Er á meðan er í Félagsheimilinu Borg

Leikfélagið Borg frumsýndi á dögunum gamanleikritið Er á meðan er eftir Moss Hart og Georg S.Kaufman í þýðingu Sverris Thoroddsen. Leikstjórar eru Jónmundur Grétarsson og Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Leikritið gerist á heimili sveitafjölskyldunnar á bænum Björk, heimili Mörtu Vilmundsdóttur. Í stofunni situr fólk og borðar, semur leikrit, snákar eru hafðir þar sem gæludýr, listdans æfður, leikið á Xýlófón og stunduð prentiðn. […]

Leiklistarskóli BÍL 2016

Starfstími skólans árið 2016 verður frá 4. til 12. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl. Í sumar verða þrjú námskeið í boði hvert með sínu sniði og kennarana þekkjum við vel af góðu einu. Ágústa Skúladóttir verður með sitt sívinsæla byrjendanámskeið fyrir nýliða. Rúnar Guðbrandsson […]

MAMMA MIA! í Borgarleikhúsinu

MAMMA MIA! verður frumsýnd 11. mars á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir og aðalhlutverk eru í höndum Jóhönnu Vigdísar Arnardóttir, Helga Björns, Val Freys Einarssonar, Halldórs Gylfason, Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur og margir fleiri glæsilegir leikarar, dansarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunni. Yfir 54 milljónir manna um allan heim hafa hrifist með […]

Síðustu sýningar í Tjarnarbíói

Nú fer hver að verða síðastur að sjá nokkrar frábærar sýningar í Tjarnarbíó. Á næstu dögum fara fram síðustu sýningar á eftirfarandi verkum: Lífið Grímuverðlaun fyrir Barnasýningu ársins 2015 13. mars, kl. 13:00 (Allra síðasta sýning) Old Bessastaðir 10. mars, kl. 20:30 19. mars, kl. 20:3o Gripahúsið 11. mars, kl. 20:30 20. mars, kl. 20:30 […]

Óþarfa offarsi í Logalandi

Ungmennafélag Reykæla í Borgarfirði frumsýnir næstkomandi föstudag, 4. mars, leikritið Óþarfa offarsa eftir bandaríska leikarann og leikskáldið Paul Slade Smith. Leikritið er farsi eins og nafnið bendir til og skartar hvorki fleiri né færri en átta hurðum eins og góðum farsa sæmir. Verkið var fyrst frumsýnd árið 2006 í Bandaríkjunum og hefur verið sett upp […]

Trúðanámskeið Rafaels Bianciotto

Dagana 8. -13. mars nk. mun franski trúðameistarinn Rafael Bianciotto halda sín einstöku trúðanámskeið í Dómhúsinu í Reykjavík. Rafael er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur kennti trúðatækni við Listaháskóla Íslands auk þess að leikstýra við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Núna síðast leikstýrði hann Sókrates sem sýnt var við góðan orðstír í Borgarleikhúsinu. Rafael heldur […]

Þrjú leikrit með einum leikara

Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur sannarlega vakið athygli fyrir að fara sínar eigin leiðir. Eitt árið sýndi leikhúsið vestfirska verðlaunaleikinn Gísla Súrsson í sólarhring. Nú er enn eitt kómíska ævintýrið í loftinu. Því Kómedíuleikhúsið ætlar að sýna þrjá einleiki sama kveldið og ekki nóg með það heldur er sami leikari í þeim öllum. Sýningarstaðurinn er Félagsheimilið […]

Bjart með köflum í Freyvangi

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld söngleikinn Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Bjart með köflum er söngleikur með tónlist frá hippatímabilinu. Í sýningunni eru lög á borð við; Leyndarmál, Glugginn, Dimmar rósir, Ég elska alla, Undarlegt með unga menn og fleiri lög frá því tímabili. Sögusviðið er líka frá þeim tíma. Jakob […]

NEATA stuttverkahátíðin í Færeyjum

Stuttverkahátíð NEATA (II Official NEATA Short Play Festival) verður haldin í Þórshöfn í Færeyjum 7. og 8. október 2016. Reglur og upplýsingar fyrir umsókn: – Hátíðin verður haldin í Færeyjum dagana 7. og 8. október 2016 – Hvert aðildarland má koma með mest 3 stuttverk – Öll verkin verða að vera nýskrifuð – Hvert verk […]

Gripahúsið í Tjarnarbíó

Nýtt, íslenskt leikverk um hina íslensku bjartsýni. Frumsýnt í Tjarnarbíó föstudaginn 26. febrúar. Gripahúsið er nýtt íslenskt leikverk eftir Bjartmar Þórðarson. Verkið er unnið frá upphafi til enda í Tjarnarbíó en Bjartmar skrifaði verkið í rithöfundavinnustofu sem Tjarnarbíó býður upp á fyrir sviðshöfunda. Gripahúsið er svört kómedía og samfélagsrýni sem fjallar um þá hringrás staurblindrar bjartsýni […]

Kirsuberjagarður á bökkum Ölfusár

Leikfélag Selfoss Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov. Þýðing Jónas Kristjánsson. Leikstjórn Rúnar Guðbrandsson Það var hátíðleg stemming í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi á frumsýningu á Kirsjuberjagarðinum 19. feb. s.l. Það heyrðist strax á samræðunum í anddyri leikhússins að hér voru kröfuharðir áhorfendur á ferð. Þegar boðið er upp á sjálfan Tsjekhov og Rúnar Guðbrandsson […]

Skugga-Baldur sviðsettur í Reykjavík

Ný leikgerð byggð á skáldsögunni Skugga-Baldur eftir Sjón verður frumsýnd í Hafnarhúsinu 4. mars. Leikgerðin er skrifuð af Kamilu Polívková, sem leikstýrir verkinu, og Teru Hof sem einnig er leikari verksins. Aðrir sem koma að listrænni hlið verksins eru m.a. myndlistar- og tónlistarmennirnir Jón Sæmundur og Ryan van Kriedt og Sindri Ploder, ungur listamaður með […]

Hleyptu þeim rétta inn

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Hleyptu þeim rétta inn fimmtudaginn 25. febrúar nk. Unglingsstrákurinn Óskar er einmana og vinalaus, og lagður í gróft einelti í skóla. Þegar hin dularfulla Elí flytur inn í íbúðina við hliðina á honum, þar sem hann býr einn með móður sinni, umturnast tilvera hans. Þegar undarlegir og óhugnanlegir atburðir fara að eiga sér stað […]

Dýrin frumsýnd í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner í Leikhúsinu, Austurmörk 23, Hveragerði, laugardaginn 20. febrúar klukkan 14.00. Leikstjóri er María Pásldóttir og píanóleikari er Guðmundir Eiríksson. Frumsýning laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00 2. sýning sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 3. sýning laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00 4. sýning laugardaginn 27. febrúar kl. 17.00 […]

Illska í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 18. febrúar frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við Óskabörn ógæfunnar verkið Illsku sem unnið er upp úr samnefndri skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl.  Verkið er sýnt á Litla sviðinu. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson. Leikarar eru Hannes Óli Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikmynd gerir Brynja Björnsdóttir og búninga gerir Guðmundur Jörundsson. Agnes er […]

Kirsuberjagarðurinn á Selfossi

Leikfélag Selfoss æfir nú af fullum krafti Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov í þýðingu Jónasar Kristjánssonar. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og er þetta annað verkið sem Rúnar setur upp með LS. Alls koma um 25 manns að sýningunni, þar af eru 16 leikarar og tveir leikandi hljóðfæraleikarar. Það er sérlega gaman frá því að segja að meðal […]

Dýrin í Hálsaskógi á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner, laugardaginn 13. febrúar. Jenný Lára Arnórsdóttir leikstýrir og Sigurður Illugason er tónlistarstjóri. Æfingar hafa staðið yfir frá því nóvember með góðu hléi í desember. Um 20 leikarar taka þátt í sýningunni um Dýrin sem allir þekkja. Áætlað er að sýna þrisvar í viku fram að páskum. […]

Brúðkaup í Aratungu

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir þann 5. febrúar í Félagsheimilinu Aratungu leikritið „Brúðkaup“ eftir Guðmund Ólafsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Æfingar hafa staðið yfir síðan fyrir jól og leikhópurinn er loks að sjá takmarkið fyrir augum sér með frumsýningunni. Leikritið er fjölskyldu-gaman-drama þar sem ýmislegt gengur á og er góð lýsing á brúðkaupi eins og […]

Leikfélag Hörgdæla æfir Með vífið í lúkunum

Á nýju ári hófust æfingar hjá Leikfélagi Hörgdæla á leikverkinu með „Vifið  í lúkunum“ eftir Ray Cooney. Leikverkið er gamanleikur af bestu gerð og fjallar um leigurbílstjóra sem heldur tvö heimili og tvær eiginkonur. Líkt og fyrirséð er kemst bílstjórinn í margvísleg vandræði við að viðhalda tvöföldu líferni sínu og spynnast inn í vef hans […]

Leikminjasafnið í Iðnó á Safnanótt

Leikminjasafn Íslands stendur fyrir uppákomu og kynningu í Iðnó á Safnanótt kl. 19-23 föstudaginn 5. febrúar  en segja má að Iðnó sé einhver elsti safngripur í leiklistarsögu Íslands. Húsið var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897 […]

Stræti Halaleikhópsins – rýni

Stræti eftir Jim Cartwright Halaleikhópurinn Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Trausti Ólafsson rýnir  Sautján leikarar í meira en helmingi fleiri hlutverkum stíga fram í leikrými Halaleikhópsins í Hátúni 12 og bjóða áhorfendum upp á sýningu á leikriti um líf fjölda fólks sem býr við sömu götuna í breskri borg. Jim Cartwright heitir höfundur leikritsins og fyrir um […]

Klókur ertu, Einar Áskell – sýningum að ljúka

Aðeins fjórar sýningar eftir!  Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu. Sögurnar um hinn bráðskemmtilega og uppátækjasama snáða Einar Áskel hafa lengi átt vinsældum að fagna, og brúðusýning Bernds Ogrodniks sem er byggð á tveimur þeirra hefur notið mikillar hylli hjá yngstu kynslóðinni. Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Áskels og […]

Soundpainting í fyrsta sinn hérlendis

Soundpainting er alþjóðlegt táknmál sem notað er í listsköpun tónlistarmanna, leikara og dansara. „Hljóðmálarinn“ notar hreyfingar til að eiga samskipti við listamenn á sviði – hann myndar hljóð, orð, hreyfingar og rými sem eru einstök í hverju verki. Höfundur aðferðarinnar er tónskáldið Walter Thompson, sem bjó það til í New York fyrir 40 árum. Í dag […]

Stræti, frumsýning hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn og leikgerð Guðjóns Sigvaldasonar 29. janúar kl. 20:00 í Halanum, Hátúni 12, Reykjavík. Stræti er átakasaga með kómísku ívafi og fjallar um fólk sem býr við sömu götu. Aðstæður þeirra markast af efnislegri óvissu, firringu og brotnum samskiptum. Þar eiga allir sína drauma sem halda mörgum […]

Dýrin í Hálsaskógi í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Maríu Pálsdóttur.  Áætlað er að frumsýna 20.  febrúar ef allt gengur upp. Leikarar eru rúmlega 20 og eru þeir á ýmsum aldri,  reyndir í bland við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu. Mikka ref og Lilla klifurmús leika nú í […]

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Miðvikudaginn 27. janúar kl. 10.00 verður opinn samlestur á nýju verki Tyrfings Tyrfingssonar, Auglýsing ársins. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, […]

Sokkabandið sýnir Old Bessastaðir

OLD BESSASTAÐIR er glænýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur í leikstjórn Mörtu Nordal sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói fimmtudaginn 4. febrúar. Leikhópurinn Sokkabandið stendur að sýningunni en hópurinn er þekktur fyrir uppsetningu nýrra verka sem tala beint inn í samtíma okkar. Í félagsskap þriggja grátbroslegra kvenna sem undirbúa róttækar aðgerðir er velt upp spurningum um það […]

Umhverfis jörðina í Þjóðleikhúsinu

Skáldsagan Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne hefur notið gífurlegra vinsælda víða um heim allt frá því hún kom út árið 1873. Karl Ágúst og Siggi Sigurjóns hafa nú samið ævintýralegan, nýjan söngleik byggðan á verkinu með fjölda nýrra og skemmtilegra laga eftir Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben úr Skálmöld. Frumsýning er 23. […]

Síðustu sýningar í Halanum

Halaleikhópurinn, sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra, sýnir um þessar mundir „Söguna af Joey og Clark“ sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt í […]

SKALLAGRÍMSSON – Snýr aftur

Í tilefni af 10. starfsári Landnámssetursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Benedikt frumsýndi einleikinn við opnun Landnámssetursins 13. maí 2006 og sló sýningin algjörlega í gegn. Árið eftir hlaut Benedikt þrjár Grímu tilnefningar fyrir sýninguna og vann 2 Grímur fyrir besta handrit og besta leik í aðalhlutverki. […]

Flóð í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu heimildaverkið Flóð eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors í leikstjórn Björns Thors. Leikarar eru þau Kristbjörg Kjeld, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Jensson og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Árið 1995 féll stórt snjóflóð á bæinn Flateyri á Vestfjörðum. Flóð er heimildaverk byggt á þessum atburðum. Á síðasta ári […]

Samfarir Hamfarir í Tjarnarbíói

Samfarir Hamfarir er nýtt sviðlistaverk eftir Natan Jónsson og Þórunni Guðlaugs í uppsetningu Leikfélagsins Hamfarir. Allt gengur á afturfótunum hjá Þórunni. Við ferðumst inn í hugarheim hennar en nýliðnir atburðir hafa þvingað hana til þess að gera upp fortíð sína. Hún reikar úr einni minningu yfir í aðra þar sem samskipti hennar við hitt kynið […]

Leiklistarskólinn Opnar dyr auglýsir

Ný námskeið á nýju ári. Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja skemmta sér, losa um hömlur og fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik. Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur það að markmiði að gefa fullorðnu fólki tækifæri til að kynnast leikrænni tjáningu í afslöppuðu og öruggu umhverfi. Leiklistarnámskeiðið býður uppá skapandi leiklist og sjálfstyrkingu. Meðal […]

Hver er hræddur við Virginíu Woolf?

Föstudaginn 15. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu leikverk Edward Albee, Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Leikarar eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Eysteinn Sigurðarson. Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – […]

Nýtt leikskáld Leikritunarsjóðs LR

Tilkynnt var um val á nýju leikskáldi Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Frú Vigdís Finnbogadóttir, stjórnarformaður Leikritunarsjóðs tilkynnti Sölku Guðmundsdóttur sem næsta leikskálds Borgarleikhússins. Alls sóttu 39 um starfið. Fjögur leikskáld hafa þegar starfað á vegum leikritunarsjóðsins með prýðilegum árangri, Auður Jónsdóttir árið 2009 og Jón Gnarr var leikskáld hússins […]

Frami, aukasýningar í janúar

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann […]

Uppfærsla á vefnum

Leiklistarvefurinn verður uppfærður síðar í kvöld og verður niðri á meðan. Ekki er búist við að uppfærslan taki langan tíma.

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Á morgun, þriðjudaginn 5. janúar kl 12:45 verður opinn samlestur á Mamma mia í forsal Borgarleikhússins.  Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 12. og 13. mars 2016. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2016. Rose Bruford var valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda 2013 og 2014 bruford.ac.uk […]

Jólakveðja

Lokað frá og með 22. desember til 4. janúar.