Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Stefaníusjóðs

stefaniusjodur_johann_sig

Leikarinn Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur þetta árið. Stefanía Borg, formaður stjórnar minningarsjóðsins, og Þorsteinn Gunnarsson leikari og stjórarmeðlimur, sáu um að kynna og afhenda Jóhanni styrkinn og Stefaníustjakann við hátíðlega athöfn á Litla sviði Borgarleikhússins strax að lokinni síðustu sýningu verksins Rautt. Jóhann fer með aðalhlutverkið í Rautt og hlaut fyrir […]

Hjartaspaðar snúa aftur

hjartaspadar1

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið sýna leikritið Hjartaspaða aftur nú í nóvember. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja Grímuverðlauna í júní sl. Aðeins verða 6 sýningar á verkinu að þessu sinni. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða […]

Pollock? frumsýnt í Kassanum

pollock

Þjóðleikhúsið frumsýnir Pollock? eftir Stephen Sachs í Kassanum þann 30. nóvember. Leikstjóri er Hilmir Snær Guðnason og með aðalhlutverk fara Pálmi Gestsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Þýðingu gerði Mikael Torfason. Pollock? Er glænýtt verk sem sýnt hefur verið við miklar vinsældir víðas vegar um Bandaríkin og hlaut Elliot Norton gagnrýnendaverðlaunin árið 2012. Verkið er byggt […]

Leikfélag Selfoss fumsýnir Maríusögur

mariusogur2

Leikfélag Selfoss fumsýnir þann 25. október hinn gamansama harmleik Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson í Litla leikhúsinu við Sigtún. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Eftir því sem við í stjórn leikfélagsins best vitum er þetta fyrsta leikritið eftir Þorvald sem sett er upp eftir andlát hans. Verkið var samið fyrir útskriftarhóp Leiklistaskóla […]

Leikfélag Vestmannaeyja vantar góðan leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á  söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 30. janúar og út mars 2014, auk skipulags vinnu hluta úr desember. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem er á 103. starfsári sínu. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess […]

Mýs og menn snýr aftur á svið í Borgarleikhúsinu

mys_og_menn1

Meistaraverk John Steinbecks Mýs og menn snýr aftur á fjalir Stóra sviðsins næstkomandi föstudag, 18. október. Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á síðasta ári og fór rakleitt í hjartastað íslenskra leikhúsgesta. Hætta varð sýningum fyrir fullu húsi og verkið snýr því aftur nú í takmarkað tíma. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem […]

Hús Bernhörðu Alba frumsýnt í Gamla bíói

husbernhordualba_poster

Föstudaginn 18. október kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hús Bernhörðu Alba. Hús Bernhörðu Alba er eitt þekktasta verk Federico García Lorca. Það er samið skömmu fyrir borgarastyrjöldina á Spáni og lýsir átökum valds og frelsisþrár, menningar og náttúru, siðsemi og kynhvatar. Valið stendur um frelsið eða dauðann. Kristín Jóhannesdóttir stýrir hér frábærum hópi listamanna í uppsetningu […]

Saumur í Borgarleikhúsinu

saumurposter

Laugardaginn 19. október frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við unga nýja listamenn leikverkið Saumur eftir Anthony Neilson. Á hverju ári útskrifar Listaháskólinn hátt á þriðja tug sviðslistafólks. Þetta fólk slær okkur blíðlega utan undir, því fylgja nýjar hugmyndir og önnur viðhorf. Ef þetta fólk væri ekki til þá myndi leikhúsið deyja út. Við þurfum að hlúa […]

Emil í 50 ár!

emil2013

Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Í ár eru 50 ár síðan fyrsta bókin kom út um Emil og strákapörin hans og m.a. í tilefni af því setur Freyvangsleikhúsið upp þessa sýningu. Þetta er mannmörg sýning með mörgum og skemmtilegum söngvum, fimm manna hljómsveit og 16 leikurum. Í […]

Borgarbörn æfa jólasöngleik

borgarborn_logo

Æfingar eru hafnar á árlegu jólaleikriti/jólasöngleik Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss. Um frumsamið verk er að ræða, unnið uppúr hugmyndum leikstjóra og spunum leikhópsins. Leikstjóri og handritshöfundur er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjórn er í höndum Rebekku Sifjar Stefánsdóttur og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir.

Viltu leika hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar?

lf.hafnarfj

Leikfélag Hafnarfjarðar verður með samlestur á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo mánudaginn 14. október næstkomandi. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta. Samlesturinn verður kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50. Athugið að sýningar á verkinu eru fyrirhugaðar í lok nóvember – byrjun desember.

Nýr leikhópur á Akureyri sýnir tvö leikverk á þessu leikári

guggladu_tad_bara

Leikhópurinn Grímurnar var stofnaður síðastliðið haust þegar settur var upp söngleikurinn Berness, já takk & franskar á milli. Sýningin fékk góðar viðtökur og voru sýndar 12 sýningar í fullum sal Sjallans.  Nú eru framundan hjá leikhópnum  tvö ný og frumsamin leikverk. Á haustdögum er það gamanleikur með söng-farsa og tónlist sem heitir Gúgglaðu það bara […]

Leikfélag Ölfuss sýnir Makalausa sambúð

makalaus_sambud

Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon. Leikritið verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem […]

Æfingar hafnar á Maríusögum hjá Leikfélagi Selfoss

mariusogur_hopur

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á harmleiknum Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Frumsýnt verður 25. október í Litla leikhúsinu við Sigtún.

Harmsaga á svið í Washington

harmsaga_poster

Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason verður sýnt í Kennedy Center í mars á næsta ári. Leikhópnum öllum og leikmynd verður flogið út til að vera eitt af stóru verkum á einni virtustu leikhúshátíð vestra.  Um er að ræða mikla viðurkenningu fyrir það listafólk sem kemur að sýningunni sem leikstýrt er af Unu Þorleifsdóttur. Þetta er […]

Þannig aukum við lífsgæði!

birna_hafstein

Sjálfstæðu leikhúsin (SL), samtök atvinnufólks í sviðslistum á Íslandi, harma þann mikla niðurskurð til sjálfstæðra sviðslistahópa sem boðaður er í fjárlögum 2014. Innan sjálfstæða sviðslistageirans er að finna vaxtarbrodd íslenskra sviðslista, sem felst í nýsköpun, rannsóknum og tækifærum ungs sviðslistafólks til að láta að sér kveða. Menningarlegt gildi starfsins er umtalsvert, þar sem  meirihluti allra […]

Brúðuheimar frumsýna Aladdín á Brúðuloftinu

aladdin

Brúðuheimar, í samvinnu við Þjóðleikhúsið, frumsýna vígslusýningu Brúðuloftsins, Aladdín á sunnudaginn 6. október, í aðalbyggingu Þjóðleikhússins. Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur unnið um 40 brúður fyrir þessa sýningu af sínu alkunna listfengi, af öllum stærðum og gerðum. Flestar brúðurnar eru þó svokallaðar strengjabrúður og eru þær nær allar tálgaðar út úr tré. Sýningin er veisla fyrir […]

Leiksmiðju Austurlands hleypt af stokkunum

auddis.guttesen

Sviðslistamiðstöð á Egilsstöðum hleypir nú í haust af stokkunum verkefninu Leiksmiðja Austurlands sem samanstendur af röð leiklistartengdra námskeiða í fjórðungnum. Verkefnið er styrkt af Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Menningarráði Austurlands. Fyrsta námskeið Leiksmiðjunnar verður þriggja helga námskeið í handritagerð og leikstjórn sem haldið verður 26. október til 10. nóvember í Menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Kennarar námskeiðsins […]

Starfsemi Leikfélags Kópavogs komin á fullan skrið

kopologo

Leikfélag Kópavogs hyggst halda úti öflugri starfsemi í vetur líkt og undanfarna vetur. Þegar eru hafin námskeið fyrir börn og unglinga og framundan eru uppsetningar á þremur leikþáttum nú í október, fyrirlestrar um leiklistarsögu og svo aðalverkefni vetrarins sem ætlunin er að frumsýna í janúar. Rúnar Guðbrandsson hefur verið ráðinn til að leikstýra því.

Sek frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar

sek

Sek eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 4. október. Sek byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi […]

Leikfélaga Rangæinga æfir Góðverkin kalla!

godverkin_hopmynd

Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Rangæinga á gamanleiknum Góðverkin kalla! Leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann er jafnframt einn höfunda verksins ásamt Sævari Sigurgeirssyni og Þorgeiri Tryggvasyni. Frumsýnt verður í Hellubíói á Hellu í byrjun nóvember og verður leikfélagið í samstarfi við veitingahúsið sem rekið er í húsinu.

Aðalfundur Leikfélagsins Sýnir

hito

Aðalfundur Leikfélagins Sýnir verður haldinn mánudaginn 30. september kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Ræddar verða hugmyndir að næstu verkefnum. Gamlir og nýir félagar velkomnir.

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla 2013

Hörgdælir stór

Leikfélag Hörgdæla heldur aðalfund sinn fimmtudagskvöldið 26. september nk. kl. 20.30 á Melum í Hörgárdal. Á dagskrá eru lagabreytingar auk venjulegra aðalfundarstarfa og umræðu um spennandi vetrarstarf sem framundan er. Félagar hvattir til að mæta og ný andlit eru ætíð velkomin á Mela.

Styttist í frumsýningu á Jeppa á Fjalli

jeppi

Jeppi á Fjalli verður frumsýndur föstudaginn 4. október næstkomandi á Nýja sviði Borgarleikhússins. Benedikt Erlingsson, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón-sjónleik þar sem Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Jeppa. Leikhópurinn samanstendur af leikurum og tónlistarmönnum og hefur Ingvar til að mynda verið á stífum harmonikkuæfingum fyrir hlutverkið. Höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson en […]

Tenórinn aftur á fjalirnar

tenorinn2

Tenórinn var frumsýndur í Iðnó fyrir tíu árum síðan og sýndur þar og víða annarsstaðar við feikilega góðar undirtektir bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Til að halda upp á tíu ára afmælið kemur sýningin nú aftur á fjalir hins gamla og sögufræga samkomuhúss, Iðnó. Höfundur Tenórsins er Guðmundur Ólafsson og túlkar hann jafnframt titilhlutverkið en undirleikara […]

Maður að mínu skapi frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

madur_ad_minu_skapi_poster

Nýtt verk úr smiðju Braga Ólafssonar, Maður að mínu skapi, verður frumsýnt laugardaginn 14. september á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fyrri leikrit Braga Ólafssonar, Hænuungarnir og Belgíska Kongó  hlutu afbragðs viðtökur og voru bæði tilnefnd til Grímunnar, auk þess sem Bragi var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Hænuungana. Líkt og í þessum verkum fer Eggert Þorleifsson […]

Horn á Höfði í Tjarnarbíói

horn_a_hofdi1

Barnasýning Horn á Höfði, verður sýnd í Tjarnarbíói frá 15. september nk. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009 en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var svo sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hlaut einróma lof en Horn á höfði er fjörleg sýning sem höfðar til ungra sem aldinna. Leikstjóri er […]

Skrímslið litla systir mín í Þjóðleikhúsinu

litla_skrimslid_systir_min

Þann 14. september hefjast sýningar á Skrímslið litla systir mín í Leikhúskjallaranum í Þjóðleikhúsinu. Höfundur, hönnuður og flytjandi er Helga Arnalds en leikstjóri og meðhöfundur Charlotte Böving. Skrímslið litla systir mín er sögustundarsýning Þjóðleikhússins og munu því öll 5 ára börn koma að sjá verkið. Boðið verður upp á opnar sýningar fyrir almenning um helgar […]

Leikfélag Ölfuss æfir Makalausa sambúð

Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á gamanleiknum Makalaus sambúð eftir Neil Simon en eftir leikritnu var einmitt gerð kvikmyndin The Odd Couple sem skartaði þeim Jack Lemon og Walter Matthau í aðalhlutverkum en ólíkt kvikmyndinni eru konur í aðalhlutverkum í þessari leikgerð. Leikstjóri er Eyjapeyjinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem meðal annars hefur numið og leikið […]

Haustfundur Leikfélags Selfoss

litlaleikhsid

Leikfélag Selfoss býður þér á opinn kynningarfund miðvikudaginn 11. september í Litla leikhúsinu við Sigtún kl. 20.30. Fundurinn er tilvalið skjól fyrir votum vindum haustsins í heimilislegum og hlýjum faðmi leikhússins þar sem dagskrá vetrarins verður kynnt. Fyrsta verkefnið verður kynnt sérstaklega af leikstjóranum sjálfum.

Soðið svið sýnir Hættuför í Huliðsdal

haettufor_poster

Leikhópurinn Soðið svið frumsýndi sl. helgi í samvinnu við Þjóðleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Hættuför í Huliðsdal, í Kúlunni. Höfundur verksins er Salka Guðmundsdóttir og leikstjóri Harpa Arnardóttir. Leikhópurinn Soðið svið vakti mikla athygli fyrir sýninguna Súldarsker, en það verk var einnig eftir Sölku Guðmundsdóttur og listrænir aðstandendur og leikarar voru flestir þeir sömu og nú.

Mary Poppins aftur á svið og geisladiskur kominn út

mpcd

Einn vinsælasti söngleikur allra tíma, Mary Poppins, fer aftur á svið í Borgarleikhússins á morgun föstudag 6. september Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary […]

Lokasýning á Sjö samúræjum

sjo_samuraejar5

Allra síðasta sýning Leikfélagsins Sýnir á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal, verður laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur […]

Ítrekun – NEATA hátíð 2014 og leiksmiðja fyrir ungmenni

neatalogo2014

Dagana 1. til 6. júlí  2014 verður áttunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Porvoo í Finnlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi. Fyrir og samhliða hátíðinni í Porvoo verður hálfs mánaðar leiksmiðja á vegum NEATA-Youth. Aðildarlönd NEATA eru […]

Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá leikársins

kopologo

Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá vetrarins á almennum félagsfundi mánudaginn 2. sept. kl. 19.30 í Leikhúsinu. Dagskráin er afar fjölbreytt og hefst á námskeiðum fyrir 11-12 ára annarsvegar og 13-16 ára hinsvegar. Þá verður einnig haldið námskeið fyrir byrjendur sem hefst 9. september. Þá verða leiksýningar og leikdagskrár á boðstólum og verður nánar upplýst um það […]

Opið hús í Borgarleikhúsinu laugardaginn 31. ágúst

opid_hus

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag kl. 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru […]

Leikárið 2013-14 í Þjóðleikhúsinu

madur_ad_minu_skapi_poster

Í Þjóðleikhúsinu leggjum við okkur fram um að laða að leiklistinni og leikhúsinu fólk á ólíkum aldri með ólík áhugasvið og því er framboð og úrval sýninga fjölbreytt. Við bjóðum upp á hvorki fleiri né færri en tíu mismunandi barnasýningar í vetur, og opnum meðal annars nýtt svið sérstaklega fyrir brúðusýningar á Brúðuloftinu. Og það […]

Fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum

sjo_samuraejar4

Leikfélagið Sýnir sýnir fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana tvær næstu helgar. Laugardaginn 31. ágúst og sunnudaginn 1. september hefjast sýningar kl. 20 en föstudaginn 6. og laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni […]

Leikárið framundan hjá Leikfélagi Akureyrar

lalogo

Starfsemi er komin á komi á fullt að loknum sumarleyfum hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikfélagið heldur upp á 40 ára afmæli sem atvinnuleikhús í ár og tekur verkefnavalið mið af því. Leikárið byrjar á tveimur gestasýningum. Blakkát eftir Björku Jakobsdóttur verður sýnt í Samkomuhúsinu í september, frumsýnt þann 6. september og Segðu mér satt eftir Hávar […]

GRAL frumsýnir Eiðinn og Eitthvað

eidurinn_og_eitthvad

Leikhópurinn GRAL frumsýnir leikverkið Eiðurinn og Eitthvað, fyrsta vekrið sem Gubergur Bergsson skrifar fyrir leiksvið, á leiklistarhátíðinni LÓKAL þann 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. Aðlögun og leikstjórn er höndum Bergs Þórs Ingólfssonar en leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Verkið verður síðan sýnt áfram út september.