Hin endanlega hamingja, aukasýning

Ákveðið hefur verið að bæta við einni sýningu á leikritinu "Hin endanlega hamingja" eftir Lárus Húnfjörð vegna mikillar aðsóknar. Sýningar verða því sem hér segir:   Fimmtudagur 8. desember kl. 20:00 Uppselt Laugardagur 10. desember kl. 20:00 Nokkur sæti laus Föstudagur 16. desember kl. 20:00 AUKASÝNING Miðapantanir í síma 848 0475   "Það er víst […]

90 ára 19. desember

Edith Piaf, ein frægasta söngkona heims, hefði orðið 90 ára gömul 19. desember nk. Af því tilefni verður flutt í Þjóðleikhúsinu söngdagskrá um Edith Piaf úr samnefndri sýningu leikhússins.

Síðustu sýningar fyrir jól

Leikfélag Keflavíkur hefur undanfarið verið að sýna leikritið Trainspottting, eftir Harry Gibson byggt á sögu Irwin Welsh. Þýðing er eftir Megas en leikstjóri er Jón Marinó Sigurðsson.

Það besta við jólin

Út er kominn hljómdiskurinn „Það besta við jólin“ eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Diskurinn hefur að geyma fimmtán ný íslensk jólalög sem Þórunn hefur samið á síðustu árum. Þórunn hefur verið í leikfélaginu Hugleik frá árinu 1997 og hefur mikið af tónlistinni áður verið flutt á vettvangi félagsins. Þórunn hefur einnig samið mikið af tónlist og leikritum […]

Þetta er strútur, skiluru!

Leikhópurinn Lopi frumsýndi leikverkið: ÞETTA ER STRÚTUR, SKILURU! í Mánagarði miðvikudaginn 30. nóvember. Leikverk þetta er samið af  leikstjóranum Magnúsi J. Magnússyni og leikhópnum. 16 leikarar leika í sýningunni en alls koma um 25 manns að verkinu.

Þrjár systur í Nemendaleikhúsinu

Frumsýning Nemendaleikhúss Listaháskólans á leikritinu Þrjár systur  eftir Anton Tsjekhov fer fram sunnudaginn 4. desember n.k. kl. 20.00 á Litla sviði Borgarleikhússins. Þrjár systur er annað verkefni Nemendaleikhússins í vetur en hópurinn hefur vakið athygli í haust með kraftmikilli og ögrandi sýningu á leikritinu Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson.

Sýningum að ljúka í Kópavogi

Nú eru einungis tvær sýningar eftir á leikritinu ÞAÐ GRÆR ÁÐUR EN ÞÚ GIFTIR ÞIG í leikstjórn Sigrúnar Sólar Næstsíðasta sýning er á fimmtudaginn 1. desember og síðasta sýning er sunnudaginn 4. desember. Sýningar hefjast kl. 20:00.  Miðapantanir í síma 554 1985 og á midasala@kopleik.is Frekari upplýsingar er a finna á heimasíðu félagsins.

Hugarflug á Selfossi

Þá er Leikfélag Selfoss að hefja enn eitt leikár sitt í Leikhúsinu gamla við Sigtún. Í haust var auglýst eftir þátttakendum í svonefndu Hugarflugi en þá er unnin sýning úr þeim hugmyndum sem fram koma á fyrstu vinnufundum með leikhópnum. Umsjón með þessari grasrótarvinnu hafa þær Íris Magnúsdóttir og GuðfinnaGunnarsdóttir haft mest á sinni könnu.

Brot af því besta

Upplestur og lifandi tónlist fimmtudagskvöldin 1.og 8. desember klukkan 20 í anddyri Borgarleikhússins.

Ævintýrið um Augastein

Leikhópurinn Á senunni sýnir hina margrómuðu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin.  Sýningar verða á Akureyri dagana 10. – 12. desember og í Reykjavík dagana 14. – 18. desember.  Sýningar á Akureyri eru í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.  Barnabókin Ævintýrið um Augastein […]

Athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Umsóknareyðublað vegna Athyglisverðustu áhugaleiksýningar ársins er nú tiltækt á vefnum. Eyðublaðið er í PDF-formi og áhugasamir geta hlaðið því niður með því að  hægrismella hér og vista á eigin tölvu.

Sjö heimar upphafningarinnar

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Hina endanlegu hamingju, nýtt íslenskt leikrit eftir Lárus Húnfjörð, laugardaginn 26. nóvember síðastliðinn. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur staðið öðrum félögum framar undanfarin ár í að leika sér með skilin á milli leikara og áhorfenda og sett upp nokkrar eftirminnilegar slíkar sýningar.

Fimm þúsundasti gesturinn

Leiksýningin Fullkomið brúðkaup hefur notið fádæma vinsælda frá því hún var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar þann 20. október sl. Troðfullt hefur verið á allar sýningar og til að mæta eftirspurn hefur fjölda aukasýninga verið bætt við sem allar hafa selst upp jafn óðum. Fimm þúsundasti gesturinn mun sjá sýninguna nú á seinni sýningu verksins á […]

Frumsýning hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 26. nóvember leikritið “Hin endanlega hamingja”. Höfundur og leikstjóri er Lárus Húnfjörð. “Hin endanlega hamingja” var unnin og skrifuð á æfingatímabilinu.  Freysteinn, andlegur leiðtogi Helgidóms hinnar endanlegu hamingju er horfinn á brott. Mun söfnuðurinn jafna sig á þessu áfalli? Tæklar Sigurmar nýja hlutverkið sem leiðtogi? Heldur Elínborg, ekkja Freysteins sönsum? Er […]

Leikfélag Rangæinga vekur upp drauga

Nú eru nokkur ár síðan Leikfélag Rangæinga hefur sett upp leiksýningu en þá sýndi félagið Emil í Kattholti. Nokkrir áhugasamir félagar í leikfélaginu hafa nú tekið sig saman og sett saman sýninguna Vakið upp drauga.

Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu

Nýtt aðventuævintýri eftir Þorvald Þorsteinsson, Leitin að jólunum, með tónlist Árna Egilssonar verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 26. nóvember nk. kl. 14:00. Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum fléttast inn í ævintýrið. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.

Sex í sveit á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir um þessar mundir gamanleikinn Sex í sveit, eftir Marc Camoletti í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.  Oddur Bjarni Þorgkelsson leikstýrir.  Leikritið er sýnt á Iðavöllum. Gerður hefur verið góður rómur að sýningunni en Sigurður Ingólfson var á staðnum: Ég er yfirleitt lítið hrifinn af försum með tilheyrandi hlaupum og hurðaskellum og þess vegna […]

Syngjandi skemmtilegt

Hugleikur frumsýndi Jólaævintýri, nýja leiksýningu sína í Tjarnarbíói, laugardaginn 19. nóvember. Eins og flestir vita hefur Hugleikur skapað sér sérstöðu með frumsömdum, heimatilbúnum leikverkum í gegnum tíðina og svo er einnig að þessu sinni en þó með því tilbrigði að byggt er á heimsþekktri erlendri sögu eftir einn af helstu skáldjöfrum heimsins. Okkar maður var […]

Jólaævintýri Hugleiks frumsýnt

Hugleikur frumsýnir í Tjarnarbíó Jólaævintýri Hugleiks, laugardaginn 19. nóvember kl. 20.00. Leikfélagið ræðst nú í það stórvirki að setja upp leikgerð af Jólaævintýri Dickens. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðangsefni leikhúsfólks frá því hún kom út árið 1843.  Söguna þekkja flestir, klassísk saga sem öll fjölskyldan getur notið […]

Trainspotting frumsýnt hjá Leikfélagi Keflavíkur

Föstudaginn 18. nóvember frumsýnir Leikfélag Keflavíkur verkið Trainspotting eftir Irvine Welsh í Frumleikhúsinu í Keflavík. Þýðing verksins er eftir Megas, en leikstjóri er Jón Marinó Sigurðsson. Með aðalhlutverk fer Rúnar Berg Baugsson, en þetta er hans frumraun á sviði.

Frumsýning í Hveragerði

Ástir liggja til allra átta – kramin hjörtu? Leikfélag Hveragerðis verður með kaffileikhús í nóvember í húsi félagsins, Völundi við Austurmörk.  Frumsýning verður laugardaginn 19. nóvember kl 20.30.

Sex í sveit slær í gegn á Iðavöllum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs sýnir um þessar mundir verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar. Skemmst er frá því að segja að sýningin hefur slegið í gegn eystra og uppselt var á þrjár af fjórum fyrstu sýningunum. Bætt hefur verið við aukasýningum til að anna eftirspurn.

Helgarnámskeið í bardagatækni á sviði

The Nordic Stage Fight Society (NSFS) heldur helgarnámskeið í tækni og sviðshreyfingum með langstaf í Reykjavík síðustu helgina í nóvember. Þjálfun með staf er mjög góð undirstaða undir sviðsslagsmál með hvers konar vopnum og á þetta vopn sér sögulega hefð í mörgum menningarheimum.

Ferna hjá Mosfellingum

Leikfélag Mosfellsveitar frumsýndi fjögurra þátta leikdagskrá í Bæjarleikhúsinu föstudaginn 11. nóvember. Þættirnir voru eftir tvo meðlimi félagsins þá Pétur R. Pétursson og Lárus J. Jónsson og leikstýrt af þremur innanfélagsmönnum. Leikfélagið hefur ekki lagt það í vana sinn að spreyta sig á styttri þáttum og það er vel til fundið að gefa félagsmönnum tækifæri til […]

Leiktu Betur – spunakeppni framhaldsskólanna

Stærsta leikhússportkeppni á Íslandi, Leiktu betur, verður haldin þann 11. nóv. á vegum Unglistar. Húsið opnar kl. 19.30. Keppnin fer fram í AGÓGES-salnum í Sóltúni 3. Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir.

Blóðberg í Loftkastalanum

Stúdentaleikhúsið frumsýndi fyrir skömmu leikritið Blóðberg sem byggt er á hinni þekktu kvikmynd Magnolia. Útsendari okkar leit á sýningu og hefur ritað um upplifun sína.

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir

Fjórir einþáttungar verða á fjölunum hjá  Leikfélagi Mosfellsssveitar föstudaginn 11. nóvember. Ekki einungis eru þættirnir heimasmíðaðir heldur er leikstjórn einnig í höndum heimamanna.

Hugleikur í Leikhúskjallaranum

Hugleikur býður upp á blandaða skemmtidagskrá í Leikhúskjallaranum föstudags- og laugardagskvöld, 11. og 12 nóvember undir nafninu Þetta mánaðarlega, en félagið verður með mánaðarlegar skemmtanir þar í vetur.

Nýbreytni hjá Þjóðleikhúsinu

Á þriðja þúsund manns sóttu sýningar Þjóðleikhússins um helgina. Uppselt var á nánast allar sýningar, t.a.m. sáu tæplega 1000 manns Halldór í Hollywood á Stóra sviðinu. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í Þjóðleikhúsinu að sýna leiksýningar á verkefnaskrá leikhússins aðeins í takmarkaðan tíma, en sýna hins vegar þeim mun þéttar þann tíma sem þær […]

Frumsýning í Vestmannaeyjum

12 nóvember nk. er frumsýning hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Leikritið Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson varð fyrir valinu í þetta sinn. Jón Ingi Hákonarson leikstýrir ásamt konu sinni Laufeyju Brá Jónsdóttur sem einnig sér um leikmynda- og búningahönnun.  

Námskeið hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn hefur fengið Ármann Guðmundsson til liðs við sig og ætlar í samstarfi við hann að skella á fót 20 klukkustunda leiklistarnámskeiði. Kennt verður í tvær stundir í senn og reynt að kenna 4 stundir um helgar. Fyrsta kvöldið verður haldið 8. nóvember klukkan 19:00. Á þeim fundi mun Ármann fara yfir framhaldið og finna […]

Stúdentaleikhúsið frumsýnir

Þann 5. nóvember frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Blóðberg eftir P.T. Andersson í Loftkastalanum. Í brúnni situr Agnar Jón Egilsson, en hann sér um leikstjórn og leikgerð.

Frumsýning hjá Leikfélagi Kópavogs

Þann 5. nóvember frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikritið Það grær áður en þú giftir þig sem byggt er á Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekov. Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir.

Barnadagskrá á Dalvík

Þann 5. nóvember n.k. mun Leikfélag Dalvíkur frumsýna sérstaka barnadagskrá, valin atriði úr verkum Thorbjörns Egners. Leikstjóri sýningarinnar er Arnar Símonarson.

Brim í Þjóðleikhúsinu

Margverðlaunuð sýning Vesturports, Brim eftir Jón Atla Jónasson, verður sýnd í örfá skipti í nóvember á Litla sviði Þjóðleikhússins. Þeir sem ekki hafa séð þessa mögnuðu sýningu ættu að tryggja sér sæti núna! Miðasala er hafin á netinu.

Frumsýning hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs

Sex í sveit eftir Marc Camoletti, er haustverkefni Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Iðavöllum, föstudaginn 4. nóvember kl. 20. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er öllum hnútum kunnugur á Héraði og leikstýrir þar nú í fimmta sinn. 

Frelsi frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu á föstudagskvöld. Frelsi er frumraun Hrundar í atvinnuleikhúsi. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Hvað gerir þú þegar enginn hlustar á þig? Þegar ranglætið er svo mikið að þú gætir öskrað þig hásan en þú átt þér ekki rödd? Þegar lygin er svo stór að hún kæfir lífið […]