Í lífsins ólgusjó

Leikfélag Ölfuss: Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Leikfélag Ölfuss frumsýndi síðastliðinn föstudag leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikritið segir frá lífi þriggja vina sem fylgjast að í gegnum lífið frá bernsku til elliára. Vinirnir, Diddi, Dudda og Dúa eiga vonir og þrár eins og flestir og […]

Leiklistarskóli BÍL 2017

Starfstími skólans á þessu ári er frá 12. til 20. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði. Í sumar verða þrjú námskeið í boði sem öll gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Ágústa Skúladóttir verður með Leiklist II, framhald af velheppnuðu byrjendanámskeiði sem haldið var í fyrrasumar. Rúnar Guðbrandsson stýrir masterclass námskeiði í leikstjórn og byggir […]

Endastöð – Upphaf, Lab Loki 25 ára

Í ár er Lab Loki 25 ára. Á þeim tímamótum býður hann til stefnumóts og frumsýninr í Tjarnarbíó fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30! Tveir gamlir vinir á sjötugsaldri standa á tímamótum og leikhópurinn þeirra Lab Loki á afmæli. Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem hófst í „Vinnubúðum sveina í skammdeginu“ á Tenerife en þar fóru viðburðir […]

Góðverkin kalla í Freyvangsleikhúsinu

Er kominn tími á ljúfa leikhússtund sem skilur ekkert eftir sig nema skaddaðar hláturtaugar? Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum. Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, […]

Listin að lifa, frumsýning 10.3.

Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur – sýningar hefjast 10. mars! Diddi, Dudda og Dúa þekkjast alla ævi. Þeim er fylgt eftir frá vöggu til grafar og verkið sýnir merkisviðburði í lífum þeirra og ekki síst samskiptum þeirra þriggja sín á milli. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og með aðalhlutverk fara þau Aðalsteinn Jóhannsson, Erla […]

Söngur, skemmtun og harmur

Leikfélag Selfoss: Uppspuni frá rótum eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri Þórey Sigþórsdóttir. Leikritið Uppspuni frá rótum eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason er athyglisverð blanda af gamanleik og alvarlegri úttekt á 20. aldar sögu Íslendinga. Fjölskyldusaga þeirra Sigurðar og Bjargar er rakin allt frá millistríðsárum og til þess dags […]

20 ára afmælishátíð Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga

Afmælishátíð Leiklistarskólans verður í haldin Hlégarði í Mosfellsbæ laugardaginn 18. mars nk. Hátiðin verður sett kl. 18.00 og stendur fram yfir miðnætti. Aðgangseyrir er 5.500 og nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir 10. mars á netfangið info@leiklist.is og greiða aðgangseyrinn inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239.   Innifalinn í aðgangseyri er kvöldverður sem samanstendur af […]

Frumsýningu frestað í Þorlákshöfn

Vegna óviðráðanlegra orsaka er frumsýningu á Listinni að lifa frestað til laugardagsins 11. mars. Miðapantanir í síma 693-2993 og á leikfjelag@gmail.com.

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og […]

Uppspuni frá rótum á Selfossi

Leikfélag Selfoss frumsýnir verkið Uppspuna frá rótum föstudaginn 24. febrúar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þeir hafa samið fjölda leikrita saman og í sitthvoru lagi. Auk þess eru þeir allir meðlimir í hinni stórskemmtilegu hljómsveit Ljótu hálfvitunum. Verkið er fjölskyldusaga þar sem saman […]

Svefnlausi brúðguminn í Borg, Grímsnesi

Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon. Leik­rit­ið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vand­ræðum með nýja tengda­syni sem eru að […]

Listin að lifa í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Listina að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur laugardaginn 25. febrúar. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Frumsýning laugardaginn […]

Lilli og Mikki flytja á Þingeyri

Leikdeild Höfrungs á Þingeyri hefur vakið athygli síðustu ár fyrir sérlega vandaðar og ævintýralegar fjölskyldu leiksýningar. Fyrst var það hin óborganlega Lína Langsokkur þar á eftir Galdrakarlinn í Oz og í fyrra var það hinn dásamlegi Kardemommubær eftir Thorbjörn Egner. Enn leitar leikdeildin í sjóð Egners því nú á að taka hitt leikritið og færa […]

Samvinnan borgar sig

Leikfélag Mosfellssveitar: Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Agnes Wild Leikhópurinn Miðnætti er öflugt teymi þriggja listamanna sem allir eru þrælmenntaðir og reyndir en upprunnir og uppaldir í öflugu leikfélagi heimabæjar síns. Nú leggja þær Agnes, Eva og Sigrún félaginu sínu lið í þriðja sinn; með vel heppnaða samstarfsverkefninu Skilaboðaskjóðunni. Fyrri verk voru hin vinsæla og góða sýning […]

Þórbergur í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Edda Productions frumsýnir nýtt leikverk um einn ástsælasta rithöfund þjóðarinnar,  Þórberg Þórðarson í Tjarnarbíó 23. febrúar nk. Leikgerðin er unnin af hópnum upp úr viðtalsbókinni, Í kompaníi við allífið og Bréf til Sólu ásamt fleiri bókum. Skyggnst er inn í líf, leyndarmál og skáldskap Þórbergs. Við kynnumst ritlist snillingsins, hugarflugi skáldsins, dulspeki draumhugans og hlátri humoristans og ferðumst með honum […]

Íslenska óperan frumsýnir Mannsröddina

Óperan Mannsröddin (La Voix Humaine) eftir franska tónskáldið Francis Poulenc var samin árið 1958 og er byggð á samnefndu leikriti eftir Jean Cocteau. Óperan er dramatískur einþáttungur sem lýsir síðasta símtali konu til elskhuga síns sem hefur slitið sambandinu eftir fimm ár. Um er að ræða nýja og ferska nálgun á verkið þar sem aðalpersónan, […]

Vísindasýning Villa í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 4. febrúar kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið barnasýninguna Vísindasýning Villa á Litla sviðinu. Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín, gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein? Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi […]

Piltur og stúlka á Höfn

Leikfélgar Hornafjarðar æfir um þessar mundir leikritið Piltur og stúlka. Leikstjóri er Stefán Sturla og hefur hann unnið nýja leikgerð sem byggir á bók Jóns Thoroddsen. 18 manna hópur leikara æfa nú á fullu og er áætluð frumsýning 18. mars. Þetta er skemmtileg ástarsaga með ýmsum söngvum sem leikhópurinn hefur valið. Piltur og stúlka, var brautryðjendaskáldsaga […]

Listin að lifa í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík […]

Líf, dauði og lygar í Kópavogi

Sunnudaginn 29. jan. kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Kópavogs stutta leikdagskrá sem ber yfirheitið Líf, dauði og lygar. Dagskráin samanstendur af þremur leikþáttum, einum íslenskum og tveimur erlendum. Íslenski leikþátturinn er Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar. Erlendu þættirnir eru Blint stefnumót eftir Samara Siskind og Sjóðandi fólk eftir Jonathan Yukich, báðir í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Leikarar eru […]

Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, […]

Australiana í Tjarnarbíói

Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar á næstunni í Tjarnarbíói. Miðinn kostar kr.1990,- og hægt að nálgast miða hér: https://midi.is/theater/1/9949/Jono_Duffy-Australiana Sýningarnartímar : […]

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2017. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að ráðast í vorverkefni félagsins sem verður farsinn „Sex í sveit“ eftir Marc Camoletti. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. febrúar og vinna í 6-8 vikur. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 16. janúar nk.

Leikfélag Reykjavíkur 120 ára

Leikfélag Reykjavíkur fagnar í dag 120 ára afmæli sínu en það var stofnað 11. janúar 1897.  Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins.  Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög metnaðarfullt og félagarnir tilbúnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sýningum í  hæsta […]

Ævisaga Einhvers aftur á svið

Ævisaga Einhvers, sem hlotið hefur gríðarlega góðar undirtektir áhorfenda og einróma lof gagnrýnenda, fer aftur á svið í Tjarnarbíói. Leikhópurinn Kriðpleir segir sögur venjulegs fólks, þeirra sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. „Langflest erum við jú bara að fást við eitthvað venjulegt megnið af ævinni, stússa, versla í Bónus, vaska upp, hlusta á útvarpið, […]

Úti að aka – opinn samlestur

Fimmtudaginn 5. janúar kl 12.oo verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Úti að aka eftir Ray Cooney. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk […]

Jólasýning Svansins í Tjarnarbíói

Tveimur dögum fyrir jól ætlar spunahópurinn Svanurinn að halda jólasýningu. Það verður spuni og alls konar grín sem er sérstaklega hannað til þess að gleyma jólastressinu og leiða hugann að hinum sanna anda jólanna. Svanurinn er spunahópur sem var stofnaður fyrir þremur árum og samanstendur af sjö metnaðarfullum spunaleikurum úr röðum Improv Ísland. Meðlimir Svansins […]

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna sem slegið hefur í gegn tíu ár í röð. Aðeins örfá sæti laus! Næstu sýningar: sun – 11.des kl. 13:00 & 15:00 sun – 18.des kl. 13:00 & 15.00 Ævintýrið um Augastein byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri […]

Naktir í náttúrinni

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „Full monty“.  Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem […]

Opnunartími í desember

Lokað mánudaginn 12. desember og svo yfir hátíðirnar frá 22. desember til 2. janúar að báðum dögum meðtöldum. Leikhúsbúðin Vefverslun Bandalag íslenskra leikfélaga, skrifstofa

Þú kemst þinn veg í Tjarnarbíói

Iðnaðarmannaleikhúsið auglýsir: Okkur langar að beina athygli ykkar að einstökum viðburði sem vert er að gefa gaum. Nú í byrjun desember kemur út bókin Glímt við geðklofa og sem byggir á sama efni og einleikurinn Þú kemst þinn veg sem sýndur hefur verið af og til síðan 2014.  Í tilefni þess verða tvær hátíðarsýningar á verkinu þann 1. og […]

Uppistand í Tjarnarbíói

Sýningin „Ha ha voða fyndið“ sló í gegn í sumar og færri komust að en vildu. Nú eru grínistarnir mættir aftur til þess að kæta landsmenn í skammdeginu með sjóðandi heitu spaugi.  Hugleikur Dagsson, Saga Garðars, Bylgja Babýlons, Andri Ívars, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Jóhannes Ingi eru tilbúin með sérsmíðað grín sem enginn má láta framhjá […]

Jólaflækja, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 26. nóvember kl 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Jólaflækju á Litla sviðinu. Verkið er samið og leikstýrt af Bergi Þór Ingólfssyni sem einnig leikur í sýningunni.  Tónlist semur Garðar Borgþórsson. Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Kryddstaukar verða hljóðfæri og baunadósir […]

Námskeið í heilgrímugerð

Heilgrímu námskeið Skýjasmiðjunnar verður haldið dagana 28. og 29. nóvember frá klukkan 19:00 – 23:00. Unnið með undirstöðuatriði heilgrímu leiks á sviði. Notast verður við neutral mask, character mask og svo verða heilgrímur Skýjasmiðjunnar einnig prófaðar í senuvinnu. Grímuleikur er frábær leið fyrir leikara til að kanna og þróa eigin líkamsbeitingu. Það eru mjög mörg […]

Farið í Halanum

Halaleikhópurinn: Farið e. Ingunni Láru Kristjánsdóttur Leikstjóri: Margret Guttormsdóttir Leikritið Farið er ísköld ádeila á bresti velferðarkerfisins. Hvernig hugmyndir yfirboðara geta stundum stangast á við eiginlegar þarfir mannfólks sem minna má sín. Farið er samið af Ingunni Láru Kristjánsdóttur og leikstýrt af Margreti Guttormsdóttur. Það er sett upp af Halaleikhópnum og sýnt í Halanum, sem er […]

Brot úr hjónabandi í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 4. nóvember kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á litla sviðinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Ólafur Egill Egilsson leikstýrir þeim Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors. Barði Jóhannsson semur nýja tónlist við verkið. Uppselt er nú þegar á 17 sýningar og ekki verður hægt að bæta við aukasýningum. Jóhann og Maríanna hafa verið gift […]