Elska – ástarsögur Norðlendinga
Skemmtilegt heimildarverk sem vermir manni um hjartarætur. Frumsýnt 11. nóvember í Hofi á Akureyri. Ástarsögur dynja á okkur – endalaust; ýmist óendurgoldnar ástir eða skammlífar. Flestar eiga þær það sameiginlegt að enda ekki vel. En hvað með sögurnar sem enda vel, eða ganga vel? Hvernig eru þær sögur og hvar er þær að finna? Leikhópurinn Artik […]
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu
Þriðjudaginn 1. nóvember kl 13 verður opinn samlestur á verkinu Ræman eftir Annie Baker. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói
Pörupiltar frumsýna Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói föstudaginn 4. nóvember. Einlæg og opin sýning þar sem flókin tilfinningasambönd karlmanna eru afhjúpuð. Og svo fer allt í fokk .. Sýning fyrir allar konur sem vilja skilja karlmenn.. eða skilja við karlmenn. Eftir að hafa sýnt Kynfræðslu Pörupilta í fjögur ár í Borgarleikhúsinu eru strákarnir mættir í […]
Extravaganza í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 28. október kl. 20:00 frumsýna Borgarleikhúsið og Leikhópurinn Soðið svið verkið Extravaganza á Nýja sviðinu. Um er að ræða nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikstjóri er Ragnheiður Skúladóttir. Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni […]
Skólalagið
Í tilefni 20 ára afmælis Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2017 hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um skólasöng. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að fylla út formið hér að neðan og senda inn fyrir 15. febrúar 2017. Keppendur verða að vera reiðubúnir að sjá um flutning á framlagi sínu á afmælishátíð […]
Sótarar óskast!
Ópera Vestfjarða vinnur nú að uppsetningu hinnar bráðskemmtilegu og ævintýralegu barnaóperu Litli sótarinn. Óperan er eftir Benjamin Britten og er í snilldarþýðingu Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar. Í stuttu máli fjallar Litli sótarinn um piltinn Bjart. Sökum fátæktar verða foreldrar hans að selja hann frá sér. Kaupandinn er hinn illkvittni sótari Surtur. Þegar svo sótarinn smái festist […]
Stíflan brestur – Stuttverkadagskrá LS og LÖ
Síðasta vor héldu Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss sameiginlegt leikritunarnámskeið. Á námskeiðið mættu 14 upprennandi leikskáld og skrifuðu, lásu og skemmtu sér undir handleiðslu Karls Ágústar Úlfsonar. En leikrit eru ekki rituð til að safna ryki í skúffum og tölvum og því var ákveðið að skella í stuttverkadagskrá og setja nokkur verkanna á svið. Stuttverkin […]
Vorverkefni Leikfélags Kópavogs – leiksmiðja
Leikfélag Kópavogs boðar til leiksmiðju til undirbúnings uppsetningu á nýju leikverki eftir áramót. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Tilefnið er 60 ára afmæli félagsins á leikárinu. Leiksmiðjan verður haldin mið. 26. og fim. 27. okt. kl. 19.00-22.30 og lau. 29. kl. 9.30-12.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast skráið ykkur hér. […]
Allt veður er gott veður
Skemmtileg leit að sumrinu í Kópavogi Leitin að sumrinu er nýtt íslenskt barnaleikrit sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 12. október. Leikararnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og leikstýrðu. Leikmynd er unnin af leikhópnum með aðstoð Klæmint Henningsson Isaksen. Um búninga sá Dýrleif Jónsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um […]
Úrval af förðunarvörum fyrir Hrekkjavökuna
Leikhúsbúðin selur úrvals förðunarvörur sem þú færð hvergi annars staðar á Íslandi. Hér eru nokkur dæmi: Vatnslitirnir frá Grimas eru landsfrægir fyrir gæði, þeir fást í yfir 50 litum og þremur stærðum. Þeir fást líka í 6, 12 og 24 lita boxum, bæði mattir og glansandi. Fljótandi latex fæst í 100 ml., 500 ml. og 1.000 ml. flöskum. […]
Leitin að sumrinu hjá Leikfélagi Kópavogs
Leikfélag Kópavogs frumsýnir á laugardaginn barnaleikritið Leitin að sumrinu, sem samið er, leikstýrt og leikið af þeim félögum Ástþóri Ágústssyni, Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni og Magnúsi Guðmyndssyni. Hér er á ferðinni fjörug, fræðandi og skemmtileg leiksýning sem er sérstaklega ætluð yngstu áhorfendunum – og þeim sem eru ungir í anda. Leikritið er sýnt í Leikhúsinu, Funalind […]
Hannes og Smári í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 7. október kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Hannes og Smára á litla sviðinu. Verkið er eftir Halldóru Geirharðsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Jón Pál Eyjólfsson. Jón Páll leikstýrir og Brynja Björnsdóttir gerir leikmynd og búninga. Hannes og Smári, „annað sjálf“ okkar kraftmiklu leikkvenna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, í hárbeittum nýjum gamanleik. Félagarnir landsfrægu […]
Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug sunnudaginn 2. október kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Þér og öllum vinum þínum er boðið. Hugarflug er fyrst og fremst tilraunverkefni þar sem félagsmönnum leikfélagsins jafnt sem öðrum eru gefnar nokkuð frjálsar hendur til að setja upp stutt verk, flytja tónlist, ljóð eða annað í svipuðum dúr. Þar […]
ENGI – Töfrandi brúðusýning
Sunnudaginn 2. október kl. 15:00 verður brúðuleikritið ENGI sýnt í Tjarnarbíói. Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough. Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi og aðeins einu sinni í […]
Ársrit 2015–16 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2015–2016 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með […]
Barna- og unglinganámskeið að hefjast
Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga hefjast hjá Leikfélagi Kópavogs mán. 26. sept. og standa fram í desember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Hámarksfjöldi er 10 á hvort námskeið. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum […]
Blái hnötturinn í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 24. september kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í nýrri leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson. Kristjana Stefánsdóttir semur nýja tónlist við verkið, Chantelle Carey er danshöfundur og 22 börn svífa um á stóra sviðinu. Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau […]
Snertu mig – ekki! í Kópavogi
Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson Leikmynd Þorleifur Eggertsson Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru en hún kemur þó ekki við sögu í leikverkinu, umfjöllunarefnið er þvert á móti náttúruleysi, nánar […]
Fjaðrafok / Strange Feathers í Tjarnarbíói
Fjaðrafok er nýtt verk ætlað börnum frá 18 mánaða aldri. Verkið er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúsflokksins Fidget Feet. Þessir hópar sameinast nú í fyrsta sinn og vinna nýja blöndu af loftfimleikum og dansi sérstaklega ætlaða yngstu kynslóðinni. Fjaðrafok fjallar um tvo fuglsunga, en fylgst er með þeim frá því að þeir klekjast út […]
Samlestur á Extravaganza í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 16. september kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Sölku Guðmundsdóttur, Extravaganza. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Nýjar spennandi vörur í Leikhúsbúðinni
Nú nálgast Hrekkjavakan óðfluga og margir örugglega farnir að velta fyrir sér gerfum og aðferðum. Leikhúsbúðin var að fá tvö frábær sett á alveg ótrúlegu verði, annars vegar Sugar Skull Kit og hins vegar Zombie Kit. Settið kostar ekki nema 6.750 kr. stk. Zombie settið inniheldur: Fresh Scratch sultublóð, 15 ml Cine-Wax 10 g 1 […]
Snertu mig – ekki!
Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra eða, eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns. Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað […]
Ubbi kóngur sækir um að fara til Monaco 2017
Þann 1. september sl. rann út frestur til að sækja um að fara með íslenska leiksýningu á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco sem haldin verður í ágúst 2017. Tvær umsóknir bárust og skipaði stjórn Bandalagsins því þriggja manna valnefnd sem skilaði af sér þann 10. september. Niðurstaða nefndarinnar er eftirfarandi: Valnefnd vegna alþjóðlegrar leiklistarhátíðar í Mónakó árið 2017 […]
SENDING eftir Bjarna Jónsson
Laugardaginn 10. september kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu nýtt verk eftir eitt okkar fremsta leikskáld, Bjarna Jónsson. Leikstjóri er Marta Nordal. Gretar Reynisson gerir leikmynd og Stefanía Adolfsdóttir búninga. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist í Palestínu og Bubbi Morthens túrar með Egó um landið til þess að kynna nýjustu […]
Sóley Rós ræstitæknir
Frumsýningin í Tjarnarbíói laugardaginn 10. september kl. 20.30. Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan. Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún […]
Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum
Byrjendanámskeið í sviðsbardagalistum hefst sunnudaginn 11. september. (5 skipti, 17 klst.) Staður: Dansverkstæðið, Skúlagata 30, Reykjavík. Tími: Sunnudagar kl. 12:00-15:0o (engin æfing 2. okt) Lokaæfing 16. okt. 12:00-17:00 Verð: 11.500 Kennari: Ine Camilla Bjørnsten Takmarkað pláss! Hafið samband á ahaettuatridi@arcticaction.no Nánari upplysingar um námskeiðið á ensku: Beginner workshop in stage fighting over 5 Sundays (17 hours), 11.september – 16.oktober. […]
Opið hús hjá Borgarleikhúsinu og nýtt leikár kynnt
Laugardaginn 3. september opnar Borgarleikhúsið allt upp á gátt og býður alla velkomna í heimsókn milli klukkan 13:00 og 16:00. Að venju verða skoðunarferðir um húsið, innlit á æfingar og atriði á Stóra sviðinu. Villi vísindamaður mun kynna dagskrána í forsalnum. Hannes og Smári taka lagið og Lalli töframaður og ofurhetjurnar Óður og Flexa leggja […]
Act alone leiklistarhátíðin sett í 13. sinn
Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin í þrettánda sinn 11. – 13. ágúst næstkomandi. Hátíðin er haldin í sjávar- og einleikjaþorpinu Suðureyri við Súgandafjörð. Eins og nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð einleiknum og er eina sinnar tegundar á landinu – ef ekki bara á öllum Norðurlöndunum. Margt er fleira einstakt við Act […]
Einleikur í Tjarnarbíói
“Barry and his Guitar“ er söngleikur á ensku þar sem leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Bragi Árnason fer með öll hlutverkin í eigin verki. Aðeins ein sýning í Tjarnarbíói, laugardaginn 13. ágúst kl. 20:30. Við kynnumst Barry, feimnum en viðkunnalegum ungum draumóramanni, sem vinnur á kaffihúsi í London. Hann bæði syngur og spilar á gítar. Einn […]
Auglýst eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem áætlað er að verði fjölskyldusýningin Kardemommubærinn. Æfingatímabil verður u.þ.b. frá miðjum september fram í byrjun nóvember. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 28. ágúst nk.
ASS KOMBAT Í Tjarnarbíói
Sirkús- og leiksýningin ASS KOMBAT í Tjarnarbíói 5. ágúst kl. 20:30. Sýningin ASS KOMBAT berst gegn kynbundnu ofbeldi með gleði, sirkús, nekt og alvöru. Company Patrícia Pardo frá Spáni vann sýninguna í samstarfi við Amnesty International fyrir herferðina „My Body, My Rights”. Verkið veltir upp spurningum um líkama, sjálfsmynd og kynvæðingu. Trúðsleikur og persónulegar sögur fléttast saman […]
Lokkað og daðrað á vestfirsku leikári
Við lok hverrar vertíðar er vert að kikka um öxl og skila inn aflatölum. Vissulega er leikhúsið sjóvmennska og nú í lok leikárs er komið að löndun leikhússins vestfirska. Ekki síst vegna þess að leiklistin er list augnabliksins, er hér og nú, svo tekur eitthvað annað listaverk við. Minningin gleymist þó ekki en stundin verður […]
Dracula’s Pack
Byltingin byrjar í Reykjavík – Frumsýning 23. júní í Tjarnarbíói Dracula’s Pack er sviðsverk þar sem dans, leiklist og tónlist sameinast. Hver sýning verður einstök því áhorfendur hafa áhrif á framvindu verksins. Sýningin er samin og flutt af listamönnum frá fimm löndum í leikhúsinu Tjarnarbíói. Stjórnandi sýningarinnar er Juliette Louste sem er búsett á Íslandi og […]
Grímuverðlaunin 2016 voru afhent í kvöld
Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 14. skipti við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixsson. Stefán Baldursson fyrrverandi Óperu – og Þjóðleikhússtjóri hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Njála hlaut alls 10 […]
Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu 4. júní
Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast, var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl. Ekkert að óttast verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 4. júní kl. 19.30. Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur […]
Tilnefningar til Grímunnar 2016
Njála, í leikgerð Mikaels Torfasonar, Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistarverðlaunanna, alls ellefu talsins. Sýningin ≈ [um það bil] hlaut átta tilnefningar og Mávurinn sjö. Grímuverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 13. júní næstkomandi. Hér að neðan má sjá allar tilnefningar til Grímunnar þetta árið: 1. Sýning ársins ≈ […]
Ein stök sýning á Ubba kóngi
Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður fjáröflunarsýning í Gaflaraleikhúsinu í tilefni af því að uppsetning Leikfélags Hafnarfjarðar á Ubba kóngi hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Bregenzerwald í Austurríki í júní. Miðaverð aðeins 2000 kr.Pantanir á leikfelag@gmail.comÁ annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona […]
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 25. maí klukkan 18:00. Þetta er tíunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í […]
Kompani Nord sýnir í Tjarnarbíói
Norræni leikhópurinn Kompani Nord sýnir leiksýninguna Vi, De Drunknade (We, The Drowned) í Tjarnarbíói 28. og 29. maí. Sýningin Vi, De Drunknade er uppsetning á samnefndri bók eftir danska rithöfundinn Carsten Jensen. Bókin hefur notið mikilla vinsælda, um allan heim, frá útgáfu árið 2006. Stjórnandi leikhópsins og leikstjóri sýningarinnar er finnski leikstjórinn Arn-Henrik Blomqvist. Verkið […]
16 elskendur fara til Færeyja
Sviðslistahópnum 16 elskendur hefur verið boðið að taka þátt sem fulltrúar Íslands á Norrænum sviðslistadögum sem haldnir verða í Færeyjum 24. – 28. maí næstkomandi. Þema sviðslistadaganna í ár er gagnvirkni/áhorfendaþátttaka og voru 16 elskendur því beðnir um að endurvekja sýninguna „ÍKEA ferðir“ – sem var síðast sýnd fyrir átta árum, síðsumar 2008. Sú sýning vakti […]