Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Mars
Á fimmtudaginn 25.mars frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um árattur, kenndir og kenjar. Verkið, sem ber heitið Mars, er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá Útgerð, Hugmyndahúss háskólanna sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af 12 verka röð sem mynda eina […]
Pókók frumsýnt á Hofsósi
Leikfélag Hofóss frumsýnir skopleikinn Pókók eftir Jökul Jakobsson föstudaginn 19. mars kl. 20.30. Leikritið var frumsýnt 1961 en þrátt fyrir aldurinn má segja að efni verksins gæti vel átt við í þjóðfélagi nútímans þar sem græðgi og blekkingar eru aldrei langt undan í viðskiptalífinu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson sem áður hefur sett upp vinsælar sýningar […]
Kolsvört kómedía um Svein skotta frumsýnd á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði […]
Gauragangur frumsýndur föstudaginn 19. mars
Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins komandi föstudag 19. mars. Það er ekki auðvelt að vera snillingur, þeir sjá heiminn eins og hann er – gallaðan. Gauragangur er þroskasaga skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar. Rafmagnaður og rokkaður poppsöngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson með tónlist eftir Nýdönsk.
Stúdentaleikhúsið sýnir Hrópíum
Stúdentaleikhúsið frumsýndi verkið Hrópíum föstudaginn 12. mars að Eyjaslóð 9. Verkið er unnið af hópnum undir stjórn Bjartmars Þórðarsonar í svokölluðum „deviced“ stíl eða opnum stíl en Stúdentaleikhúsið vinnur flestar sýningar sínar þannig. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið síðan um miðjan janúar og mikið af góðu fólki komið að þeirri vinnu.
Margt er skrýtið hjá Leikfélagi Ölfuss
Leikfélag Ölfuss fékk Magnús J. Magnússon til liðs við sig á dögunum til að setja upp frumsamið leikrit með unglingum á aldrinum 14-16 ára. Leitað var eftir áhugasömum unglingum til að taka þátt í þessu verkefni og ellefu hressir krakkar skráðu sig til leiks. Verkið nefnist Margt er skrýtið og er ætlað fyrir börn á […]
Leikfélag Sauðárkróks æfir Fólkið í blokkinni
Hjá Leikfélagi Sauðárkróks eru æfingar á Fólkinu í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson komnar vel í gang. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson sem stýrir Leikfélagi Sauðárkróks nú í fjórða skipti síðan 2005. Skemmtileg tónlist setur sterkan svip á verkið og stýrir Rögnvaldur Valbergsson fjögurra manna hljómsveit sem spilar á sýningum. Yfirsmiður er Kjartan Erlendsson, en […]
Leikfélag NFSu fumsýnir Grís Horror
Leikfélag NFSu leggur þessa dagana lokahönd á nýjasta sköpunarverk sitt, en það er söngleikurinn Grís Horror. Leikarar og aðrir hafa undanfarna daga unnið hörðum höndum við að gera verkið klárt til sýningar undir harðri hendi leikstjórans Garúnar, og nú er loks farið að sjá fyrir endann á undirbúningsferlinu. Frumsýning verður föstudaginn 19. mars í Gónhól, […]
Leikfélag MH frumsýnir Veruleikana
Í kvöld, föstudaginn 12. mars kl. 20, frumsýnir Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð leikritið Veruleikarnir í leikstjórn Friðgeirs Einarssonar. Í verkinu er tekist á við hinar eilífu spurningar lífsins og mörkin á milli raunveruleika og óraunveruleika. Sýningin er unnin út frá spuna og er leikhópurinn, ásamt Friðgeiri leikstjóra, höfundur verkins. Hópurinn hefur verið að vinna að […]
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir barnaleikrit
Næstkomandi föstudag, þann 12. mars klukkan 18.00, frumsýnir Leikfélag Keflavíkur leikritið Mér er alveg sama þó einhver sé að hlægja að mér eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur. Leikritið segir frá tröllastelpunni Lónu sem er að byrja í skóla með mannabörnum en á ekki sjö dagana sæla þar sem hún lendir í því að vera lögð í einelti.
Síðustu sýningar á Ufsagrýlum
Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á Ufsagrýlum eftir Sjón í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Það er Lab Loki í samvinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið sem setur verkið upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Síðustu tvær sýningarnar verða laugardaginn 13. mars. og fimmtudaginn 18. mars. kl. 20.00.
Þjóðleikhúsið frumsýnir Fíusól
Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn í Kúlunni nýtt leikrit eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um hina átta ára gömlu gleðisprengju – Fíusól. Það er ekki ofmælt að það sé mikill áhugi á leiksýningunni um Fíusól og nú þegar er orðið uppselt á allar sýningar fram í miðjan maí! Ástæðan fyrir þessum mikla spenningi liggur vitanlega í því […]
Rose Bruford College með inntökupróf
Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College of Theatre & Performance verður með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 20. og 21. mars, fyrir inngöngu í september 2010. Skólinn býður upp á faglegt nám á öllum hliðum leikhúss.
Söngleikur um Svein skotta
Æfingar eru hafnar á nýju íslensku leikverki, Síðasti dagur Sveins skotta, en verkið verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Að verkinu standa Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og Lýðveldisleikhúsið í Reykjavík en það er ljóðleikur eða söngdans um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi […]
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti
Laugardaginn 13. mars frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta […]
Aukasýningar á Sjöundá
Halaleikhópurinn frumsýndi 5. febrúar sl. Sjöundá – Svartfugl Gunnars Gunnarssonar, nýja leikgerð eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur, Þorgeir Tryggvason og leikhópinn. Sýningin hefur vakið mikla athygli og fengið góða dóma. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum laugardaginn 13. mars kl. 20.00 og sunnudaginn 14. mars kl. 17.00. Þegar er að verða fullt á fyrri […]
Styrkir til atvinnuleikhópa 2010
Tilkynnt var fyrir skemmstu hvaða atvinnuleikhópar fengju styrk til uppsetninga verka árið 2010. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 95 verkefna auk sjö umsókna um samstarfssamninga. Á fjárlögum 2010 eru alls 64,9 millj.kr. til starfsemi atvinnuleikhópa. Af þeirri upphæð eru 4,5 millj. kr. eyrnamerktar skrifstofu Sjálfstæðu leikhúsanna og því ekki til úthlutunar. Samtals er […]
Gullna hliðið í Lyngbrekku
Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars kl. 20.30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan […]
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Lífið liggur við
Fimmtudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Hörgdæla grafalvarlega skrifstofufarsann Lífið liggur við, eftir Hlín Agnarsdóttur, á Melum í Hörgárdal. Sýningin hefst kl. 20:30. Leikstjóri er Saga G. Jónsdóttir. Þetta er nýlegt leikrit og var fyrst sýnt hjá Stúdentaleikhúsinu árið 2007 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni gamanleikur, þó með alvarlegum undirtóni, sem gerist á Íslandi í […]
Söngleikurinn Ólafía frumsýndur á Breiðumýri
Leikdeild Eflingar frumsýnir nýtt leikverk, Ólafíu, á Breiðumýri föstudaginn 26. febrúar. Höfundur er heimamaðurinn Hörður Þór Benónýsson og leikstjóri Arnór Benónýsson. Sýningin inniheldur sautján frumsamin lög eftir Jaan Alavere sem jafnframt er tónlistarstjóri sýningarinnar. Alls koma tuttugu og þrír leikarar fram í sýningunni og þá sér fimm manna hljómsveit um tónlistarflutning. Þessi fjölmenni leikarahópur er […]
Hænuungarnir frumsýndir á laugardaginn í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn Hænuungana, nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Frumsýning á nýju leikriti eftir Braga Ólafsson telst óneitanlega til tíðinda þar sem Bragi er einn af okkar bestu rithöfundum. Hænuungarnir eru annað leikrit Braga fyrir leiksvið. Hið fyrra, Belgíska Kongó var sýnt við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu fyrir fáum […]
Örverkið Febrúar frumsýnt í Útgerðinni
Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir Febrúar, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar, þann 25. febrúar kl. 12.30 (í hádeginu). Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir og leikarar Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, Útgerðinni, Grandagarði 16 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. Aðgangur er ókeypis.
Drepfyndinn farsi hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi 20. febrúar sl. hinn rómaða gamanleik Kjartans Ragnarssonar, Blessað Barnalán. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson en hann hefur leikstýrt fjölda verka hjá leikfélaginu og er skemmst að minnast hinnar bráðskemmtilegu Ráðskonu Bakkabræðra. Blessað Barnalán er sýnt í leikhúsi félagsins í Gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði. Bent skal á að áhorfendafjöldi er takmarkaður vegna […]
Með blóð á vörum
Næstkomandi laugardag, hinn 20. febrúar, frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Hópurinn, sem skipaður er átta upprennandi leikurum, hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar.
LR með málþing um Jóhann Sigurjónsson
Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings undir yfirskriftinni Jóhann Sigurjónsson leikskáld – sígildur eða ekki? í Borgarleikhúsinu laugardaginn 20. febrúar og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu með leiklestri á leikriti Jóhanns Rung læknir sem gefið var út í Danmörku 1905. Sveinn Einarsson leikstýrir þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Jakobi Þór Einarssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur. […]
Frá upphafi til enda… frumsýnt á Dalvík
Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk, Frá upphafi til enda…, þann 19.febrúar næstkomandi í Ungó. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í fimmta sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 6 […]
Söngleikurinn Aladdín frumsýndur í Norðurpólnum
Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir nýjan og bráðskemmtilegan söngleik byggðan á hinni klassísku sögu um Aladdín, miðvikudaginn 17. febrúar í Norðurpólnum, Bygggörðum 5. Leikstjóri verksins sem og höfundur leikgerðar er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir. Leikhópurinn samanstendur af ungum og upprennandi leikurum sem unnið hafa hörðum höndum í allan vetur við að gera þessa sýningu að veruleika. Sýningin […]
Undir hamrinum frumsýnt í Biskupstungum
Föstudagskvöldið 12. febrúar frumsýnir Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu, leikritið Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun janúar og nú er sem sagt komið að því. Leikurinn gerist í kringum aldamótin 1900 og segir frá samskiptum prestsins og hans fólks á Hvammi og kotunganna á […]
Birtingur frumsýndur á Selfossi
Mikið líf, gleði og birta fyllir Litla leikhúsið við Sigtún þessa dagana en Leikfélag Selfoss er nú að komast á lokasprettinn með æfingar á Birtingi eftir Voltaire. Frumsýning verður föstudaginn 12. febrúar en æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun nóvember. Umfang sýningarinnar er mikið á flestum sviðum og gríðarleg vinna og óteljandi handtök að […]
Gerpla frumsýnd í Þjóðleikhúsinu
Saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar Kolbrúnarskálds hefur lifað með þjóðinni um aldir. Fóstbræðrasaga fjallar um þá Þorgeir og Þormóð og um miðja síðustu öld skrifaði Halldór Kiljan Laxness Gerplu og sagði þar sögu þeirra á nýjan hátt. Næstkomandi föstudag – um 1000 árum eftir að atburðirnir í sögunni eiga að hafa átt sér stað […]
Freyvangsleikhúsið frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi
Laugardaginn 13. febrúar frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Dýrin í Hálsaskógi og verður það á fjölum Freyvangsleikhússins fram á vordaga. Gert er ráð fyrir að sýningar standi fram á sauðburð, því nokkrum dögum fyrir frumsýningu er fullbókað á fyrstu þrjár sýningarnar og talsvert farið að bókast á næstu sýningar. Það er […]
Snúður og Snælda sýnir Nakinn mann og annan í kjólfötum
Sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 frumsýnir leikfélagið Snúður og Snælda í Iðnó farsann Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Leikstjóri Bjarni Ingvarsson. Leikritið gerist að næturlagi þar sem tveir götusóparar eru við vinnu sína. Þeir spjalla saman um hin ólíkustu efni frá hversdagslegu gríni til heimspekilegra atriða og trúarbragða. Ýmsir skrautlegir einstaklingar […]
Lab Loki í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir Ufsagrýlur
Núna á föstudaginn 5. febrúar verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu nýtt verk eftir skáldið Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðsson). Þessa hefur verið beðið í nokkurn tíma að Sjón skrifi leikverk í fullri lengd, því ekki aðeins hefur Sjón verið fyrirferða mikill á ritvellinum heldur er óhætt að fullyrða að hann sé einn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar. Hann […]
Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu
Nýtt íslenskt barnaleikriti, Skoppa og Skrítla á tímaflakki, verður frumsýnt laugardaginn 6. febrúar í Borgarleikhúsinu. Þetta er þriðja leikrit þeirra vinkvenna sem fer á leiksvið Fyrri tvær leiksýningarnar fengu fádæma aðsókn og voru báðar tilnefndar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna. Síðasta verkefni þeirra vinkvenna var kvikmynd sem sló rækilega í gegn á síðasta ári og sér […]
Aukasýningar á Umbúðalaust
Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar á leiksýningunni Umbúðalaust sem Leikfélag Kópavogs hefur sýnt að undanförnu. Sýningarnar verða sunnudag 7. febrúar og mánudag 8. febrúar kl. 20.00. Leiksýningin Umbúðalaust sem er samin af leikhópnum og leikstjóranum Vigdísi Jakobsdóttur hefur fengið mjög góðar viðtökur og þykir fersk og óvenjuleg. Óræðar persónur á óljósum stað eru […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Svartfugl
Föstudaginn 5. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Svartfugl, verk byggt á samnefndu ritverki Gunnars Gunnarssonar. Um er að ræða nýja leikgerð eftir þau Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Þorgeir Tryggvason í samvinnu við leikhópinn. Verkið fjallar um eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar, morðin á Sjöundá og réttarhöldin yfir Bjarna Bjarnasyni og Steinunni Sveinsdóttur. Þeim var gefið að sök að […]
Allra síðustu sýningar í Reykjavík á Munaðarlaus
Leikfélag Akureyrar hefur boðið leiksýningunni Munaðarlaus að vera Óvissusýning vetrarins hjá LA. Sýningin Munaðarlaus hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum vikum þar sem hún hefur verið sýnd í Norræna húsinu við glimrandi viðtökur og hefur verið fullt á nær allar sýningar. Leikhópurinn hefur ákveðið að nýta ferðina og sýna sýninguna einnig á Vopnafirði […]
Leiklestraröð LA – Einleikir
Leikfélag Akureyrar ýtir nú úr vör leiklestraröð, þar sem leikarar hjá LA munu leiklesa ýmis leikverk og er hugmyndin er að gera þetta að föstum lið, eitt kvöld í mánuði fram í júní. Leiklestrarnir munu hafa mismunandi yfirskrift eða þema og verða ýmist leiklesin heil verk eða kaflar úr verkum. Nemendur í Tónlistarskólanum á Akureyri […]
Nýtt leikskáld hjá Leikfélagi Reykjavíkur
Leikritunarsjóður LR eflir fjölbreytni og nýsköpun í íslenskri leikritun. Jón Gnarr leikari, skáld og þúsundþjalasmiður, hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins árið 2010 úr stórum hópi umsækjanda. Jón mun starfa í Borgarleikhúsinu næsta ár þar sem hann mun sinna ritstörfum.
JANÚAR – Örverk um áráttur, kenndir og kenjar
Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir JANÚAR, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar 28. janúar kl.12.30. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, ÚGERÐINNI, Grandagarði 16, 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. JANÚAR er fyrsta verkið í 12 verka röð, Örverk um áráttur, kenndir, sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum […]