20 ára afmælishátíð Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga

Afmælishátíð Leiklistarskólans verður í haldin Hlégarði í Mosfellsbæ laugardaginn 18. mars nk. Hátiðin verður sett kl. 18.00 og stendur fram yfir miðnætti. Aðgangseyrir er 5.500 og nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir 10. mars á netfangið info@leiklist.is og greiða aðgangseyrinn inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239. Innifalinn í aðgangseyri er kvöldverður sem samanstendur af […]
Frumsýningu frestað í Þorlákshöfn
Vegna óviðráðanlegra orsaka er frumsýningu á Listinni að lifa frestað til laugardagsins 11. mars. Miðapantanir í síma 693-2993 og á leikfjelag@gmail.com.
Uppsprettan auglýsir eftir handritum
Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og […]
Uppspuni frá rótum á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir verkið Uppspuna frá rótum föstudaginn 24. febrúar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þeir hafa samið fjölda leikrita saman og í sitthvoru lagi. Auk þess eru þeir allir meðlimir í hinni stórskemmtilegu hljómsveit Ljótu hálfvitunum. Verkið er fjölskyldusaga þar sem saman […]
Svefnlausi brúðguminn í Borg, Grímsnesi
Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon. Leikritið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vandræðum með nýja tengdasyni sem eru að […]
Listin að lifa í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss frumsýnir Listina að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur laugardaginn 25. febrúar. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Frumsýning laugardaginn […]
Lilli og Mikki flytja á Þingeyri
Leikdeild Höfrungs á Þingeyri hefur vakið athygli síðustu ár fyrir sérlega vandaðar og ævintýralegar fjölskyldu leiksýningar. Fyrst var það hin óborganlega Lína Langsokkur þar á eftir Galdrakarlinn í Oz og í fyrra var það hinn dásamlegi Kardemommubær eftir Thorbjörn Egner. Enn leitar leikdeildin í sjóð Egners því nú á að taka hitt leikritið og færa […]
Samvinnan borgar sig
Leikfélag Mosfellssveitar: Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Agnes Wild Leikhópurinn Miðnætti er öflugt teymi þriggja listamanna sem allir eru þrælmenntaðir og reyndir en upprunnir og uppaldir í öflugu leikfélagi heimabæjar síns. Nú leggja þær Agnes, Eva og Sigrún félaginu sínu lið í þriðja sinn; með vel heppnaða samstarfsverkefninu Skilaboðaskjóðunni. Fyrri verk voru hin vinsæla og góða sýning […]
Þórbergur í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Edda Productions frumsýnir nýtt leikverk um einn ástsælasta rithöfund þjóðarinnar, Þórberg Þórðarson í Tjarnarbíó 23. febrúar nk. Leikgerðin er unnin af hópnum upp úr viðtalsbókinni, Í kompaníi við allífið og Bréf til Sólu ásamt fleiri bókum. Skyggnst er inn í líf, leyndarmál og skáldskap Þórbergs. Við kynnumst ritlist snillingsins, hugarflugi skáldsins, dulspeki draumhugans og hlátri humoristans og ferðumst með honum […]
Íslenska óperan frumsýnir Mannsröddina
Óperan Mannsröddin (La Voix Humaine) eftir franska tónskáldið Francis Poulenc var samin árið 1958 og er byggð á samnefndu leikriti eftir Jean Cocteau. Óperan er dramatískur einþáttungur sem lýsir síðasta símtali konu til elskhuga síns sem hefur slitið sambandinu eftir fimm ár. Um er að ræða nýja og ferska nálgun á verkið þar sem aðalpersónan, […]
Vísindasýning Villa í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 4. febrúar kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið barnasýninguna Vísindasýning Villa á Litla sviðinu. Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín, gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein? Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi […]
Piltur og stúlka á Höfn
Leikfélgar Hornafjarðar æfir um þessar mundir leikritið Piltur og stúlka. Leikstjóri er Stefán Sturla og hefur hann unnið nýja leikgerð sem byggir á bók Jóns Thoroddsen. 18 manna hópur leikara æfa nú á fullu og er áætluð frumsýning 18. mars. Þetta er skemmtileg ástarsaga með ýmsum söngvum sem leikhópurinn hefur valið. Piltur og stúlka, var brautryðjendaskáldsaga […]
Listin að lifa í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík […]
Líf, dauði og lygar í Kópavogi
Sunnudaginn 29. jan. kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Kópavogs stutta leikdagskrá sem ber yfirheitið Líf, dauði og lygar. Dagskráin samanstendur af þremur leikþáttum, einum íslenskum og tveimur erlendum. Íslenski leikþátturinn er Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar. Erlendu þættirnir eru Blint stefnumót eftir Samara Siskind og Sjóðandi fólk eftir Jonathan Yukich, báðir í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Leikarar eru […]
Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði
Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, […]
Australiana í Tjarnarbíói
Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar á næstunni í Tjarnarbíói. Miðinn kostar kr.1990,- og hægt að nálgast miða hér: https://midi.is/theater/1/9949/Jono_Duffy-Australiana Sýningarnartímar : […]
Inntökupróf í Rose Bruford
Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2017. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda […]
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að ráðast í vorverkefni félagsins sem verður farsinn „Sex í sveit“ eftir Marc Camoletti. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. febrúar og vinna í 6-8 vikur. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 16. janúar nk.
Leikfélag Reykjavíkur 120 ára
Leikfélag Reykjavíkur fagnar í dag 120 ára afmæli sínu en það var stofnað 11. janúar 1897. Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins. Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög metnaðarfullt og félagarnir tilbúnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sýningum í hæsta […]
Ævisaga Einhvers aftur á svið
Ævisaga Einhvers, sem hlotið hefur gríðarlega góðar undirtektir áhorfenda og einróma lof gagnrýnenda, fer aftur á svið í Tjarnarbíói. Leikhópurinn Kriðpleir segir sögur venjulegs fólks, þeirra sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. „Langflest erum við jú bara að fást við eitthvað venjulegt megnið af ævinni, stússa, versla í Bónus, vaska upp, hlusta á útvarpið, […]
Úti að aka – opinn samlestur
Fimmtudaginn 5. janúar kl 12.oo verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Úti að aka eftir Ray Cooney. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk […]
Jólakveðja og opnunartími um hátíðirnar
Jólasýning Svansins í Tjarnarbíói
Tveimur dögum fyrir jól ætlar spunahópurinn Svanurinn að halda jólasýningu. Það verður spuni og alls konar grín sem er sérstaklega hannað til þess að gleyma jólastressinu og leiða hugann að hinum sanna anda jólanna. Svanurinn er spunahópur sem var stofnaður fyrir þremur árum og samanstendur af sjö metnaðarfullum spunaleikurum úr röðum Improv Ísland. Meðlimir Svansins […]
Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói
Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna sem slegið hefur í gegn tíu ár í röð. Aðeins örfá sæti laus! Næstu sýningar: sun – 11.des kl. 13:00 & 15:00 sun – 18.des kl. 13:00 & 15.00 Ævintýrið um Augastein byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri […]
Naktir í náttúrinni
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „Full monty“. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem […]
Þú kemst þinn veg í Tjarnarbíói
Iðnaðarmannaleikhúsið auglýsir: Okkur langar að beina athygli ykkar að einstökum viðburði sem vert er að gefa gaum. Nú í byrjun desember kemur út bókin Glímt við geðklofa og sem byggir á sama efni og einleikurinn Þú kemst þinn veg sem sýndur hefur verið af og til síðan 2014. Í tilefni þess verða tvær hátíðarsýningar á verkinu þann 1. og […]
Uppistand í Tjarnarbíói
Sýningin „Ha ha voða fyndið“ sló í gegn í sumar og færri komust að en vildu. Nú eru grínistarnir mættir aftur til þess að kæta landsmenn í skammdeginu með sjóðandi heitu spaugi. Hugleikur Dagsson, Saga Garðars, Bylgja Babýlons, Andri Ívars, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Jóhannes Ingi eru tilbúin með sérsmíðað grín sem enginn má láta framhjá […]
Jólaflækja, frumsýning í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 26. nóvember kl 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Jólaflækju á Litla sviðinu. Verkið er samið og leikstýrt af Bergi Þór Ingólfssyni sem einnig leikur í sýningunni. Tónlist semur Garðar Borgþórsson. Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Kryddstaukar verða hljóðfæri og baunadósir […]
Námskeið í heilgrímugerð
Heilgrímu námskeið Skýjasmiðjunnar verður haldið dagana 28. og 29. nóvember frá klukkan 19:00 – 23:00. Unnið með undirstöðuatriði heilgrímu leiks á sviði. Notast verður við neutral mask, character mask og svo verða heilgrímur Skýjasmiðjunnar einnig prófaðar í senuvinnu. Grímuleikur er frábær leið fyrir leikara til að kanna og þróa eigin líkamsbeitingu. Það eru mjög mörg […]
50 ára afmælishátíð Leikfélags Fljótsdalshéraðs
Smellið á myndina til að sjá allan textann.
Farið í Halanum
Halaleikhópurinn: Farið e. Ingunni Láru Kristjánsdóttur Leikstjóri: Margret Guttormsdóttir Leikritið Farið er ísköld ádeila á bresti velferðarkerfisins. Hvernig hugmyndir yfirboðara geta stundum stangast á við eiginlegar þarfir mannfólks sem minna má sín. Farið er samið af Ingunni Láru Kristjánsdóttur og leikstýrt af Margreti Guttormsdóttur. Það er sett upp af Halaleikhópnum og sýnt í Halanum, sem er […]
Brot úr hjónabandi í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 4. nóvember kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á litla sviðinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Ólafur Egill Egilsson leikstýrir þeim Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors. Barði Jóhannsson semur nýja tónlist við verkið. Uppselt er nú þegar á 17 sýningar og ekki verður hægt að bæta við aukasýningum. Jóhann og Maríanna hafa verið gift […]
Halaleikhópurinn frumsýnir Farið
Halaleikhópurinn hefur unnið hörðum höndum síðustu vikur við að setja upp nýtt íslenskt leikverk, Farið eftir Ingunni Láru Kristjánsdóttur í leikstjórn Margrétar Guttormsdóttur. Frumsýnt verður fös. 4. nóv. kl. 20.00. Verkið var sérstaklega samið fyrir leikhópinn í kjölfar samtals milli höfundar og félaga og byggir það á reynslu og skoðunum þeirra. Farið er pólitískt leikrit sem […]
Elska – ástarsögur Norðlendinga
Skemmtilegt heimildarverk sem vermir manni um hjartarætur. Frumsýnt 11. nóvember í Hofi á Akureyri. Ástarsögur dynja á okkur – endalaust; ýmist óendurgoldnar ástir eða skammlífar. Flestar eiga þær það sameiginlegt að enda ekki vel. En hvað með sögurnar sem enda vel, eða ganga vel? Hvernig eru þær sögur og hvar er þær að finna? Leikhópurinn Artik […]
Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu
Þriðjudaginn 1. nóvember kl 13 verður opinn samlestur á verkinu Ræman eftir Annie Baker. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]
Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói
Pörupiltar frumsýna Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói föstudaginn 4. nóvember. Einlæg og opin sýning þar sem flókin tilfinningasambönd karlmanna eru afhjúpuð. Og svo fer allt í fokk .. Sýning fyrir allar konur sem vilja skilja karlmenn.. eða skilja við karlmenn. Eftir að hafa sýnt Kynfræðslu Pörupilta í fjögur ár í Borgarleikhúsinu eru strákarnir mættir í […]
Extravaganza í Borgarleikhúsinu
Föstudaginn 28. október kl. 20:00 frumsýna Borgarleikhúsið og Leikhópurinn Soðið svið verkið Extravaganza á Nýja sviðinu. Um er að ræða nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikstjóri er Ragnheiður Skúladóttir. Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni […]
Skólalagið
Í tilefni 20 ára afmælis Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2017 hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um skólasöng. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að fylla út formið hér að neðan og senda inn fyrir 15. febrúar 2017. Keppendur verða að vera reiðubúnir að sjá um flutning á framlagi sínu á afmælishátíð […]
Sótarar óskast!
Ópera Vestfjarða vinnur nú að uppsetningu hinnar bráðskemmtilegu og ævintýralegu barnaóperu Litli sótarinn. Óperan er eftir Benjamin Britten og er í snilldarþýðingu Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar. Í stuttu máli fjallar Litli sótarinn um piltinn Bjart. Sökum fátæktar verða foreldrar hans að selja hann frá sér. Kaupandinn er hinn illkvittni sótari Surtur. Þegar svo sótarinn smái festist […]
Stíflan brestur – Stuttverkadagskrá LS og LÖ
Síðasta vor héldu Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss sameiginlegt leikritunarnámskeið. Á námskeiðið mættu 14 upprennandi leikskáld og skrifuðu, lásu og skemmtu sér undir handleiðslu Karls Ágústar Úlfsonar. En leikrit eru ekki rituð til að safna ryki í skúffum og tölvum og því var ákveðið að skella í stuttverkadagskrá og setja nokkur verkanna á svið. Stuttverkin […]