Lífið og listin í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs: Svarti kassinn Höfundur: Hrefna Friðriksdóttir Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leikfélag Kópavogs á 60 ára afmæli í ár og til að ljúka góðu afmælisári var ákveðið að ráðast í gerð Svarta kassans, en sýningin er samsköpunarverk höfundar, leikstjóra og leikhópsins. Svartur kassi innan í svörtum kassa, hvað getur verið meira viðeigandi þegar kemur að leikhúsi? […]

Ævintýrakistan á Sólheimum

Leikfélag Sólheima: Ævintýrakistan Höfundur og leikstjóri: Guðmundur L. Þorvaldsson Undirrituð brá sér ásamt fríðu föruneyti á Sólheima í Grímsnesi til að sjá sýningu Sólheimaleikhússins er nefnist Ævintýrakistan. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og er hann einnig höfundur handrits og söngtexta. Verkið er samsett úr þremur þekktum ævintýrum, Gullgæsinni, Stígvélaða kettinum og Brimaborgarhljómsveitinni. Tónlistina samdi Þröstur Harðarson, kokkurinn […]

Afbragðsfarsi í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið: Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Leikstjórar: Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Síðastliðið föstudagskvöld brá svo við að þrjár dömur brugðu sér í Freyvang til að njóta frumsýningar á verkinu á gamanleiknum Góðverkin kalla eftir þá Ljótu hálfvita Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds […]

Í lífsins ólgusjó

Leikfélag Ölfuss: Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Leikfélag Ölfuss frumsýndi síðastliðinn föstudag leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikritið segir frá lífi þriggja vina sem fylgjast að í gegnum lífið frá bernsku til elliára. Vinirnir, Diddi, Dudda og Dúa eiga vonir og þrár eins og flestir og […]

Söngur, skemmtun og harmur

Leikfélag Selfoss: Uppspuni frá rótum eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri Þórey Sigþórsdóttir. Leikritið Uppspuni frá rótum eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason er athyglisverð blanda af gamanleik og alvarlegri úttekt á 20. aldar sögu Íslendinga. Fjölskyldusaga þeirra Sigurðar og Bjargar er rakin allt frá millistríðsárum og til þess dags […]

Samvinnan borgar sig

Leikfélag Mosfellssveitar: Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Agnes Wild Leikhópurinn Miðnætti er öflugt teymi þriggja listamanna sem allir eru þrælmenntaðir og reyndir en upprunnir og uppaldir í öflugu leikfélagi heimabæjar síns. Nú leggja þær Agnes, Eva og Sigrún félaginu sínu lið í þriðja sinn; með vel heppnaða samstarfsverkefninu Skilaboðaskjóðunni. Fyrri verk voru hin vinsæla og góða sýning […]

Farið í Halanum

Halaleikhópurinn: Farið e. Ingunni Láru Kristjánsdóttur Leikstjóri: Margret Guttormsdóttir Leikritið Farið er ísköld ádeila á bresti velferðarkerfisins. Hvernig hugmyndir yfirboðara geta stundum stangast á við eiginlegar þarfir mannfólks sem minna má sín. Farið er samið af Ingunni Láru Kristjánsdóttur og leikstýrt af Margreti Guttormsdóttur. Það er sett upp af Halaleikhópnum og sýnt í Halanum, sem er […]

Allt veður er gott veður

Skemmtileg leit að sumrinu í Kópavogi Leitin að sumrinu er nýtt íslenskt barnaleikrit sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 12. október. Leikararnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og leikstýrðu. Leikmynd er unnin af leikhópnum með aðstoð Klæmint Henningsson Isaksen. Um búninga sá Dýrleif Jónsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um […]

Snertu mig – ekki! í Kópavogi

Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson  Leikmynd Þorleifur Eggertsson  Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru en hún kemur þó ekki við sögu í leikverkinu, umfjöllunarefnið er þvert á móti náttúruleysi, nánar […]

Ófeigur Hugleikur

Hugleikur Feigð eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ármann Guðmundsson, höfundur og leikstjóri Feigðar sem Hugleikur frumsýndi að kvöldi síðasta vetrardags í Kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekkunni, lætur þess getið í leikskrá að verkið sé afturhvarf til þess tíma þegar hann steig sín fyrstu skref með Hugleik. Síðan eru 25 ár og þetta ástríðuleikfélag sýnir engin merki […]

Ræningjar undir Eyjafjöllum

Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner fjallar um hvernig samfélag getur haft áhrif á alla til góðs, líka ræningja. Allir vinna sín verk í ró og næði og standa saman þegar á reynir. Það þarf þorp til að ala upp barn og það þarf leikfélag til að ala upp næstu kynslóðir leikhúsáhugafólks, þátttakendur sem og áhorfendur. Það […]

Tímaflakk í Freyvangsleikhúsi

Freyvangsleikhúsið Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Leikstjóri Skúli Gautason Þann 12. mars 2016 frumsýndi Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit leikritið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarson. Það var sérstök upplifun á þessu hryssingslega marskvöldið 2016 að flakka fram og tilbaka milli síðnútíma og ársins 1975 í gegnum efnistök leikverksins. Um leið og hljómsveitin slær fyrsta tóninn þá er áhorfendum kippt […]

Kirsuberjagarður á bökkum Ölfusár

Leikfélag Selfoss Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov. Þýðing Jónas Kristjánsson. Leikstjórn Rúnar Guðbrandsson Það var hátíðleg stemming í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi á frumsýningu á Kirsjuberjagarðinum 19. feb. s.l. Það heyrðist strax á samræðunum í anddyri leikhússins að hér voru kröfuharðir áhorfendur á ferð. Þegar boðið er upp á sjálfan Tsjekhov og Rúnar Guðbrandsson […]

Stræti Halaleikhópsins – rýni

Stræti eftir Jim Cartwright Halaleikhópurinn Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Trausti Ólafsson rýnir  Sautján leikarar í meira en helmingi fleiri hlutverkum stíga fram í leikrými Halaleikhópsins í Hátúni 12 og bjóða áhorfendum upp á sýningu á leikriti um líf fjölda fólks sem býr við sömu götuna í breskri borg. Jim Cartwright heitir höfundur leikritsins og fyrir um […]

Bráðskemmtileg fjölskyldusýning í Eyjum

Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz Leikfélag Vestmannaeyja Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir Helena Pálsdóttir rýnir sýningu Það er ekki hægt að segja annað en Leikfélag Vestmannaeyja sé ríkt af hæfileikafólki, fólki sem lætur gesti sína finna það alveg út í sal hversu gaman það hefur af því að skemmta sér og okkur hinum. Ég skellti mér á frumsýningu […]

Fínasta fjölskyldusýning í Freyvangi

Klaufar og kóngsdætur eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Freyvangsleikhúsið Leikstjórn: Ármann Guðmundsson Brynhildur Þórarinsdóttir rýnir sýningu Fimm manna fjölskylda frá Akureyri lagði leið sína í Freyvangsleikhúsið sunnudaginn 25. október. Ætlunin var auðvitað að sjá Klaufa og kóngsdætur. “Nú þurfið þið að fylgjast vel með því að við eigum að meta leiksýninguna,” sagði […]

Absúrdismi á sjó í Kópavogi

Á rúmsjó eftir Slawomir Mrozek Leikfélag Kópavogs Leikstjóri: Örn Alexandersson Lárus Vilhjálmsson rýnir sýningu Ég skrapp í gær í litla leikhúsið hjá Leikfélagi Kópavogs til að sjá verk pólska leikskáldsins Slawomir Mrozek, Á rúmsjó. Það var við hæfi að aka í gegnum óreiðu íbúðarhúsa og verslunarmolla í Smárahverfinu sem minna helst á absúrd verk Picassos […]

Bangsímon á Selfossi

Bangsímon eftir Petre Snickars Leikfélag Selfoss Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Árni Hjartarson rýnir leiksýningu Þann 31. okt. s.l. frumsýndi Leikfélag Selfoss leikritið Bangsímon eftir finnska leikskáldið og leikarann Petre Snickars sem byggt er á hinum frægu sögum Alans Alexanders Milne um Bangsímon og vini hans frá þriðja áratug 20. aldar. Undirritaður fór á vettvang með konu […]

Súrrealískt kaffihús

Einn rjúkandi kaffibolli Leikfélag Ölfuss Leikstjóri: Don Ellione Elín Gunnlaugsdóttir rýnir sýningu Rithöfundur nokkur venur komur sínar á kaffihús og reynir að sækja þar innblástur í skrif sín. Samtöl og uppákomur á kaffihúsinu, sem ber nafnið Einn rjúkandi kaffibolli, rata því mörg hver inn í skrif hans. Þetta er í stórum dráttum efni leikverksins Einn […]

Ævintýri í álfheimum

Benedikt búálfur Leikfélag Norðfjarðar Leikstjórn: Guðmundur L. Þorvaldsson Árni Friðriksson rýnir í sýningu Þann 3. október frumsýndi Leikfélag Norðfjarðar Benedikt búálf í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Um er að ræða söngleik fyrir börn á öllum aldri eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson. Leikritið er í raun mjög hefðbundið ævintýraleikrit um baráttu góðs og ills. Benedikt búálfur verður […]

Fallegar myndir af mæðrum og dætrum

Mæður Íslands Leikfélag Mosfellssveitar og Miðnætti Leikstjórn: Agnes Wild Hrund Ólafsdóttir rýnir sýningu Listahópurinn Miðnætti er alinn upp í Leikfélagi Mosfellssveitar. Þær Agnes Wild leikstjóri, Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður og Sigrún Harðardóttir tónlistarhöfundur, og flytjandi ásamt Lofti S. Loftssyni, eru ungar og flottar listakonur sem hafa gerst atvinnumenn eftir nám í útlöndum. Sem […]

Stórfyndin sakamál á Eyjaslóð

Eins og svo oft áður setur reykvíska leikfélagið Hugleikur á svið nýtt íslenskt verk sem ber það stórbrotna nafn „Stóra hangikjöts-, Orabauna- og rófumálið, taðreyktur sakamálatryllir“. Það gefur tóninn að alveg glimrandi skemmtun í litla leikhúsinu á Eyjaslóð. Anna Kristín Kristjánsdóttir, Sigrún Óskarsdóttur og Unnur Guttormsdóttir hafa sett saman skemmtilegt verk þar sem koma við […]

Afhausunarvélin í efsta gír

Nú um stundir býður Leikfélag Hafnarfjarðar upp á vel unna sýningu á Ubba kóngi eftir Alfred Jarry. Frá fyrsta andartaki og allt til loka bera hvert atriðið á fætur öðru í þessari uppfærslu þess vott að allir sem hönd lögðu á plóginn hafa lagt sig fram um að vanda til verka. Leikhópurinn er vel samhæfður […]

Bravó, bravó Freyvangsleikhús!

FreyvangsleikhúsiðFiðlarinn á þakinuHöfundar: Joseph Stein, Jerry Bock og Sheldon Harnick. Þýðandi: Þórarinn HjartarsonLeikstjórar: Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir Fimmtudaginn 27. mars frumsýndi Freyvangsleikhúsið söngleikinn góðkunna Fiðlarann á þakinu eftir þá Joseph Stein, Jerry Bock og Sheldon Harnick. Hann þekkja margir og hafa séð – en það breytir engu, hann er löngu sígildur ekki síst fyrir […]

Æðisleg uppsetning

Leikfélag KópavogsÓþarfa offarsi eftir Paul Slade SmithLeikstjórn: Hörður Sigurðarson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Óþarfa offarsi er farsi sem hefur fest sig í sessi meðal betri farsa í leikhúslífi enskumælandi þjóða. Hann hefur verið settur upp 155 sinnum, þá aðallega sitt hvoru megin við atlantshafið. Einu löndin sem verkið hefur verið sett upp í, sem hafa ekki ensku […]

Frábærlega skemmtilegur farsi

Leikfélag SelfossBót og betrun eftir Michael CooneyLeikstjóri: Jón St. Kristjánsson. Þýðandi: Hörður Sigurðarson Bót og betrun er frábærlega skemmtilegur farsi; vel skrifaður og mjög vel þýddur. Undirrituð fór á frumsýningu, byrjaði fljótlega að gráta úr hlátri og hélt því áfram nokkurn veginn til loka. Það er svo gaman að sjá vel smurðan farsa þar sem […]

Tíu litlir strandaglópar

HalaleikhópurinnTíu litlir strandaglópar eftir Agöthu ChristieLeikstjóri: Guðjón Sigvaldason. Þýðandi: Hildur Kalman Í fjórða sinn hefur Halaleikhópurinn fengið hinn flinka Guðjón Sigvaldason til þess að leikstýra en fyrri sýningarnar hans þrjár voru hver annarri betri og skemmtilegri. Gaukshreiðrið komst á fjalir Þjóðleikhússins 2008 sem ahyglisverðasta leiksýning þess árs en Fílamaðurinn og Kirsuberjagarðurinn voru ekki síðri uppfærslur. […]

Siðlaus, óþolandi og skemmtileg Arnarnesfjölskylda

enginn_med_steindori2

Leikfélag ÖlfussEnginn með SteindóriHöfundur: Nína Björk JónsdóttirLeikstjóri: F. Elli Hafliðason Nýjasta stykki Leikfélag Ölfuss er tilþrifamikið verk og ærslafullt. Raunar svo mjög að framan af var undirrituð full efasemda um ágæti þessa. Aðalleikarinn Erla Dan Jónsdóttir hélt uppi fjöri á fjölunum sem oft og einatt keyrðu langt úr hófi. En þegar líður á sýninguna rennur […]

Elskhugi á ferð í Kópavogi

elskhuginn2

Leikfélag KópavogsElskhuginn eftir Harold PinterÞýðing Ingunn ÁsdísardóttirLeikstjórn Örn Alexandersson Það var húsfyllir í sal Leikfélags Kópavogs þegar ég mætti til leiks 30. október síðastliðinn á aðra sýningu á leikritinu Elskhuganum eftir nóbelsverðlaunahöfundinn Harold Pinter. Þetta er stutt leikrit sem fjallar um ástir samlyndra hjóna, semsagt afar ófrumlegt og lítt áhugavert efni en sett fram á […]

Syngjandi glaðir rassálfar og ræningjar

ronjaportrait

Leikfélag MosfellsbæjarRonja ræningjadóttir eftir Astrid LindgrenLeikstjórn: Agnes Wild  Tónlistarstjórn: Sigrún Harðardóttir  Leikmynda-og búningahönnun: Eva Björg Harðardóttir Ronja ræningjadóttir er saga um vináttu, kærleika og hugrekki. Vináttu sem sigrar þrátt fyrir erfiðar hindranir. Hvernig sigrast má á hindrunum og hvernig það er miklu auðveldara að vera ekki hræddur ef maður á einhvern að. Astrid Lindgren hefur […]

Besti söngleikurinn í borginni

Það var með nokkuri eftirvæntingu sem ég fór á sýningu á 30 ára afmælissýningu Hugleiks sem er fremst í flokki áhugaleikhúsanna í Reykjavík og sýnir alltaf ný íslensk verk á hverju ári. Ég hef í gegnum tíðina séð mörg verka þeirra sem hafa oftar en ekki leitað fanga í sögu þjóðarinnar og verið sett fram […]

Anna frá Stóru Borg – Saga af kvenskörungi

anna

Leikfélag Austur- EyfellingaAnna í Stóru-Borg í leikgerð  Margrétar TryggvadótturLeikstjóri: Sveinn Óskar Ásbjörnsson Það ríkti sannarlega mikil eftirvænting meðal áhorfenda í Heimalandi undir Eyjafjöllum síðastliðinn föstudag, enda voru þeir mættir á frumsýningu á leikritinu Anna í Stóru-Borg. Leikrit sem byggir á sögu sem Jón Trausti gerði ódauðlega í bók sinni Anna frá Stóru-Borg. Sögusviðið eru Eyjafjöllin […]

Ljónshjarta bræðir hjörtu

ljonshjarta

Leikfélag SelfossBróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid LindgrenLeikstjóri Sigrún Valbergsdóttir  Með hækkandi sól og umbrotum í samfélaginu hefur Leikfélag Selfoss unnið enn eitt þrekvirkið og nú með boðskap um hugrekki og samábyrgð.  Félagið hefur fært margar athyglisverðar og flottar sýningar á fjalir sínar í gegnum tíðina og sinnt  öllum aldurshópum.  Nú er það Astrid Lindgren sem […]

Farsi í Freyvangi

orskur1

FreyvangsleikhúsiðÞorskur á þurru landiHöfundar Karl Tiedemann og Allen Lewis RickmanLeikstjóri og þýðandi Daníel Freyr Jónsson Freyvangsleikhúsið frumsýndi amerískan farsa fimmtudaginn 20. febrúar og er hér um Íslandsfrumsýningu að ræða, en leikstjóri sýningarinnar, Daníel Freyr Jónsson, þýddi leikritið og staðfærði að hluta. Og maður verður ekki svikinn af kvöldskemmtun í Freyvangi nú frekar en fyrri daginn […]

Strákapör sambýlinganna hjá Halaleikhópnum

sambylingar

Síðasta sunnudag skellti ég mér á sýninguna Sambýlingar eftir Tom Griffin, sem Halaleikhópurinn er að setja upp um þessar mundir. Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir sáu um leikstjórn að þessu sinni, en þau hafa tvisvar sinnum áður unnið með þessum leikhóp. Verkið fjallar um fimm einstaklinga, fjórir af þeim búa undir sama þaki. Þrír […]

Systurnar fljúga hátt í Kópavogi

rjar_systur

Leikfélag KópavogsÞrjár systur eftir Anton TshekovLeikstjórn: Rúnar Guðbrandsson Það er alltaf ánægjulegt þegar íslenskt leikhús býður áhorfendum upp á gullmola heimsleikbókmenntanna eins og t.a.m. verk Rússans Antons Tsjekhov. Síðast bauð Borgarleikhúsið upp á Kirsuberjagarðinn árið 2011 og það eru komin 16 ár síðan að Þrjár systur var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Leikfélag Kópavogs og leikstjórinn Rúnar […]

Makalaus sambúð í Ölfusi

makalaus_sambud

Leikfélag ÖlfussMakalaus sambúð eftir Neil SimonLeikstjórn: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson  Leikfélag Ölfuss er um þessar mundir að sýna leikritið makalaus sambúð eftir Neil Simon. Þetta er verk sem er búið að festa sig í sessi með bestu gamanverkum leikhúsmenningarinnar. Hefur Neil gert þó nokkrar útgáfur út frá sömu hugmynd, hvortveggja í leikhúsi sem í sjónvarpi. Tvær […]

Það er ekki allt sem sýnist

mariusogur2

Leikfélag Selfoss Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Það er ekki allt sem sýnist, er yfirskrift þessa dóms um hinar grátbroslegu Maríusögur sem frumsýndar voru í Litla leikhúsinu við Sigtún síðastliðinn föstudag. Og hvað er líka raunverulegt? Hvað er minning og hvað er draumur? Hvernig vitum við hvað gerðist í raun og veru og […]

Tímalausar Spilaborgir

spilaborgir1

HugleikurSpilaborgirHöfundur: Ásta GísladóttirLeikstjórar: Sigurður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason Mömmudrengurinn Kári er ofvaxið og dálítið aulalegt barn á þrítugsaldri. Í stað þess að takast á við lífið utan heimilisins hefur hann valið sér það hlutskipti að  sinna lasinni móður sinni og byggja spilaborgir. Kári lifir við konuríki og örlagadísirnar birtast í líki þriggja nágranna sem reiða […]

Gæsahúð á Melum

djakninn2

Leikfélag HörgdælaDjákninn á MyrkáHöfundur og leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Það er langt í frá leiðinlegt að dusta rykið af góðum drauga- og þjóðsögum okkar Íslendinga, rifja þær upp og kynna fyrir nýjum kynslóðum. Á Melum í Hörgárdal býður Leikfélag Hörgdæla upp á söguna af djáknanum á Myrká, sögu sem flestir kannast við og gerðist í […]