Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litaland, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 25. maí klukkan 18:00. Þetta er tíunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í […]

Kompani Nord sýnir í Tjarnarbíói

Norræni leikhópurinn Kompani Nord sýnir leiksýninguna Vi, De Drunknade (We, The Drowned) í Tjarnarbíói 28. og 29. maí. Sýningin Vi, De Drunknade er uppsetning á samnefndri bók eftir danska rithöfundinn Carsten Jensen. Bókin hefur notið mikilla vinsælda, um allan heim, frá útgáfu árið 2006. Stjórnandi leikhópsins og leikstjóri sýningarinnar er finnski leikstjórinn Arn-Henrik Blomqvist. Verkið […]

16 elskendur fara til Færeyja

Sviðslistahópnum 16 elskendur hefur verið boðið að taka þátt sem fulltrúar Íslands á Norrænum sviðslistadögum sem haldnir verða í Færeyjum 24. – 28. maí næstkomandi. Þema sviðslistadaganna í ár er gagnvirkni/áhorfendaþátttaka og voru 16 elskendur því beðnir um að endurvekja sýninguna „ÍKEA ferðir“ – sem var síðast sýnd fyrir átta árum, síðsumar 2008. Sú sýning vakti […]

Hið Ubbalega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar blæs til stuttverkahátíðar í tilefni þess að sýning félagsins Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin til þátttöku á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Austurríki í sumar. Stuttverkin eru innblásin af Ubba kóngi og höfundi hans, franska leikskáldinu Alfred Jarry. Áhorfendur mega því eiga von á ýmiskonar grodda, […]

Afrakstur höfundasmiðju í Borgarleikhúsinu

Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00 Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins.  Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. […]

Sími látins manns í Tjarnarbíói

Þegar Nína ákveður að svara í síma manns á kaffihúsi, sem hringt hefur án afláts, fer af stað atburðarás sem hefur ófyrirséðar afleiðingar. Sími látins manns er fyrsta verk leikskáldsins Söruh Ruhl sem sett er upp á Íslandi. Sími látins manns fjallar um einsemdina og þrána eftir nánd. Snjallsímar og sambærileg tæki, með ótakmörkuðu upplýsingaflæði […]

Baldursbrá aftur á svið í Hörpu

Vegna fjölda áskorana verður ævintýraóperan Baldursbrá sýnd á þremur aukasýningum í Norðurljósasal Hörpu dagana 20.-22. maí nk. Óperan er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson og fékk mikið lof þegar hún var frumsýnd. Aukasýningarnar verða sem hér segir:   Föstudaginn 20. maí 2016 kl. 19.00   Laugardaginn 21. maí 2016 kl. 14.00   Sunnudaginn 22. maí 2016 […]

Súperstar á Laugarbakka

Leikdeild Umf. Grettis á Laugarbakka í Miðfirði í samstarfi við Leikhópinn á Hvammstanga setti upp rokkóperuna Súperstar síðustu páska í Félagsheimilinu Hvammstanga. Þátttakendur sem voru allir heimamenn voru 38 talsins og var sýnt fyrir fullu húsi í fimm skipti.  Ákveðið var að setja upp áhorfendapalla með því að stafla upp 600 vörubrettum svo að allir […]

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2015-2016

Þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson, tilkynnti um valið á hátíðakvöldverði aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði laugardaginn 7. maí sl.: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og þriðja sinn. Áhugasýning ársins hefur verið kærkomið tækifæri fyrir höfuðborgarbúa að upplifa þá grósku sem einkennir starf hinna fjölmörgu sjálfstæðu leikfélaga á Íslandi. Að […]

Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjöðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði í kvöld.

Aðalfundur BÍL á Seyðisfirði

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var settur á Seyðisfirði í morgun, laugardaginn 7. maí. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Svipmyndir af þinginu munu birtast hér meðan á því stendur.

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Þriðjudaginn 3. maí kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Bjarna Jónssonar, Sending. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]

Framtíð mannkynsins er á KOI

Sviðslistamennirnir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson frumsýna leikverkið Könnunarleiðangur til KOI á föstudaginn, 29. apríl kl. 20:30, í Tjarnarbíói. Um er að ræða sjálfstætt framhald af verkinu MP5 sem vakti mikla athygli í Tjarnarbíói á síðasta leikári. Verkið segir frá spandex-geimförunum Ísaki og Vilhjálmi sem eru sendir í könnunarleiðangur til KOI. Jörðin er að deyja og þar […]

Ófeigur Hugleikur

Hugleikur Feigð eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ármann Guðmundsson, höfundur og leikstjóri Feigðar sem Hugleikur frumsýndi að kvöldi síðasta vetrardags í Kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekkunni, lætur þess getið í leikskrá að verkið sé afturhvarf til þess tíma þegar hann steig sín fyrstu skref með Hugleik. Síðan eru 25 ár og þetta ástríðuleikfélag sýnir engin merki […]

Sjeikspír fyrir vestan

Laugardaginn 23. apríl eru liðin 400 ár frá andláti merkasta leikskálds allra tíma William Shakespeare. Kómedíuleikhúsið minnist skáldsins á dánardeginum fjórum öldum síðar með frumsýningu á leikverkinu Daðrað við Sjeikspír. Sýnt verður í Hörpu Vestfjarða, í Félagsheimilinu Bolungarvík. Um er að ræða sýningu að hætti kaffileikhúsa og sitja því gestir við borð og geta jafnvel […]

Hugleikur frumsýnir Feigð

Næsta miðvikudag. 20. apríl, mun Leikfélagið Hugleikur frumsýna Feigð, nýtt verk með söng-, hryllings-, drama- og gamanleikjaívafi eftir Ármann Guðmundsson. Höfundur er jafnframt leikstjóri og alls koma 15 leikarar fyrir í verkinu. Á Skollakoti í íslenskri 19. aldar sveit býr nískur maður að nafni Greipur. Hann er nýkvæntur hinni ungu og fögru Sesselju sem rennir […]

Leikfélag Mosfellssveitar býður í leikhús

Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl kl. 15 verður barnaleikritið Ævintýraþjófarnir frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Í tilefni þess að Leikfélag Mosfellssveitar var valið bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2015 langar okkur að þakka fyrir okkur og því er öllum bæjarbúum, ungum sem öldnum, boðið á sýninguna. Ævintýraþjófarnir er nýtt barnaleikrit byggt á gömlum íslenskum ævintýrum skrifað af Maríu […]

Aðalfundur og einþáttungahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga 2016

bil_island_logo

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn á Seyðisfirði dagana 7. og 8. maí 2016. Í tengslum við aðalfundinn verður haldinn einþáttungahátíð í Félagsheimilinu Herðubreið föstudaginn 6. maí. Einþáttungahátíðin verður sennilega sett kl. 20.00 föstudagskvöldið 6. maí. Aðalfundurinn verður settur laugardagsmorguninn 7. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 8. maí. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu […]

Sviðslistahátíðin UNGI 2016

Sviðslistahátíðin UNGI fyrir unga áhorfendur verður haldin dagana 20. til 23. apríl. Hátíðin er haldin í fjórða sinn af ASSITEJ á Íslandi, sem eru samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, en skartar nafninu UNGA í fyrsta sinn í ár. UNGI fer fram víðsvegar í Reykjavík en höfuðstöðvar hátíðarinnar verða í Tjarnarbíói. Þar verða skemmtilegar sýningar […]

Leikritunarnámskeið LS og LÖ

Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss taka höndum saman og standa fyrir leikritunarnámskeiði 16.-27. apríl. Kennari er Karl Ágúst Úlfsson. Hugmyndin að þessu verkefni kviknaði síðastliðið haust en okkur fannst liggja í loftinu að félagar í þessum nágrannafélögum hefðu þörf fyrir að læra undirstöðuatriði leikritunar. Sótt var um styrk til Uppbyggingarsjóðs Suðurlands til að standa straum […]

Fullkomið brúðkaup á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Þýðandi er Örn Árnason og leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur, hraður, fullur af misskilningi, framhjáhöldum og ást. Leikritið segir frá ungu fólki sem er að glíma við ástina, verða ástfangið, hætta að vera ástfangið og að verða ástfangið af þeim […]

Vinnustofa í sagnalist

Halaleikhópurinn býður upp á vinnustofu í sagnalist nú á vordögum. Þetta er sjálfstætt framhald námskeiðs sem haldið var árið 2014. Þá var unnið með þjóðsögur og ævintýri en að þessu sinni verður viðfangsefnið persónulegar sögur. Leiðbeinandi verður sem áður, Ólöf I. Davíðsdóttir, en hún nam sagnalist í Bandaríkjunum. Vinnustofan í ár er öllum opin, jafnt […]

Mikill áhugi á hlutverkum í Bláa hnettinum

Í gær miðvikudaginn 6. apríl voru skráningar í prufur fyrir hlutverk í Bláa hnettinum. Gríðarlegur fjöldi barna mætti og munu næstu dagar fara í að hitta börnin og sjá hæfileika þeirra. Borgarleikhúsið leitar að 22 börnum, sem geta sungið, dansað og leikið, til að fara með hlutverk í fyrstu uppfærslu næsta leikárs sem verður Blái […]

Stuttverkahátíð Leikfélags Ölfuss

Leikfélag Ölfuss efnir til stuttverkahátíðar laugardaginn 9. apríl næstkomandi. Sýnd verða nokkur af þeim tugum stuttverka sem orðið hafa til síðastliðna tvo vetur en félagar úr LÖ hafa hist reglulega til að skrifa leikverk. Dagskráin hefst klukkan 17:00 og sýnt er í „Rásarhúsinu“ að Selvogsbraut 4 í Þorlákshöfn. Kynnir er hin viðkunnanlega og skelegga Árný Leifsdóttir. […]

VINNSLAN – Listamenn fylla öll rými Tjarnarbíós

Listahátíðin Vinnslan verður haldin laugardagskvöldið 9. apríl í Tjarnarbíói. Um 30 listamenn sýna verk í vinnslu og fylla rými Tjarnarbíós með öllum listformum. Listahópurinn Vinnslan heldur sína árlegu listahátíð á laugardaginn frá kl. 19:30 til 23 í Tjarnarbíói. Á þriðja tug listamanna sýna verk í vinnslu en öll rými Tjarnarbíós verða vettvangur listflutnings, hvort sem um […]

Litli leikklúbburinn býður í leikhús

Þann 23. apríl frumsýnir Litli Leikklúbburinn leikritið „Rauðhettu“ eftir Snæbjörn Ragnarsson.  Þetta er fjörugt barnaleikrit með söngvum, en auk Rauðhettu, úlfins og ömmu koma Grísirnir 3, Hans og Gréta, nornin og pabbinn við sögu. Þetta er lokahnykkurinn á 50 ára afmælisdagskrá LL og öllum börnum á norðanverðum Vestfjörðum boðið í leikhús og auðvitað líka fullorðnum í […]

Ræningjar undir Eyjafjöllum

Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner fjallar um hvernig samfélag getur haft áhrif á alla til góðs, líka ræningja. Allir vinna sín verk í ró og næði og standa saman þegar á reynir. Það þarf þorp til að ala upp barn og það þarf leikfélag til að ala upp næstu kynslóðir leikhúsáhugafólks, þátttakendur sem og áhorfendur. Það […]

Upptökur af leiksýningum

Nú er sá tími ársins þegar leikfélögin fara að ganga frá umsóknum ýmisskonar vegna leiksýninga og þá er oftar en ekki verið að vandræðast með upptökur af sýningum. Það verður æ algengara að upptökur séu settar á vefinn í stað þess að brenna á DVD. Hinsvegar vefst fyrir mörgum hvernig best er að gera það. […]

Djúp spor frumsýnt í Tjarnarbíói

Fimmtudaginn 31. mars kl. 20:30 verður leikritið Djúp spor frumsýnt í Tjarnarbíói. Selma og Alex hafa ekki hist í fimm ár. Fyrir tilviljun hittast þau aftur og þurfa þá að gera upp drauga fortíðar, ákveða hvort þau séu tilbúin til að axla ábyrgð á gjörðum sínum og fyrirgefa. Smám saman raðast saman sú atburðarrás sem […]

Kveðja á alþjóðlega leikhúsdaginn

On behalf of the Nordic and Baltic countries, we wish you a wonderful World Theatre Day. The allocution is made by the Vicepresident of the Lithuanian Amateur Theatre Association dr. Danute Vaigauskaite: Lithuanian Theatre Lover about THEATRE ESSENCE THEATRE IS… „… my soul home smelling like a mint tea. Only in theatre I can show […]

Með vífið í lúkunum, sýningar á Melum í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney við gríðarlega góðar undirtektir. Leikverkið er gamanleikur af bestu gerð og fjallar um leigubílstjóra sem heldur tvö heimili og tvær eiginkonur. Líkt og fyrirséð er kemst bílstjórinn í margvísleg vandræði við að viðhalda tvöföldu líferni sínu og spinnast inn í vef […]

Páskalokun frá 23. mars

Leikhúsbúðin og skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokaðar yfir páskana frá og með miðvikudeginum 23. mars. Opnum aftur þriðjudaginn 29. mars kl. 9.00

Tímaflakk í Freyvangsleikhúsi

Freyvangsleikhúsið Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikstjóri Skúli Gautason Þann 12. mars 2016 frumsýndi Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit leikritið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarson. Það var sérstök upplifun á þessu hryssingslega marskvöldið 2016 að flakka fram og tilbaka milli síðnútíma og ársins 1975 í gegnum efnistök leikverksins. Um leið og hljómsveitin slær fyrsta tóninn þá er áhorfendum kippt […]

Made in Children í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 1. apríl kl 20 frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við Ásrúnu Magnúsdóttur, Aude Busson og Alexander Roberts nýtt og nærgöngult verk með krökkum í öllum hlutverkum. Saman á sviðinu standa tíu börn á aldrinum átta til tólf ára sem hafa verið skilin eftir í heimi sem þau bjuggu ekki til. Þau taka yfir sviðið og […]

Kardemommubærinn á Þingeyri

Leikdeild Höfrungs á Þingeyri frumsýndi Kardemommubæinn á liðinni helgi fyrir smekkfullu húsi. Tvær sýningar voru á fyrstu sýningarhelgi og er óhætt að segja að sýningin hafi fengið húrrandi gott start svo notað sé orðalag Kardemommubæjar. Á páskum verða þrjár sýningar á Kardemommubænum eftir Thorbjörn Egner í leikhúsinu á Þingeyri. Tvær sýningar verða á föstudaginn langa […]

Áheyrnarprufur fyrir uppsetningu á Bláa hnettinum

Borgarleikhúsið leitar nú að 22 börnum, sem geta sungið, dansað og leikið, til að fara með hlutverk í fyrstu uppfærslu næsta leikárs sem verður Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason. Bergur Þór gerir nýja leikgerð ásamt því að leikstýra og Kristjana Stefánsdóttir semur tónlistina. Æfingar hefjast í maí en áætluð frumsýning er 17. […]

Kardemommubærinn í Heimalandi

Leikfélag Austur-Eyfellinga frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Fólk og ræningjar í Kardemommubæ laugardaginn 19. mars kl. 15.00 í Félagsheimilinu Heimalandi. Leikendur eru 17 en  30 – 40 manns koma að sýningunni. Leikstjóri er Sigurður Hróarsson. Ljósameistari er Þorsteinn Sigurbergsson og tólnlistarstjóri Ingibjörg Erlingsdóttir Leikarar eru á öllum aldri frá 10 – 70 ára.  Börnin sem taka þátt í leikritinu hafa […]