Vorverkefni Leikfélags Kópavogs – leiksmiðja

Leikfélag Kópavogs boðar til leiksmiðju til undirbúnings uppsetningu á nýju leikverki eftir áramót. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Tilefnið er 60 ára afmæli félagsins á leikárinu. Leiksmiðjan verður haldin mið. 26. og fim. 27. okt. kl. 19.00-22.30 og lau. 29. kl. 9.30-12.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast skráið ykkur hér. […]

Allt veður er gott veður

Skemmtileg leit að sumrinu í Kópavogi Leitin að sumrinu er nýtt íslenskt barnaleikrit sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 12. október. Leikararnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og leikstýrðu. Leikmynd er unnin af leikhópnum með aðstoð Klæmint Henningsson Isaksen. Um búninga sá Dýrleif Jónsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um […]

Úrval af förðunarvörum fyrir Hrekkjavökuna

Leikhúsbúðin selur úrvals förðunarvörur sem þú færð hvergi annars staðar á Íslandi. Hér eru nokkur dæmi: Vatnslitirnir frá Grimas eru landsfrægir fyrir gæði, þeir fást í yfir 50 litum og þremur stærðum. Þeir fást líka í 6, 12 og 24 lita boxum, bæði mattir og glansandi. Fljótandi latex fæst í 100 ml., 500 ml. og 1.000 ml. flöskum. […]

Leitin að sumrinu hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir á laugardaginn barnaleikritið Leitin að sumrinu, sem samið er, leikstýrt og leikið af þeim félögum Ástþóri Ágústssyni, Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni og Magnúsi Guðmyndssyni. Hér er á ferðinni fjörug, fræðandi og skemmtileg leiksýning sem er sérstaklega ætluð yngstu áhorfendunum – og þeim sem eru ungir í anda. Leikritið er sýnt í Leikhúsinu, Funalind […]

Hannes og Smári í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. október kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Hannes og Smára á litla sviðinu. Verkið er eftir Halldóru Geirharðsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Jón Pál Eyjólfsson. Jón Páll leikstýrir og Brynja Björnsdóttir gerir leikmynd og búninga. Hannes og Smári, „annað sjálf“ okkar kraftmiklu leikkvenna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, í hárbeittum nýjum gamanleik.  Félagarnir landsfrægu […]

Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug sunnudaginn 2. október kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Þér og öllum vinum þínum er boðið. Hugarflug er fyrst og fremst tilraunverkefni þar sem félagsmönnum leikfélagsins jafnt sem öðrum eru gefnar nokkuð frjálsar hendur til að setja upp stutt verk, flytja tónlist, ljóð eða annað í svipuðum dúr. Þar […]

ENGI – Töfrandi brúðusýning

Sunnudaginn 2. október kl. 15:00 verður brúðuleikritið ENGI sýnt í Tjarnarbíói.  Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough. Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi og aðeins einu sinni í […]

Ársrit 2015–16 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2015–2016 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með […]

Barna- og unglinganámskeið að hefjast

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga hefjast hjá Leikfélagi Kópavogs mán. 26. sept. og standa fram í desember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Hámarksfjöldi er 10 á hvort námskeið. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum […]

Blái hnötturinn í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 24. september kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í nýrri leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson. Kristjana Stefánsdóttir semur nýja tónlist við verkið, Chantelle Carey er danshöfundur og 22 börn svífa um á stóra sviðinu. Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau […]

Snertu mig – ekki! í Kópavogi

Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson  Leikmynd Þorleifur Eggertsson  Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru en hún kemur þó ekki við sögu í leikverkinu, umfjöllunarefnið er þvert á móti náttúruleysi, nánar […]

Fjaðrafok / Strange Feathers í Tjarnarbíói

Fjaðrafok er nýtt verk ætlað börnum frá 18 mánaða aldri. Verkið er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúsflokksins Fidget Feet. Þessir hópar sameinast nú í fyrsta sinn og vinna nýja blöndu af loftfimleikum og dansi sérstaklega ætlaða yngstu kynslóðinni. Fjaðrafok fjallar um tvo fuglsunga, en fylgst er með þeim frá því að þeir klekjast út […]

Samlestur á Extravaganza í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 16. september kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Sölku Guðmundsdóttur, Extravaganza. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]

Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni

Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki nema 6.750 kr. stk. Zombie settið inniheldur: Fresh Scratch sultublóð, 15 ml Cine-Wax 10 g 1 […]

Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017

Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10.  september. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 […]

SENDING eftir Bjarna Jónsson

Laugardaginn 10. september kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu nýtt verk eftir eitt okkar fremsta leikskáld, Bjarna Jónsson. Leikstjóri er Marta Nordal. Gretar Reynisson gerir leikmynd og Stefanía Adolfsdóttir búninga. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu […]

Sóley Rós ræstitæknir

Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30. Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún […]

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum

Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum hefst sunnudaginn 11. september. (5 skipti, 17 klst.) Staður: Dansverkstæðið, Skúlagata 30, Reykjavík. Tími: Sunnudagar kl. 12:00-15:0o (engin æfing 2. okt) Lokaæfing 16. okt. 12:00-17:00 Verð: 11.500 Kennari: Ine Camilla Bjørnsten Takmarkað pláss! Hafið samband á ahaettuatridi@arcticaction.no Nánari upplysingar um námskeiðið á ensku: Beginner workshop in stage fighting over 5 Sundays (17 hours), 11.september – 16.oktober. […]

Opið hús hjá Borgarleikhúsinu og nýtt leikár kynnt

Laugardaginn 3. september opnar Borgarleikhúsið allt upp á gátt og býður alla velkomna í heimsókn milli klukkan 13:00 og 16:00. Að venju verða skoðunarferðir um húsið, innlit á æfingar og atriði á Stóra sviðinu. Villi vísindamaður mun kynna dagskrána í forsalnum. Hannes og Smári taka lagið og Lalli töframaður og ofurhetjurnar Óður og Flexa leggja […]

Act alone leiklistarhátíðin sett í 13. sinn

Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin í þrettánda sinn 11. – 13. ágúst næstkomandi. Hátíðin er haldin í sjávar- og einleikjaþorpinu Suðureyri við Súgandafjörð. Eins og nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð einleiknum og er eina sinnar tegundar á landinu – ef ekki bara á öllum Norðurlöndunum. Margt er fleira einstakt við Act […]

Einleikur í Tjarnarbíói

“Barry and his Guitar“ er söngleikur á ensku þar sem leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Bragi Árnason fer með öll hlutverkin í eigin verki. Aðeins ein sýning í Tjarnarbíói, laugardaginn 13. ágúst kl. 20:30. Við kynnumst Barry, feimnum en viðkunnalegum ungum draumóramanni, sem vinnur á kaffihúsi í London. Hann bæði syngur og spilar á gítar. Einn […]

Auglýst eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem áætlað er að verði fjölskyldusýningin Kardemommubærinn. Æfingatímabil verður u.þ.b. frá miðjum september fram í byrjun nóvember. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 28. ágúst nk.

ASS KOMBAT Í Tjarnarbíói

Sirkús- og leiksýningin ASS KOMBAT í Tjarnarbíói 5. ágúst kl. 20:30. Sýningin ASS KOMBAT berst gegn kynbundnu ofbeldi með gleði, sirkús, nekt og alvöru. Company Patrícia Pardo frá Spáni vann sýninguna í samstarfi við Amnesty International fyrir herferðina „My Body, My Rights”. Verkið veltir upp spurningum um líkama, sjálfsmynd og kynvæðingu. Trúðsleikur og persónulegar sögur fléttast saman […]

Lokkað og daðrað á vestfirsku leikári

Við lok hverrar vertíðar er vert að kikka um öxl og skila inn aflatölum. Vissulega er leikhúsið sjóvmennska og nú í lok leikárs er komið að löndun leikhússins vestfirska.  Ekki síst vegna þess að leiklistin er list augnabliksins, er hér og nú, svo tekur eitthvað annað listaverk við. Minningin gleymist þó ekki en stundin verður […]

Dracula’s Pack

Byltingin byrjar í Reykjavík – Frumsýning 23. júní í Tjarnarbíói Dracula’s Pack er sviðsverk þar sem dans, leiklist og tónlist sameinast. Hver sýning verður einstök því áhorfendur hafa áhrif á framvindu verksins. Sýningin er samin og flutt af listamönnum frá fimm löndum í leikhúsinu Tjarnarbíói. Stjórnandi sýningarinnar er Juliette Louste sem er búsett á Íslandi og […]

Grímuverðlaunin 2016 voru afhent í kvöld

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 14. skipti við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixsson. Stefán Baldursson fyrrverandi Óperu – og Þjóðleikhússtjóri hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Njála hlaut alls 10 […]

Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu 4. júní

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast, var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl. Ekkert að óttast verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 4. júní kl. 19.30. Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur […]

Tilnefningar til Grímunnar 2016

Njála, í leikgerð Mikaels Torfasonar, Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistarverðlaunanna, alls ellefu talsins. Sýningin ≈ [um það bil] hlaut átta tilnefningar og Mávurinn sjö. Grímuverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 13. júní næstkomandi. Hér að neðan má sjá allar tilnefningar til Grímunnar þetta árið: 1. Sýning ársins ≈ […]

Ein stök sýning á Ubba kóngi

Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður fjáröflunarsýning í Gaflaraleikhúsinu í tilefni af því að uppsetning Leikfélags Hafnarfjarðar á Ubba kóngi hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Bregenzerwald í Austurríki í júní. Miðaverð aðeins 2000 kr.Pantanir á leikfelag@gmail.comÁ annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona […]

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 25. maí klukkan 18:00. Þetta er tíunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í […]

Kompani Nord sýnir í Tjarnarbíói

Norræni leikhópurinn Kompani Nord sýnir leiksýninguna Vi, De Drunknade (We, The Drowned) í Tjarnarbíói 28. og 29. maí. Sýningin Vi, De Drunknade er uppsetning á samnefndri bók eftir danska rithöfundinn Carsten Jensen. Bókin hefur notið mikilla vinsælda, um allan heim, frá útgáfu árið 2006. Stjórnandi leikhópsins og leikstjóri sýningarinnar er finnski leikstjórinn Arn-Henrik Blomqvist. Verkið […]

16 elskendur fara til Færeyja

Sviðslistahópnum 16 elskendur hefur verið boðið að taka þátt sem fulltrúar Íslands á Norrænum sviðslistadögum sem haldnir verða í Færeyjum 24. – 28. maí næstkomandi. Þema sviðslistadaganna í ár er gagnvirkni/áhorfendaþátttaka og voru 16 elskendur því beðnir um að endurvekja sýninguna „ÍKEA ferðir“ – sem var síðast sýnd fyrir átta árum, síðsumar 2008. Sú sýning vakti […]

Hið Ubbalega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar blæs til stuttverkahátíðar í tilefni þess að sýning félagsins Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin til þátttöku á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Austurríki í sumar. Stuttverkin eru innblásin af Ubba kóngi og höfundi hans, franska leikskáldinu Alfred Jarry. Áhorfendur mega því eiga von á ýmiskonar grodda, […]

Afrakstur höfundasmiðju í Borgarleikhúsinu

Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00 Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins.  Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. […]

Sími látins manns í Tjarnarbíói

Þegar Nína ákveður að svara í síma manns á kaffihúsi, sem hringt hefur án afláts, fer af stað atburðarás sem hefur ófyrirséðar afleiðingar. Sími látins manns er fyrsta verk leikskáldsins Söruh Ruhl sem sett er upp á Íslandi. Sími látins manns fjallar um einsemdina og þrána eftir nánd. Snjallsímar og sambærileg tæki, með ótakmörkuðu upplýsingaflæði […]

Baldursbrá aftur á svið í Hörpu

Vegna fjölda áskorana verður ævintýraóperan Baldursbrá sýnd á þremur aukasýningum í Norðurljósasal Hörpu dagana 20.-22. maí nk. Óperan er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson og fékk mikið lof þegar hún var frumsýnd. Aukasýningarnar verða sem hér segir:   Föstudaginn 20. maí 2016 kl. 19.00   Laugardaginn 21. maí 2016 kl. 14.00   Sunnudaginn 22. maí 2016 […]

Súperstar á Laugarbakka

Leikdeild Umf. Grettis á Laugarbakka í Miðfirði í samstarfi við Leikhópinn á Hvammstanga setti upp rokkóperuna Súperstar síðustu páska í Félagsheimilinu Hvammstanga. Þátttakendur sem voru allir heimamenn voru 38 talsins og var sýnt fyrir fullu húsi í fimm skipti.  Ákveðið var að setja upp áhorfendapalla með því að stafla upp 600 vörubrettum svo að allir […]

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2015-2016

Þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson, tilkynnti um valið á hátíðakvöldverði aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði laugardaginn 7. maí sl.: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og þriðja sinn. Áhugasýning ársins hefur verið kærkomið tækifæri fyrir höfuðborgarbúa að upplifa þá grósku sem einkennir starf hinna fjölmörgu sjálfstæðu leikfélaga á Íslandi. Að […]

Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjöðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði í kvöld.

Aðalfundur BÍL á Seyðisfirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var settur á Seyðisfirði í morgun, laugardaginn 7. maí. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Svipmyndir af þinginu munu birtast hér meðan á því stendur.