Spennandi dagskrár stóru leikhúsanna
Stóru atvinnuleikhúsin hafa nú birt dagskrá sína fyrir leikárið og kennir að vanda margra grasa. Sitt sýnist hverjum eins og gjarnan vill vera og ekki kemur á óvart að Varríus hefur sína skoðanir eins og sjá má hér. Lesendur geta tjáð skoðun sína á dagskránum með því að taka þátt í könnuninni hér á vefnum.
Starfsárið kynnt hjá Þjóðleikhúsinu
Á annan tug frumsýninga verða í Þjóðleikhúsinu í vetur, nýtt leikrými – Kassinn – verður tekið í notkun, Leikhúskjallarinn rís úr öskustónni, gamla hæstaréttarhúsið að Lindargötu 3 fær nýtt hlutverk… það leika ferskir vindar um Þjóðleikhúsið í vetur.
Leiklistarnámskeið í Sandgerði
Púlsinn ævintýrahús auglýsir 11. vikna leiklistarnámskeið fyrir fullorðna.
Heimsmet í leiklist?
Draugasetrið á Stokkseyri sendi nokkra af sínum bestu fulltrúum til að hrella Reykvíkinga á Menningarnótt í boði Tryggingarmiðstöðvarinnar. Þeir fóru hamförum í höfuðborginni og eru líkur jafnvel taldar á að þeir hafi sett heimsmet.
Leikárið hjá LA
Mikil fjölbreytni einkennir leikárið 2005-2006 hjá LA sem kemur í kjölfar eins mesta aðsóknarárs í sögu leikfélagsins. Í vetur verða átta leiksýningar á fjölunum. Þar af eru þrjár frumsýningar á: drepfyndnum gamanleik, kraftmiklum rokksöngleik og undurfallegu átakaverki. Sýningum verður haldið áfram á Pakkinu á móti sem frumsýnt var í vor við mjög góðar undirtektir. Til […]
Fyrirlestrahelgi
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Fyrirlestrahelgi um tækni- og hönnunarmál fyrir leikstjóra og aðra áhugasama verður haldinn dagana 1. og 2. október 2005. Heiti námskeiðsins eru: Hinar þúsund þjalir leikstjórans eða Tæknipungapróf fyrir leikstjóra eða Allt sem leikstjórinn þarf að vita um tæknimál en hefur ekki þorað að spyrja um.
Undir hamrinum ein sýning
Hugleikur mun sýna eina sýningu á Undir hamrinum á laugardaginn. Sýningin er nýkomin af alþjóðlegri leiklistarhátíð í Mónakó þar sem hún hlaut mikið lof bæði gagnrýnenda og hátíðargesta. Verkið er eftir Hildi Þórðardóttur en Ágústa Skúladóttir leikstýrir.
Dauði og jarðarber
Félag flóna ferðast um landið með grínharmleikinn Dauði og jarðaber. Leikritið er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur (Klaufar og kóngsdætur barnasýning ársins 2004 -Gríman). Leikritið er besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Sýningin er um ein klukkustund. Næstu sýningar eru: Föstudag 19. ágúst: Nýheimum, Höfn í Hornafirði, kl. 18.00 […]
Leikstjóri óskast
Leikfélag Blönduóss vantar leikstjóra í haust, áætlaður frumsýningartími október – nóvember. Allar upplýsingar gefur formaður í síma 452-4485 eða 847-1852. Kristín.
Undir hamrinum í Mónakó
Hugleikur hefur nýverið snúið aftur úr frægðarför til Mónakó þar sem hann tók þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíð IATA sem haldin er þar á 2 ára fresti. Hugleikur sýndi Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Ferðasöguna má lesa á vef Hugleiks hér og svo er Varríus með mikinn langhund um aðrar sýningar hátíðarinnar […]
Dan Kai Teatro sýnir
Leikhópnum Dan Kai Teatro hefur verið boðið að taka þátt í menningarnótt 21. ágúst næstkomandi í annað sinn en þau sýndu verkið Beauty hér á landi á seinasta ári. Af því tilefni hafa þau ákveðið að sýna einnig í húsnæði Leikfélags Hafnarfjarðar við lækinn, dagana á undan. Um er að ræða tvo stutt þætti, Fear, […]
Breytingar á Leiklistarvefnum
Nýr og betri vefur Glöggir lesendur taka eflaust eftir því að Leiklistarvefurinn hefur tekið breytingum. Ástæðan er sú að samið hefur verið við nýjan þjónustuaðila og tekið hefur verið í notkun nýtt umsjónarkerfi fyrir vefinn. Þessu fylgja auknir möguleikar og væntanlega enn betri þjónusta við ykkur. Ef þið viljið kynna ykkur helstu breytingar, lesið meira […]
Fátæka leikhúsið frumsýnir
Fátæka leikhúsið frumsýnir, sunnudagskvöldið 14.ágúst Kl. 20.00, leikritið Rósinkrans og Gullinstjarna eru dauðir eftir Tom Stoppard. Snorri Hergill Kristjánsson þýddi verkið. Leikstjóri er Karl Ágúst Þorbergsson og er þetta hans fyrsta leikstjórnarverkefni.
Afmælissýning í Loftkastalanum
Loftkastalinn fagnar 10 ára afmæli sínu næstkomandi föstudag, þann 12. ágúst. Það var í ágúst 1995 sem starfsemi leikhússins hófst eftir að vélsmiðjunni í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg hafði verið breytt í hefðbundið leikhús með sætum fyrir 400 áhorfendur. Nú tíu árum síðar er Loftkastalinn enn stærsta einkarekna leikhúsið. Fyrsta verkefni Loftkastalans var söngleikurinn Rocky […]
Tréhausinn 2005
Tréhausinn, óopinber verðlaun áhugaleikhússins er nú veittur í þriðja sinn. Þorgeir Tryggvason reið á vaðið og skapaði fyrirbærið árið 2003 og Hrund Ólafsdóttir hélt merkinu á lofti á síðasta leikári. Í ár dugar hinsvegar ekkert minna en tvíhöfði til að verðlauna það sem vel var gert í áhugaleikhúsinu á Íslandi. Kemur það til af því […]
Hugleikur og Grace prinsessa
Hugleikur er á leið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Mónakó með sýningu sína Undir Hamrinum, sem reyndar heitir Country Matters í þessari styttu ferðaútgáfu. Leiklistarhátíðin í Mónakó er á vegum alþjóða áhugaleikhússambandsins AITA/IATA og hefur verið haldin á fjögurra ára fresti síðastliðin fimmtíu ár eða þar um bil.
„Aðeins til tvenns konar leiklist góð og slæm“
Íslenskt áhugaleikhús fær hrós Í Morgunblaðinu 12. júlí síðastliðinn er viðtal við Danute Vaigauskaite sem var sérstakur heiðursgestur leiklistarhátíðarinna Leikum núna! Hún tjáir þar m.a. skoðun sína á íslensku áhugaleikhúsi sem hún segir að sé "… einstaklega gott og í háum gæðaflokki".
Dauði og jarðarber
Félag Flóna frumsýndi grínharmleikinn Dauða og jarðarber laugardaginn 11. júní í Gúttó í Hafnarfirði. Sýningin er farandsýning sem ætlunin er að ferðast með um landið í sumar. Leikhópurinn Félag flóna. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leikarar: Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson Höfundar; Ágústa Skúladóttir, Björn Thorarensen, Gunnar B. Guðmundsson, Snorri Engilbertsson
Leikdómar á vefnum
Þorgeir Tryggvason sem er leiklistaráhugamönnum að góðu kunnur, hefur starfað sem leiklistargagnrýandi á Morgunblaðinu síðan árið 2000. Hann hefur nú gert alla sína leikdóma á umræddu tímabili aðgengilega á vef sem hann nefnir Úr glerhúsinu. Einnig má í því sambandi benda á að hægt er nálgast leikdóma sem birst hafa á Leiklistarvefnum hér.
Leikum núna 2005
Nú er rétt um mánuður í að blásið verði til leiks á leiklistarhátíðinni Leikum núna á Akureyri. Dagskrá hátíðarinnar hefur verið nú birt hér á vefnum.
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(27.05.2005)Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur nú valið athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2004-2005 og varð sýning Stúdentaleikhússins, Þú veist hvernig þetta er, fyrir valinu. Hún verður sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins þriðjudaginn 31. maí kl. 20:00 og kl. 22.30.