Klerkar í klípu í Biskupstungum

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið Klerkar í klípu eftir Philip King, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsonar en þetta er fimmta leiksýningin sem Gunnar Björn setur upp hjá leikdeildinni. Sýningar eru í Aratungu og hefjast kl. 20.30, á undan sýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti.

Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum

Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot […]

Freyvangsleikhúsið æfir Himnaríki

Æfingar á aðalverkefni Freyvangsleikhússin, Himnaríki – geðklofinn gamanleikur, hófust strax eftir áramót en frumsýnt verður 17. febrúar n.k. Verkið var fyrst sett upp hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu 1995 og naut strax mikilla vinsælda, en þess má geta að Leikfélag Ölfuss setti verkið upp nú á haustdögum við góðar undirtektir.

Halaleikhópurinn frumsýnir Hassið hennar mömmu

Föstudaginn 10. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo í Halanum, Hátúni 12. Þessi leikgerð er unnin af Margréti Sverrisdóttur og Oddi Bjarna Þorkelssyni sem jafnframt leikstýra. Þau byggja hana á gömlu leikgerðinni, sem Stefán Baldursson þýddi, en hafa tekið sér leyfi til að umskrifa senur, skipta um kyn á persónum og skrifa […]

Örverkahátíðin Feigð hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar stendur að örverkahátíð laugardaginn 4. febrúar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur verða frumsýnd hvorki meira né minna en sex frumsamin verk. Og eins og það sé ekki nóg að þá fengu höfundarnir ekki nema viku til að semja verkið og leikstjóri svo […]

Sá glataði frumsýndur hjá Hugleik

Laugardaginn 4. febrúar kl. 20.00 frumsýnir Hugleikur nýtt íslenskt leikrit sem hlotið hefur nafnið Sá glataði. Handritið er eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en hún vann það í samvinnu við leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Tónlist og söngtexta í verkinu samdi Þorgeir Tryggvason. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.

Uppnám á stóra sviði Þjóðleikhússins

Föstudaginn 3. febrúar kl. 21.00 verður uppistandssýningin Uppnám sýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins. Það sem upphaflega átti að vera sýningar í Leikhúskjallaranum varð að þrettán og nú er ætlunin að ljúka þessu með pompi og pragt á stóra sviðinu. Í uppnámi koma annars vegar fram Pörupiltar og hins vegar Viggó og Víóletta.

Skrímslið litla systir mín í Norræna húsinu

litla_skrimslid_systir_min

Brúðuleiksýningin Skrímslið litla systir mín verður frumsýnt í Norræna húsinu 4. febrúar. Það er Helga Arnalds sem er aðalhöfundur verksins og flytjandi en leikstjóri og meðhöfundur er Charlotte Böving og Eivör Pálsdóttir semur og flytur tónlist verksins. Sýningin er ætluð börnum frá 3 til 9 ára. Hún tekur um 40 mínútur í flutningi og vinnustofan […]

Sómi þjóðar sýnir Ég er vindurinn

Leikfélagið Sómi þjóðar frumsýnir í Þjóðleikhúskjallararnum sunnudaginn 29. janúar Ég er vindurinn, nýtt verk eftir Jon Fosse. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en leikhópinn mynda Hannes Óli Ágústsson og Hilmir Jensson, sem einnig þýðir verkið. Ég er Vindurinn frá árinu 2007 er nýjasta verk Fosse og gæti jafnframt verið það síðasta en Fosse gaf nýlega […]

Aukasýningar á Póker í Tjarnarbíó

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við þremur aukasýningum á Póker eftir Patrick Marber 26. 27. og 28. janúar. Leikverkið er svört kómedía sem kafar í heim karlmennsku, valdatafls, pókerspilamennsku, keppnisanda, fíknar og kennir öllum að þú skalt ávallt spila með andstæðinginn en ekki spilin sjálf, sama hvað er í húfi. Þetta er bráðskemmtilegt verk […]

Æfingar á Sólarferð hafnar á Selfossi

litlaleikhsid

Starf Leikfélags Selfoss er komið á fullt eftir stutt jólafrí. Æfingar á stóru uppsetningu vetrins hófust í byrjun janúar en að þessu sinni mun leikfélagið setja upp leikritið Sólarferð sem sýnt var fyrir nokkrum árum í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir. Höfundur verksins er Guðmundur Steinsson en hans þekktasta verk er Stundarfriður sem m.a. hefur verið […]

Saga þjóðar á Litla sviði Borgarleikhússins í janúar og febrúar

Þann 27. janúar hefjast á Litla sviðinu sýningar á sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum. Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika. Haugur […]

Kviss búmm bang með óvenjulegt leikverk

Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang frumsýnir nýtt verk í febrúar: Hótel Keflavík. Hótel Keflavík er 24 stunda langt þátttökuverk sem hefst á BSÍ kl. 14:00 á sýningardag og lýkur á BSÍ kl. 14:00 næsta dag. Þátttakendur eru beðnir um að mæta án hverskyns tímamæla, farsíma, tölvu eða annarra samskiptatækja og með persónulegt myndaalbúm með sér. Við […]

Málþing um Jón Múla og Jónas Árnasyni þann 16. janúar

Í dag, 11. janúar 2011 er Leikfélag Reykjavíkur 115 ára. Það var stofnað 11. janúar 1897 og er eitt af elstu starfandi félögum landsins. Á undanförnum árum hafa verið haldin málþing/félagsfundir í tengslum við afmæli félagsins. Fjallað hefur verið um leikskáldin Jóhann Sigurjónsson og Guðmund Kamban, verk þeirra og æviferil. Nú er röðin komin að […]

Eldhaf frumsýnt á Nýja sviðinu

Þann 26. janúar næstkomandi verður leikritið Eldhaf eftir Wajid Mouwad frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Eldhaf er stór saga, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann, sem höfðar beint til hjartans. Verkið hefur farið sigurför um heiminn, verið þýtt á tuttugu tungumál og sýnt í yfir 100 uppsetningum. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og þýðingu annaðist […]

Axlar-Björn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Axlar-Björn, nýtt rammíslenskt verk úr smiðju Vesturports verður frumsýnt í Borgarleikhússins á miðvikudagskvöld kl. 20. Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa eins kaldrifjaðasta morðingja Íslandssögunnar en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka. Björn Hlynur Haraldsson skrifar verkið og leikstýrir en þeir Alti Rafn Sigurðarson og Helgi Björnsson fara með […]

Leikdeild Skallagríms setur upp Skugga-Svein

Leikdeild Skallagríms hefur upp á síðkastið æft af fullum krafti leikritið Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Leikdeildin setur Skugga-Svein upp en það var síðast gert árið 1948 og fannst fólki kominn tími á að setja þetta vinsæla leikverk upp aftur. Skugga-Sveinn verður í þetta sinn […]

Leikfélag Kópavogs 55 ára

Leikfélag Kópavogs var stofnað 5. janúar 1957 þegar 46 áhugamenn komu saman í barnaskólanum, Kópavogsskóla, gagngert til þess að stofna leikfélag. Í gær 5. janúar 2012 fagnaði félagið því 55 ára afmæli sínu. Haldið verður upp á afmælið á árlegu Stjörnuljósakvöldi í Leikhúsinu laugardaginn 7. janúar kl. 20.00. Meðlimir, vinir og vandamenn eru hvattir til […]

Frystiklefinn sýnir Góðir hálsar

Nýjasta atvinnuleikhúsið á Íslandi, Frystiklefinn í Rifi, tekur nú aftur upp sýningun Góðir Hálsar. Sýningin er byggð á sögu Axlar-Bjarnar og var frumsýnd í ágúst 2011. Þar sem leikarar sýningarinnar höfðu öðrum hnöppum að hneppa þá var sýningatíminn stuttur en sýningin fékk frábæra gagnrýni og góðar viðtökur áhorfenda og því var ráðistí að setja hana […]

Nýdönsk í nánd aftur á svið laugardaginn 7. janúar

Nýdönsk snýr aftur á Litla svið Borgarleikhússins á laugardagskvöld. Þessi einstaki tónleikur Nýdanskrar sló rækilega í gegn á síðasta leikári, hætti fyrir fullu húsi og snýr því aftur í takmarkaðan tíma. Alls verða fimm sýningar á verkinu, allar um helgar kl. 22. Höfundar verks og flytjendur eru meðlimir Nýdanskrar.

Gott kvöld á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur sýnir leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur um hátíðirnar. Um er að ræða barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og eru leikarar alls 22. Flestir í leikarahópnum eru á grunnskólaaldri, en reynsluboltar úr leikfélaginu taka einnig þátt í sýningunni. Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík 29. desember kl. 20.00. Aðrar sýningar […]

Jólakveðja frá Bandalaginu

Bandalag íslenskra leikfélaga sendir Bandalagsfólki, viðskiptavinum og bara öllum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári með þökkum fyrir árið sem er að líða. Athugið að lokað verður í verslunni okkar frá kl. 13.00 22. desember til 2. janúar 2012.

Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu

Hjartnæm og fjörmikil sýning um tilfinningaríka vináttu og samskipti skrímslanna vinsælu verður frumsýnd í Kúlunni 28. desember 2011. Ævintýri litla skrímslisins og stóra skrímslisins og innileg samskipti þeirra láta engan ósnortinn. Skrímslin tvö hafa eignast ótal aðdáendur en bækurnar um þau hafa komið út víðsvegar um heiminn, hlotið lofsamlega dóma og fjölda verðlauna. Ekkert lát […]

Fanný og Alexander frumsýnt 6. janúar

Fanný og Alexander hin ástsæla fjölskyldusaga Ingmars Bergmans verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á þrettándanum, 6. janúar næstkomandi. Hér er sögð saga systkinanna Fannýjar og Alexanders sem alast upp á ástríku, hlýju heimili þar til faðir þeirra fellur óvænt frá og líf þeirra umbreytist í vondan draum. Leikgerðin byggir á sjónvarpsþáttum Bergmans sem hann […]

Leikhópurinn Fullt hús sýnir Póker

Þann 5. janúar frumsýnir leikhópurinn Fullt hús leikritið Póker eftir Patrick Marber í Tjarnarbíói. Póker (Dealer’s Choice) hefur farið sigurförum um allt Bretland og Bandaríkin og unnið til margra verðlauna. T.d. Besta West End leikritið valið af samtökum leikskálda árið 1995 og var einnig valinn besti gamanleikurinn sama ár af Evening Standard. Leikstjóri er Valdimar […]

Þorri og Þura bjarga jólunum í Bæjarleikhúsinu

Álfabörnin Þorri og Þura ætla að kíkja í heimsókn í Bæjarleikhúsið í Mosfellsbæ um jólin með glænýja jólasýningu. Þorri og Þura hafa í nógu að snúast við að undirbúa jólin, pakka inn gjöfum, skreyta og skrifa jólakort þegar þau finna Kertasníki sjálfan steinrotaðan fyrir utan gluggan þeirra með gjafirnar handa öllum börnunum á Íslandi. Upp […]

Síðustu sýningar á Andakt

Jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar.Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Peðið sýnir síðustu sýningar á Andakt nú fyrir jól á sunnudaginn kemur, 18. desember kl. 16.00 og 18.00 á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46, Reykjavík.

Sá glataði æfður hjá Hugleik

Hugleikur fæst nú við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Nánar tiltekið dæmisögurnar í Nýja Testamentinu. Bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann og aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga, merkilegt nokk. Ágústa Skúladóttir sér um að þræða þessar perlur upp á band með leikhópnum sem innheldur bæði gamlar og […]

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Heimsljós

Heimsljós eftir Halldór Laxness í leikgerð Kjartans Ragnarssonar er jólafrumsýning Þjóðleikhússins 2011. Heimsljós, ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins, er heillandi verk um fegurðarþrána, veraldlega fátækt og andleg auðæfi. Verkið er nú sett á svið í nýrri leikgerð Kjartans Ragnarssonar leikstjóra, en leikgerðinni til grundvallar liggur skáldsagan í heild sinni. Frumsýnt verður 26. desember.

Hilmar Guðjónsson valinn í Shooting Star

Hilmar Guðjónsson leikari hefur verið valinn í hóp 10 efnilegustu leikara Evrópu, Shooting Star (http://www.shooting-stars.eu/) . Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn í þennan hóp (eftir að skilyrði voru sett sem takmarka fjölda útvalinna við 10 leikara í allri Evrópu). Shooting Star hópurinn kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og kynntur fyrir alþjóðlegum fagaðilum […]

Jólagjafir leikhúsáhugafólks!

vatnslitapallettur

Í verslun Bandalags íslenskra leikfélaga að Kleppsmýrarvegi 8 er hægt að kaupa frumlegar og skemmtilegar jólagjafir fyrir leikhúsáhugafólk og börn. Þar fást t.d. andlitslitir í yfir 40 litum, bæði stakir og í pallettum, gerviskegg, augnhár, gerviblóð og margt fleira spennandi. Þar fást að sjálfsögðu líka fjölmörg leikrit og ekki má gleyma sögu Bandalagsins, Allt fyrir […]

Leiklestraröðin Salon í Tjarnarbíói

porupiltar

Mánudaginn 12. og þriðjudaginn 13. desember munu Pörupiltarnir ásamt „sjúklega heitri skvísu“ leiklesa leikritið The Night before Christmas eftir Anthony Neilson í Tjarnarbíói. Þetta er liður í leiklestrarröðinni Salon þar sem íslenskir leikarar leiklesa ný og spennandi bresk verk sem ekki hafa verið sett hér á landi. Húsið opnar kl. 20 og lestur hefst kl. […]

Kynningarfundur fyrir vorverkefni Leikfélags Kópavogs

Aðalverkefni vormisseris hjá Leikfélagi Kópavogs er heimasmíðað verk sem gengið hefur undir vinnuheitinu Hringurinn. Fimmtudaginn 15. desember er komið að því að ýta því formlega úr vör með kynningarfundi í Leikhúsinu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppsetningunni mæti þá sem og aðrir félagar sem vilja fylgjast með. Kynningarfundurinn er í Leikhúsinu, […]

Ársrit Bandalagsins 2011 komið út

Út er komið Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 og er nú hægt að hala því niður hér í PDF-formati. Auk hefðbundins efnis eins og fundargerða stjórnar og aðalfunda, ársreiknings og skýrslna leikfélaga má m.a. finna umfjöllun um NEATA-hátíðina á Akureyri sumarið 2010. Mikið er af myndum í ritinu og er það hin ágætasta […]

Andakt á Gallery-Bar 46

Frá því Leikfélagið Peðið var stofnað á kránni Grand Rokk við Smiðjustíg árið 2005 hefur félagið sýnt fjölda verka, flest eftir félagsmenn og auk þess hafa félagar Peðsins samið tónlist og söngva þegar við á. Þannig er það líka að þessu sinni en jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn […]

Verkstæði jólasveinanna í Mosfellsbæ

Það er sannkallað jólafjör í jólasýningu Leikfélags Mosfellssveitar, en sunnudaginn 20. nóvember var barnaleikritið Verkstæði jólasveinanna frumsýnt í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri er Stefán Bjarnarson. Í sýningunni fylgjast áhorfendur með undirbúningi jólanna hjá jólasveinunum á verkstæði jólasveinanna. Verkstæði jólasveinanna kom út árið 1973 og er upphaflega útvarpsleikrit eftir Thorbjörn Egner en þær Agnes Þorkelsdóttir Wild og María […]

SL-hópar með 217 þúsund áhorfendur á síðasta leikári

Heildaráhorfendafjöldi sjálfstæðra dans, og atvinnuleikahópa á síðasta leikári var rúmlega 217 þúsund áhorfendur innanlands og erlendis en alls voru sýndar 104 uppfærslur á vegum þessara hópa á þessu tímabili. Það er 20% auking milli ára sem verður að teljast framúrskarandi árangur á þeim miklu samdráttar tímum sem eiga sér stað í öðrum starfsgreinum á Íslandi. […]

Ein aukasýning á Saknað

Eftir frábærar viðtökur á Saknað eftir Jón Gunnar Þórðarson hafa Leikfélag Akureyrar og Silfurtungið ákveðið að bæta við  einni aukasýningu á verkinu laugardaginn 3.desember klukkan 19.00. 10 ár eru liðin frá hvarfi Önnu Taylor. Fjölskyldan lifir enn í þeirri von að einn daginn muni Anna koma heim. Líf þeirra stendur í stað, en skyndilega kemur […]

Borgarbörn frumsýna Óværuenglana í Iðnó

Þann 1. desember frumsýna Borgarbörn nýtt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna í Iðnó. Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Óværuenglarnir. Er þetta sjötta árið í röð sem Borgarbörn setja um jólasýningu. Höfundur og leikstjóri er Erla Ruth Harðardóttir. Sýningin er um klukkustund í flutningi.

Nemendaleikhúsið sýnir Jarðskjálfta í London

Föstudaginn 2. desember næstkomandi frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands verkið Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í Smiðjunni, Leikhúsi Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13. Verkið er nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í þýðingu Heiðars Sumarliðasonar og leikstjórn Halldórs E. Laxness. Í þessari mögnuðu rússíbanaferð þeytumst við um í tíma og rúmi frá 1968 til […]