Leikfélag Kópavogs frumsýnir ALF
Fimmtudaginn 27. apríl frumsýnir Leikfélag Kópavogs leikverkið ALF eða Andspyrnuhreyfingu ljóta fólksins. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt höfundur verksins ásamt Guðjóni Þorsteini Pálmarssyni. Sýnt er í Hjáleigunni í Kópavogi.
Leikfélag Mosfellssveitar á Hvammstanga
Laugardaginn 29. apríl klukkan 17:00 mun Leikfélag Mosfellssveitar sýna á Hvammstanga leikritið Í beinni eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur. Samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni. Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó […]
Þetta mánaðarlega Hugleiks í Þjóðleikhúskjallaranum
Fimmtudaginn 27. og sunnudaginn 30. apríl verður Hugleikur með sitt mánaðarlega prógramm í Þjóðleikhúskjallararnum. Í þetta skiptið er aðeins eitt verk á dagskrá en það er leikrit í tveimur þáttum er nefnist Lán í óláni og er eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjórar eru Sigurður H. Pálsson og Rúnar Lund.
Sérkjör fyrir systur á Systur
Leikfélagið Hugleikur sýnir þessa dagana leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu við Hlemm. Verkið fjallar um dramatíska endurfundi þriggja systra sem eiga skrautlega fortíð sem setur sterkan svip á samskipti þeirra og lífshætti. Verkið hefur fengið sterkar og góðar viðtökur, ekki síst hjá systrum, sem margar þykjast kannast við ýmislegt í samskiptum persónanna úr […]
Söngleikjanámskeið í Færeyjum
Ertu 18-25 ára og hefur áhuga á söngleikjum? Ef svarið er já, þá býður Vest-norræna ungmennaráðið til söngleikjanámskeiðs í Færeyjum í sumar.
Fiskar á þurru landi á Hólmavík
Leikritið Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen sem Leikfélag Hólmavíkur hefur verið að æfa undanfarnar vikur var frumsýnt um páskana.
Óperan Mærþöll frumflutt
Nemendur úr Tónlistarskólanum í Reykjavík frumsýna laugardaginn 22. apríl óperuna Mærþöll. Höfundur tónlistar og texta er Þórunn Guðmundsdóttir, leikstjóri er Hrefna Friðriksdóttirr og hljómsveitarstjóri Kjartan Óskarsson.
Þrek og tár í Hveragerði
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir, síðasta vetrardag, 19 apríl leikritið Þrek og Tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Jens Sigurðsson er leikstjóri og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa. 2. sýning verður 21. apríl og rennur aðgangseyrir þeirrar sýningar til hjálparsveitar skáta í Hveragerði.
The Big Cry í Kassanum
Margmiðlunar-, söng- og leiksýningin The Big Cry verður sýnd í Kassanum miðvikudaginn 12. apríl nk. kl. 21:00. Verkið, sem er gestasýning í Þjóðleikhúsinu, verður einungis sýnt þrisvar sinnum. Höfundur og flytjandi er Margrét Sigurðardóttir.
Sirkusskóli á Seyðisfirði
Fyrirhugað er að halda 10 daga sirkusskóla með nýsirkustækni fyrir leikara og annað áhugafólk eldri en 18 ára á Seyðisfirði dagana 5. – 14. júlí, ef áhugi er fyrir hendi. Leiðbeinendurnir eru faglærðir sirkus listamenn og kennarar, útskrifuð frá skóla Cirkus Cirkör sem margir kannast við. Þau hafa tekið þátt í fjölmörgum sirkussýningum og kennt […]
Leiklistarskóli BÍL 2006 – Skráningafrestur framlengdur
Vegna páskahátíðarinnar og annarra frídaga nú um miðbik aprílmánaðar hefur frestur til að skrá sig á námskeið Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga verið framlegndur til 10. maí. Enn eru laus pláss á framhaldsnámskeið í leikstjórn (Sigrún Valbergsdóttir) og sérnámskeið fyrir leikara (Steinunn Knútsdóttir). Sjá nánar hér.
Ekkert að óttast – Anímanína
Stúdentaleikhúsið frumsýndi í síðustu viku frumsamið verk sem þau kalla Anímanínu. Leikstjóri verksins er Víkingur Kristjánsson og sýnt er í Loftkastalanum. Ármann Guðmundsson brá sér á frumsýningu.
Hugleikur frumsýnir Systur
Miðvikudaginn 12. apríl frumsýnir Hugleikur leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason og hlutverkin eru höndum nokkurra af öflugustu leikkonum félagsins, þær Hulda B. Hákonardóttir, Júlía Hannam, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir. Systur verða sýndar í Möguleikhúsinu við Hlemm.
Fjöður í hattinn – Gauragangur
Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við Framhalds- og Tónlistarskóla staðarins hefur undanfarið sýnt söngleikinn Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson í lekstjórn Harðar Sigurðarsonar. Jón Garðar Bjarnason brá sér á sýningu og skrifaði um upplifun sína í fréttablaðið Eystrahorn. Skrif Jóns Bjarna eru birt hér á Leiklistarvefnum með góðfúslegu leyfi.
Þröngt leika sáttir, Hodja frá Pjort
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir um þessar mundir barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Verkið er byggt á sögu eftir Ole Lund Kirkergaard en leikgerðin er eftir Ingvar Bjarnason og Þórunni Grétu Sigurðardóttur. Sesselja Traustadóttir brá sér í gamla Lækjarskóla og horfði á verkið gagnrýnum augum.
Sýningar á Mörgu smáu í Borgarleikhúsinu
Nú er orðið ljóst hvaða leikfélög verða með sýningar á Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldin verður í Borgarleikhúsinu 5. maí nk. Átta leikfélög verða með alls 14 sýningar, vel flest samin og leikstýrð af meðlimum félagana.
Sveyk – Skopleg stríðsádeila í Brautarholti
Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði sýnir um þessar mundir verkið Sveyk – Skopleg stríðsádeila eftir Bertold Brecht í leikgerð og leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Þýðinguna gerðu Þorsteinn Þorsteinsson og Þórarinn Eldjárn. Sýnt er í félagsheimilinu Brautartungu í Lundareykjadal og hefjast sýningar kl. 21:00.
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir Blessað barnalán
Föstudaginn 7. apríl frumsýnir Leikfélag Dalvíkur gamanleikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri uppfærslunnar er Akureyringurinn Sunna Borg. Sunnu þekkja flestir fyrir störf sín hjá LA, en í gegnum tíðina hefur hún leikið þar hjá félaginu fjölda eftirminnilegra hlutverka, haldið námskeið og leikstýrt. Þetta er í fyrsta sinn er Sunna leikstýrir hjá Leikfélagi Dalvíkur.
Aukasýningar á Hungri
Ákveðnar hafa verið þrjár aukasýningar á Hungri sem Fimbulvetur ehf setti upp fyrr í vetur. Verkið hefur hlotið mikið umtal og lof og afar vel hefur selst á þær tíu sýningar sem búnar eru og um 1700 manns hafa þegar séð verkið. Fimbulvetur ehf og Borgarleikhúsið hafa nú ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á […]
Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Anímanína
Miðvikudaginn 5. apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikritið Anímanína. Verkið er samið af meðlimum Stúdentaleikhússins og Víkingi Kristjánsssyni, sem jafnframt leikstýrir. Verkið er allt það sem leikhús hefur upp á að bjóða. Söngur og dans, dramatík og furðulegheit. Sýnt er í Loftkastalanum og hefjast sýningar kl 20:00
Hvað kemur þetta okkur við?
– Um brotthvarf varnarliðsins og önnur þjóðfélagsmál – Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir umræðufundi í Leikhúskjallaranum laugardaginn 1. apríl kl. 15:00. Leiklistarsamband Íslands hefur undanfarin ár efnt til umræðufunda um leiklist og leikhússtarfsemi. Í þetta sinn eru umræðufundirnir haldnir í samstarfi við fræðsludeild Þjóðleikhússins. Yfirskrift fundanna er ,,Hvað kemur þetta okkur við?” og efni þeirra […]
Tveir tvöfaldir frumsýnt hjá Leikfélagi Húsavíkur
Laugardaginn 1. apríl frumsýnir Leikfélag Húsavíkur farsann Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney. Þýðingu verksins gerði Árni Ibsen en leikstjóri er María Sigurðardóttir. Sýnt er í Samkomuhúsinu á Húsavík og hefst frumsýning kl. 15:00.
Frumsýning á Átta konum í Þjóðleikhúsinu
Þann 31. mars verður gamanleikurinn Átta konur eftir Robert Thomas, í þýðingu og aðlögun Sævars Sigurgeirssonar, frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en um tónlistarstjórn sér Samúel J. Samúelsson.
Leikfélag Selfoss með heiðurssýningu
Þann 2. apríl nk. verður sérstök heiðurssýning á Þuríði og Kambsráninu hjá Leikfélagi Selfoss til að heiðra minningu Ólafar Österby (fædd 1. apríl 1906, lést 19. janúar 1995). Ólöf var í fyrstu stjórn leikfélagsins árið 1958 og ári seinna var hún kosinn sem formaður og gegndi því starfi í eitt ár. Hún kom margoft fram […]
Leynist kvikmyndastjarna í þér!
Sunnudaginn 2. apríl stendur Kvikmyndafélag Íslands fyrir opinni áheyrnarprufu fyrir ævintýragrínmyndina ASTRÓPÍA Í leikstjórn Gunnars B. Guðmundssonar, sem tekin verður upp í sumar. Leikarar jafnt sem áhugafólk er hvatt til að mæta í áheyrnarprufur sem standa yfir frá 10:00 til 17:00 í NEXUS hverfisgötu 103. Athugið við leitum af fólki frá 17 ára […]
Þráinn Karlsson fagnar 50 ára leikafmæli
Þráinn Karlsson hefur starfað hjá LA í fimm áratugi og var meðal þeirra leikara sem fyrst fengu fastráðningu þegar LA varð atvinnuleikhús árið 1973. Síðan þá hefur hann farið með mörg hlutverk fyrir félagið, stór og smá. Þar má meðal annarra nefna Sganarelle í Don Juan, Skrifta-Hanns í Ævintýri á gönguför, Þórð í Stalín er […]
Memento mori til Færeyja
Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur valið sýninguna Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur til að vera fulltrúi Íslands á 4. NEATA-leiklistarhátíðinni sem fram fer í Færeyjum dagana 2.-8. ágúst nk. Sýningin er eins og kunnugt er samvinnuverkefni Leikfélags Kópavogs og Hugleiks en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir.
Örleikritasamkeppni framhaldsskólanema
Mánudagskvöldið 27. mars, á alþjóðlega leikhúsdaginn, verða úrslit í örleikritasamkeppni framhaldsskólanna kynnt. Fræðsludeild Þjóðleikhússins og leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir samkeppninni. Alls bárust á þriðja tug handrita hvaðanæva að af landinu. Fimm leikrit voru valin til flutnings í Kassanum, nýju leiksviði Þjóðleikhússins. Flytjendur eru nemendur í þriðja bekk leiklistardeildar LHÍ en leikstjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. […]
Ávarp á alþjóða leikhúsdaginn 27. mars 2006
Segjum svo að manneskja standi upp í fjölmenni og heimti athygli viðstaddra þá er það ekki endilega leiklistarviðburður. En ef manneskjan fer upp á kassa er það í áttina, gæti þó verið framboðsræða eða predikun, jafnvel kynning á nýrri tannkremstegund. Ef manneskjan talar mjög hátt og tilgerðarlega, syngur og dansar eða hreyfir sig óvenjulega, klæðist […]
Gauragangur á Höfn
Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur laugardaginn 25. mars í Mánagarði. Leikritið fjallar um unglingsstrákinn Orm Óðinsson, snilling og ljóðaunnanda og samband hans við félagana, foreldrana og kennarana en þeim síðastnefndu er sérlega uppsigað við kauða af ýmsum orsökum. Leikstjóri er Hörður Sigurðarson og tónlistarstjórn annast Jóhann Morávek en hljómsveitin Ný dönsk samdi […]
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Hodja frá Pjort
Laugardaginn 25. mars kl. 17:00 frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar barna- og fjölskylduleikritið Hodja frá Pjort sem byggt er á sögu Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en leikgerðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Ingvar Bjarnason.
Leikfélag Sauðárkróks æfir Vífið
Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen, er annað verkefni Leikfélags Sauðárkróks á leikárinu og verður frumsýnt í byrjun Sæluviku Skagfirðinga sunnudaginn 30. apríl nk. Verkið var m.a. sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku leikhúsgrúppunni við fantagóðar undirtektir árið 2001 og fjallar um John nokkurn Smith sem er ósköp venjulegur maður […]
Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum eina ferðina enn
Leikfélagið Hugleikur hefur staðið fyrir mánaðarlegum skemmtidagskrám í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur undir yfirskriftinni Þetta mánaðarlega. Dagskrá marsmánaðar verður fimmtudag og sunnudag næstkomandi og hefst kl. 21, en húsið opnar kl. 20.30.
Dimmalimm sýnt í Möguleikhúsinu
Einleikurinn Dimmalimm verður sýndur í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnudaginn 26. mars. Leikurinn verður sýndur tvívegis á sunnudag kl. 14. og 16. og verða þetta einu almennu sýningarnar í Reykjavík. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur Dimmalimm á svið og hafa sýningar verið síðustu vikur í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu við góðar undirtektir. Leikurinn er byggður […]
Dagrenning æfir Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni
Leikfélag Umf. Dagrenningar í Borgarfirði er um þessar mundir að setja upp verkið Sveyk í seinni heimstyrjöld eftir Bertold Brecht. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson og er ætlunin að frumsýna þann 31. mars nk. Sýnt verður í félagsheimilinu Brautartungu. 19 leikarar taka þátt í sýningunni en 25 manns koma að sýningunni í heild. Í helstu […]
LA frumsýnir Litlu hryllingsbúðina
Föstudaginn 24. Mars frumsýnir LA stórsýningu vetrarins, söngleikinn ástsæla, Litla hryllingsbúðin. Verkið sló í gegn snemma á níunda áratugnum þegar það var frumsýnt og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Andrea Gylfadóttir. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson.
Leikfélag Hveragerðis æfir Þrek og tár
Æfingar standa nú yfir á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson hjá leikfélagi Hveragerðis. Ólafur Jens Sigurðsson leikstýrir verkinu og er það í annað sinn sem leikfélagið fær hann til starfa. Margir leikarar eru í sýningunni eða 10 karlar og 7 konur og tók nokkurn tíma fyrir leikfélagið að lokka til sín karlleikara. […]
Viltu finna milljón?
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Nú eru að hefjast æfingar í Borgarleikhúsinu á óborganlegum farsa sem hefur fengið nafnið Viltu finna milljón? Gamanleikurinn verður frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins í maí. Landslið grínara situr nú og les sjóðheitt, nýútprentað handritið í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikarar eru: Eggert Þorleifsson, Helga Braga Jónsdóttir, Marta Nordal, Þórhallur […]
Nunnulíf í Vestmannaeyjum
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir laugardaginn 18. mars leikritið Nunnulíf sem byggt er á kvikmyndinni Sister Act. Leikstjóri er Laufey Brá Jónsdóttir, kórstjóri er Helga Jónsdóttir. Sýnt er í Bæjarleikhúsinu.
Frumsýning í Frumleikhúsinu
Leikfélag Keflavíkur í samvinnu við Vox Arena, leikfélag fjölbrautaskóla Suðurnesja, vinna nú saman að nýju verkefni. Verkefnið, sem hlotið hefur nafnið: "KEFLAVÍK, ÍSLAND, ALHEIMURINN eða MAMMA ÞÍN" verður frumsýnt í Frumleikhúsinu föstudaginn 17. mars, kl 20:00.