann e\u00f0a hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leikstj\u00f3rn.<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessu n\u00e1mskei\u00f0i ver\u00f0a leikrit sko\u00f0u\u00f0 \u00ed heild. Hver nemandi einbeitir s\u00e9r a\u00f0 einu verki til a\u00f0 vinna \u00fat fr\u00e1. Verkefni\u00f0 kynnir hann s\u00e9r \u00ed a.m.k. m\u00e1nu\u00f0 \u00e1\u00f0ur en sk\u00f3linn hefst. <br \/>\u00cd sameiginlegum umr\u00e6\u00f0um gerir hann grein fyrir \u00fdmsum \u00fe\u00e1ttum sem a\u00f0 uppsetningunni sn\u00faa. R\u00e6tt ver\u00f0ur um h\u00f6fund og \u00feann t\u00edma sem verki\u00f0 gerist \u00e1. Einnig ver\u00f0ur fari\u00f0 \u00ed gegnum \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6tti sem taka \u00fearf \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um \u00e1\u00f0ur en \u00e6fingar hefjast. Fundin megins\u00f6gn verksins og pers\u00f3nur \u00feess r\u00e6ddar. Leikstj\u00f3ri \u00e1kve\u00f0ur st\u00edl og leggur fram hugmyndir a\u00f0 \u00fatf\u00e6rslu \u00ed leikmynd og b\u00faningum. Leikstj\u00f3ri vinnur s\u00ed\u00f0an a.m.k. eina senu \u00far leikritinu me\u00f0 leikurum.<\/p>\n<p>Fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed gegnum \u00fdmsa gagnlega \u00fe\u00e6tti \u00ed hugmynda\u00f6flun og grunnvinnu \u00e1\u00f0ur en komi\u00f0 er a\u00f0 \u00fatf\u00e6rslu. Hvar \u00e1 a\u00f0 leita hugmynda og hvernig n\u00fdtast \u00fe\u00e6r? Hven\u00e6r \u00e1 a\u00f0 velja og hafna?<\/p>\n<p>Jafnframt er \u00e6skilegt a\u00f0 \u00fe\u00e1tttakendur kynni s\u00e9r \u00feau verk sem samnemendurnir vinna a\u00f0 til a\u00f0 umr\u00e6\u00f0ur ver\u00f0i markvissar.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong><img decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-2386\" style=\"float: left;\" alt=\"runar\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2009\/06\/Menntun_Skolinn_Skoli2009_runar.jpg\" height=\"198\" width=\"140\" \/>S\u00e9rn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara<\/strong><br \/><strong>Kennari Steinunn Kn\u00fatsd\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n<p><strong>Ath. R\u00fanar Gu\u00f0brandsson mun kenna<br \/>\n n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 \u00ed forf\u00f6llum Steinunnar. <\/strong><\/p>\n<p><em>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 59.500<\/em><br \/><em>T\u00edmi: 11. til 19. j\u00fan\u00ed 2011<\/em><br \/><em>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<\/em><br \/><em>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/em><\/p>\n<p><em><strong>R\u00fanar Gu\u00f0brandsson<\/strong> <\/em>nam leiklist \u00ed Danm\u00f6rku og  starfa\u00f0i \u00fear sem\u00a0 leikari um \u00e1rabil, me\u00f0 \u00fdmsum leikh\u00f3pum. Frekari  \u00fej\u00e1lfun hlaut hann\u00a0 m.a. hj\u00e1 Odin leikh\u00fasinu \u00ed Holsterbro og hj\u00e1  leikh\u00f3pi Jerzy\u00a0 Grotowskis \u00ed Wroclaw \u00ed P\u00f3llandi. Hefur auk \u00feess s\u00f3tt  n\u00e1mskei\u00f0 hj\u00e1\u00a0 m.a. Bread and Puppet Theatre, Dario Fo, Jury Alschitz,  Anatoly\u00a0 Vasiliev, Nadine George, Annelise Gabbold, ofl. Me\u00f0limur ISTA,  International School of Theatre Anthropology, s\u00ed\u00f0an 1995. R\u00fanar lauk MA  og MPhil gr\u00e1\u00f0um \u00ed leiklistarfr\u00e6\u00f0um og leikstj\u00f3rn fr\u00e1 De Montfort  h\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Leicester \u00ed Englandi og leggur n\u00fa lokah\u00f6nd \u00e1  doktorsverkefni sitt \u00ed fr\u00e6\u00f0unum. R\u00fanar hefur leikst\u00fdrt fj\u00f6lda  leiks\u00fdninga h\u00e9rlendis og erlendis og fengist vi\u00f0 leiklistarkennslu og  \u00fej\u00e1lfun leikara, auk \u00fdmis konar tilraunastarfsemi \u00e1 vettvangi kvikmynda  og gj\u00f6rningalistar. Hann var fyrsti pr\u00f3fessor \u00ed leikt\u00falkun vi\u00f0  leiklistardeild Listah\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. R\u00fanar var einn af stofnf\u00e9l\u00f6gum Lab  Loka 1992 og hefur s\u00ed\u00f0an veri\u00f0 helsti hugmyndafr\u00e6\u00f0ingur og leikstj\u00f3ri  h\u00f3psins (www.labloki.is).<br \/> \u00deetta er \u00ed fj\u00f3r\u00f0a sinn sem R\u00fanar kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem:<\/strong><br \/><strong>1. Hafa s\u00f3tt Leiklist I og II \u00ed Leiklistarsk\u00f3la B\u00cdL e\u00f0a samb\u00e6rileg grunnn\u00e1mskei\u00f0 <\/strong><br \/><strong>\u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa einhverja reynslu af leiklist.<\/strong><br \/><strong>2. Hafa umtalsver\u00f0a reynslu af leiklist.<\/strong><\/p>\n<p>Markmi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0sins er a\u00f0 gefa nemendum grundvallarskilning \u00e1 vinnu leikarans me\u00f0 leikverki\u00f0. Leitast ver\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 skerpa \u00e1 skilningi nemenda \u00e1 samvinnu og samspili leikara og unni\u00f0 a\u00f0 greiningu, byggingu og samsetningu sena. Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 undirb\u00faning fyrir senuvinnu og nemendum gefinn kostur \u00e1 a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 opnar senur samhli\u00f0a \u00e6fingum sem l\u00fata a\u00f0 hlustun og samvinnu.<\/p>\n<p>Unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 tv\u00f6 \u00f3l\u00edk leikverk, eitt klass\u00edskt og anna\u00f0 n\u00fdtt verk. \u00cd gegnum vinnu me\u00f0 verk fr\u00e1 \u00f3l\u00edkum t\u00edma og samanbur\u00f0 \u00e1 \u00feeim, skerpum vi\u00f0 skilning \u00e1 \u00feeirri grundvallart\u00e6kni sem \u00fearf til a\u00f0 greina og vinna me\u00f0 senur og karakter en um lei\u00f0 \u00feeirri s\u00e9rst\u00f6ku t\u00e6kni\/leikst\u00edl sem \u00f3l\u00edk verk kalla \u00e1.<\/p>\n<p>\u00c6tlast er til a\u00f0 nemendur lesi verkin tv\u00f6 og tileinki s\u00e9r tv\u00e6r senur sem undirb\u00faning fyrir n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<hr \/>\n<p><strong><img decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-3185\" style=\"margin: 12px; float: left;\" alt=\"agustaskula\" src=\"https:\/\/leiklist.is\/wp-content\/uploads\/2011\/03\/BIL_Skolinn_2011_agustaskula.jpg\" height=\"147\" width=\"110\" \/>Framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 fyrir leikara<\/strong><br \/><strong>Leiklist II \u2013 kennari \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir<\/strong><br \/><em>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald kr. 59.500<\/em><br \/><em>T\u00edmi: 11. til 19. j\u00fan\u00ed 2011<\/em><br \/><em>Sta\u00f0ur: H\u00fanvallask\u00f3li<\/em><br \/><em>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/em><\/p>\n<p><strong>\u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir <\/strong>l\u00e6r\u00f0i leiklist hj\u00e1 Monicu Pagneux \u00ed Paris og Philippe Gauliere \u00ed London. H\u00fan var fastr\u00e1\u00f0in leikstj\u00f3ri hj\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu um t\u00edma og leikst\u00fdr\u00f0i \u00fear m.a. Klaufum og k\u00f3ngsd\u00e6trum sem f\u00e9kk Gr\u00edmuna sem besta barnas\u00fdningin 2005, Eldh\u00fasi eftir m\u00e1li, (Menningarver\u00f0laun DV 2006) og Umbreytingu. \u00c1gusta hefur leikst\u00fdrt fj\u00f6lda s\u00fdninga med sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u leikh\u00fasunum, t.d. Sellofon eftir Bj\u00f6rk Jakobsd\u00f3ttur og B\u00f3lu-Hj\u00e1lmar hj\u00e1 Stoppleikh\u00f3pnum en s\u00fa s\u00fdning hlaut Gr\u00edmuna sem barnas\u00fdning \u00e1rsins 2009. \u00d6nnur verkefni eru t.d. \u00c1stardrykkurinn \u00ed \u00cdslensku \u00d3perunni, Sj\u00f6und\u00e1 me\u00f0 Halaleikh\u00f3pnum, Grimms-\u00e6vint\u00fdri hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi K\u00f3pavogs, sem valin var athyglisver\u00f0asta \u00e1hugas\u00fdning \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassins \u00e1ri\u00f0 2002, Memento Mori hj\u00e1 Leikf\u00e9lagi K\u00f3pavogs og Hugleik sem valin var framlag \u00cdslands \u00e1 NEATA-h\u00e1t\u00ed\u00f0ina 2006 og \u00e1 IATA-h\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00ed Su\u00f0ur-K\u00f3reu 2008.\u00a0\u00c1g\u00fasta leikst\u00fdr\u00f0i\u00a0f\u00e6reysku s\u00fdningunni Havgird sem s\u00fdnd var \u00e1 NEATA-h\u00e1t\u00ed\u00f0inni \u00ed Hofi 2010 og n\u00fa s\u00ed\u00f0ast leikst\u00fdr\u00f0i h\u00fan Ballinu \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasinu.<br \/>\u00deetta er \u00ed sj\u00f6unda sinn sem \u00c1g\u00fasta kennir vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 er \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem hafa hafa s\u00f3tt n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed\u00a0leiklist og hafa einhverja reynslu af svi\u00f0sleik. Nemendur sem s\u00f3ttu Leiklist I \u00e1ri\u00f0 2010 ganga fyrir.<\/strong><\/p>\n<p>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 byggir \u00e1 \u00feeim grundvallar\u00fe\u00e1ttum sem voru uppista\u00f0an \u00e1 Leiklist I; \u00fatgeislun og l\u00e9ttleika leikarans, samspili vi\u00f0 me\u00f0leikara og \u00e1horfendur og samvinnu \u00ed h\u00f3pi, en a\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0ur gengi\u00f0 lengra og unni\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 leiktexta. <br \/>\u00de\u00e1tttakendur munu f\u00e1 sendar fyrirfram tveggja manna senur \u00far klass\u00edskum leikritum (Shakespeare\/Chekov, n\u00e1nar tilkynnt s\u00ed\u00f0ar), sem \u00feeir \u00feurfa a\u00f0 kunna utanb\u00f3kar en HLUTLAUST \u00e1\u00f0ur en sk\u00f3li hefst og ranns\u00f6ku\u00f0 ver\u00f0ur s\u00fa umbreyting sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00feegar mismunandi leikst\u00edlum er beitt \u00e1 vi\u00f0komandi senur. Hva\u00f0 gerist \u00feegar sena er leikin dramat\u00edskt? E\u00f0a trag\u00edk\u00f3miskt? Mel\u00f3dramat\u00edskt? Hvernig fara tveir b\u00faffonar me\u00f0 senuna? E\u00f0a tveir tr\u00fa\u00f0ar? Einnig ver\u00f0ur liti\u00f0 \u00e1 hvernig k\u00f3rinn, \u00fe.e. allir hinir, geta mynd- og hlj\u00f3\u00f0skreytt leiksenuna, hvernig virkar h\u00fan best? Me\u00f0 einum s\u00f6ngvara, \u00feremur e\u00f0a st\u00f3rum h\u00f3pi?<\/p>\n<p>Eins og fyrr byggist \u00feetta n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 mikilli virkni allra \u00fe\u00e1tttakanda sem \u00feora a\u00f0 taka \u00e1h\u00e6ttu, pr\u00f3fa\u00a0og mistakast, pr\u00f3fa og takast og vera st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 t\u00e1num!<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<hr \/>\n<p> <strong>H\u00f6fundar \u00ed heims\u00f3kn<\/strong><br \/><em>\u00de\u00e1ttt\u00f6kugjald: kr. 45.000<\/em><br \/><em>T\u00edmi: 11. til 19. j\u00fan\u00ed 2011<\/em><br \/><em>Sta\u00f0ur: H\u00fanavallask\u00f3li<\/em><br \/><em>Skr\u00e1ning hefst 15. mars og l\u00fdkur 15. apr\u00edl<\/em> <\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><strong>Blundar \u00ed \u00fe\u00e9r sk\u00e1ld &#8211; ertu a\u00f0 bur\u00f0ast me\u00f0 hugmynd &#8211; \u00e1ttu h\u00e1lfskrifa\u00f0 handrit &#8211; vantar \u00feig lausa stund til a\u00f0 lj\u00faka leikritinu?<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd fyrra var brydda\u00f0 upp \u00e1 \u00feeirri n\u00fdbreytni a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a h\u00f6fundum a\u00f0 dvelja a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum vi\u00f0 skapandi skrif. Vi\u00f0 teljum a\u00f0 mj\u00f6g vel hafi tekist til og h\u00f6fundar noti\u00f0 \u00feess a\u00f0 skapa, skrifa og skemmta s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er okkur \u00fev\u00ed s\u00f6nn \u00e1n\u00e6gja a\u00f0 endurtaka \u00feetta bo\u00f0.<\/p>\n<p>H\u00f6fundum stendur til bo\u00f0a gisting og f\u00e6\u00f0i me\u00f0 sama h\u00e6tti og nemendum sk\u00f3lans, \u00feeim ber a\u00f0 fara eftir reglum sk\u00f3lans um umgengni o.fl. og er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u velkomi\u00f0 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00f6llu sk\u00f3lastarfi utan hef\u00f0bundinna kennslustunda. \u00de\u00e1 geta h\u00f6fundar n\u00fdtt s\u00e9r a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00ed einni af kennslustofunum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 hvetjum h\u00f6funda til a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r \u00feetta t\u00e6kif\u00e6ri og lofum \u00fev\u00ed a\u00f0 hinn eini sanni sk\u00f3laandi ver\u00f0i einst\u00f6k uppspretta sk\u00f6punargle\u00f0i!<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sk\u00f3linn starfar a\u00f0 H\u00fanav\u00f6llum \u00ed A-H\u00fanavatnss\u00fdslu dagana 11. til 19. j\u00fan\u00ed. Haldin ver\u00f0a \u00ferj\u00fa n\u00e1mskei\u00f0 og bo\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur upp\u00e1 a\u00f0st\u00f6\u00f0u fyrir h\u00f6funda. \u00cd fyrra var l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 byrjendan\u00e1mskei\u00f0 og fylgt er \u00feeirri hef\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 framhaldsn\u00e1mskei\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00c1g\u00fasta Sk\u00falad\u00f3ttir mun \u00fev\u00ed m\u00e6ta aftur og kenna Leiklist II sem byggir ofan \u00e1 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":2892,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[190],"tags":[],"class_list":["post-3186","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-skn"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3186","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3186"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3186\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/2892"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3186"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3186"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/staging.devseye.com\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3186"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}