Leikfélag Rangæinga æfir Orustan á Laugalandi

Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikriti sem hefur fengið nafnið Orustan á Laugalandi. Verkið er farsi sem varð til á árunum eftir seinna stríð og er höfundurinn óþekktur. Mikil vinna hefur verið lögð í það hjá leikstjóra og leikurum að breyta verkin þannig að það gerist í nútímanum hér á svæðinu. Verkið fjallar um […]

Ástverk í leikferð

Iðnaðarmannaleikhúsið er nýstofnaður leikhópur sem fjallar um stemmninguna meðal iðnaðarmanna og samanstendur hópurinn af leikhúslistamönnum sem allir hafa reynslu af iðnaðarstörfum. Meðlimir Iðnaðarmannaleikhússins eru allir í yngri kantinum, á aldrinum 25 til 34 ára. Ástverk ehf er nýtt íslenskt verk sem varð til upp úr samvinnu hópsins. Verkið byggir bæði á sönnum sögum af vinnustöðum […]

Aukasýningar hjá Áhugleikhúsi atvinnumanna

Aukasýningar verða haldnar á sjónleik Áhugleikhúss atvinnumanna Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna sem sýnt er í Nýlistasafninu. Sýningarnar verð þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20 og miðvikudaginn 4. febrúar kl.20, aðgangur er ókeypis. Verkið er hluti af fimmverka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Verkin eru rannsókn á áráttuhegðun […]

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna annarrar úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar, en úthlutað verður í byrjun mars. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að fimm höfundum styrk til að […]

Rústað frumsýnt á Nýja sviðinu

Leikritið Rústað eftir Söru Kane verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudaginn. Sýning verksins markar tímamót því þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt leikhús sviðsetur verk Söru Kane. Leikritið olli uppþoti í leikhúsheiminum, svo sterk voru viðbrögðin eftir frumsýningu Royal Court leikhússins á sínum tíma. Gagnrýnendur ýmist féllu fram í tilbeiðslu eða reittu […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Sjeikspírs karnival

Þann 31. janúar n.k. mun Halaleikhópurinn frumsýna leikritið Sjeikspírs Karnival í leikgerð Þrastar Guðbjartssonar, sem einnig leikstýrir sýningunni. Unnið upp úr þremur verkum Shakespears: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum degi í Illiríu á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans […]

Stærsta leiklistarhátíð Íslands haldin á Austurlandi

Þrettán leikhópar ungs fólks á Austurlandi undirbúa nú sýningar á þremur nýjum, íslenskum leikritum. Uppsetning verkanna er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs fólks á Austurlandi, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti forsvarsmönnum verkefnisins um tveggja og hálfrar milljón króna styrk frá alþjóðlegum Samfélagssjóði Alcoa við athöfn […]

Góð aðsókn að Blúndum og blásýru

Gamanleikritið Blúndur og blásýra var frumsýnt sl. föstudagskvöld fyrir fullu húsi í Versölum, Þorlákshöfn. Uppselt var á 2. sýningu á laugardagskvöldið og hafa viðtökur verið vægast sagt góðar. Næsta sýning verður miðvikudagskvöldið 21. janúar klukkan 20 og eru örfá sæti laus á þá sýningu. Miðapantanir í síma 893-1863 (Ásta). Miðasala opnar í Versölum klukkustund fyrir […]

Heiður frumsýnt í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Heiður laugardaginn 24. janúar nk. í Kassanum við Lindargötu 7. Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Haukur Þórsson. Hér er á ferðinni einstaklega vel skrifað dramatískt verk um hjónabandið, ástina og ábyrgð okkar á eigin hamingju. Leikarar í sýningunni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, María Ellingsen og Sólveig Arnarsdóttir.

Almennur félagsfundur hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs heldur almennan félagsfund laugardaginn 24. janúar kl. 14.00 í Leikhúsinu að Funalind 2. Á dagskrá er kynning á starfsemi félagsins fram á vor. Markmiðið er öðrum þræði að kanna hverjir ætla sér að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Þörf er á félögum í ýmis […]

Leikfélag Selfoss æfir Sjóræningjaprinsessuna

Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti sem hlotið hefur nafnið Sjóræningjaprinsessan. Höfundur og leikstjóri er Ármann Guðmundsson en hann semur einnig tónlist verksins ásamt Guðmundi Svafarssyni. Sýnt verður í Litla leikhúsinu við Sigtún  og frumsýning er áætluð 20. febrúar.

Fyrsti samlestur á Fúsa Froskagleypi

Leikfélag Hafnarfjarðar hyggst setja upp nú í vetur barnaleikritið Fúsa Froskagleypi sem byggt er á samnefndri sögu danska rithöfundarins Ole Lund Kirkegaard. Lárus Vilhjálmsson, leikstjóri verksins, ætlar að halda fyrsta fund vegna Fúsa Froskagleypis á laugardaginn næstkomandi (17. janúar) klukkan 12:00 í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði.

Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna frumsýnt

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir sjónleikinn Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna föstudaginn 16. janúar kl. 17 í Nýlistasafninu. Verkið er hluti af fimm verka röð ódauðlegra leikverka um hegðun og eðli mannsins og er annað í röðinni. Höfundur og leikstjóri verksins er Steinunn Knútsdóttir um útlit sér Ilmur Stefánsdóttir.

Blúndur og blásýra í Þorlákshöfn

Föstudagskvöldið 16. janúar n.k. mun Leikfélag Ölfuss frumsýna sakamálafarsann Blúndur og blásýru eftir Joseph Kesselring. Leikritið sem er í fullri lengd verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður […]

Yfir 1900 gestir á Emil!

Emil í Kattholti er engum líkur og er gríðarlega vinsæll. Nú hafa yfir 1900 gestir komið í gamla Samkomuhúsið á Húsavík og séð hann festa höfuðið í súpuskál, hífa Ídu systur sína upp í flaggstöng og aðstoða Línu vinnukonu í tannvandræðum. En þess má geta að íbúafjöldi Húsavíkur er um 2400. Sýningarnar hjá Leikfélagi Húsavíkur […]

Hjólastólasveitin rúllar yfir á Selfoss

Fjórir hjólastólar ásamt fríðu föru-nauti, MU-MÚ, Rampusi og Stúfi hinum eina sanni sem neitar að fara til fjalla, leggja land undir fót og herja á Selfyssinga og nærsveitarmenn með sínu ærlega og frumsamda gríni í janúarbyrjun 2009. Uppistandararnir eru fjórir fjörugir einstaklingar sem nota allir hjólastól, á alveg einstakan hátt! Þeir verða með uppistand eða […]

Jesús Guð Dýrlingur í Félagsheimili Seltjarnarness

Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Nú hefur verið ákveðið að sýna 3 sýningar í Félagsheimili Seltjarnes um næstu helgi. Sýningarnar verða sem hér segir: Laugardaginn 10. janúar kl. 19:00 og 22:00 og sunnudaginn […]

Sveinki snýr aftur

Leikfélag Kópavogs sýndi Skugga-Svein við góða aðsókn fyrir jól og og hefur verið ákveðið þar á bæ að bjóða 3 aukasýningar þeim sem misstu af. Sýningarnar verða sun. 11. fim. 15. og föstudaginn 16. janúar. Skugga-Sveinn  sem er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur er sýndur í nýju leikhúsi í Funalind í Kópavogi. Nánari upplýsingar um sýninguna […]

Sumarljós í vetrarmyrkri

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er leikgerð byggð á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. Leikritið Sumarljós verður frumsýnt á Stóra sviðinu á annan í jólum í leikstjórn Hilmars Jónssonar, sem jafnframt er höfundur leikgerðarinnar. Í Sumarljósi kynnumst við íbúum í litlu íslensku þorpi. Hversdagslífið þar reynist fullt af stórviðburðum því undir kyrrlátu yfirborði […]

Jólagjöf leikhúsáhugamannsins

Nýlega kom út bókin Allt fyrir andann, Saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Greint er frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu […]

Síðustu sýningar á Jesús Guð Dýrlingur

Leikfélagið Grímnir Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason.

Aukasýningar á Leitinni að jólunum

Bætt hefur verið við aukasýningum á aðventuleikriti Þjóðleikhússins, Leitinni að jólunum, vegna frábærrar aðsóknar. Troðuppselt var á sýningarnar í desember og því er bætt við sýningum miðvikudaginn 17. desember og fimmtudaginn 18. desember. Aðventusýning þessi orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Þetta er í fjórða sinn sem verkið er sett upp í Þjóðleikhúsinu en það […]

Grýla gerir uppreisn í Vestmannaeyjum

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi laugardaginn 6.des jólaleikrit sem þær Alma Eðvaldsdóttir, Arndís Ósk Atladóttir, Eva Lilja Árnadóttir og Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir skrifuðu fyrir Leikfélagið og nefnist leikritið Grýla gerir uppreisn. Um leikstjórnina sáu þær Alma Eðvaldsdóttir og Eva Lilja Árnadóttir. Sýningar verða allar helgar í desember á laugardögum og sunnudögum klukkan 16:00.

Leikfélag Mosfellssveitar með jólasýningu

Sunnudaginn 7. desember verður frumsýnd jólasýning hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þar ríkir sannkallað jólafjör og stíga Grýla og Leppalúði á stokk ásamt jólakettinum, Leiðindaskjóðu og fleiri góðum gestum. Handritshöfundar eru Birgir Sigurðsson og María Guðmundsdóttir en einnig verður flutt gömul íslensk „jólaþjóðsaga“ sem Eva Harðardóttir setti í leikbúning. Aðeins verða sýndar tvær sýningar, sunnudaginn 7. desember […]

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Kirsuberjagarðinn

Þann 4. desember kl. 20 frumsýnir Nemendaleikhús LHÍ Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov á Litla Sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Daníel Rylander. Tsjekhov skrifar verk sitt árið 1904, á miklum umbrotatímum í Rússlandi þar sem undirliggjandi spenna milli þjóðfélagshópa er allsráðandi, samfélagsgerð sem ríkt hefur um aldir er að hverfa og ný að taka við. Nýríku auðmennirnir […]

Blásýra í Ölfusi

Leikfélagi Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri verksins er Gunnar Björn Guðmundsson. Vel gekk að fá leikara og ganga æfingar vel. Stefnt er að frumsýningu á verkinu 16. janúar n.k. Leikfélag Ölfuss hefur fengið aðstöðu í fyrrum húsnæði hafnarinnar í Þorlákshöfn og er […]

Útgáfu sögu Bandalagsins fagnað

Í tengslum við haustfund Bandalags íslenskra leikfélaga þann 22. nóvmeber var boðað til móttöku vegna útgáfu sögu Bandalagsins, „Allt fyrir andann“ í þjónustumiðstöð Bandalagsins að Suðurlandsbraut 16. Þar þakkaði Ingólfur Þórsson, varaformaður Bandalagsins, söguritaranum Bjarna Guðmarssyni, vel unnin störf svo og sögunefndinni sem var honum innan handar við ritun bókarinnar, en hana skipuðu Sigrún Valbergsdóttir […]

Kærleikskúlan til Halaleikhópsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sæmdi í gær Halaleikhópinn Kærleikskúlunni 2008. Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri afhenti Guðný Öldu Einarsdóttur leikkonu fyrsta eintakið við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur. Leiklistarvefurinn óskar Halaleikhópnum innilega til hamingju!

Miði fyrir mynd

Þjóðleikhúsið óskar eftir fjölskyldumyndum, innrömmuðum eða óinnrömmuðum, fyrir uppsetningu á jólasýningu leikhússins á Sumarljósi eftir Jón Kalman Stefánsson. Höfundur leikmyndar er Finnur Arnar Arnarsson en leikstjóri og höfundur leikgerðar Hilmar Jónsson. Myndirnar má senda hvort heldur á stafrænu formi með tölvupósti eða koma þeim á skrifstofu leikhússins.

Lápur, Skrápur og jólaskapið

Þann 29. nóvember næstkomandi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson. Það mun vera seinni frumsýning á verkinu þetta árið því þann 22. nóvember frumsýndi Leikfélag Akureyrar sama verk í Rýminu. Sýningarnar verða keyrðar samhliða og þykir það harla óvenjulegt að tvær uppsetningar á sama verkinu séu sýndar á sama […]

Kúlukvöld Unima

Í vetur stendur UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks) fyrir svokölluðum ,,Kúlukvöldum“ í lok hvers mánaðar í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu (að Lindargötu 7). Þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lifandi og fjölbreyttri dagskrá. Miðvikudaginn 26. nóvember kl 20:00 verður haldið síðasta Kúlukvöldið fyrir jól.

Steinar í djúpinu frumsýnt

Föstudaginn 21. nóvember mun Lab Loki frumsýna Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar, aka: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv. Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans […]

Söng- og leikprufur fyrir Vínland

Freyvangsleikhúsið stendur fyrir opnum söngprufum fyrir söngleikinn Vínland í Freyvangi, laugardaginn 22.11. frá 13:00 – 16:00. Allir sem geta sungið og leikið eru velkomnir. Ingólfur Jóhannsson mun sitja við píanóið og spila undir lög að vali þátttakenda. Leikstjórinn, Ólafur Jens Sigurðsson, verður að sjálfsögðu á staðnum. Æfingartíminn verður í janúar og fram að frumsýningu um […]

Paris at night á Akureyri

Leikhópurinn Á senunni verður með tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri 12. nóvember 2008, í samvinnu við Leikfélag Akureyrar. Paris at night er byggt á ljóðum Jacques Prévert og tónlist Joseph Kosma. Þýðingar ljóðanna eru eftir Sigurð Pálsson. Leikarar/söngvarar í sýningunni eru Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Felix Bergsson.  Hljómsveitinni stjórnar Karl Olgeirsson, en auk hans eru […]

Hugarflug Leikfélags Selfoss

Leikfélag Selfoss bíður upp á hið árlega Hugarflug sunnudaginn 9. október en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Að þessu sinni eru 5 atriði úr sitt hvorri áttinni og kennir þar ýmissa […]

Kabarett í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið sýnir á föstudags- og laugardagskvöld 7. og 8. nóvember sinn árlega Kabarett. Kabarettinn í ár ber heitið Skítt með Kerfil – tökum slátur! Löng hefð er fyrir því í Eyjafjarðarsveit að setja upp kabarettsýningu með frumsömdu efni þar sem atburðir líðandi stundar, innan sveitar sem utan, eru skoðaðir í spaugilegu ljósi. Tónlist skipar stóran […]

Vestrið eina frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. nóvember verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh, frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikritið er fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði og er hann því með ástsælustu leikskáldum landsmanna nú um stundir. Þröstur Leó Gunnarsson og Björn Thors leika óviðfelldna en um leið frekar brjóstumkennanlega bræður sem í […]

Æfingar hafnar á Shakespeare – Karnival

Halaleikhópurinn hefur nú hafist handa við uppsetningu nýs leikverks fyrir þetta leikár og ber það vinnuheitið Shakespeare – Karnival. Byrjað var  þann 1. nóvember í húsnæði leikhópsins að Hátúni 12.

Emil strákskratti á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Emil í Kattholti eftir Astrid Lingren laugardaginn 8. nóvember kl. 16.00 í Samkomuhúsinu á Húsavík. Þýðingu verskins gerði Vilborg Dagbjartsdóttir og leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir en hún er Húsvíkingum af góðu kunn, leikstýrði Gauragangi hjá LH árið 1996 og Þreki og tárum 1998.

Stuttverkadagskrá Hugleiks í Listasafni Reykjavíkur

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir stuttverkadagskrána „Ó, þessi tæri einfaldleiki“, föstudaginn 31. október kl. 20.00 í Listasafni Reykjavíkur. Frumsýnd verða níu ný stuttverk sem öll eiga það sammerkt að hafa afmæli sem þema. Sýningin markar þannig upphafið á afmælisári Hugleiks sem fagnar 25 ára starfsafmæli sínu leikárið 2008-2009. Leikstjórn stuttverkanna er í höndum félagsmanna, en tónlistarflutningi stjórnar […]