Sönglög úr íslenskum leikritum í Iðnó
Á Safnanótt verður Leikminjasafn Íslands með dagskrá í Iðnó þar sem fjallað verður um sönglög í íslenskum leikritum. Um lifandi tónlistarflutning að ræða en einnig verður leikin hljóðrituð tónlist og nokkrir reynsluboltar leggja orð í belg. Dagskrá: Kl. 19:00 Leikin lög úr ýmsum leikritum og söngleikjum. Þátttakendur í spjallborði eru Jón Ólafsson og Ólafur Haukur […]
Leiklistaræfingar
Saumastofan í Ölfusi
Leikfélag Ölfuss frumsýnir verkið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson þann 8. febrúar næstkomandi. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir en hún hefur starfað með Leikfélagi Selfoss frá barnsaldri og er starfandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga. Níu leikarar taka þátt í sýningunni en það eru þau Álfheiður Østerby, Árný Leifsdóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Máni Óskarsson, Erla Dan Jónsdóttir, Ingólfur Arnarson, […]
Dimmalimm í nýrri leikgerð
Á frábærum föstudegi sem er um leið Bóndadagur, berast stórtíðindi úr herbúðum Kómedíuleikhússins. Þrír Bílddælingar hafa tekið sig saman og gert splunkunýja leikgerð úr ævintýri Bílddælingsins Guðmundar Thorsteinssonar eða Muggs. Hið Bílddælska tríó skipa þeir Þröstur Leó Gunnarsson sem mun annast leikstjórn, Björn Thoroddsen er höfundur tónlistar og loks Elfar Logi Hannesson sem mun leika. […]
Leiklistarnámskeið fyrir nýliða
Í febrúar stendur Leikfélag Kópavogs fyrir leiklistarnámskeiði sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í senn í […]
Hálft ár í RVK Fringe
Laugardaginn næstkomandi fer fram kynningarhóf Reykjavík Fringe Festival, eða „Hálft ár í RVK Fringe“ partý á Hlemmur Square. Hér má finna facebook viðburð hófsins. Fram koma ýmsir listamenn sem að tóku þátt í síðustu hátíð og/eða munu taka þátt í næstu hátíð, og sér uppistandarinn Jono Duffy um að vera kynnir kvöldsins. Skemmtiatriði eru í […]
Kolsvört kannibalkómedía
Stúdentaleikhúsið frumsýnir kolsvörtu kannibalkómedíuna Igíl Redug miðvikudaginn 23. janúar. Leifur er búinn að skipuleggja hið fullkomna kvöld og býður afar sérstökum gesti. Kvöldið fer þó ekki eins og Leifur hafði óskað sér og er ástæðuna að finna lengst aftur í mannkynssögunni. Igíl Redug er skrifað og leikstýrt af Natani Jónssyni og hópurinn samanstendur af 14 […]
Halaleikhópurinn í ástandinu
Líf og fjör er núna hjá Halaleikhópnum sem æfir leikritið ,,Ástandið – sögur kvenna frá hernámsárunum“ eftir Sigrúnu Valbergsdóttur og Brynhildi Olgeirsdóttur. Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Leikritið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast eftir 50 ár og rifja upp sögur sínar frá hernámsárunum. Sögur sem þær hafa sumar ekki getað sagt fyrr frá. Hvernig líf […]
Aukasýningar á Tom, Dick og Harry
Smygl, ólöglegir innflytjendur og sundurlimuð lík. Er það hjálplegt þegar ungt par vill ættleiða barn? Hjónin Tom og Linda eiga von á konu frá ættleiðingarstofunni að spjalla við þau og taka út heimilið. Bræður Tom, þeir Dick og Harry vilja ósköp vel en tekst þó að setja allt í uppnám. Leikfélag Kópavogs verður með aukasýningar […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/…/international-audition-and-int…/ […]
Lokað yfir hátíðirnar
Að venju loka Bandalag íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Vefverslunin yfir jól og áramót. Að þessu sinni lokum við frá og með 21. desember og opnum aftur 2. janúar. Njótið aðventunnar!
Ólafur Jens Sigurðsson

Leikstjóri og leiklistarkennari Netfang: olijens@gmail / sími: 864 6946 Menntun: Listaháskóli Íslands; masterspróf frá listkennsludeild 2015 Bristol Old Vic Theatre School; leikstjórn 2002 Háskóli Íslands; BA í íslensku 1997 Ólafur Jens hefur leikstýrt áhugaleikfélögum víða um land jafnframt því að stunda leiklistar kennslu á öllum skólastigum og halda ýmiskonar leiklistarnámskeið fyrir stóra og litla hópa. […]
Förðunarsett á 50% afslætti til jóla
Leikhúsbúðin auglýsir: Öll förðunarsett á 50% afslætti til jóla. Settin eru góðar jólagjafir til þeirra sem áhuga hafa á förðun og gervagerð. Í hverju setti er allt sem þarf í viðkomandi förðun/gervi ásamt lýsingu á hvernig farið er að. Þarna gerið þið verulega góð kaup! Takmarkað magn! Crazy Doll Kit 4.850.- Sugar Skull Kit […]
Hans og Gréta hjá Íslensku Óperunni
Ævintýraóperan Hans og Gréta eftir Engelbert Humperdinck verður frumsýnd í Hörpu 25. nóvember nk. Óperan er byggð á hinu klassíska ævintýri Grimmsbræðra sem fjallar um systkinin Hans og Grétu sem búa í skóginum ásamt foreldrum sínum og lenda í klónum á vondu norninni en tekst með samvinnu og hugrekki að klekkja á henni. Tónskáldið samdi […]
Lína Langsokkur í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði sýnir barnaleikritið Lína Langsokkur, eina ástsælustu sögu úr smiðju Astrid Lindgren. Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsímunda Efraímsdóttir Langsokkur er ekki bara hetja af því hún er sterkust í heimi, hún er hetja í afstöðu sinni til lífsins. Lína Langsokkur segir okkur að vera við sjálf og allt sem við getum orðið, en ekki reyna […]
Áheyrnarprufur fyrir breskan leiklistarháskóla
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/international/international-audition-and-interview-dates/ […]
Everybody´s Spectacular sviðslistahátíðin
ALÞJÓÐLEGA SVIÐSLISTAHÁTÍÐIN Í REYKJAVÍK EVERYBODY´S SPECTACULAR er árleg sviðslistahátíð sem blásið er til af LÓKAL og Reykjavík Dance Festival. Hátíðin, sem fram til þessa hefur verið haldin í lok ágústmánaðar, fer nú fram í nóvember og verður þar með enn sterkari hluti menningarvetrarins í höfuðborginni. EVERYBODY´S SPECTACULAR er einstakur vettvangur fyrir þá sem vilja kynna […]
Sprúðlandi skemmtun í Kópavogi

Tom, Dick & Harry Höfundar: Ray og Michael Cooney Þýðing og leikstjórn: Hörður Sigurðarson Ég fór í gær á sýningu Leikfélags Kópavogs á farsanum Tom, Dick & Harry eftir feðgana Ray og Michael Cooney. Ray hefur stundum verið kallaður farsakóngurinn og hafa mörg verka hans eins og t.a.m. Með vífið í lúkunum, Beint í æð […]
Blóðsystur í Stykkishólmi
Leikfélagið Grímnir sýnir Blóðsystur í Vatnasafninu að Bókhlöðustíg 19 í Stykkishólmi Leikritið Blóðsystur var samið af Guðmundi L. Þorvaldssyni og ungmennahóp Leikfélags Kópavogs 2010. Leikstjóri er Árný Leifsdóttir. Í þessu gamanleikriti er skyggnst inn í Klaustur til systranna og fylgst með því hvað drífur á daga þeirra, en heyrst hefur að sést hafi til vampýra […]
Tom, Dick og Harry – frumsýning 30. október
Hjónin Tom og Linda eiga von á konu frá ættleiðingarstofunni að spjalla við þau og taka út heimilið. Bræður Tom, þeir Dick og Harry vilja ósköp vel en tekst þó að setja allt í uppnám. Smygl, ólöglegir innflytjendur og sundurlimuð lík eru ekki beint að hjálpa þegar ungt par vill ættleiða barn. Leikfélag Kópavogs frumsýnir […]
Með barnið ofarlega í hjartanu

Á vit ævintýranna hjá Leikfélagi Selfoss Þrjú ævintýri eftir H.C.Andersen, Pál J. Árdal og Davíð Stefánsson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Það er nú svo með okkur barnlausa fólkið, við þykjumst alltaf þurfa afsökun fyrir að fara á svokallaðar barna- eða fjölskyldusýningar. Þannig höfum við líklega rifið upp meðalaldurinn í Litla leikhúsinu á Selfossi nú á fimmtudag, […]
Andlátsfregn
Jónína Kristjánsdóttir, fyrrverandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga, lést þann 1. október s.l. 96 ára gömul. Árið 1963 byrjaði Jónína að leika með Leikfélagi Keflavíkur og var hún formaður félagsins til fjölda ára. Í kjölfarið sótti hún sér þekkingu á sviði leiklistar og leikstjórnar á fjölmörgum námskeiðum sem haldin voru víða á norðurlöndum. Hún starfaði síðan […]
Ársritið 2017-18 er komið út
Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2017–2018 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudaginn
Þann 12. október frumsýnir Leikfélag Selfoss fjölskylduverkið „Á vit ævintýranna“ í leikstjórn Ágústu Skúladóttur í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er sameiginleg sköpun leikhópsins og leikstjórans en er byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og stóra Kláus í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, ljóðinu Sálin hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson ásamt kvæðinu En hvað […]
Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika
Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og […]
Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti
Kómedíuleikhúsið frumsýnir leikritið Sigvaldi Kaldalóns í Hannesarholti 4. október komandi. Hér er á ferð einstök sýning um einn ástsælasta listamann þjóðarinnar. Leikurinn fjallar fyrst og fremst um ár Sigvalda í Ármúla í Ísafjarðardjúpi hvar hann starfaði sem læknir í ein ellefu ár. Þó læknisstarfið hafði verið annasamt þá gaf hann sér tíma til að semja […]
Ævintýri í uppsiglingu hjá Leikfélagi Selfoss
Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og er því í óða önn ađ setja upp metnaðarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi. Á síđustu vikum hefur mikiđ gengið á enda andi fantasíunnar verið yfir leikhúsinu og leikhópurinn dvalið í heimi ljóða og ævintýra. Verkiđ er samsköpun leikstjórans […]
Hörður verður framkvæmdastjóri

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ráðið Hörð Sigurðarson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2019. Hörður er Bandalagsfólki að góðu kunnur. Hann sat í varastjórn BÍL á árunum 1996-1998 og í aðalstjórn 1998-2006 og 2008-2010. Hann starfaði einnig í nefnd til undirbúnings Leiklistarvefsins 2002 og hefur verið Lénsherra (umsjónarmaður) hans frá upphafi til dagsins í dag, […]
Svartlyng, frumsýning 21. september
Svartlyng, sótsvartur gamanleikur eftir Guðmund Brynjólfsson í uppsetningu leikhópsins Gral, verður frumsýndur í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september kl. 20.00. Í Lagadeild Háskóla Íslands er þrískipting valdins útskýrð með þessum hætti: „Svartlyng-ættin á dómstólana, Svartlyng-ættin á stjórnarráðið og Svartlyng-ættin á löggjafarþingið.“ Hinu er sleppt, að Flokkurinn mannar öll embætti í nafni Svartlyngs-ættarinnar enda á hún Flokkinn. Þegar dregur til […]
Leikið í Litháen
Leiklistarhátíð NEATA fór fram í Anyksciai í Litháen fyrr í mánuðinum og var sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn, framlag Íslands. Sýningin hlaut frábærar viðtökur og nú þegar er leikfélagið með opin boð á leiklistarhátíðar í Rússlandi og Litháen. NEATA eru samtök áhugaleikhússsambanda á Norðurlöndum og Baltnesku ríkjunum og halda samtökin leiklistarhátíð á 2 ára fresti. […]
Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra
Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 100% starf frá 1. janúar 2019. Framkvæmdastjóri vinnur í umboði stjórnar Bandalagsins og eru verkefni hans m.a.: Daglegur rekstur skrifstofu og verslunar með áherslu á þjónustu við aðildarfélög og aðra sem eftir henni leita. Sér um Leiklistarvef, handritasafn, vefverslun og innkaup. Bókhald og reikningsskil ásamt uppsetningu ársrits. Erlend […]
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra fyrir haustverkefni félagsins sem verður barnaverkið Glanni glæpur í Latabæ eftir Magnús Scheving. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. september og vinna í u.þ.b. 8 vikur. Umsóknir með ferilskrá og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelagve@outlook.com fyrir 25. ágúst.
Gutti & Selma og ævintýrabókin í Eyjafirði
Í ágúst verður frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Laugaborg í Eyjafirði. Það heitir Gutti & Selma og ævintýrabókin, eftir Pétur Guðjónsson. Það er hópur sem kallar sig Draumaleikhúsið sem setur upp sýninguna sem er í samvinnu við Handverkshátíð Eyjafjarðar sem haldin er á Hrafnagili. Leikritið er 40 mínútna langt en fullt af lífi og fjöri. […]
Uppfærslur á vefnum
Fyrir dyrum standa uppfærslur á Leiklistarvefnum. Verið getur að vefurinn verði niðri af og til í 1-2 daga meðan á uppfærslum stendur. Við vonumst til að allt verði komið í lag strax eftir helgi.
Reykjavík Fringe Festival 4.-8. júlí
Reykjavík Fringe Festival mun verða haldin í fyrsta sinn á Íslandi dagana 4.-8. júlí. Fjöllistahátíðin býður m.a. upp á leiklist, dans, uppistand, spuna, kabarett, sögustundir, myndlistarsýningar, kvikmyndir, fyrirlestra, námskeið, drag, innsetningar, tónlist, ljóðalestra o.fl. Meira en 50 listamenn/hópar taka þátt og halda yfir 130 sýningar á 5 dögum á 11 staðsetningum víðs vegar um miðborg […]
Rauða skáldahúsið í Iðnó
Fimmtudagskvöldið 21. júní mun Rauða skáldahúsið halda sínu fimmtu sýningu, en í þetta skiptið fagnar hópurinn eins árs afmæli. Sýningin fer fram í Iðnó frá klukkan 20-23 og er miðaverð 3000 kr, en hálfvirði fyrir nema. Verður þetta fyrsta sýning í Iðnó eftir að húsnæðið opnar að nýju eftir að hafa verið lokað undanfarnar vikur. […]
Pétur Guðjónsson

Netfang: petur@draumaleikhusid.is Símanúmer: 6911219 Ferilsskrá: Leikstjóri, höfundur og framleiðandi með víðtæka reynslu af uppsetningum fyrir ungmenni og áhugaleikfélög. Sérhæfi mig í söngleikjum og stærri uppfærslum þar sem taktur, flæði og heildarsýn skipta máli – og þar sem markmiðið er bæði listrænn árangur og góð aðsókn. Ég legg ríka áherslu á mannleg samskipti, traust og jákvæða […]
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör
www.hhh.is
Leyfismál leiklist.is
Lakehouse leitar að höfundum af landsbyggðinni
Er meistaraverk að daga uppi í skúffunni heima hjá þér? Ertu laumupenni? Lakehouse auglýsir eftir örsögum, myndrænum lýsingum eða öðrum leikrænum þáttum sem endurspegla hugtakið einangrun. Þemað getur fléttast óljóst inn í sögurnar eða verið beintengt viðfangsefninu, verið dramatískt og kómískt, og allt þar á milli. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Stjórn Lakehouse, í samstarfi […]