Bróðir minn Ljónshjarta á Selfossi

ljonshjarta

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. 20 leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, sem leikur Jónatan. Leikstjóri verksins […]

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Þorsk á þurru landi

orskur1

Freyvangsleikhúsið frumsýnir leikritið Þorskur á þurru landi í Freyvangi 20. febrúar nk. Þorskur á þurru landi er farsi frá árinu 2005 eftir þá Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman. TItill á frummáli Off the Hook. Persónur leiksins eru átta en þátttakendur í heild eru rúmlega 20 manns. Daníel Freyr Jónsson þýddi og leikstýrir. Benedikt Axelsson […]

Barið í brestina, frumsýning í Aratungu 14. febrúar

baridibrestina

Leikdeild Umf. Biskupstungna æfir nú af fullum krafti gamanleikinn Barið í brestina, eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson en þetta er sjöunda uppfærsla hans hjá félaginu. 
Leikritið er ærslafullur gamanleikur með söngívafi. Alls koma að uppsetningunni um 20 manns, 14 leikarar, smiðir, hvíslari og ljósamaður.Frumsýnt verður í Aratungu föstudaginn 14. febrúar.

Pörupiltar á kafi í kynlífi

kynfraedslaporupilta

Miðvikudaginn 12. febrúar frumsýna Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana.  Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga og fullorðna. Öllum […]

Leikhússpjall í Tjarnarbíói

tjarnarbio6.2.14

Núna um helgina mun gestum Tjarnarbíós gefast kostur á að ræða við leikara og aðstandendur sýninga um innihald og upplifun þeirra af verkinu. Um ræðir leikhússpjall um Lúkas laugardagskvöldið 8. febrúar og um Eldklerkinn sunnudagskvöldið 9. febrúar. Sýningarnar hefjast kl. 20, en verður lokið um 21:30. Þá hefst leikhússpjallið. Leikhússpjall Tjarnarbíó er kjörið tækifæri til […]

Lísa og Lísa, Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Rýminu

lisaoglisa

Þær Lísa og Lísa, leiknar af hinum ástsælu akureyrsku leikkonum Sunnu Borg og Sögu Geirdal Jónsdóttur, eru komnar á sjötugsaldurinn og hafa búið saman í þrjátíu ár – hálfvegis í felum. Fyrir atbeina ungs leikskálds hafa þær nú tekið ákvörðun um að koma út úr skápnum og segja sögu sína á leiksviði. Einlægt og meinfyndið […]

Bláskjár frumsýnt á Litla sviðinu

blaskjar_poster

Bláskjár Tyrfing Tyrfingssonar verður frumsýndur á Litla sviðinu laugardaginn 8. febrúar. Verkið Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu […]

Leikfélag Selfoss æfir Bróðir minn Ljónshjarta

brodirminnljonshjartacover

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir. Stefnt er að frumsýningu 21. febrúar næstkomandi, sýningar verða í Litla leikhúsinu við Sigtún en miðaverð auglýst þegar nær dregur frumsýningu.

Leikfélag Fjallabyggðar æfir nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson

samlestur

Nú eru æfingar hafnar á fyrsta verki Leikfélags Fjallabyggðar, en Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12. júlí 2013. Áður unnu félögin saman af mikilli prýði að uppsetningu á verkinu Stöngin inn! sem var samið og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni, en félögin enduðu á fjölum Þjóðleikhússins með þá sýningu.

Leikfélag Kópavogs frumsýnir stórvirkið Þrjár systur

rjar_systur

Liðsmenn Leikfélags Kópavogs hafa keppst við undanfarnar vikur og nú hillir undir að árangur erfiðisins líti dagsins ljós því næstkomandi föstudag, 31. janúar, frumsýnir félagið Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í Leikhúsinu við Funalind. Er þetta viðamesta sýning félagsins í húsinu. Um 15 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra leggja fjöldamargir hönd á […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Sambýlinga

sambylingar

Þann 25. janúar frumsýnir Halaleikhópurinn leikrit eftir ameríska leikskáldið Tom Griffin sem heitir á frummálinu The boys next door, en í staðfærðri þýðingu nefnist Sambýlingar. Þýðinguna gerði Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt leikstjóri verkins. Sýnt er í Halanum að Hátúni 12.

Óskasteinar frumsýnt á Nýja sviðinu

oskasteinar

Föstudaginn 31. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Óskasteina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ragnar Bragason er mættur aftur til leiks eftir velgengni Gullregns og er hér höfundur og leikstjóri á verki sem fjallar á kómískan hátt um misheppnaða íslenska krimma. Hér er á ferðinni sami hópur listrænna stjórnenda og færði okkur Gullregn á síðasta leikári.

Horn á höfði sýnt áfram í Tjarnarbíói

horn_a_hofdi1

Barnasýningin Horn á Höfði verður sýnd áfram í vor. Til stóð að hætta sýningum um áramót vegna skorts á leikmyndageymsluplássi í Tjarnarbíó – en úr því hefur verið bætt og þessi sívinsæla barnasýning mun því halda áfram fram á vor. Búið er að sýna 60 sýningar allt í allt og á næstu sýningu, þann 26. […]

Öll Gerfiaugnahár á Útsölu!

augnahar

Seljum öll Grimas gerfiaugnahár á helmings afslætti út janúar. 27 tegundir í boði af öllum stærðum og gerðum á 750.- kr. stk. – kostuðu áður 1.500.-. Lím fylgir örfáum tegundum en hægt er að panta það sérstaklega. DUO lím, 14 gr. túba kostar 2.680.- og Kryolan lím, 4 gr. kostar 1.000.-. Vörurnar má skoða hér […]

Spjall með leikurum og leikstjóra Lúkasar

lukas

Laugardaginn, 18. janúar, eftir sýningu á leikritinu Lúkas, munu leikendur og leikstjóri setjast niður með áhorfendum og ræða leikritið. Sýningin hefst kl. 20.00 en verður lokið um 21.30. Þá munu Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem fara með hlutverk í leikritinu, og Marta Nordal, leikstjóri, setjast niður á kaffihúsi Tjarnarbíós og […]

LA frumsýnir Gullna hliðið

gullna_hlidid_hopur

Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 17. janúar n.k. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu en það er nú sett upp í fjórða sinn hjá LA. Sýningin er hátíðarsýning félagsins á 40 ára atvinnuafmæli þess. Verkið fjallar um uppgjör kerlingar við líf sitt og Jón mann sinn. Ferðalag hennar til hins […]

Óraunveruleikir frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

oraunveruleikir

Nýtt íslenskt sviðsverk samið og flutt af Urði Hákonardóttur, Valgerði Rúnarsdóttur og Þyri Huld Árnadóttur, verður frumsýnt í Kassanum fimmtudaginn 16. janúar klukkan 20. Aðrar sýningar verða 17. 25. og 26. janúar. Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og unnið í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Sagnakonuna áfram

sagnakonan

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýndi Sagnakonan, móðir Snorra eftir Óskar Guðmundsson í leikgerð leikstjórans Jakobs S. Jónssonari og leikhópsins. Sýnt er í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi 22. nóv. sl. og voru sýndar 6 sýningar fyrir jól við góðar undirtektir. Nú hefur leikfélagið tekið upp þráðinn að nýju og ætla að sýna nokkrar sýningar.

Sjö samúræjar til Finnlands

sjo_samuraejar2

Leikgerð Leikfélagins Sýna á japönsku stórmyndinni Sjö samúræjar hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður í Porvoo í Finnlandi dagana 1.–6. júlí nk. Höfundur leikgerðarinnar er Guðmundur Erlingsson og er hann jafnframt leikstjóri verksins. Hátt í 30 leikarar taka þátt í sýningunni sem er útileiksýning og var sýnd […]

Elska – sýningar í Reykjavík

jennylara

Einleikurinn Elska, eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur, var sýndur við góðar viðtökur í sveitarfélögum Þingeyjarsýslna fyrir jólin 2013. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að sýna tvær sýningar á Cafe Rosenberg í Reykjavík núna í janúar. Einleikurinn er unnin upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Sýningar  verða […]

Fjórar sýningar á fjölum Tjarnarbíós í janúar

lukas

Fjórar sýningar eru í boði á fjölum Tjarnarbíós í janúar. Tvær aukasýningar verða á uppsetningu Lab Loka á Stóru börnunum, Með horn á höfði í flutningi GRAL snýr aftur, leikhópurinn Aldrei óstelandi flytur sig í Tjarnarbíó með Lúkas eftir Guðmund Steinsson og loks mun Eldklerkurinn eftir Pétur Eggerz í flutingi Möguleikhússins verða sýndur.

Mary Poppins og Jeppi á Fjalli kveðja

jeppi

Sýningum lýkur brátt á tveimur vinsælustu verkum síðasta árs Mary Poppins og Jeppa á Fjalli. Mary Poppins hefur sett nýtt aðsóknarmet í 117 ára sögu Leikfélags Reykjavíkur – yfir 64.000 gestir. Sýningartímibil Mary Poppins hefur þegar verið framlengt en samningar gerðu ráð fyrir að hætt yrði sýningum í lok árs 2013. Söngleikurinn er flóknasta og […]

Hamlet frumsýndur í Borgarleikhúsinu 11. janúar

hamlet

Laugardaginn 11. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hamlet efir William Shakespeare á Stóra sviðinu. Þessi margrómaði harmleikur um Hamlet Danaprins er frægasta leikverk Shakespeares og mest leikna leikverk allra tíma. Teymi listrænna stjórnenda Hamlets er leikhúsgestum Borgarleikhússins að góðu kunnugt því þar fer mikið til sami flokkur og færði okkur Mýs og menn með leikstjórann […]

Sjötugasta leikár Leikfélags Dalvíkur

ungo200

Leikárið 2013-2014 er 70. leikár Leikfélags Dalvíkur og verður því miklu tjaldað til. Ákveðið hefur verið að setja upp sýninguna Þið munið hann Jörund, sem var einmitt sett upp á 40 ára afmæli leikfélagsins og fékk frábærar viðtökur. Stefnt er að því að frumsýna verkið í seinnihluta mars 2014. Aðalsteinn Bergdal hefur verið ráðinn leikstjóri […]

Leikfélag Hörgdæla kynnir: Betan 2013!

Hörgdælir stór

Betan 2013 er frábært skemmtikvöld sem enginn má missa af. Sýndir verða nokkrir einþáttungar eftir okkar frábæru Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og á eftir verður lifandi tónlist og fjör. Skemmtunin verður föstudaginn 27. desember kl. 21.00 á Melum. Miðaverð er 1.500 kr og öll innkoma rennur til Bandalags Íslenskra Leikfélaga. Fjölmennum á Mela og höfum gaman […]

Gleðileg jól!

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leikhúsfólki og öðrum viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og þakkar fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Verslunin verður lokuð frá og með 16. desember og við opnum aftur á nýju ári þann 2. janúar. Hafið það gott yfir hátíðirnar!

Leikhús nútímans komin út

leikhus_nutimans1

Út er komin hjá Háskólaútgáfunni bókin Leikhús nútímans eftir Trausta Ólafsson Í Leikhúsi nútímans rekur Trausti hugmyndir og hugsjónir frumkvöðla í leikhúsi Vesturlanda allt frá miðri nítjándu öld og fram yfir aldamótin tvö þúsund. List og fagurfræði leikstjóra, leikskálda og hönnuða eru gerð skil og því lýst hvernig þróun leikhússins helst í hendur við sögu […]

Þingkonurnar á stóra sviði Þjóðleikhússins

thingkonurnar

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er Þingkonurnar eftir Aristófanes í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Þingkonurnar er eitt frægasta verk forngríska gamanleikjaskáldsins Aristófanesar og var frum­sýnt um 392 f.Kr. á miklum kreppu­tímum í stjórnmálum Aþenuborgar. Þessi ærslafulli gamanleikur Aristófanesar minnir okkur á að leikhúsinu er ekki einungis ætlað að vera musteri tungunnar heldur einnig vígvöllur hugmyndanna. Frumsýning verður þann 26. […]

Augasteinn í Tjarnarbíói

augasteinn2

Leikhópurinn Á senunni undirbýr nú sýningar á leiksýningunni Ævintýrið um Augastein, sem frumsýnd var fyrir 11 árum. Í fyrra urðu kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson tók þá við af Felix Bergssyni, sem hafði borið hana uppi frá byrjun. Tvær sýningar verða um næstu helgi, laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. desember kl. 15:00. Sýnt […]

Óskabörn ógæfunnar frumsýna Nóttin var sú ágæt ein

nottin_var_su_agaet_ein

Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna miðvikudaginn 11. desember kl. 20. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetrator, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummáli The Night Before Christmas. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er aðeins rétt rúmur klukkutími að lengd. Hún er tilvalin fyrir þá sem vilja taka sér örlitla upplyftingu frá […]

Síðustu sýningar á Stóru börnunum

storu_bornin

Dagana 6. og 7. desember verða síðustu sýningar Lab Loka á leikritinu Stóru börin eftir Lilju Sigurðardóttur í Tjarnarbíói. Stóru börnin fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar. Þó verkið hafi nokkuð hefðbundna leikhúsumgjörð er umfjöllunarefnið nýstárlegt og varpar fram spurningum sem vel eiga heima í nútímanum. Er ástin einungis einhvers virði ef hún er […]

Möguleikhúsið sýnir Aðventu

adventa13

Möguleikhúsið sýnir einleikinn Aðventu, sem byggður á sögu Gunnars Gunnarssonar, í Tjarnarbíói dagana 8. og 15. desember kl. 20. Í sýningunni er unnið eftir aðferðum frásagnarleikhússins þar sem einn leikari, Pétur Eggerz, stendur á sviðinu, flytur söguna og bregður sér jafnframt í hlutverk helstu persóna. Þá skipar hljóðmynd stóran sess í sýningunni og á þátt í […]

Jeppi á Fjalli flytur í stærra húsnæði

jeppi2

Jeppi á Fjalli hefur notið mikilla vinsælda á Nýja sviði Borgarleikhússins. Þegar er búið að selja yfir 50 uppseldar sýningar á verkinu. Fyrirhugað var að ljúka sýningum fyrir jól en til að bregðast við hinni miklu eftirspurn hefur verið ákveðið að framlengja sýningartímabil út janúar og samhliða því að færa sýninguna á stærra svið. Sýningin […]

Tvö hundruð uppseldar sýningar

leitin_2013

Sýningar á aðventuleikritinu Leitinni að jólunum hefjast að nýju í Þjóðleikhúsinu um næstu helgi, en þá verður sýnd tvöhundruðasta sýningin á verkinu. Vinsældir sýningarinnar eru með eindæmum, en hún er nú sýnd níunda leikárið í röð og margir gestir koma í Þjóðleikhúsið á aðventunni ár eftir ár, til að fyllast gleði og anda jólanna. Höfundur […]

Kemurrr’á deit?

Kemurru_200x150

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir nýtt frumsamið leikverk, sunnudaginn 24. nóv. kl. 20.00. Verkið ber heitið Kemurr’á deit? og var það samið og unnið í hópvinnu undir stjórn leikstjórans Ástbjargar Rutar Jónsdóttur. Unglingadeild LK hefur komið víða við á undanförnum árum og grandskoðað ýmislegtí mannlífinu og utan þess svo sem blóðsugur, Facebook, líf unglingsins og fleira. Nú […]

Hugleikur sýnir Mér er hafið Hugleikið

kaffi_kutter1

Næstkomandi laugardag frumsýnir Leikfélagið Hugleikur stuttverkadagskrá sem hlotið hefur nafnið Mér er hafið Hugleikið. Höfundar leikfélagsins hafa leitað til hafsins eftir innblæstri og afraksturinn er fjögur leikverk þar sem söngur, seiður, ilmur og hættur hafsins eru í forgrunni. Alls verða sýndar tvær sýningar, 23. og 24. nóvember kl. 20 í leikhúsinu að Eyjarslóð 9. Aðgangseyrir […]

Allra síðustu sýningar á Hjartaspöðum

hjartaspadar3

Nú um helgina sýna Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið síðustu tvær sýningarnar á hinu vinsæla verki Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja grímuverðlauna árið 2013. Sýningarnar eru laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. nóvember og hefjast kl. 20. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.

Sýningum líkur á Makalausri sambúð

makalaus_sambud

Leikfélag Ölfuss sýnir nú síðustu sýningar á Makalausri sambúð eftir Neil Simon í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Síðustu sýningarnar verða föstudaginn 22. nóvember og  laugardaginn 23. nóvember og hefjast báðar kl. 20.  Sýnt er í Versölum (Ráðhúsi Ölfuss).

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonuna

sagnakonan

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonan eftir Óskar Guðmundsson í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi. Leikgerðin er unnin af leikstjóranum Jakobi S. Jónssyni og leikhópnum. Frumsýningin verður föstudaginn 22. nóvember kl. 20. Lífshlaup Guðnýjar Böðvarsdóttur frá Görðum á Akranesi, móður Snorra Sturlusonar, er um margar sakir merkilegt og hugmyndin að gera lífi hennar stutt skil í leikþætti […]

Arnar Jónsson fær ekki að hætta

sveinsstykki

Bætt hefur verið við tveimur aukasýningum á Sveinsstykki, einleik Arnars Jónssonar í Þjóðleikhúsinu. Sýningarnar verða 5. og 15. desember. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Að sýningunni stendur Hið lifandi leikhús í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Þess má geta að Þjóðleikhúsið hefur raunar ekki alveg sleppt hendinni af Arnari Jónssyni, en hann mun stíga á svið í Eldrauninni […]