“Er allt að verða vitlaust?”

Fimmtudaginn 8. mars verður nýr íslenskur söngleikur, Leg eftir Hugleik Dagsson og Flís, frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Leg gerist í Garðabæ í náinni framtíð. Kata er ung stúlka í fjölbraut, lífið leikur við hana, hún er sæt, sjálfstæð og hress. Á 19 ára afmælisdaginn nákvæmlega klukkan 13.30 síðdegis gerist þetta: […]

Skámáni sýnir Killer Joe

Leikhúsið Skámáni sýnir um þessar mundir verkið Killer Joe eftir Tracy Letts í Borgarleikhúsinu. Leikritið lýsir sérkennilegri fjölskyldu í Bandaríkjunum, sem býr við bág kjör en elur með sér drauma um betra líf og grípur til örþrifaráða til að sjá drauma sína rætast. Verkið hefur verið sýnt í um þrjátíu löndum og hvarvetna vakið mikla […]

Draumur í Þingborg

Að undanförnu hafa ungmennafélagar í Flóahreppi, úr Umf. Baldri, Samhygð og Vöku unnið að uppsetningu á  gamanleiknum Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson. Þessi þrjú félög sem starfa í austanverðum Flóanum eru rótgróin ungmennafélög með langa sögu og sterka hefð. Umf. Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi og Umf. Baldur í Hraungerðishreppi voru bæði […]

Emil á Hvammstanga

Hann Emil í Kattholti er kominn á Hvammstanga með öll sín skammarstrik. Að sjálfsögðu fylgir öll fjölskyldan úr Kattholti með í kaupunum og þau taka líka á móti gestum. Leikflokkurinn á Hvammstanga frumsýndi Emil í Kattholti föstudaginn 2. mars kl. 20:00 í félagsheimili Hvammstanga. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir.

Allt & ekkert frumsýnt í kvöld

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar á ÖLLU & ENGU hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið hafði í upphafi vinnuheitið EKKERT og eins og það gefur til kynna byrjaði hópurinn með EKKERT í höndunum. EKKERT handrit. EKKERT haldreipi. Það var upphafið að ÖLLU & ENGU. Hópurinn, sem er samansettur af jafnt gömlum sem nýjum meðlimum LK, hefur […]

Herranótt Molnar

Herranótt er elsta leiklistarstofnun landsins. Að leiksýningum undir þessu nafni hafa ungmenni staðið  allt frá átjándu öld. Nú setur þetta rótgróna félag upp sína 162. sýningu. Og eldist vel. Virðist satt best að segja bara ekki eldast neitt. Verkið er frá 1906, Liliom eftir Molnár. Það hefur einnig gengið í endurnýjun lífdaga, eins og félagið […]

Gott kvöld með Prímadonnum í Eyjafjarðarsveit

Föstudagskvöldið 23.febrúar síðastliðið frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið Prímadonnurnar eftir Ken Ludwig í þýðingu Sögu Jónsdóttur sem einnig leikstýrir verkinu. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta verk er sett upp hér á landi. Freyvangsleikhúsið er eitt besta áhugaleikfélagið á landinu. Félagið hefur á að skipa afar góðan leikhóp, mjög góða og reynda leikara sem hafa verið […]

Örverkasamkeppni fyrir ungt fólk

Febrúar er mánuður unga fólksins hjá Borgarleikhúsinu. Af því tilefni efnir Borgarleikhúsið til örleikritunarsamkeppni fyrir ungt fólk. Skorað er á fólk undir 25.ára og námsmenn  að prófa að nota leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og/eða hugsanir sínar. Vinningshafinn fær að launum árskort í leikhúsið fyrir tvo.

Leikfélag Hveragerðis sextugt

Leikfélag Hveragerðis heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar mundir. Í tilefni þess mun leikfélagið  frumsýna þann 24. febrúar n.k. rokkóperuna Jesus Christ Superstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd  Webber.  Leikstjórar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir.  Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni og fjögura manna rokkhljómsveit sér um […]

Aukasýningar í Borgarleikhúsinu

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukasýningum á Mein Kampf og Alveg brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu.   Báðar sýningarnar hafa gengið fyrir fullu húsi frá því sýningar hófust en nú hafa verið sýndar yfir 120 sýningar af Brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu og Mein Kampf er löngu komið yfir áætlaðan sýningarfjölda. “Það eina neikvæða við […]

Leiklist óskast!

Búið er að gera góða leiklistaraðstöðu í menningarmiðstöðinni Þjórsárveri í Flóanum.  Mótuð hefur verið metnaðarfull menningarstefna sem mun birtast á vefsíðu Þjórsárvers fljótlega.  Meðal árvissra viðburða er hin vinsæla og þekkta Tónahátíð í Þjórsárveri.  Listakaffi Þjórsárvers er starfrækt á sumrin, með listasýningum af ýmsu tagi.  Fjör í Flóanum er árviss menningarviðburður á hverju vori og […]

Eilíf hamingja til Berlínar

Uppfærslu Hins lifandi leikhús á nýju íslensku leikverki þeirra Andra Snæs Magnasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar hefur verið boðið til hina virta Maxim Gorkí leikhúss í Berlín í næstu viku. Verkið hefur hlotið gríðargóðar viðtökur hér heima.  Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa og hafa gagnrýnendur keppst við að lofa það og uppfærslu […]

Prímadonnurnar í Freyvangsleikhúsinu

Föstudaginn 23. febrúar næstkomandi verður gamanleikurinn Prímadonnurnar Íslandsfrumsýndur í Freyvangi, Eyjafjarðarsveit. Verkið er eftir Ken Ludwig, en hann hefur getið sér gott orð sem gamanleikskáld í Bandaríkjunum og hafa verk hans einnig verið sýnd víða um heim. Leikstjóri er hin góðkunna Saga Jónsdóttir, en hún þýðir einnig verkið. Þá er Þórarinn Blöndal hönnuður leikmyndar og […]

Bar par á Nasa

Frumsýning á hinum frábæra gamanleik Bar par eftir Jim Cartwright verður föstudaginn 23. febrúar kl. 20 á Nasa við Austurvöll. Sögusvið verksins er ónefndur bar sem er frægur fyrir ,,að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum". Áhorfendur fá tækifæri til að sjá og upplifa eina kvöldstund í lífi hjónanna sem […]

Batnandi maður frumsýndur hjá Halaleikhópnum

Í ár heldur Halaleikhópurinn upp á 15 ára afmæli sitt. Í tilefni af því frumsýnir hópurinn nú nýtt íslenskt verk. Leikritið heitir Batnandi maður og er eftir Ármann Guðmundsson sem jafnframt er leikstjóri. Frumsýnt verður laugardaginn 24. febrúar í Halanum, Hátúni 12.

Pétur og úlfurinn í Þjóðleikhúsinu

Laugardaginn 17. febrúar hefjast sýningar á Pétri og úlfinum eftir Sergei Prokofief í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Hér er um að ræða brúðusýningu snillingsins Bernds Ogrodniks sem er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur eftir áralangt starf. Bernd smíðar allar brúðurnar og leikmyndina úr linditré og íslensku birki og stjórnar þeim í litríkri og spennandi sýningu. Helga […]

Síðustu sýningar á Hnerranum á Selfossi

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanverkið Hnerrann eftir Anton Chekov, sjö þætti og smásögur í leikgerð Michael Frayn. Leikstjóri og þýðandi er Hörður Sigurðarson. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta stórskemmtilega verk ættu að drífa sig í Litla leikhúsið við Sigtún á Selfossi, því sýningum fer fækkandi. Síðustu sýningar verða sem hér […]

Ágústa Skúladóttir í vinnusmiðju FLÍSS

Næsta vinnusmiðja FLÍSS og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins verður haldin þriðjudaginn 20. febrúar næstkomandi.   Leiðbeinandi verður Ágústa Skúladóttir leikstjóri. Ágústa ætti að vera flestum kunn af verkum sínum undanfarin ár sem hafa sum hver notið mikilla vinsælda.   Ágústa Skúladóttir lærði leiklist hjá Monicu Pagneux, Philippe Gauliere, Theatre De Complicite, John Wright og David Glass. Hún […]

Leikfélag Hólmavíkur man hann Jörund

Leikfélag Hólmavíkur hefur nú æfingar á verkinu Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason. Leikstjóri er Skúli Gautason og stefnt er að frumsýningu þann 24. mars. Þið munið hann Jörund er eitt þekktasta verk þessa mikla leik- og tónskálds. Það hefur verið sett upp víða og tónlistin úr því er flestum kunn. Efni verksins er […]

Þjóðleikhúsið á bakvið blæju!

Þjóðleikhúsið æfir nú af fullum krafti leikritið Hálsfesti Helenu eftir margverðlaunaðan kanadískan höfund, Carole Fréchette. Verkið gerist á okkar tímum fyrir botni Miðjarðarhafs og er í stuttu máli stefnumót okkar vestrænu viðhorfa við þau austrænu, séð með augum aðalpersónunnar Helenu sem kemur úr norðri.

Sjáið Fiðlarann á þakinu!

Þegar sauðsvartur almúginn stígur á stokk og fremur list, er heilög skylda okkar hinna sem ekki nennum að vera með, að kemba hár okkar, fara í betri fötin og upplifa þessa list. En bíðum nú við! Heilög skylda! Almúginn! Er áhugamennska almúgans eitthvað frábrugðin atvinnumennsku elítunnar? Ég er ekki svo viss eftir síðustu inntöku mína […]

Leikhúsið sem farartæki

Febrúar er mánuður unga fólksins í Borgarleikhúsinu. Miðað verður að því leyfa ungu fólki að kynnast leikhúsmiðlinum. Ekki bara koma í leikhús og láta skemmta sér, heldur kynnast leikhúsinu sem faratæki fyrir skoðanir, tilfinningar og baráttumál.   Leikhúsið er öflugur miðill og finnst forráðamönnum Borgarleikhússins það mikilvægt að kynna möguleika þess fyrir ungu fólki.

Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt, á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli eru nú í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga sem verið að æfa þessa dagana. Leiklist er kennd í skólanum sem valgrein í 9. og 10. bekk og samtals 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú í Ungó leikverkið “Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt !” […]

Einu sinni var… Athugið breyttar dagsetningar!

Í vetur hefur leikfélagið Hugleikur flutt samsettar dagskrár í Þjóðleikhúskjallaranum. Í nóvember var sýnd dagskráin "Einu sinni var…" Dagskráin er spunnin úr gömlum örlagasögum sem ellefu manns segja úr eigin umhverfi og krydduð með tónlist, ýmist fornum stefjum eða tónlist sem tengist sögunum sem sagðar eru. Sýningin er afrakstur af námskeiði hjá Benedikt Erlingssyni og […]

Síldin kemur í Hörgárdalinn!

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á hinu sívinsæla leikriti Síldin kemur síldin fer eftir Kristínu og Iðunni Steinsdætur. Leikstjóri er Sunna Borg og tónlistarstjóri er Snorri Guðvarðarson. Leikritið lýsir lífi farandverkafólki á síldarárunum. Gleði þess og sorgum, vinnu, drykkju, ástum og samskiptum við heimafólk. Rauði þráðurinn er síðan togstreita síldarspekúlantsins við landeigandann sem á jörðina […]

Mistækur Draugadans Leikfélags MH

Það er alltaf áhugavert að fara á sýningar áhugaleikfélaganna í menntaskólunum. Þarna fer oft saman mikil sköpunarþörf, umtalsverðir hæfileikar og góð vinna leikstjóra og tæknifólks. Á meðan sum félögin róa á nokkuð örugg mið varðandi verkefnaval og krefjandi leiklistarsköpun eru önnur óhrædd við að taka áhættu í bæði verkefnavali og listrænum metnaði. Í þeim hópi […]

Lagst í Leg

Vinna er nú hafin af fullum krafti við tæknilega eina mest krefjandi sýningu Þjóðleikhússins fyrr og síðar, en það er söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust, en æfingar hófust af fullum krafti nú eftir áramótin. Verkið verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins 8. mars næstkomandi, en boðið verður […]

Fiðlarinn á þakinu

Ungmennafélagið Máni í Nesjum á hundrað ára afmæli í ár. Í tilefni af því setur leikhópur félagsins upp stórsýningu í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar. Félögin frumsýna söngleikinn Fiðlarann á þakinu föstudaginn 2. febrúar. Leikstjóri sýningarinnar er Ingunn Jensdóttir. Ingunn er Hornfirðingum að góðu kunn því er hún bjó þar á árum áður setti hún upp […]

Bingó!

Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa nú hafið samstarf í annað sinn. Hafnar eru æfingar á verkinu Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Þetta er frumuppfærsla verksins. Í leikritinu Bingó sameinast fimm manneskjur við þá heimsþekktu dægradvöl að spila bingó. Þau bregðast við þeim tölum sem koma upp og rifja upp lífið sitt. Spurningin […]

Langafi prakkari aftur í Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið hefur nú hafið sýningar á hinu vinsæla barnaleikriti “Langafa prakkara” sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns. Leikritið var fyrst sýnt á vegum Möguleikhússins á árunum 1999 til 2001 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð […]

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní.  Dansleikhús er vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur.  Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi […]

Samlestur á Gretti í Borgarleikhúsinu

Fimmtudag 1. febrúar verður haldinn opinn samlestur á Gretti á Stóra sviði Borgarleikhússins. Lesturinn hefst klukkan 10.00   Þetta er sögulegur atburður þar sem einvala lið leikara sameinar krafta sína í þessum frábæra söngleik undir styrkri stjórn Rúnas Freys Gíslasonar. Meðfylgjandi mynd er af Sigurveigu Jónsdóttur og Jóni Sigurbjörnssyni í hlutverkum sínum í uppfærslu verksins […]

Nýtt verk frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Eilíf hamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson. Uppsetningin er samstarfsverkefni Hins Lifandi Leikhúss og Borgarleikhússins og er sýnt á litla sviðinu. Leikstjóri er Þorleifur Arnarson. Eilíf Hamingja er verk um millistjórnendastéttina, hina nýju íslensku alþýðu.

Draugadans

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sviðsetur Djáknann á Myrká og Miklubæjar Sólveigu auk fjölda annara sagna, sögurnar fléttast saman og bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi létta á atburðarrásinni með sínum hætti. Þessar sögur eru á við mjög góða spennumynd. Með nútíma sviðstækni lifna þær við með ljósum, tónlist og litum. Sýningin er full af fallegum textum […]

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní. Dansleikhús er nýtt og vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur. Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna þvert á listgreinarnar en umsækjendur hafa […]

Stórgóð sýning á Selfossi

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“ _builder_version=“3.22″ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″][et_pb_row admin_label=“row“ _builder_version=“3.25″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.25″ custom_padding=“|||“ custom_padding__hover=“|||“][et_pb_text admin_label=“Text“ _builder_version=“4.9.10″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ hover_enabled=“0″ sticky_enabled=“0″] Undirrituð fór að sjá frumsýningu á Hnerranum á Selfossi um helgina. Hvar á maður eiginlega að byrja? Ætli sé ekki bara best að byrja á byrjuninni. Anton Tsjekoff er ljómandi leikskáld. […]

Frumsýning í Austubæ

Verkið “50 ways to leave your lover” verður frumsýnt í Silfurtunglinu í Austurbæ 26. janúar. Þetta er einleikur sem fjallar um uppgjör ungs manns á átakanlegum atburði í lífi hans, ástinni sem hann kynntist og einverunni sem hann upplifir eftir á. Sagan er sögð á tveimur skeiðum í lífi hans, annarsvegar fyrir dauða hans og […]

Karíus og Baktus til Reykjavíkur

Leikritið Karíus og Baktus hefur kætt norðlensk börn á undanförnum mánuðum og notið fádæma vinsælda. Vegna fjöla áskorana verður sýningin sýnd í Reykjavík í örfá skipti í febrúar og byrjun mars. Sýningar verða í Borgarleikhúsinu og hefst miðasala á miðvikudag kl. 13. Vegna anna leikaranna er um takmarkaðan sýningarfjölda að ræða, en Guðjón Davíð og […]

Æfingar hafnar hjá Halaleikhópnum

Batnandi maður er nafnið á leikritinu sem Ármann Guðmundsson er að skrifa og leikstýra hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Í tilefni 15 ára afmælis Halaleikhópsins var ákveðið að fá Ármann til að vinna afmælissýningu en stefnt er að frumsýningu hennar undir lok febrúar.