Hversdagslegt kraftaverk á Akureyri
Leikfélag Akureyrar frumsýndi föstudaginn 13. desember leikritið Hversdagslegt kraftaverk eftir rússneska leikskáldið Évgení Schwarz í leikstjórn landa hans Vladimir Bouchlers og þýðingu Rebekku Þráinsdóttur. Júlíus Júlíusson brá sér bæjarleið til að sjá verkið og hér má sjá hvernig honum líkaði.
Kraftmikil og flott sýning hjá Verzló
Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands frumsýndi á dögunum söngleikinn Made in USA eftir Jón Gnarr í leikstjórn Jóhanns G. Jóhannssonar. Þetta er heilmikið „show“ að hætti Verzló og hvergi til sparað í umgjörð. Söngleikjaunnandinn Lárus Vilhjálmsson brá sér á sýninguna og hér má lesa hvernig honum þótti til takast hjá Verzlingum.
Hugleikur tekinn á beinið
Hugleikur frumsýndi í gær fimmtudag dagskrá númer tvö í dagskrárröðinni „Þetta mánaðarlega“. Útsendari Leiklistarvefsins fór á stúfana og hér má sjá hvað honum fannst.
Frábær Hljómsveit í Kópavogi
Leikfélag Kópavogs frumsýndi föstudaginn 22. nóvember leikverkið Hljómsveitina eftir leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Gagnrýnandi leiklistarvefsins, Ármann Guðmundsson, stakk inn nefi og líkaði greinilega það sem hann sá. Þetta hefur hann að segja um það.
Beðið eftir Go.com air
„Höfundi og leikstjóra tekst að flétta saman þessum litlum frásögnum af töluverðu listfengi svo úr verður fínasta leiksýning.“ Gagnrýnandi Leiklistarvefsins fór á frumsýningu á Beðið eftir go.com air hjá Mosfellingum á föstudag.
Þetta mánaðarlega hjá Hugleik – október
Hugleikur hóf vetrarstarf sitt í Kaffileikhúsinu þann 14. október með fimm einþáttungum eftir fjóra félagsmenn. Þættirnir voru frumsýndir á mánudegi og önnur og jafnframt síðasta sýning var daginn eftir. Ætlunin er að bera annan slíkan skamt á borð í nóvember og þann þriðja með jólaívafi í desember. Útsendari Leiklistavefjarins var á staðnum.
Erótískur gamansplatter – Jón og Hólmfríður í Borgarleikhúsinu
Það er full ástæða að vara klígjugjarna og fólk með auðsærða blygðunarkennd við því að fara að sjá Jón og Hólmfríði – frekar erótískt leikrit í þremur þáttum eftir franska leikskáldið Gabor Rassov, því þar fljóta hverskyns líkamsvessar í stríðum straumum. Hinir, sem harðari eru af sér og hafa gaman af sótsvörtum absúrdhúmor, ættu hins […]
Einelti í Andríki
Ármann Guðmundsson skellti sér í Borgarleikhúsið á frumsýningu laugardaginn 21. september og horfði gagnrýnum augum á þennan breska barnasöngleik. Lesið hvað hann hafði að segja um verkið.
Gleðileg hátíð á Hallormsstað – Júlíus gagnrýnir
Samfara ársfundi Bandalagsins á Hallormstað 9.-12. maí var haldin einþáttungahátíð. Júlíus Júlíusson segir sitt álit á þeim sýningum sem þar var boðið upp á.
Leikið af lyst í Hallormstaðaskógi – Lárus gagnrýnir
Samfara ársfundi Bandalagsins á Hallormstað 9.-12. maí var haldin einþáttungahátíð. Lárus Vilhjálmsson segir sitt álit á þeim sýningum sem þar var boðið upp á.
Mergjaðir tónleikar í Mósó
Boðið var upp á tónleika leikhúsi þeirra Mosfellinga sunnudaginn 9 desember. Lalli Vill var þar og hafði þetta að segja.
Í heimsókn hjá Hugleik
Hugleikur bauð fólki í heimsókn í Iðnó og þar voru allar sortir í boði. Hörður Sigurðarson fór og gæddi sér á veitingunum.
Hinn eini sanni ofleikur
Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir gamanleikritið Hinn eini sanni eftir Tom Stoppard í Hjáleigunni, Kópavogi.Ármann Guðmundsson hefur skrifað umfjöllun um sýninguna
Tíu eftirminnileg kvöld
„Góð leiksýning gleymist ekki svo glatt….“ Þorgeir Tryggvason rifjar upp sín eftirminnilegustu kvöld í leikhúsinu og setur upp topp tíu lista.
Með báðar hendur fullar
Sumt fólk þolir ekki farsa. Það þolir ekki að horfa á persónur ljúga sig út úr vandræðum og koma sér með því í enn verri klípu. Það þolir ekki fullt af hurðum, misskilin símtöl og heimskar löggur. Þeir sem kannast við sig í ofangreindri lýsingu ættu ekki að fara að sjá Með vífið í lúkunum […]
Úti í móa
Leikfélagið Sýnir starfar á landsvísu og gerir því gjarnan stykki sín á sumrin. Síðasta vetur efndi félagið til örleikritasamkeppni á meðal félagsmanna. Afraksturinn var síðan settur upp og sýndur víða um land í framhaldinu.