Metaðsókn hjá Hörgdælum

Leikfélag Hörgdæla tók hina geysivinsælu sýningu Með fullri reisn aftur til sýninga nú í haust og virðist ekki hafa verið vanþörf á því, það hefur verið mjög góð aðsókn og er nú uppselt á allar sýningar sem fyrirhugaðar eru á Melum. Síðan ætla leikfélagsmenn og -konur að halda í leikferð til Reykjavíkur. Verður leikritið sýnt […]

Prenstsmiðjan Oddi gerist máttarstólpi Borgarleikhússins

Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri undirrituðu samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins að viðstöddum leikurum og listrænum stjórnendum Kirsuberjagarðsins. Prentsmiðjan Oddi verður máttarstólpi Kirsuberjagarðsins, en aðrir máttarstólpar Borgarleikhússins eru Reykjavíkurborg, Valitor, VÍS, Íslandsbanki og Ölgerðin. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa fyrirtækin í landinu staðið þétt við bakið á Borgarleikhúsinu og hafa komið […]

Himnaríki í Ölfusi

Himnaríki Leikfélag ÖlfussLeikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Eftir að hafa farið villu vegar einhverstaðar á milli Hveragerðis og Vestmannaeyja í dálítinn tíma, römbuðum ég og betri helmingur minn loks inn í Ráðhúsið, þar sem Leikfélag Ölfuss sýnir þessa dagana Himnaríki eftir Árna Ibsen.  Höfðu heimamenn og aðrir velunnarar  nýlega slátrað einu lambi, fáeinum humarsræflum og saklausum […]

Leikfélag Rangæinga æfir Vodkakúrinn

Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir aðeins tveir, Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon og varð verkið gríðarlega vinsælt. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp af áhugamannaleikfélagi og ríkir […]

Kirsuberjagarðurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Kirsuberjagarðurinn, síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 28. október. Verkið er af mörgum talið eitt besta leikverk allra tíma, angurvært stórvirki þar sem gaman og alvara vegast listilega á. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu en hann hlaut Grímuverðlaun fyrir síðustu uppsetningu sína, Fjölskylduna, sem gekk tvo vetur […]

Hreinsun eftir Sofi Oksanen frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen á Stóra Sviðinu fimmtudaginn 27. október kl. 19:30. Hreinsun er einstaklega áhrifamikið verk um ást, grimmd og svik, og örvæntingarfulla baráttu manneskjunnar fyrir því að lifa af ofbeldi og niðurlægingu og verða heil að nýju. Leikstjóri er Stefán Jónsson.

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 29. og 30. október verður haldið námskeiðið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. […]

Allt í plati frumsýnt á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir í Bifröst barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson þann 26. október næstkomandi. Í leikritinu galdrar Lína Langsokkur til sín persónur úr þekktum barnaleikritum, t.a.m. Mikka ref, Lilla klifurmús, Karíus og Baktus, Kasper, Jesper og Jónatan og Soffíu frænku. Tónlist spilar stóran þátt í leikritinu og sér Rögnvaldur Valbergsson um undirspil. Leikstjóri […]

Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói

Þann 29. október frumsýnir leikhópurinn SuðSuðVestur leikritið Eftir lokin eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, í þýðingu Stefáns Halls Stefánssonar og Lilju Nætur Þórarinssonar. Stefán er jafnframt leikstjóri og Lilja Nótt leikur annað hlutverki á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Sýnt er í Tjarnarbíói og hefjast sýningar kl. 20.00.

Töfraflautan í Íslensku óperunni 22. október

Um komandi helgi verður merkisviðburður í sögu Íslensku óperunnar og óperuflutnings á Íslandi – en þá færir Íslenska óperan upp fyrstu óperusýningu sína í Eldborg í Hörpu. Á fjölunum í þessari fyrstu uppfærslu verður engin önnur en sjálf Töfraflautan eftir W.A. Mozart, sem hrifið hefur áhorfendur öll þau 220 ár sem liðin eru frá frumsýningu […]

Haustflensa Halaleikhópsins 21. og 23. október

Halaleikhópurinn verður með stuttverkadagskrá 21. og 23. okt. nk. sýnd verða 7 stuttverk. Þau eru 5 þættir úr Heilsugæslunni eftir Lýð Árnason, í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds Bjarna Þorkelssonar. Snyrting eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó og Þanþol eftir Huldu B. Hákonardóttur líka í leikstjórn Gunsó. Halabandið flytur tónlist milli atriða.

Af unglingum og fleira fólki… á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 28. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það Af unglingum og fleira fólki… og er eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjöunda sinn sem samstarf af þessu tagi […]

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir Finnska hestinn

Föstudaginn 21. október klukkan 20 frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs leikritið Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola. Leikstjóri er  Ásgeir Sigurvaldason en þýðingu verksins gerði Sigurður Karlsson. Sýnt er í Valaskjálf, Egilsstöðum og eru áætlaðar 8 sýningar. Finnski hesturinn gerist í nútímanum á sveitaheimili þar sem allt er komið í niðurníðslu og fjölskyldumunstrið eitthvað orðið sérkennilegt. En amma […]

Rúi og Stúi á Selfossi

Föstudaginn 21. október frumsýnir Leikfélag Selfoss barna- og fjölskylduleikritið Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Um er að ræða æsifjörugt verk þar sem fara saman spenna, gleði, grín og söngur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason og stýrir hann kraftmiklum hópi leikara. Með hlutverk Rúa og Stúa fara Rakel Stefánsdóttir og Álfrún Björt Agnarsdóttir […]

Lokasýning Zombíljóða til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands

Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu föstudaginn 14. október. Það kostar ekkert inn á sýninguna en tekið verður á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands. Zombíljóðin eru nýtt verk úr smiðju Borgarleikhússins og Mindgroup. Á undan komu Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Þremenningarnir sem stóðu að þeim verkum eru Jón Atli Jónasson, Jón […]

Stafræn ljósa- og leikmyndahönnun

neata-farve-small

DigiDeLight er verkefni á vegum NEATA sem verður í gangi frá nóvember 2011 til ágúst 2012. Auglýst er eftir þátttakendum frá öllum NEATA-löndunum, leikhópum sem vilja tileinka sér nýtingu starfænnar tækni í hönnun lýsinga og leikmynda. Hvert land má tilnefna einn leikhóp í verkefnið. Verkefnið endar á ráðstefnu sem verður haldin í Sønderborg í Danmörku […]

Tvö leikfélög á stuttverkahátíðinni í Færeyjum

Laugardaginn 15. október verður haldin stuttverkahátíð í Nólsoy í Færeyjum og munu tvö íslensk leikfélög taka þátt í henn, Hugleikur og Leiklistarfélag Seltjarnarness. Upphaflega stóð til að á hátíðinni yrðu auk færeyskra og íslenskra sýninga, sýningar frá Noregi en því miður sá enginn hópur þaðan sért fært að koma. Hátíðin verður í Røyndinni, leikhúsi þeirra […]

Himnaríki í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir leikritið Himnaríki – geðklofinn gamanleik, eftir Árna Ibsen þann 14. október í Versölum, Þorlákshöfn.  Árni Ibsen var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 1996 fyrir þetta verk og hefur það verið sýnt í mörgum löndum Evrópu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Helena Helgadóttir, Ottó Rafn Halldórsson, […]

Hlini kóngsson – Sögustund í Kúlunni

Undanfarin þrjú ár hefur Þjóðleikhúsið boðið börnum í elstu deildum leikskóla með kennurum sínum í heimsókn í leikhúsið til að fræðast á skemmtilegan hátt um leikhúsið og kynnast töfraheimi þess. Börnin taka þátt í sögustund með leikhúsívafi, en nú er spunnið og leikið út frá gamla ævintýrinu um Hlina kóngsson. Sögustundin hefur notið mikilla vinsælda […]

Leikfélagi Peðið sýnir óperuna Bjarmaland – rísandi land

Í tengslum við októberhátíð á Gallery – Bar, Hverfisgötu 46, sýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland – rísandi land eftir Jón Benjamín Eiríksson og Andreu Gylfadóttur. Verkið er sett í skemmtilegan óperustíl með tónlist eftir Andreu Gylfadóttur, sem einnig leikstýrir verkinu. Sýningar verða laugardaginn 8. október kl. 20:00 og sunnudaginn 9. október kl. 16:30. Einnig verður […]

Nývirki hjá Freyvangsleikhúsinu

Haustverkefni Freyvangsleikhússins 2011 verður frumsýnt föstudaginn 7. október kl. 20:00 í Freyvangi. Að þessu sinni er um að ræða stuttverkasýninguna Nývirki þar sem frumflutt verða 9 verk eftir 8 höfunda í leikstjórn 5 félagsmanna í Freyvangsleikhúsinu. 16 leikarar fara með hlutverkin og a.m.k. 7 aðstoðarmenn sjá um búninga, leikmuni, lýsingu, hljóð, sviðsmynd, miðasölu, afgreiðslu o.s.frv.

Evrópski trúðurinn – Námskeið í Gaflaraleikhúsinu

Þetta er námskeið sem rannsakar  gleði og léttleika trúðsins. Það byggir á evrópskri trúðahefð sem notar rauða nefið (minnstu grímu í heimi). Námskeiðið býður þér upp á tækifæri til að draga fram þinn eigin trúð og gefur þér möguleika  á að kynnast veröld  þar sem trúðurinn þinn notar ýmsar aðferðir og tækni úr leikhúsinu á […]

Allt í plati á Króknum

Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks er barnaleikritið Allt Ì plati eftir Þröst Guðbjartsson. Leikarar eru 12 og sumir að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Stefnt er á frumsýningu í lok október. Í Allt í plati er farið inn í ævintýraheima þekktra barnaleikrita og er það Lína Langsokkur sem leiðir leikinn og kynnir […]

Námskeið í leiktækni

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir námskeiði í leiktækni fyrir vana leikara dagana 8. 9. og 11. október. Leiðbeinandi er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið hefst laugardaginn 8. okt. kl. 10.00. Enn eru nokkur laus pláss. Námskeiðið kostar 3.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en er ókeypis fyrir félaga í LK. Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst á lk@kopleik.is.

Fúsi froskagleypir snýr aftur

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið á ný sýningar á  barnaleikritinu  Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Sýningin sló í gegn síðasta vetur og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi í vor. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti […]

Einkamál.is aftur á svið

Hugleikur mun þann 7. október nk. hefja á ný sýningar á  leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Leikritið var frumsýnt sl. vetur og fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Þegar sýningum var hætt í vor var uppselt flest sýningarkvöld. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.

Umóknareyðublað fyrir NEATA-hátíðina 2012

neata-farve-small

Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 15. febrúar 2012 á eyðublöðum sem finna má hér. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu. Hátíðin verður sú sjöunda […]

Æfingar hafnar á Eftir lokin

Leikhópurinn SuðSuðVestur æfir nú leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly, í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Stefán þýðir einnig verkið ásamt Lilju Nótt Þórarinsdóttur en hún leikur jafnframt annað hlutverk verksins á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Frumsýnt verður í Tjarnarbíói þann 29. október.

Beðið eftir gæsinni í Hafnarfirði og á Akranesi

Leikfélagið Frjálst Orð sýnir einleikinn Beðið eftir gæsinni  eftir Ásgeir Hvítaskáld í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. október klukkan 20:00 og sunnudag 9. október klukkan 20:00 og á Akranesi í Gamla Kaupfélaginu laugardaginn 8. október klukkan 20:30. Þessi einleikur var frumfluttur á bæjarhátið Egilsstaða á Ormsteiti í ágúst s.l. við frábærar móttökur.

Nemendaleikhús LHÍ sýnir Á botninum

Föstudaginn 23. september frumsýndi Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands Á botninum eftir Maxim Gorkí, í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Verkið er fyrsta uppfærsla vetrarins hjá Nemendaleikhúsinu en í útskriftarhópnum eru 10 verðandi leikarar. Sýningar fara fram í Smiðjunni, leikhúsi Listaháskóla Íslands við Sölvhólsgötu 13.

Listaverkið frumsýnt 29. september

Þjóðleikhúsið frumsýnir á fimmtudaginn Listaverkið eftir Yazmina Reza en mörgum leikhúsunnendum er í fersku minni sýning Þjóðleikhússins á Listaverkinu árið 1997 með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Ingvari E. Sigurðssyni og Baltasar Kormáki. Í þessari endurfrumsýningu verksins sameina þeir á ný krafta sína á leiksviði undir leikstjórn Guðjóns Pedersens og snúa aftur í sömu hlutverkum. Listaverkið […]

Eldfærin aftur á svið um helgina

Gói og Þröstur snúa aftur á Litla svið Borgarleikhússins um nú um helgina í Eldfærunum – fyrsta ævintýrinu af mörgum þeir félagar kynna ungum leikhúsgestum á komandi árum. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson leikur allt annað í verkinu. Guðjón Davíð Karlsson fer með hlutverk dátans og Þröstur Leó Gunnarsson […]

Hassið í Halanum

Halaleikhópurinn hefur ráðið leikstjórana Margréti Sverrisdóttur og Odd Bjarna Þorkelsson til að leikstýra leikritinu Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo, jafnframt því að uppfæra og staðfæra verkið. Æfingar munu hefjast í nóvember og fyrirhugað er að frumsýna kringum mánaðarmótin janúar / febrúar 2012.

Með fullri reisn á ný

Leikfélag Hörgdæla hefur ávkeðið að taka aftur upp sýningar á Með fullri reisn þar sem hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi og með hundruð manna á biðlista sl. vor. Alls var leikritið sýnt 30 sinnum og sáu það 2.800 manns en nú verður 10 sýningum bætt við og hefjast þær 20. október. Forsala á sýninguna […]

Kortasala hafin hjá Leikfélagi Akureyrar

lalogo

Kortasala fyrir nýtt leikár er hafin hjá Leikfélagi Akureyrar og er óhætt að segja að mikið verði í boði í leikhúsinu fyrir Akureyringa í vetur. Leikárið byrjar á að í september verða tvær gestasýningar en í október verða tvær frumsýningar á vegum LA, Svarta kómedían og Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar. Í nóvember verða svo […]

Síðustu sýningar á Tristram og Ísönd

Nú um helgina verða síðustu sýningar á uppsetningu Leikfélagsins Sýna á Tristram og Ísönd í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýnt verður föstudaginn 16., laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. september og hefjast allar sýningar kl. 20. Ekki verða fleiri sýningar þar sem einn leikaranna heldur erlendis í leiklistarnám. Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig leikgerðina […]

Leikfélag Ölfuss æfir Himnaríki

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Ölfuss á hinu bráðskemmtilega gamanleikriti Himnaríki eftir Árna Ibsen. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og er það í þriðja sinn sem hann starfar með LÖ en hann leikstýrði tveimur sýningum hjá félaginu árið 2009, Blúndum og blásýru og Manni í mislitum sokkum. Himnaríki verður frumsýnt þann 14. október í Versölum, […]

Gróska 2011

Félag leikrita og handritshöfunda efnir til höfundahátíðar og umræðu um starf og stöðu höfundarins. Lesið verður úr nýjum íslenskum leikverkum eftir fimmtán höfunda. Í hópnum eru bæði reynsluboltar, höfundar sem þekktir eru fyrir ritstörf en einnig leikskáld sem eru að stíga sín fyrstu skref í ritlistinni. Alls munu á þriðja tug leikara taka þátt í […]

Dýnamískt 30 stunda leiklistarnámskeið

Dagana 3.-14. október heldur leikhúslistakonan Pálína Jónsdóttir leiklistarnámskeið þar sem hún kennir  list og tækni leikarans með aðferðum Suzuki, Viewpoint og Composition. Þáttakendur læra líkamlegt æfingakerfi Suzuki leikaraþjálfunarinnar, spunaaðferðir og leikhústungumál Viewpoint aðferðarinnar og Composition sem þjálfar þátttakendur í að setja leikatriði saman. Á námskeiðinu verður unnið með klassíska texta í Suzuki þjálfuninni og í […]

NEATA-hátíðin í Danmörku 2012

neata-farve-small

Dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012 verður sjöunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Sønderborg á Suður-Jótlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.