Aukasýning á Þremur systrum

Systur_250x165

Aukasýning verður á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 8 mars. Sýningin hefur fengið afar góða dóma, m.a. af Lárusi Vilhjálmssyni hér á Leiklistarvefnum sem gaf sýningunni fjórar stjörnur. Hægt er að kaup miða á midakaup.is/kopleik eða með því að senda póst á midasala@kopleik.is. Nánari upplýsingar um sýninguna má fá á vef Leikfélags Kópavogs. 

Ljónshjarta bræðir hjörtu

ljonshjarta

Leikfélag SelfossBróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid LindgrenLeikstjóri Sigrún Valbergsdóttir  Með hækkandi sól og umbrotum í samfélaginu hefur Leikfélag Selfoss unnið enn eitt þrekvirkið og nú með boðskap um hugrekki og samábyrgð.  Félagið hefur fært margar athyglisverðar og flottar sýningar á fjalir sínar í gegnum tíðina og sinnt  öllum aldurshópum.  Nú er það Astrid Lindgren sem […]

Farsi í Freyvangi

orskur1

FreyvangsleikhúsiðÞorskur á þurru landiHöfundar Karl Tiedemann og Allen Lewis RickmanLeikstjóri og þýðandi Daníel Freyr Jónsson Freyvangsleikhúsið frumsýndi amerískan farsa fimmtudaginn 20. febrúar og er hér um Íslandsfrumsýningu að ræða, en leikstjóri sýningarinnar, Daníel Freyr Jónsson, þýddi leikritið og staðfærði að hluta. Og maður verður ekki svikinn af kvöldskemmtun í Freyvangi nú frekar en fyrri daginn […]

Siðustu sýningar á Sambýlingum

sambylingar

Síðustu sýningar á Sambýlingunum í uppsetningu Halaleikhópsins verða sýndar sunnudagana 2. og 9. mars kl. 17.00. Verkið, sem er senn átakamikið og grátbroslegt, hefur fengið góðar viðtökur svo ekki láta það framhjá þér fara. Leikstjóri og þýðandi er Oddur Bjarni Þorkelsson en verkið er eftir Tom Griffin.

Kristín Eysteinsdóttir ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins

kristineysteins

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsinu, hefur ákveðið að ráða Kristínu Eysteinsdóttur leikstjóra sem næsta leikhússtjóra Borgarleikhússins. Umsóknir um starfið voru á annan tug og eftir vandað ráðningarferli ákvað stjórn LR einróma að ráða Kristínu Eysteinsdóttur sem næsta leikhússtjóra.

Furðulegt háttalag hunds um nótt

furdulegthattalaghunds

Laugardaginn 8. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Furðulegt háttalag hunds um nótt á Stóra sviðinu. Verkið hefur slegið rækilega í gegn á West End, var ótvíræður sigurvegari sviðslistaverðlauna Breta, Olivier Awards, á síðasta ári hlaut sýningin alls sjö verðlaun, m.a. sem besta sýningin og besta leikritið. Engin sýning hefur áður hlotið fleiri verðlaun á hátíðinni. Hilmar Jónsson […]

Strákapör sambýlinganna hjá Halaleikhópnum

sambylingar

Síðasta sunnudag skellti ég mér á sýninguna Sambýlingar eftir Tom Griffin, sem Halaleikhópurinn er að setja upp um þessar mundir. Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir sáu um leikstjórn að þessu sinni, en þau hafa tvisvar sinnum áður unnið með þessum leikhóp. Verkið fjallar um fimm einstaklinga, fjórir af þeim búa undir sama þaki. Þrír […]

Lína Langsokkur á Þingeyri

linahofrungur

Það er mikið líf og fjör í Dýrafirði þessa dagana. Þar hafa staðið yfir æfingar á einu vinsælasta barnaleikriti allra tíma Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren. Lokaspretturinn stendur nú yfir og allt að verða tilbúið á Sjónarhóli. Lína Langsokkur verður frumsýnd laugardaginn 8. mars kl. 14 í félagsheimilinu á Þingeyri.

Síðustu sýningar á Þremur systrum

3systur_250x165

Síðustu sýningar á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar hjá Leikfélagi Kópavogs verða nú um helgina. Sýningin sem var frumsýnd 31. janúar síðastliðinn hefur fengið mikið lof enda afar metnaðarfull uppsetning á þessu klassíska verki. Lárus Vilhjálmsson sagði m.a. í gagnrýni sinni: „… frábært afrek og gott dæmi um vel heppnað samstarf […]

Tumi Tímalausi í Álfheimum

tumitimalausi

Leikhópurinn Grímurnar á Akureyri setur upp á stóra sviðinu í Hofi á Akureyri þann 23. mars nk., nýjan barnasöngleik með tónlistinni af vísnaplötum Gunnars Þórðarsonar, Einu sinni var og Út um græna grundu. Höfundar eru Pétur Guðjónsson og Jóhanna G Birnudóttir sem skrifað hafa tvö önnur leikrit sem sett hafa verið upp á Akureyri.

Stóru börnin snúa aftur, aukasýningar á Lúkasi

storu_bornin

Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frumsýnd var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagnrýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Þremur aukasýningum hefur verið bætt við, nánar tiltekið 20., 21. og 22. mars. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda og var meðal annars valin leiksýning haustsins af Símoni […]

Í Davíðshúsi verða raddir á sveimi

davidstefansson

Laugardagínn 1. mars næstkomandi er fimmtíu ára ártíð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Þá verður útvarpsleikritið Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánssonar frumflutt að heimili Davíðs á Bjarkarstíg 6 á Akureyri. Í verkinu heimsækja Árni píanóleikari og Páll tónskáld Davíð til að fagna Gullna hliðinu, nýskrifuðu leikriti eftir skáldið. Þeir óttast að Davíð taki ekki vel í […]

Fullkomið brúðkaup á Dalvík

ungo200

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur orðið að hætta við fyrirhugaða uppsetningu á leikritinu Þið munið hann Jörund, hjá Leikfélagi Dalvíkur. Kristján Guðmundsson formaður LD, segir að ýmsir þættir hafi spilað þar inní sem ekki verð raktir nánar hér. Kristján segist vonast til að hægt verði að setja verkið upp í nánustu framtíð. Þess í stað eru […]

Frítt fyrir börnin

thrileikur

Í tilefni af vetrarfríi í Reykjavík hefur Íslenski Dansflokkurinn ákveðið að bjóða börnum yngri en 13 ára frítt í fylgd fullorðna á sýninguna Þríleik á Stóra sviði Borgarleikhússins sunnudaginn 23.febrúar kl 20. Þríleikur samanstendur af dansverkunum Tilbrigði, FARANGUR og Berserkir.

Anna á Stóru-Borg í fyrsta sinn á fjalirnar

anna

Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir frumsamda leikgerð eftir skáldsögu Jóns Trausta um Austur-Eyfellinginn Önnu Vigfúsdóttur í Stóru-Borg. Margrét Tryggvadóttir leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar leikgerðina og leikstjóri er Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur eru á þriðja tug. Sýningar verða í félagsheimilinu Heimalandi undir fjöllunum. Frumsýning er fyrirhuguð í byrjun apríl.

Höfundasmiðja og leiklistarnámskeið

hofundasmidja

Í byrjun mars þá mun Leikfélag Hafnarfjarðar verða með Höfundasmiðju, þar sem áhersla verður lögð á ritun styttri leikverka. Tveimur vikum seinna munu síðan hefjast æfingar á stuttverkadagskrá þar sem afrakstur þessarar höfundasmiðju verður settur á svið í Gaflaraleikhúsinu. Þann 3. mars hefst námskeið í leiklist hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Námskeið þetta er ætlað þeim sem […]

Dansaðu fyrir mig í Tjarnarbíói

dansadu

Dansaðu fyrir mig, dansverk eftir Brogan Davison og Pétur Ármannsson, frumsýnt í Tjarnarbíó fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00. Verkið hefur áður verið sýnt í Hofi á Akureyri fyrir fullu húsi og á leiklistarhátíðinni Lókal í ágúst á síðasta ári, en nú í febrúar og mars fá höfuðborgarbúar tækifæri til að sjá sýninguna. Uppselt er á […]

Fyrirgefðu ehf. í Tjarnarbíói

fyrirgefdu

Tjarnarbíó frumsýnir nýtt, íslenskt leikverk, Fyrirgefðu ehf. föstudaginn 14. febrúar. Höfundurinn og leikstjórinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Málamyndahópurinn bjóða í ferðalag með Evu og félögum hennar hjá Fyrirgefðu ehf. þar sem fyrirgefningin er skoðuð ofan í kjölinn. Hvaða þýðingu hefur fyrirgefningin raunverulega? Er alltaf rétt að fyrirgefa? Eða er sumt ófyrirgefanlegt? Fyrirgefum við eingöngu í […]

Bróðir minn Ljónshjarta á Selfossi

ljonshjarta

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. 20 leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, sem leikur Jónatan. Leikstjóri verksins […]

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Þorsk á þurru landi

orskur1

Freyvangsleikhúsið frumsýnir leikritið Þorskur á þurru landi í Freyvangi 20. febrúar nk. Þorskur á þurru landi er farsi frá árinu 2005 eftir þá Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman. TItill á frummáli Off the Hook. Persónur leiksins eru átta en þátttakendur í heild eru rúmlega 20 manns. Daníel Freyr Jónsson þýddi og leikstýrir. Benedikt Axelsson […]

Barið í brestina, frumsýning í Aratungu 14. febrúar

baridibrestina

Leikdeild Umf. Biskupstungna æfir nú af fullum krafti gamanleikinn Barið í brestina, eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson en þetta er sjöunda uppfærsla hans hjá félaginu. 
Leikritið er ærslafullur gamanleikur með söngívafi. Alls koma að uppsetningunni um 20 manns, 14 leikarar, smiðir, hvíslari og ljósamaður.Frumsýnt verður í Aratungu föstudaginn 14. febrúar.

Pörupiltar á kafi í kynlífi

kynfraedslaporupilta

Miðvikudaginn 12. febrúar frumsýna Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana.  Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga og fullorðna. Öllum […]

Trúðanámskeið í Tjarnarbíói

trudanef

Trúðanámskeið verður haldið í febrúar í Tjarnarbíói. Kennari er Sólveig Guðmundsóttir en hún hefur unnið mikið með trúðatækni sl. ár. Farið verður í grunn-tækniæfingar, hver þátttakandi mun þróa sinn trúð og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Þetta er tækni sem nýtist bæði í leik og starfi – leikarar skerpa verkfæri sín í […]

Leikhússpjall í Tjarnarbíói

tjarnarbio6.2.14

Núna um helgina mun gestum Tjarnarbíós gefast kostur á að ræða við leikara og aðstandendur sýninga um innihald og upplifun þeirra af verkinu. Um ræðir leikhússpjall um Lúkas laugardagskvöldið 8. febrúar og um Eldklerkinn sunnudagskvöldið 9. febrúar. Sýningarnar hefjast kl. 20, en verður lokið um 21:30. Þá hefst leikhússpjallið. Leikhússpjall Tjarnarbíó er kjörið tækifæri til […]

Lísa og Lísa, Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Rýminu

lisaoglisa

Þær Lísa og Lísa, leiknar af hinum ástsælu akureyrsku leikkonum Sunnu Borg og Sögu Geirdal Jónsdóttur, eru komnar á sjötugsaldurinn og hafa búið saman í þrjátíu ár – hálfvegis í felum. Fyrir atbeina ungs leikskálds hafa þær nú tekið ákvörðun um að koma út úr skápnum og segja sögu sína á leiksviði. Einlægt og meinfyndið […]

Systurnar fljúga hátt í Kópavogi

rjar_systur

Leikfélag KópavogsÞrjár systur eftir Anton TshekovLeikstjórn: Rúnar Guðbrandsson Það er alltaf ánægjulegt þegar íslenskt leikhús býður áhorfendum upp á gullmola heimsleikbókmenntanna eins og t.a.m. verk Rússans Antons Tsjekhov. Síðast bauð Borgarleikhúsið upp á Kirsuberjagarðinn árið 2011 og það eru komin 16 ár síðan að Þrjár systur var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Leikfélag Kópavogs og leikstjórinn Rúnar […]

Bláskjár frumsýnt á Litla sviðinu

blaskjar_poster

Bláskjár Tyrfing Tyrfingssonar verður frumsýndur á Litla sviðinu laugardaginn 8. febrúar. Verkið Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu […]

Leikfélag Selfoss æfir Bróðir minn Ljónshjarta

brodirminnljonshjartacover

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren hjá Leikfélagi Selfoss. Verkið þarf vart að kynna fyrir fólki en þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. Leikstjóri verksins er Sigrún Valbergsdóttir. Stefnt er að frumsýningu 21. febrúar næstkomandi, sýningar verða í Litla leikhúsinu við Sigtún en miðaverð auglýst þegar nær dregur frumsýningu.

Leikfélag Fjallabyggðar æfir nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson

samlestur

Nú eru æfingar hafnar á fyrsta verki Leikfélags Fjallabyggðar, en Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12. júlí 2013. Áður unnu félögin saman af mikilli prýði að uppsetningu á verkinu Stöngin inn! sem var samið og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni, en félögin enduðu á fjölum Þjóðleikhússins með þá sýningu.

Leikfélag Kópavogs frumsýnir stórvirkið Þrjár systur

rjar_systur

Liðsmenn Leikfélags Kópavogs hafa keppst við undanfarnar vikur og nú hillir undir að árangur erfiðisins líti dagsins ljós því næstkomandi föstudag, 31. janúar, frumsýnir félagið Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í Leikhúsinu við Funalind. Er þetta viðamesta sýning félagsins í húsinu. Um 15 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra leggja fjöldamargir hönd á […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Sambýlinga

sambylingar

Þann 25. janúar frumsýnir Halaleikhópurinn leikrit eftir ameríska leikskáldið Tom Griffin sem heitir á frummálinu The boys next door, en í staðfærðri þýðingu nefnist Sambýlingar. Þýðinguna gerði Oddur Bjarni Þorkelsson en hann er jafnframt leikstjóri verkins. Sýnt er í Halanum að Hátúni 12.

Óskasteinar frumsýnt á Nýja sviðinu

oskasteinar

Föstudaginn 31. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Óskasteina á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ragnar Bragason er mættur aftur til leiks eftir velgengni Gullregns og er hér höfundur og leikstjóri á verki sem fjallar á kómískan hátt um misheppnaða íslenska krimma. Hér er á ferðinni sami hópur listrænna stjórnenda og færði okkur Gullregn á síðasta leikári.

Horn á höfði sýnt áfram í Tjarnarbíói

horn_a_hofdi1

Barnasýningin Horn á Höfði verður sýnd áfram í vor. Til stóð að hætta sýningum um áramót vegna skorts á leikmyndageymsluplássi í Tjarnarbíó – en úr því hefur verið bætt og þessi sívinsæla barnasýning mun því halda áfram fram á vor. Búið er að sýna 60 sýningar allt í allt og á næstu sýningu, þann 26. […]

Öll Gerfiaugnahár á Útsölu!

augnahar

Seljum öll Grimas gerfiaugnahár á helmings afslætti út janúar. 27 tegundir í boði af öllum stærðum og gerðum á 750.- kr. stk. – kostuðu áður 1.500.-. Lím fylgir örfáum tegundum en hægt er að panta það sérstaklega. DUO lím, 14 gr. túba kostar 2.680.- og Kryolan lím, 4 gr. kostar 1.000.-. Vörurnar má skoða hér […]

Spjall með leikurum og leikstjóra Lúkasar

lukas

Laugardaginn, 18. janúar, eftir sýningu á leikritinu Lúkas, munu leikendur og leikstjóri setjast niður með áhorfendum og ræða leikritið. Sýningin hefst kl. 20.00 en verður lokið um 21.30. Þá munu Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem fara með hlutverk í leikritinu, og Marta Nordal, leikstjóri, setjast niður á kaffihúsi Tjarnarbíós og […]

LA frumsýnir Gullna hliðið

gullna_hlidid_hopur

Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 17. janúar n.k. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu en það er nú sett upp í fjórða sinn hjá LA. Sýningin er hátíðarsýning félagsins á 40 ára atvinnuafmæli þess. Verkið fjallar um uppgjör kerlingar við líf sitt og Jón mann sinn. Ferðalag hennar til hins […]

Óraunveruleikir frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

oraunveruleikir

Nýtt íslenskt sviðsverk samið og flutt af Urði Hákonardóttur, Valgerði Rúnarsdóttur og Þyri Huld Árnadóttur, verður frumsýnt í Kassanum fimmtudaginn 16. janúar klukkan 20. Aðrar sýningar verða 17. 25. og 26. janúar. Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og unnið í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Sagnakonuna áfram

sagnakonan

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýndi Sagnakonan, móðir Snorra eftir Óskar Guðmundsson í leikgerð leikstjórans Jakobs S. Jónssonari og leikhópsins. Sýnt er í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi 22. nóv. sl. og voru sýndar 6 sýningar fyrir jól við góðar undirtektir. Nú hefur leikfélagið tekið upp þráðinn að nýju og ætla að sýna nokkrar sýningar.

Sjö samúræjar til Finnlands

sjo_samuraejar2

Leikgerð Leikfélagins Sýna á japönsku stórmyndinni Sjö samúræjar hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður í Porvoo í Finnlandi dagana 1.–6. júlí nk. Höfundur leikgerðarinnar er Guðmundur Erlingsson og er hann jafnframt leikstjóri verksins. Hátt í 30 leikarar taka þátt í sýningunni sem er útileiksýning og var sýnd […]

Elska – sýningar í Reykjavík

jennylara

Einleikurinn Elska, eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur, var sýndur við góðar viðtökur í sveitarfélögum Þingeyjarsýslna fyrir jólin 2013. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að sýna tvær sýningar á Cafe Rosenberg í Reykjavík núna í janúar. Einleikurinn er unnin upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Sýningar  verða […]