Talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins
Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, sl. helgi, urðu talsverðar breytingar á stjórn Bandalagsins. Tveir stjórnarmenn, þeir Ingólfur Þórsson, Freyvangsleikhúsinu, og Hörður Sigurðarson, Leikfélagi Kópavogs, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Hugleik, ákvað að hætta í stjórn eftir árs setu þar. Í stað þeirra […]
Svipmyndir frá aðalfundi 2010
Rokk athyglisverðasta áhugaleiksýningin
Sýning Hugleiks, Rokk var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti valið á nýafstöðnum aðalfundi BÍL sem haldinn var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Miklar breytingar urðu á stjórn á fundinum en nánar verður sagt frá honum og vali athyglisverðustu sýningarinnar síðar. Hér til hliðar má sjá Þjóðleikhússtjóra afhenda Þorgeiri Tryggvasyni sem leikstýrði Rokki […]
Sólheimaleikhúsið sýnir í Þjóðleikhúsinu
Nú eru einungis tvær sýningar eftir hjá Sólheimaleikhúsinu á leikritinu, Þar sem að sólin á heima! eftir Eddu Björgvinsdóttur. Leikritið er skrifað sérstaklega í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og fjallar um ævi Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Þaulreyndir leikarar Sólheimaleikhússins takast á við mörg ólík hlutverk og syngja að auki undurfalleg lög Péturs […]
39 þrep í Íslensku óperunni í maí
Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að sýna gamanleikinn 39 ÞREP í Íslensku óperunni í maí vegna mikillar eftirspurnar, en uppselt var á nær 50 sýningar fyrir norðan í vetur. Í þessum óborganlega gamanleik fara fjórir leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Verkið er samið af Patrick Barlow en byggir á hinni frægu kvikmynd Hitchcocks, The 39 […]
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Apríl
Fimmtudaginn 30. apríl sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um áráttur kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau eru flutt í, eru stuttar hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík dagsins í dag og eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt árið 2010. Apríl er sagður grimmastur mánaða […]
Rausnarlegt boð í Leiklistarskóla MÁF í Færeyjum
Meginfélag Áhugaleikara í Færeyjum rekur leiklistarskóla að íslenskri fyrirmynd og í ár er boðið upp á nokkur námskeið, þar á meðal námskeið í leikmyndagerð haldið af mjög virtum, dönskum leikmyndagerðarmanni, Jan de Neergaard. MÁF var að senda okkur skilaboð um að þeir bjóði nokrum íslendingum á námskeiðið ÓKEYPIS! Þeir þurfa bara að borga farmiðann sinn. […]
Rokkhjartað slær á Grandanum
HugleikurRokkLeikstóri: Þorgeir Tryggvason Það var nokkuð tilhlökkunarefni að koma í fyrsta skipti á sýningu hjá Hugleik í litla leikhúsinu þeirra á Eyjaslóðinni. Þau hafa alllengi verið á þeytingi um Reykjavík með sýningar sínar og jafnvel þurft að fara í úthverfi eins og Kópavog og Seltjarnarnes. Það sem má segja um húsið er að mér finnst […]
Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningunni
Nú er orðið ljóst hvaða sýningar sækja um að verða útnefndar í hinu árlega vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýning ársins. Einungis níu sýningar sækja um í ár, sem er umtalsverð fækkun frá síðasta ári en þá voru umsóknirnar 19. Niðurstöður valnefndar verða tilkynntar á aðalfundi Bandalagsins að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði, laugardaginn 1. maí.
Faust sýnt í Young Vic leikhúsinu í London
Samningar hafa náðst um leikferð Borgarleikhússins og Vesturports með leikritið Faust í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar til hins virta leikhúss Young Vic í London komandi haust. Frumsýnt verður 1. október og verður sýnt í sex vikur samfleytt. Sýningin verður sýnd sjö sinnum í viku og er því ljóst að 42 sýningar á uppsetningunni verða í […]
Málþing um sviðslistir á Barnamenningarhátíð 2010
Í tilefni af yfirstandandi Barnamenningarhátíð boða Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 til málþingsins Allir á svið?, laugardaginn 24. apríl klukkan 10–14. Málþingið er einhvers konar stefnumót sviðslista- og skólafólks og er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu […]
Hugleikur frumsýnir Rokk
Hugleikur frumsýnir nýtt íslenskt leikrit sem nefnist Rokk í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar föstudaginn 23. apríl kl. 20.00 í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Höfundar leikritsins eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson, en höfundur tónlistar er Eggert Hilmarsson. Einungis eru fyrirhugaðar 5 sýningar á Rokki.
Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir Draugar og forynjur
Leiklistarfélag Seltjarnarness hefur í vetur unnið að uppsetningu á leikverkinu Draugar og forynjur og sunnudaginn 25. apríl kl. 14.00 er komið að frumsýningu og þá um kvöldið kl. 20.00 verður 2. sýning. Verkið er hvort tveggja í senn frumsamið í samvinnu leikfélaga og leikstjóra Bjarna Ingvarsson og byggt á ýmsum þjóðsögum. Sýnt er í Félagsheimilinu […]
Tvö verk frumsýnd í Norðurpólnum um helgina
Það verður mikið um að vera í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi um helgina því þar verða tvær leiksýningar frumsýndar. Laugardaginn 24. apríl frumsýnir leikhópurinn Börn Loka Glerlaufin eftir Philip Ridley í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar og sunnudaginn 25. apríl verður svo leikritið Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar eftir Dorota Maslowska í leikstjórn Heiðars Sumarliðsonar frumsýnt. Norðurpóllinn er […]
Íslandsklukkan frumsýnd á 60 ára afmæli Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið verður 60 ára á fimmtudaginn 22. apríl, sumardaginn fyrsta, og þá um kvöldið verður jafnframt frumsýning á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Íslandsklukkan var ein af þremur opnunarsýningum Þjóðleikhússins og verkið hefur, jafnt á bók sem á sviði, notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni. Svipmiklar persónur þess, á borð við Jón Hreggviðsson (Ingvar E […]
Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu
Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 – Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem […]
Fólkið í blokkinni frumsýnt á Sauðárkróki
Á Sauðárkróki hafa menn fundið sér áhugamál þar sem fjölskyldan vinnur saman að uppbyggilegum verkefnum. Þetta áhugamál er leiklistin. Hvort sem um tilviljun er að ræða eða ekki, þá vill svo skemmtilega til að um þessar mundir eru bræður og systur, mæðgin og feðgin, mæðgur og feðgar að setja upp söngleikinn Fólkið í blokkinni með Leikfélagi […]
Síðustu sýningar á 39 þrepum
Hinn geysivinsæli gamanleikur 39 þrep hjá Leikfélagi Akureyrar hefur nú verið sýndur fyrir fullu húsi frá því í janúar. Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði. 39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem […]
Zeus sýnir rokksöngleikinn Lísu í Undralandi
Zeus, Leikfélag Borgarholtsskóla frumsýnir rokksöngleik um Lísu í Undralandi í bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ þann 16. apríl kl. 20:00. Með hlutverk Lísu fer Ásdís Magnea Erlendsdóttir. Öll tónlist í sýningunni er frumsamin. Höfundar tónlistar eru þeir Valbjörn Snær Lilliendahl og Vilhjálmur Skúli Vilhjálmsson. Leikritið er í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur.
Nemdaleikhúsið frumsýnir Stræti
Nemendaleikhúsið æfir nú lokaverkefni sitt Stræti eftir Jim Cartwright en frumsýning er föstudaginn 16. apríl n.k. í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Þessi útskriftarárgangur hefur vakið verulega athygli fyrir fyrri sýningar sínar í vetur, Eftirlitsmanninn eftir Gogol og Bráðum hata ég þig eftir Sigtrygg Magnason. Lokaverkefni þeirra er, eins og fyrr segir, breska leikritið Stræti eftir Jim […]
Aðalfundur og Leiklistarskóli Bandalags ísl. leikfélaga 2010

Þann 15. apríl nk. rennur út frestur til að skrá sig bæði á aðalfundinn í Sveinbjarnargerði og í Leiklistarskólann að Húnavöllum. Sjá nánar um aðalfundinn: http://www.leiklist.is/allar-frettir/adalfundur-2010Sjá nánar um Leiklistarskólann: http://www.leiklist.is/skolinn/leiklistarskoli-bandalagsins-2010 Þeir sem nú þegar hafa skráð sig í skólann en ekki staðfest umsóknina með greiðslu staðfestingargjalds eru beðnir að gera það nú þegar – að […]
Bráðskemmtilegur leikur á Melum í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla Lífið liggur við Leikstjóri: Saga Jónsdóttir Það var sérkennilegt að ganga inn í gamla samkomuhúsið á Melum s.l. laugardagskvöld. Gengið var inn á gömlu senuna og búið að útbúa svið á miðju dansgólfinu með þrjár sætaraðir á þrjá vegu. Góð hugmynd sem gekk fullkomlega vel upp, svo vel að undarlegt er að engum […]
Glefsur hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Nú er æfingum að ljúka á vordagskrá Leikfélagsins. Um er að ræða ellefu einþáttunga sem félagsmenn sjálfir hafa skrifað. Efni leikritanna er fjölbreytt og spannar allt frá léttu gríni til djúpra meininga. Uppfærslan nefnist Glefsur en höfundar eru þau María Guðmundsdóttir og Pétur R. Pétursson. Leikstjórar eru þær Bóel Hallgrímsdóttir, Guðný María Jónsdóttir og Ólöf […]
Dúfurnar frumsýndar hjá LR
Dúfurnar eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður frumsýnt á Nýja sviðinu laugardaginn 10. apríl. Höfundurinn verður viðstaddur frumsýninguna í Borgarleikhúsinu. Er þetta önnur heimsókn Gieselmanns til landsins en fyrri heimsókn hans var í tengslum við frumsýningu á verki hans Herra Kolbert sem Leikfélag Akureyrar sýndi árið 2006. Herra Kolbert hefur farið sigurför um […]
Aukasýning á Horn á höfði á Akureyri
Laugardaginn 10. apríl kl. 14 verður aukasýning á barnaleikritinu Horn á höfði sem GRAL sýndi við góða aðsókn um Páskana. Leikritið er sýnt í Rýminu. Verkið var frumsýnt sl. haust í Grindavík við frábærar undirtektir. Áhorfendur og gagnrýnendur voru sammála um að þetta væri eitt skemmtilegasta barnaleikrit ársins. Tónlistin er eftir Akureyringinn Villa Naglbít.
Hugleikur í Kjallaraheimsókn
Hugleikur snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann með stuttverkadagskrá sem ber yfirskriftina Kjallaraheimsókn. Dagskráin verður frumsýnd mánudaginn 12. apríl og endurtekin þriðjudaginn 13. apríl kl. 20.00 bæði kvöld, en alls verða sýnd fimm ný stuttverk, Heimsókn og Í sjálfheldu eftir Árna Friðriksson, Stjörnur og norðurljós eftir Hjörvar Pétursson, Stuldur eftir Sigurð H. Pálsson og Sælla er að […]
Síðustu sýningar á Birtíngi á Selfossi
Nú fer sýningum að ljúka á uppsetningu Leikfélags Selfoss á leiksýningunni Birtíngi sem byggð er á samnefndri sögu eftir franska heimspekinginn Voltaire, í snilldarlegri þýðingu Halldórs Laxness. Aðeins eru 4 sýningar eftir svo nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa marglofuðu sýningu. Sýningunni hlotnaðist sá heiður að vera valinn af valnefnd á NEATA-hátíðina á […]
Emil í Kattholti slær í gegn í Hveragerði
Uppselt var á allar sýningar Leikfélags Hveragerðis á barnaleikritinu Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í mars og um páskana, og þurfti að vísa fólki frá í sumum tilvikum. Sýningar halda áfram á fullu í apríl og er þegar að verða uppselt á sumar sýningarnar. Sunnlendingar ættu því ekki að láta þessa sýningu fram hjá […]
Margverðlaunuð uppsetning Koršunovas til Íslands
Á Listahátíð í Reykjavík í vor býðst einstakt tækifæri til að sjá rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í stórbrotinni uppfærslu litháíska leikstjórans Oskaras Koršunovas á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þessi margverðlaunaða uppsetning hefur ferðast um allan heim síðustu tíu ár og kemur til Íslands í samvinnu Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík. […]
Aðalfundur 2010
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði dagana 1. og 2. maí 2010. Leiklistarhátíð NEATA, sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst, verður undirbúin að kvöldi 30. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins.Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að […]
Fréttir frá Leikfélagi Blönduóss
Leikfélag Blönduóss frumsýndi gamanleikinn Á svið eftir Rick Abbot í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í Félagsheimilinu á Blönduósi föstudagskvöldið 26. mars sl. að viðstöddum fjölda áhorfenda. Ekki var annað að heyra en leikhúsgestir hafi skemmt sér hið besta og fögnuðu þeir leikurum, aðstoðarfólki og leikstjóra með miklu lófaklappi í lok sýningar.
Alþjóðlegi leiklistardagurinn er á morgun!
Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóðlega leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjöld […]
Leikhúsveisla á Akureyri um páskana
Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. Eftir skemmtilegan dag í brekkum Hlíðarfjalls eða rólegan dag í fögrum miðbæ Akureyrar, er tilvalið að bregða sér í leikhús! Leikhúsunnendur geta valið um þrjár sýningar, 39 þrep, Horn á höfði og Fúlar á móti auk þess sem boðið verður upp á þriðja leiklesturinn í Leiklestraröð LA […]
Leikhúspáskar á Ísafirði
Það verður líf og fjör í Ísafjarðarbæ um páskana einsog verið hefur í gegnum áratugina. Fjölmargt skemmtilegt verður í boði allt frá rokki til skíðalista. Í leikhúsinu verður líka allt í botni og stuði. Kómedíuleikhúsið í samstarfi við Litla leikklúbbinn á Ísafirði og Leikdeild Höfrungs á Þingeyri bjóða uppá sérstaka leikhúspáska. Boðið verður uppá þrjár […]
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir Mars
Á fimmtudaginn 25.mars frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um árattur, kenndir og kenjar. Verkið, sem ber heitið Mars, er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá Útgerð, Hugmyndahúss háskólanna sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af 12 verka röð sem mynda eina […]
Pókók frumsýnt á Hofsósi
Leikfélag Hofóss frumsýnir skopleikinn Pókók eftir Jökul Jakobsson föstudaginn 19. mars kl. 20.30. Leikritið var frumsýnt 1961 en þrátt fyrir aldurinn má segja að efni verksins gæti vel átt við í þjóðfélagi nútímans þar sem græðgi og blekkingar eru aldrei langt undan í viðskiptalífinu. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson sem áður hefur sett upp vinsælar sýningar […]
Kolsvört kómedía um Svein skotta frumsýnd á Ísafirði
Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði […]
Gauragangur frumsýndur föstudaginn 19. mars
Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins komandi föstudag 19. mars. Það er ekki auðvelt að vera snillingur, þeir sjá heiminn eins og hann er – gallaðan. Gauragangur er þroskasaga skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar. Rafmagnaður og rokkaður poppsöngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson með tónlist eftir Nýdönsk.
Iceland 3 – Freyvangsleikhúsið: Vínland
Title of performance: Vínland (Vineland) Theatre Group: Freyvangsleikhúsið Country: Iceland 3 Director: Ólafur Jens Sigurðsson Date and time: Fri Aug 13 / 20.00-21.30 Vineland is a populous musical by Helgi Þórsson that takes place amongst the Nordic inhabitants of Greenland in the time of the Vikings and the voyage of Þorfinnur Karlsefni and company to […]
Finland – Louhi and the Golden Girl
Title of performance: Louhi and the Golden Girl (Louhi ja kultanainen) Theatre Group: Youth Theatre Floppi Country: Finland Director: Tuire Hindikka Dramaturgy: Pirkko Kurikka, story is based on the Finnish National Epic, The Kalevala Date and time: Thu August 12. / 20.00-20.50 Far up in the dark North there rules a cruel, mighty woman called […]