Revíukvöld á Melum

Föstudagskvöldið 28. mars kl. 20.30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Reyttar fjaðrir frá árinu 1985 á Melum.Hvað gerðist í sveitinni á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar? Manstu eftir kvenfélagsfundinum?Gómsætt vöfflukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn varning.
Tjarnarbíó kynnir Útundan

Tjarnarbíó frumsýnir leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn í uppsetningu Háaloftsins fimmtudaginn 10. apríl nk. Áhrifamikið og nærgöngult leikrit um sársaukann, örvæntinguna og vonina þegar það eðlilegasta og náttúrlegasta af öllu í lífinu er orðið heitasta óskin, fjarlægur draumur, takmark sem kannski mun aldrei nást.
Skálmöld – Tónleikar & trúðar

Þungarokkararnir í Skálmöld ætla að henda leikmyndunum út af Stóra sviði Borgarleikhússins, rífa gat á búninginn hjá leikurunum og hækka í Marshallmögnurunum. Skálmöld og listafólk Borgarleikhússins taka höndum saman og magna upp norrænan seið með vænum skammti af þungarokki maríneruðum í leikhúsinu. Sagan er Baldur, sem Skálmöld rakti svo listilega á samnefndum diski sveitarinnar og […]
Furðulegt háttalag hönnuða

Í dag, mánudaginn 24. mars kl. 16-18 verður opnun sýningar í forsal Borgarleikhússins þar sem fjórtán grafískir hönnuðir sýna sína eigin útgáfu af plakati fyrir leikritið Furðulegt háttalag hunds um nótt sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu í mars. Fjórtán listamenn voru valdir og fengu þeir bókina Furðulegt háttalag hunds um nótt til að lesa og […]
Opnunarhátíð nýs Tjarnarbíós

29. mars næstkomandi heldur Tjarnarbíó, í samvinnu við Vinnsluna, glæsilega opnunarhátíð, þar sem listamenn munu sýna verk í hverju rými hússins, en þetta gamla leikhús leynir sko á sér! Hátíðin hefst kl. 19.00 en húsið opnar kl. 18.30. Tjarnarbíó er ekki bara lítið leikhús við Tjörnina, heldur lifandi vettvangur sköpunar og miðstöð allra listforma, þar […]
Dagbókin hans Dadda á Blönduósi

Leikfélag Blönduóss frumsýnir leikritið Dagbókin hans Dadda föstudaginn 28.mars kl. 20.00 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Höfundur verksins er Sue Townsend og þýðandi Guðný Halldórsdóttir. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og er þetta í fyrsta skipti sem hann leikstýrir hjá félaginu.
Líf mitt í kassanum, frumsýning föstudag

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir nýtt íslenskt gamanleikrit sem nefnist Líf mitt í kassanum föstudaginn 21. mars klukkan 20:00. Leikstjóri verksins er Jóel Sæmundsson og höfundur er Hrafnkell Stefánsson, sem meðal annars er handritshöfundur bíómyndanna Kurteist fólk og Borgríki 1 og 2. Leikfélagið hefur áður sýnt verk eftir þennan höfund en það var gamanleikritið Í beinni árið […]
Alþjóðlegur leikhúsdagur barna 20.3. 2014

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna er í dag. Markmiðið með deginum er að kynna börn fyrir leikhúsinu og vekja þá fullorðnu til umhugsunar um að gera gott leikhús fyrir börn. Yfirskrift dagsins er „Förum með börnin í leikhús svo þau sjái, heyri, finni, hugsi og noti ímyndunaraflið“.
Ferjan frumsýnd á föstudaginn

Föstudaginn 21. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Ferjuna á Litla sviðinu, glænýtt íslenskt verk eftir einn ástsælasta höfund þjóðarinnar Kristínu Marju Baldursdóttur. Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman heim til Íslands í ryðguðum dalli. Þá hefst baráttan fyrir því að finna leiðina heim, hið […]
Nýjar og spennandi vörur hjá Bandalaginu

Vorum að taka upp sendingu frá hinu virta leikhúsförðunarmerki Kryolan í Þýskalandi. Mikið úrval af Supracolor kremfarða, ný og flott handhnýtt hökuskegg, ný tegund af vaxi í þremur stærðum, ný tegund af gerfiblóði, Artex tveggja þátta silikonefni fyrir þrívíddar gerfi, verkfæri og fleira. Opið að Kleppsmýrarvegi 8 alla virka daga frá kl. 9.00-13.00.
Aladdín aftur á Brúðuloftinu

Næstkomandi laugardag, 22. mars mætir Aladdín aftur galvaskur ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri furðufuglum á Brúðuloftið í Þjóðleikhúsinu til að skemmta fólki frá 5 ára upp í 105 ára. Hætta þurfti sýningum fyrir jól fyrir fullu húsi og nú fá þeir sem misstu af sýningunni í haust tækifæri til að berja þennan undraheim augum. […]
Frábær kvöldskemmtun í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söng- og gamanleikinn Stöngin inn í Lyngbrekku föstudaginn 14. mars sl. við gríðargóðar undirtektir áhorfenda sem fylltu salinn og skemmtu sér konunglega.Stöngin inn er bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson leikara. Stöngin inn var frumsýnd í fyrsta sinn fyrir ári hjá sameiginlegu leikfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og hlaut á síðasta ári […]
Pörupiltar á kafi í kynlífi

Sunnudaginn 23. mars hefja Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið almennar kvöldsýningar á Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana. Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga […]
Aukasýningar á Stóru börnunum

Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frumsýnt var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagnrýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Fjórum aukasýningum hefur verið bætt við, nánar tiltekið 20., 21., 22. og 23. mars.
Alþjóðlegur leiklistarskóli í London

Breski leiklistarháskólinn Rose Bruford mun vera með inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. apríl næst komandi. Nánari upplýsingar og skráning eru með tölvupósti: international@bruford.ac.uk eða í síma: + 44 20 8308 2638. Námið hefst í október 2014. Skólinn var árið 2013 valin besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemanda.
Horn á höfði í síðasta sinn

Leiksýningin Horn á höfði hefur nú verið sýnd um 80 sinnum frá árinu 2009 á fjórum stöðum. Upphaflega byrjaði ævintýrið í 120 fermetra bakherbergi pítsastaðarins Mamma Mía í Grindavík. Sama leikár vann sýningin Grímuverðlaun sem besta barnasýningin og samdi í framhaldi við Borgarleikhúsið um að fara þar á fjalirnar haustið 2010. Í millitíðinni hélt leikhópurinn […]
Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir Hið vikulega

Næstkomandi laugardag, þann 15. mars, mun Leikfélag Hafnarfjarðar hrinda af stað vorverkefni sínu. Það ber hið virðulega heiti Hið Vikulega, þar sem æfð verða upp og sýnd nokkur stuttverk í hverri viku í fjórar vikur alls, sjö til tíu verk í hvert sinn. Félagar í Höfundasmiðju leikfélagsins situr sveitt þessa dagana við að skrifa verkin […]
Tilkynning frá Leikfélagi Fjallabyggðar

Sýningum Leikfélags Fjallabyggðar á leikverkinu Brúðkaup hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Leikfélag Fjallabyggðar
Leikfélag Hofsóss æfir Blúndur og blásýru

Æfingar eru nú í fullum gangi hjá Leikfélagi Hofsóss á bandaríska gamanleiknum Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Höfðaborg og verður frumsýning þann 4. apríl. Alls taka 11 leikendur þátt í sýningunni og leikstjóri er Ármann Guðmundsson.
Uppsprettan N°2 auglýsir eftir handritum

Uppsprettan N°2 er að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar.
Líf mitt í kassanum, frumsýning föstudag

Föstudaginn 14. mars mun Leikfélag Mosfellssveitar frumsýna nýtt gamanleikrit sem nefnist Líf mitt í kassanum. Leikstjóri verksins er Jóel Sæmundsson og höfundur er Hrafnkell Stefánsson, sem meðal annars er handritshöfundur bíómyndanna Kurteist fólk og Borgríki 1 og 2.
Ferjan í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 21. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Ferjuna á Litla sviðinu, glænýtt íslenskt verk eftir einn ástsælasta höfund þjóðarinnar Kristínu Marju Baldursdóttur. Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman heim til Íslands í ryðguðum dalli. Þá hefst baráttan fyrir því að finna leiðina heim, hið […]
Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Brúðkaup

Leikfélag Fjallabyggðar, sem til varð við sameiningu leikfélaganna á Siglufirði og Ólafsfirði, æfir nú nýtt leikrit, Brúðkaup, eftir Guðmund Ólafsson, sem jafnframt er leikstjóri. Verkið fjallar, eins og titillinn bendir til, um brúðkaup. Herdís Eva er loksins gengin út og ætlar að ganga að eiga hann Bjarna Þór, sem er traustur starfsmaður Heimilistækja.
Harmsaga á svið í Kennedy Center

Sýning Þjóðleikhússins á Harmsögu eftir Mikael Torfason verður sýnd í Kennedy Center helgina 15. og 16. mars. Sýningin var valin til að taka þátt í stórri alþjóðlegri leiklistarhátíð, World Stages. Viðburðir á hátíðinni koma frá 20 löndum, en meðal þeirra sem taka þátt eru ýmsir af fremstu leikhúslistamönnum heims. Má þar nefna leikstjórann Peter Brook, […]
Mjallhvít og dvergarnir 7 í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir gamla góða ævintýrið um Mjallhvíti og dvergana sjö í nýrri leikgerð Hafsteins Þórs Auðunssonar föstudaginn 14. mars nk. í Leikhúsinu, Austurmörk 23. Hafsteinn er einnig leikstjóri og höfundur tónlistar sem útsett er af Guðmundi Eiríkssyni, píanóleikara sýningarinnar.
Umf. Reykdæla frumsýnir á föstudaginn

Undanfarnar vikur hafa félagar í Umf. Reykdæla í Borgarfirði æft revíuna Ert´ekk´að djóka (elskan mín)? eftir Bjartmar Hannesson kúabónda og söngvaskáld frá Norðurreykjum í Hálsasveit. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Revían gerist að miklu leyti á ferðaþjónustubænum Efri-Bæ, þar sem sjaldnast er einhver lognmolla. Einnig er litið við í fjósinu á Neðri-Bæ þar sem eftirlitsmaður frá […]
Aukasýning á Þremur systrum

Aukasýning verður á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 8 mars. Sýningin hefur fengið afar góða dóma, m.a. af Lárusi Vilhjálmssyni hér á Leiklistarvefnum sem gaf sýningunni fjórar stjörnur. Hægt er að kaup miða á midakaup.is/kopleik eða með því að senda póst á midasala@kopleik.is. Nánari upplýsingar um sýninguna má fá á vef Leikfélags Kópavogs.
Siðustu sýningar á Sambýlingum

Síðustu sýningar á Sambýlingunum í uppsetningu Halaleikhópsins verða sýndar sunnudagana 2. og 9. mars kl. 17.00. Verkið, sem er senn átakamikið og grátbroslegt, hefur fengið góðar viðtökur svo ekki láta það framhjá þér fara. Leikstjóri og þýðandi er Oddur Bjarni Þorkelsson en verkið er eftir Tom Griffin.
Kristín Eysteinsdóttir ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur, Borgarleikhúsinu, hefur ákveðið að ráða Kristínu Eysteinsdóttur leikstjóra sem næsta leikhússtjóra Borgarleikhússins. Umsóknir um starfið voru á annan tug og eftir vandað ráðningarferli ákvað stjórn LR einróma að ráða Kristínu Eysteinsdóttur sem næsta leikhússtjóra.
Furðulegt háttalag hunds um nótt

Laugardaginn 8. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Furðulegt háttalag hunds um nótt á Stóra sviðinu. Verkið hefur slegið rækilega í gegn á West End, var ótvíræður sigurvegari sviðslistaverðlauna Breta, Olivier Awards, á síðasta ári hlaut sýningin alls sjö verðlaun, m.a. sem besta sýningin og besta leikritið. Engin sýning hefur áður hlotið fleiri verðlaun á hátíðinni. Hilmar Jónsson […]
Lína Langsokkur á Þingeyri

Það er mikið líf og fjör í Dýrafirði þessa dagana. Þar hafa staðið yfir æfingar á einu vinsælasta barnaleikriti allra tíma Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren. Lokaspretturinn stendur nú yfir og allt að verða tilbúið á Sjónarhóli. Lína Langsokkur verður frumsýnd laugardaginn 8. mars kl. 14 í félagsheimilinu á Þingeyri.
Síðustu sýningar á Þremur systrum

Síðustu sýningar á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar hjá Leikfélagi Kópavogs verða nú um helgina. Sýningin sem var frumsýnd 31. janúar síðastliðinn hefur fengið mikið lof enda afar metnaðarfull uppsetning á þessu klassíska verki. Lárus Vilhjálmsson sagði m.a. í gagnrýni sinni: „… frábært afrek og gott dæmi um vel heppnað samstarf […]
Tumi Tímalausi í Álfheimum

Leikhópurinn Grímurnar á Akureyri setur upp á stóra sviðinu í Hofi á Akureyri þann 23. mars nk., nýjan barnasöngleik með tónlistinni af vísnaplötum Gunnars Þórðarsonar, Einu sinni var og Út um græna grundu. Höfundar eru Pétur Guðjónsson og Jóhanna G Birnudóttir sem skrifað hafa tvö önnur leikrit sem sett hafa verið upp á Akureyri.
Stóru börnin snúa aftur, aukasýningar á Lúkasi

Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frumsýnd var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagnrýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Þremur aukasýningum hefur verið bætt við, nánar tiltekið 20., 21. og 22. mars. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda og var meðal annars valin leiksýning haustsins af Símoni […]
Í Davíðshúsi verða raddir á sveimi

Laugardagínn 1. mars næstkomandi er fimmtíu ára ártíð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Þá verður útvarpsleikritið Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánssonar frumflutt að heimili Davíðs á Bjarkarstíg 6 á Akureyri. Í verkinu heimsækja Árni píanóleikari og Páll tónskáld Davíð til að fagna Gullna hliðinu, nýskrifuðu leikriti eftir skáldið. Þeir óttast að Davíð taki ekki vel í […]
Fullkomið brúðkaup á Dalvík

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur orðið að hætta við fyrirhugaða uppsetningu á leikritinu Þið munið hann Jörund, hjá Leikfélagi Dalvíkur. Kristján Guðmundsson formaður LD, segir að ýmsir þættir hafi spilað þar inní sem ekki verð raktir nánar hér. Kristján segist vonast til að hægt verði að setja verkið upp í nánustu framtíð. Þess í stað eru […]
Frítt fyrir börnin

Í tilefni af vetrarfríi í Reykjavík hefur Íslenski Dansflokkurinn ákveðið að bjóða börnum yngri en 13 ára frítt í fylgd fullorðna á sýninguna Þríleik á Stóra sviði Borgarleikhússins sunnudaginn 23.febrúar kl 20. Þríleikur samanstendur af dansverkunum Tilbrigði, FARANGUR og Berserkir.
Anna á Stóru-Borg í fyrsta sinn á fjalirnar

Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir frumsamda leikgerð eftir skáldsögu Jóns Trausta um Austur-Eyfellinginn Önnu Vigfúsdóttur í Stóru-Borg. Margrét Tryggvadóttir leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar leikgerðina og leikstjóri er Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur eru á þriðja tug. Sýningar verða í félagsheimilinu Heimalandi undir fjöllunum. Frumsýning er fyrirhuguð í byrjun apríl.
Dansaðu fyrir mig í Tjarnarbíói

Dansaðu fyrir mig, dansverk eftir Brogan Davison og Pétur Ármannsson, frumsýnt í Tjarnarbíó fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00. Verkið hefur áður verið sýnt í Hofi á Akureyri fyrir fullu húsi og á leiklistarhátíðinni Lókal í ágúst á síðasta ári, en nú í febrúar og mars fá höfuðborgarbúar tækifæri til að sjá sýninguna. Uppselt er á […]
Fyrirgefðu ehf. í Tjarnarbíói

Tjarnarbíó frumsýnir nýtt, íslenskt leikverk, Fyrirgefðu ehf. föstudaginn 14. febrúar. Höfundurinn og leikstjórinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Málamyndahópurinn bjóða í ferðalag með Evu og félögum hennar hjá Fyrirgefðu ehf. þar sem fyrirgefningin er skoðuð ofan í kjölinn. Hvaða þýðingu hefur fyrirgefningin raunverulega? Er alltaf rétt að fyrirgefa? Eða er sumt ófyrirgefanlegt? Fyrirgefum við eingöngu í […]