Description
Litað hárspray frá Kryolan. Þekjandi litir fyrir hár, skegg og hárkollur. Litirnir koma í 150 ml. úðabrúsum, fást í 24 litum.
Einnig til Glimmer spray í silfri og gulli í 150 ml. brúsum og blátt, rautt og grænt í 75 ml. brúsum. Glimmerinu má úða á hár, húð og föt.
Leiðbeiningar:
Úðið litunum í hár úr ca. 30 cm. fjarlægð. Litirnir nást auðveldlega úr ómeðhöndluðu hári með vatni og sápu. Ef hár hefur verið litað eða aflitað er ráðlegt að gera fyrst prufu.





